Morgunblaðið - 03.02.1998, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998
BADMINTON
MORGUNBLAÐIÐ
Sveinn
Úrslitaleikur kvenna:
Gangur leiksins:
1:0, 2:3, 3:5, 5:5, 7:7, 7:9, 8:10,
10:10, 12:10
0:3, 3:3, 7:3, 7:7, 9:7, 10:9, 10:10,
10:12.
1:0, 2:4, 3:4, 4:4, 5:4, 11:4.
Jnúkr
FOLK
■ INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri afhenti verðlaunin í
einliðaleik karla og kvenna á ís-
landsmótinu í badminton um helg-
ina.
I SIV Friðleifsdóttir alþingismað-
ur afhenti einnig verðlaun á mót-
inu. Hún á ekki langt að sækja
badmintonáhugann; Friðleifur
Stefánsson, faðir hennar, er marg-
faldur meistari í íþróttinni.
■ TRYGGVI Nielsen, íslands-
meistari síðustu tveggja ára, náði
ekki að veija titilinn að þessu
sinni. Hann tapaði fyrir Sveini
Sölvasyni í undanúrslitum.
■ ÞRJÁR íslenskar badminton-
konur æfa í Danmörku og komu
þær gagngert til að taka þátt í ís-
landsmótinu. Þær eru Erla Haf-
steinsdóttir, Vigdís Ásgeirsdóttir,
Islandsmeistari í fyrra sem varð
einnig meistari í tvíliðaleik nú
ásamt :Elsu Nielsen, og Erla Haf-
steinsdóttir, sem varð meistari í
tvenndarleik ásamt Árna Þór
Hallgrímssyni.
■ ÞORSTEINN Páll Hængsson,
sem varð Islandsmeistari 1987 og
1994, býr í Danmörku og spilar í
dönsku deildarkeppninni.
■ ÁRNI Þór Hallgrímsson hefur
verið sigursæll í tvíliða- og tvennd-
arleik en aðeins einu sinni náð að
vera meistari í einliðaleik, árið
1991. Hann hefur sex sinnum orðið
meistari í tvenndarleik, en náði í
fyrsta sinn að verja titil sinn í
þeirri grein um helgina.
■ ÍSLANDSMEISTARAR 17 síð-
ustu ára voru meðal þátttakenda í
einliðaleik í meistaraflokki karla.
Þeir eru: Broddi, Þorsteinn Páll
Hængsson, Guðmundur Adolfs-
son, Árni Þór Hallgrímsson og
Tryggvi Nielsen.
■ BRODDI og Elsa eru efst í
stigakeppni Badmintonsambands-
ins eftir mót vetrarins. Broddi er
með 600 stig og Elsa 700 stig þeg-
ar tvö stigamót eru eftir. Stiga-
hæstu einstaklingarnir í vor fá í
verðlaun flugmiða fyrir tvo til Evr-
ópu með Flugleiðum.
■ MAGNÚS I. Helgason sigraði í
einliðaleik karla í A-flokki, vann
Helga Jóhannesson 15-7, 17-18 og
15-11 í úrslitum. Ragna Ingólfs-
dóttir sigraði í einliðaleik kvenna í
sama flokki. Hún átti að leika við
Evu Petersen en hún meiddist og
gaf leikinn.
■ HARALDUR Kornelíusson, sem
varð Islandsmeistari fimm ár í röð
1991-1995, sigraði í tvíliðaleik
karla í A-flokki ásamt Víði Braga-
syni. Þeir unnu Jóhannes Helga-
son og Gunnar Bjömsson í úrslit-
um, 15-12, 9-15 og 17-14.
■ ODDNÝ Hróbjartsdóttir og
írena Óskarsdóttir sigruðu í tví-
liðaleik kvenna í A-flokki. Þær
unnu Ingu Kjartansdóttur og
Kristínu B. Krisljánsdóttur í úr-
slitum, 15-11 og 17-16.
■ INGÓLFUR Ingólfsson og
Ragna Ingólfsdóttir sigruðu í
tvenndarleik í A-flokki. Þau unnu
Gunnar Björnsson og Hrand Guð-
mundsdóttur í úrslitum, 15-4 og
15-11.
Guðmundi Adolfssyni
Hængssyni í einliðaleik
meistaratitlar hjá Brodda Kristjánssyni
T
/
Hængssyni h
' * í undanúrslitum í
I einliðaleik I tvenndarieik Itvíliðaleik í einiiðaleik í
Hallgrímssyni í einliðaleik
Hængssyni í einliðaleik
Gömlu meistarai
stigu aftur á sv
Broddi og Elsa urðu tvöfaldir meistarar
Gömlu meistararnir eru enn bestir í bad-
minton hér á landi. Valur B. Jónatansson
fylgdist með Islandsmótinu og sá nánast
endurtekningu frá mótinu fyrir þremur ár-
um því Broddi Kristjánsson og Elsa Niel-
sen urðu tvöfaldir meistarar nú eins og ár-
hörku og jafnaði, 7:7. Elsa náði síð-
an lykilstöðu er hún komst í 10:9 og
þurfti því aðeins eitt stig til að sigra.
En það lét á sér standa og Brynja
nýtti sér það og vann lotuna, 10:12.
Elsa tók síðan völdin í oddalotunni
og vann nokkuð sannfærandi, 11:4,
og titilinn var hennar. Leikur
stúlknanna stóð yfir í 44 mínútur.
Fyrsta oddalotan
ið 1995 og Broddi og Árni Þór Hallgríms-
son sigruðu í tvíliðaleik áttunda árið í röð.
Iroddi Kristjánsson og Elsa Ni-
úlsen, gömlu meistararnir, stálu
senunni á Islandsmótinu í badmint-
on sem fram fór í TBR-húsinu um
helgina. Þau urðu bæði tvöfaldir
meistarar, í einliða- og tvíliðaleik.
Broddi og Árni Þór Hallgrímsson
unnu tvíliðaleikinn í áttunda sinn í
röð! Meistarar síðustu tveggja ára í
einliðaleik, Tryggvi Nielsen og Vig-
dís Ásgeirsdóttir, féllu bæði út í
undanúrslitum.
Öruggt hjá Brodda
Broddi, sem hefur verið konung-
ur badmintonsins hér landi í 18 ár,
hafði mikla yfirburði í úrslitum ein-
liðaleiksins. Hann lék á móti Sveini
Sölvasyni sem vann Tryggva Niel-
sen íslandsmeistara síðustu tveggja
ára óvænt í undanúrslitum. Broddi
tók leikinn strax í sínar hendur og
komst í 4:0, áður en Sveinn gerði
fyrsta stigið sitt. Eftir það átti
Sveinn aldrei möguleika þó svo að
hann hafi sýnt skemmtileg tilþrif á
köflum. Fyrri lotan endaði 15:3. Síð-
ari lotan var aðeins jafnari og þá
komst Sveinn yfir, 2:3, en eftir að
Broddi komst í 10:5 voru úrslitin
ráðin og lokatölur 15:6. Leikur
þeirra stóð yfir í 36 mínútur.
sig of oft í stutta spilið í stað þess að
reyna að halda mér frá netinu.
Leikurinn var auðveldur fyrir mig,
einn sá auðveldasti hingað til,“
sagði Broddi.
Sveinn sagðist ánægður með að
hafa náð að komast í úrslit en að
svolítil þreyta hefði setið í sér eftir
undanúrslitaleikinn við Tryggva
fyrr um morguninn. „Eg bjóst ekki
við að komast svona langt. En nú
hef ég fengið smjörþefinn af Is-
landsmeistaratitlinum og næsta
markmið verður að ná í hann.
Broddi er ótrúlega klókur leikmað-
ur og býr yfír mikilli reynslu. Hann
nýtti sér hana með yfirveguðum
leik,“ sagði Sveinn og bætti við að
sigurleikur hans á móti Tryggva í
undanúrslitum hefði verið besti
leikur hans frá upphafi.
Elsa sagði gaman að vera komin
á efsta þrep aftur eftir tveggja ára
hlé. „Ég átti dreng fyrir sjö mánuð-
um og það hlýtur að teljast gott að
vinna Islandsmeistaratitilinn núna.
Þetta var spennandi úrslitaleikur og
þetta er í fyrsta sinn sem ég þarf
oddaleik til að sigra í einliðaleik. Ég
stefndi að sigri og það tókst. En ég
þurfti svo sannar-
lega að hafa fyrir
honum,“ sagði Elsa.
Brynja var ekki
alveg sátt við að
tapa úrslitaleiknum
því hún átti góða
möguleika. „Ég átti
að vinna fyrstu lot-
Broddi -
Urslitaleikur kar
Gangur leiksins:
4:0,4:1,5:2,8:2, S
0:1, 2:2, 2:3, 6:5, 1
una en kannski var það reynslan
sem hún hafði fram yfir mig. Nú hef
ég leikið tvisvar í röð til úrslita og
tek því stefnuna á að vinna titilinn
næsta ár. Ég kem þá reynslunni
ríkari til leiks,“ sagði Brynja.
Áttunda árið í röð
Spenna hjá konunum
Einn sá auðveldasti
Broddi náði að skora mörg stig
með stuttu netspili. Hann náði að
láta Svein falla í sömu gryfjuna
hvað eftir annað uppi við netið. „Ég
þekki Svein vel og leikstíl hans. Ég
leyni því ekki að hann lét mig plata
Úrslitaleikur Elsu Nielsen og
Brynju Pétursdóttir í einliðaleik
kvenna var æsispennandi og þurfti
oddalotu til að knýja fram úrslit.
Brynja byrjaði vel í fyrstu lotunni
og komst í 2:5, en Elsa náði með
harðfylgi að jafna, 5:5, og aftur var
jafnt, 7:7. Þá tók Brynja vel við sér
og skoraði mörg góð stig og komst í
8:10 og virtist hafa leikinn í hendi
sér. En Elsa sýndi mikið keppnis-
skap og jafnaði, 10:10. Brynja lét
hækka um tvö stig og Elsa vann þau
bæði og lokastaðan varð 12:10.
Onnur lotan var jafn spennandi og
sú fyrsta. Elsa byrjaði betur og
komst í 7:3 en Brynja sýndi mikla
Broddi og Árni Þór Hallgrímsson
hafa haft mikla yfirburði í tvíliðaleik
karla undanfarin ár og það var eng-
in breyting þar á að
þessu sinni. Þeir
mættu Tryggva Niel-
sen og Nirði Lu-
dvigssyni í úrslitum
og unnu sannfær-
andi, 15:6 og 15:6.
Samæfing Brodda
og Árna Þórs er góð
enda búnir að spila
saman í tíu ár og
þekkja hvor annan
vel.
Sjö mánuðir frá barnsburði
ELSA Nielsen eignaðist strák fyrir sjö mánuðum en varð samt tvöfaldur íslandsmeistari í badminton um
helgina. Hún sigraði í einliðaieik f sjötta sinn og í tvfliðaleik f fimmta sinn. Hún er nú 23 ára og stefnir að
þátttöku í þriðju Ólympfuleikum sínum eftir tvö ár - í Sydney f Ástralíu. Hún varð fyrst íslandsmeistari í ein-
iiðaleik 1991 og vann þá fímm ár í röð. Vigdís Ásgeirsdóttir varð meistari 1996 og 1997.
Var ekki erfitt að byrja aftur eftir barnsburðinn? „Nei, það var aðeins erfitt fyrst meðan ég var að ná af
mór nokkrum aukakílóum. Ég hef æft aðejns tvisvar í viku vegna þess að ég þarf að sinna stráknum mfnum
líka. Ég er í góðri æfingu miðað við það. Ég er ekki frá því að ég njóti þess meira að spila badminton núna.
Ég er aðeins 23 ára og á enn mikið eftir í badmintoninu. Ég er farin að gæla við að reyna aö komast á næstu
Ólympíuleika," sagði Elsa.
I tvíliðaleik kvenna léku Elsa Niel-
sen og Vigdís Ásgeirsdóttir til úr-
slita við ungu stúlkurnar Önnu L.
Sigurðardóttur og Söru Jónsdóttur.
Sama var upp á teningnum í þess-
um tvíliðaleik því Elsa og Vigdís
höfðu mikla yfirburði og unnu 15-4
og 15-3. Elsa vann þar með tvíliða-
leikinn fimmta árið í röð og Vigdís
fjórða árið í röð.
Árni Þór Hallgrímsson og Drífa
Harðardóttir urðu í sameiningu í
fyrsta sinn Islandsmeistarar í
tvenndarleik. Þau báru sigurorð af
Þorsteini Páli Hængssyni og Erlu
Hafsteinsdóttur í úrslitum, 15-3 og
15-8. Árni Þór var einnig íslands-
meistari í fyrra, en þá með Vigdísi
Ásgeirsdóttur.