Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 12
TENNIS Reuters TÉKKINN Petr Korda smellir kossi á sigurlaunin á opna ástralska meistaramótinu. Hann hefur verið atvinnumaður í ellefu ár, velti því fyrir sér að hætta fyrir þremur árum vegna meiðsla, en sér ekki eftir því nú að hafa haldið áfram. Martina Hingis varði titil sinn á opna ástralska meistaramótinu Korda sigraði loks eftir 11 ára baráftu Hertha byrjaöi vel EYJÓLFUR Sverrisson og samherjar í Hertha byrjuðu vel í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu að loknu vetrarfm, unnu Wolfsburg 1:0 í Berlín. Andreas Thom, sem lék fyrsta deildarleikinn með félaginu, gerði sigurmark Hert.ha þegar á 2. mi'nútu og Eyjðlfur var nálægt því að bæta öðru marki við tveimur minútum síðar. „Þetta var ágætis skalli hjá mér en varaarmaður náði að bjarga á línu,“ sagði Eyjólfur við Morgunblaðið. KNATTSPYRNA Owen yngsti landsliðs- maður Englands? GLENN Hoddle, landsliðsþjálfari Englands, valdi í gær leikmannahóp- inn fyrir vináttuleikinn á móti Chile sem fram fer á Wembley-Ieikvangin- um á miðvikudaginn í næstu viku. Táningurinn Michael Owen, fram- herji Liverpool, er nú í hópnum í fyrsta skipti og þá var Dion Dublin, leikmaðurinn fjölhæfí hjá Coventry, einnig valinn en hann hefur aldrei verið í landsliðshópnum. Owen gæti orðið yngsti leikmaður enska landsliðsins á þessari öld ef hann fær að spila. Hann verður 18 ára og 59 daga gamall þegar leikurinn fer fram, 124 dögum yngri en Duncan Edwards, leikmaður Manchester United, var er hann lék fyrir England á móti Skotum 1955. Edwards var einn þeirra leikmanna United sem lést í flugslysinu í Múnchen 1958. Owen lék fyrsta leik sinn með aðalliði Liverpool í maí í fyrra - kom þá inná sem varamaður á móti Wimbledon og var búinn að skora sjö mínútum síðar. Hann hefur gert 12 mörk í 30 leikjum og hefur haldið þýska landsliðsmann- inum Karlheinz Riedle utan byrjunar- liðsins í vetur. Hins vegar er ekki pláss fyrir Robbie Fowler í landsliðshópi Hodd- les, en hann skoraði í síðasta lands- leik, gegn Kamerún í nóvember. „Hann er ekki í góðri æfingu um þessar mundir og hefur ekki náð að skora eins og áður. Hann þarf ekki að sanna neitt fyrir mér og nú er heppilegt að gefa öðrum tækifæri," sagði Hoddle. Ian Wright, framherji Arsenal, er heldur ekki í hópnum en hann hefur verið meiddur. Alan PETR Korda náði loks tak- marki sínu um helgina er hann sigraði í einliðaleik á opna ástralska meistaramótinu í tennis. Fyrir mótið hafði þessi þrítugi Tékki aldrei sigrað í einu af fjórum stóru mótunum í þau ellefu ár sem hann hefur verið atvinnumaður. Martina Hingis, 17 ára frá Sviss, varði titilinn í kvennaflokki. Korda var í sjöunda himni eftir sigurinn enda lengi búinn að bíða eftir stóru stundinni. Hann var öryggið uppmálað í úrslitaleiknum á sunnudag og vann Marcelo Rios frá Chile sannfærandi, 6-2, 6-2 og 6-2 og stóð leikurinn yfir í aðeins 85 mínútur. „Þetta hefur verið löng og ^ ströng ganga; ellefu ára þrauta- ganga. Eg er mjög ánægður með frammistöðuna," sagði Korda sem fékk um 45 milljónir króna í sigur- laun. Sigurinn var enn sætari fyrir Tékkann vegna þess að hann var al- varlega að hugsa um að hætta fyrir þremur árum vegna þrálátra meiðsla. „Ég er ánægður með að hafa ekki hætt því það er frábær til- finning að sigra á svona móti og ég hefði ekki viljað missa af því. Ég mun sjá til eftir þetta ár hvort rétti tíminn sé kominn til að leggja tenn- isspaðann á hilluna," sagði hann. „Ég var mjög taugaóstyrkur fyrir úrslitaleikinn og gat ekki einu sinni borðað. En þegar út í leikinn var komið fann ég ekki fyrir tauga- spennu.“ Rios, sem er fyrrverandi heims- meistari unglinga, sagði að tauga- spennan hefði verið mikil og hún hefði sett sig út af laginu. „Eg var líka þreyttur og gerði mistök sem ég er ekki vanur að gera,“ sagði Rios sem er 22 ára frá Santiago. „Hann er níu árum eldri en ég og er á síðasta snúningi. Minn tími mun koma.“ Hingis varði titilinn Martina Hingis frá Sviss varði titil sinn í kvennaflokki er hún sigr- aði Conchitu Martinez frá Spáni í úrslitaleik 6-3 og 6-3 á laugardag. Leikurinn stóð yfir í 84 mínútur og var sigur svissnesku stúlkunnar mjög sannfærandi. „Það er mun erfiðara að verja tit- ilinn en að vinna hann í fyrsta sinn. Það bjóst enginn við neinu af mér í fyrra,“ sagði Hingis sem er aðeins 17 ára og er í efsta sæti heimslist- ans. „Það var mun meira álag á mér núna en í fyrra og það er því ánægjulegt að hafa staðist það. Ég get ekki annað en verið stolt af sjálfri mér,“ sagði hún eftir að hafa tekið við sigurlaununum upp á 28 milljónir króna. í fyrra vann hún frönsku stúlkuna Mary Pierce 6-2 og 6-2 í úrslitum mótins. Hingis lék Martinez, Wimbledon- meistara frá 1994, nokkuð grátt og lét hana hlaupa út um allan völl. Hún var öryggið uppmálað og er yngst kvenna til að verja titil sinn á stórmóti síðan Monica Seles gerði það 1991. Ekki nóg með að hún hirti titilinn í einliðaleik heldur vann hún einnig í tvíliðaleik ásamt Mirjana Lucic frá Króatíu á fóstudag. Móðir Hingis, Melanie Molitor sem er jafnframt þjálfari hennar og umboðsmaður, fagnaði sigri dóttur sinnar það mikið í fyrra að hún féll niður úr áhorfendastúkunni og á völlinn og skrámaðist. „Hún var bú- in að lofa mér því, ef mér tækist að vinna, að gera það ekki aftur," sagði Hingis. Martinez, sem er 25 ára, sagði að Hingis hefði leikið vel og ekki gert mörg mistök. „Hún lék af skynsemi og ég náði aldrei að sækja verulega. Hún sýndi að hún er best. Mér tókst ekki alveg nógu vel upp og því fór sem fór,“ sagði Martinez. Björkman og Eltingh unnu í tvíliðaleik Jonas Björkman frá Svíþjóð og Hollendingurinn Jacco Éltingh sigruðu í tvíliðaleik karla, unnu Ástralana Todd Woodbridge og og Mark Woodforde, sem unnu í fyrra, 6-2, 5-7,2-6, 6-4 og 6-3 í hörkuleik. Þetta var í fyrsta sinn sem Björk- man og Eltingh leika saman og því er árangur þeirra enn eftirtektar- verðari. Shearer, sem nýlega er farinn að leika aftur með Newcastle eftir meiðsli, er kominn aftur í hópinn. Þar sem David Seaman, markvörður Ar- senal, er meiddur hefur Hoddle valið Tim Flowers markvörð Blaekburn. Landshðshópurinn er þannig skip- aður: Markverðir: Tim Flowers (Blackburn Rovers) og Nigel Martyn (Leeds United). Varnarmenn: Tony Adams (Arsenal), Gareth Southgate (Aston Villa), Sol Campbell (Tottenham Hotspur), Gary Neville (Manchester United), Andy Hinchcliffe (Sheffield Wednesday), Philip Neville (Manchester United), Martin Keown (Arsenal) og Graeme Le Saux (Chelsea). Miðvallarleikmenn: David Beckham (Manchester United), Paul Gascoigne (Glasgow Rangers), Paul Ince (Liver- pool), David Batty (Newcastle United), Robert Lee (Newcastle United), Paul Scholes (Manchester United) og Nicky Butt (Manchester United). Framhcrjar: Steve McManaman (Liver- pool), Teddy Sheringham (Manchester United), Andy Cole (Manchester United), Les Ferdinand (Tottenham Hotspur), Michael Owen (Liverpool) og Alan Shearer (Newcastle United). ENGLAND: 2X1 12X 1X2 X211 ITALIA: 1X2 X21 X11 2X21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.