Morgunblaðið - 12.02.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998 B 3
Haukar höfðu það á heildinni
Steinþór
Guðbjartsson
skrífar
Vldimar Grímsson hefur verið
áberandi í íslenskum og alþjóð-
legum handknattleik á liðnum árum
- var m.a. valinn í
úrvalslið Heims-
meistarakeppninnar
í fyrra. Þessi síungi
leikmaður sem verð-
ur 33 ára á árinu hefur gert út um
marga leiki á ferlinum og var ná-
lægt því í gærkvöldi með 13 mörk-
um sínum en liðlega tvítugir sam-
herjar hans í Stjörnunni gerðu út
um það með óðagoti í sókninni undir
lokin. Heimamenn í Haukum fógn-
uðu sigri, 28:27, eftir að hafa verið
þremur mörkum undir í hléi og
mest fímm mörkum en liðsheildin
gerði gæfumuninn þegar á reyndi.
Sveiflurnar í leiknum voru ótrú-
legar. Haukar komust í 3:0 og virt-
ust hafa mótherjana í hendi sér.
Uppúr miðjum fyrri hálfleik skor-
uðu þeir ekki í fimm mínútur en á
sama tíma gerði Stjarna fímm mörk
og breytti stöðunni úr 9:6 Haukum í
vil í 11:9 sér í hag. Skömmu síðar
var staðan 13:10 fyrir Garðbæinga
og sá munur hélst út hálfleikinn.
Haukar minnkuðu í 17:15
skömmu eftir hlé en eftir þrjú
dæmigerð „Valdamörk" í kjölfar
hraðaupphlaupa var staðan 21:16 og
sigling á gestunum. Þrjár brottvís-
anir með skömmu millibili gerðu
Haukum kleift að komast inní leik-
inn á ný en þrjú mörk frá Valdimar
komu Stjörnunni í þægilega stöðu
enn og aftur, 24:19, og liðlega
stundarfjórðungur til leiksloka. Eft-
ir að Haukar höfðu minnkað mun-
inn í tvö mörk tók Stjarnan leikhlé
sem nýttist heimamönnum. Þeir
hættu 6-0 vörninni en tóku á
mótherjunum framar á vellinum
með góðum árangri. Gestirnir
klúðruðu hverri sókninni á eftir
annarri og gerðu aðeins þrjú mörk
á síðustu 18 mínútunum en heima-
menn náðu forystu sem þeir létu
ekki af hendi.
Leikurinn var spennandi eins og
margir leikir í vetur en engum
dylst að flestir bestu mennirnir
leika erlendis og því er ef til vill
ekki hægt að ætlast til of mikils
hvað gæði varðar. Að þessu sinni
voru mistök áberandi á báða bóga.
Lengi vel virtist sem markið væri
of lítið og vítateigurinn of stór hvað
sóknarleik Hauka varðaði - boltinn
hafnaði hvað eftir annað í ramman-
um eða menn stigu á línu. Þeir átt-
uðu sig á stærðinni er á leið og
gerðu góða hluti eftir hlé. Aron Kri-
stjánsson var lengi vel allt í öllu í
sókninni en hefði dæmið ekki geng-
ið upp hefðu sjálfsagt margrir
kennt honum um. Hinir sömu hrósa
honum eflaust fyrir sigurinn. Hann
var vissulega mistækur, en þorði að
taka af skarið, skoraði grimmt og
fiskaði vítaköst. Rúnar Sigtryggs-
son var líka öflugur í sókn sem vörn
þó ekki sé hægt að tala um vörn hjá
liðinu í fyrri hálfleik en Magnús
Sigmundsson lék í marki eftir hlé,
varði vel og bjargaði því sem bjarg-
að varð.
Stjarnan var Valdimar Grímsson.
Hilmar Þórlindsson var reyndar
með góð skot í fyrri hálfleik og
gerði þá fimm mörk en síðan ekki
söguna meir. Ingvar Ragnarsson
varði ágætlega en frammistaða ann-
arra er ekki umtalsverð.
slitum
LIÐ Reykjavíkur Þróttar komst í
undanúrslit bikarkeppninnar eftir
að hafa skellt ÍS 3:1 í Hagaskólan-
um í gærkvöldi. Þetta var dæmi-
gerður bikarleikur þar sem allnokk-
ur mistök sáu dagsins ljós í bland
við skemmtileg varnartilþrif á báða
bóga.
Þróttur vann fyrstu hrinuna,
15:10 en ÍS þá næstu 16:14 eftir að
Þróttur hafði leitt 14:12. Aðaldóm-
ari leiksins, Jón Grétar Traustason
sá ástæðu til að spjalda Zdravko
Demirev, fyrirliða IS, á þessum
kafla hrinunnar en hann fékk fyrst
gult spjald fyrir athugasemdir við
slagdómana. Síðan í kjölfarið rautt,
en allnokkurs ósamræmis gætti í
slagdómunum á köflum, sérstaklega
í varnarslögunum. Þróttarar voru
hins vegar vandanum vaxnir í fram-
haldinu og skelltu ÍS í tveim næstu
hrinum, 15:7 og 15:9. Móttakan var
ekki sannfærandi hjá Þrótti og það
var fyi-st og fremst sóknin með Aka
Thoroddsen í fararbroddi sem
kláraði dæmið. Hjá ÍS var uppspil-
arinn Martin Raditchkov ágætur á
köflum en Ismar Hadziredzepovic,
Bosníumaðurinn í liði IS, var fjarri
góðu gamni vegna meiðsla.
MIKIL spenna og taugaveiklun einkenndi síðustu mínúturnar í
leik KA og HK. Staðan var jöfn 19:19 þegar 5 mínútur voru til
leiksloka, HK komst í 21:19 þegar aðeins 47 sekúndur voru
eftir en eftir röð mistaka, svo alþekkt vísun sé notuð, tókst
KA-mönnum að jafna metin og krækja í eitt stig. Þar með
tókst íslandsmeisturunum að bjarga andlitinu til hálfs en gest
irnir úr Kópavogi voru ósáttir, ekki síst með þátt dómaranna,
þeirra Guðjóns L. Sigurðssonar og Ólafs Haraldssonar sem
vissulega hefðu kosið sér náðugri upprisu eftir martröð bikar-
úrslitanna.
Kvöld þeirra síungu
KRISTJÁN Arason, sem er á 37.
aldursári, lék í fyrsta sinn í vetur
með FH-ingum, en hann þjáifar
liðið. Kristján lék mestmegnis í
vörninni og stóð sig vel þar, batt
miðjuna vel saman. Hann freistaði
þess nokkrum sinnum að bregða
sér í sóknina þegar hratt var sótt
og komst einu sinni í gegn og ætl-
aði að vippa knettinum yfir Birki
ívar, markvörð Víkings, en Birkir
sá við Kristjáni.
Fertugur og bestur
GUÐMUNDUR Þórðarson,
leikmaður ÍR, heldur í dag upp á
fertugsafmæli sitt. í gærkvöldi
var hann hins vegar besti leikmað-
ur ÍR-liðsins er það tók á móti
Fram í Seljaskóla. Guðmundur
barðist af hörku í vörninni og
stjórnaði henni af festu. Hann
hafði góðar gætur á Oleg Titov
með þeim afleiðingum að Titov
hafði sig lítt í framm í sókninni,
aldrei þessu vant. Guðmundur tók
einnig þátt í sókninni í fyrri hálf-
leik og skoraði eitt mark af línu
eftii' hraðaupphlaup. Þó að Guð-
mundur gengi vakslega fram í
leiknum nægði það ekki til þess að
hann gæti haldið upp á afmælið í
dag með sigurbros á vör því ÍR-
ingar töpuðu fimm marka mun,
24:19.
Sigurður er
markahæstur
ANNAR leikmaður af eldri
kynslóðinni, Sigurður Sveinsson,
leikmaður og þjálfari HK, fór á
kostum eins og svo oft áður í gær-
kvöldi. Sigurður var markahæstur
í liði HK með átta mörk er HK
sótti íslandsmeistara KA heim.
Sigurður sem er kominn á 39. ár
er sem fyrr markahæstur í 1. deild
karla með 124 mörk í 16 leikjum.
Valdimar enn einu
sinni bestur
VALDIMAR Grímsson er í
yngi'i kantinum af þeim eldri,
verður aðeins 33 ára á árinu, en
samherjar hans í Stjörnunni geta
margt lært af aldursforseta liðs-
ins. Hann hefur rétta keppnis-
skapið, þolir ekki að tapa og legg-
ur alltaf sitt af mörkum. Hann var
markakóngur kvöldsins í gær-
kvöldi með 13 mörk og langbestur
í sínu liði en mátti ekki við margn-
um og varð að sætta sig við tap.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrífar
Leikurinn var alla tíð jafn, sveifl-
urnar ekki miklar en mistökin
mörg. Varnir liðanna voru sterkar
og markverðirnir
stóðu sig vel en það
var í sóknarleiknum
sem menn voru oft
að gera tóma vit-
leysu. Fyrri hálfleikur fór hægt af
stað og var jafn þar til KA breytti
stöðunni úr 10:9 í 13:9 en gestirnir
tryggðu sér skárri stöðu með því
að skora tvö mörk í lokin. HK
skoraði síðan tvö fyrstu mörkin í
seinni hálfleik og hin hnífjafna
barátta hélt áfram. Um miðjan
seinni hálfleik, í stöðunni 17:17,
varði Sigtryggur Albertsson
vítakast frá Sigurði Sveinssyni í
þriðja sinn og KA komst í 18:17 og
síðan 19:17 eftir glæsilega mark-
vörslu Sigtryggs. Eftir það sat allt
fast hjá heimamönnum í tæpar 8
mínútur og HK skoraði 4 mörk í
röð og staðan 19:21 þegar 47 sek-
úndur lifðu af leiknum. Hófst þá
dramatíkin fýrir alvöru og hafði
hún þó verið ærin fyrir síðustu
mínúturnar.
Hilmar Bjarnason skoraði 20.
mark KA þegar 34 sekúndur voru
eftir, skot hans fór af vörninni í
markið. HK hóf sókn en glataði
boltanum. Svo virtist sem brotið
væri á Sigurði Sveinssyni þegar
hann greip ekki sendingu, KA-
menn geystust fram og Hjálmar
Vilhjálmsson beitti glímutækni til
að stöðva hraðaupphlaupið og var
sendur í sturtu með rautt spjald í
bak og fyrir. Halldór Sigfússon
flskaði víti þegar 10 sekúndur voru
eftir, skoraði sjálfur úr vítakastinu
og niðurstaðan varð jafntefli,
21:21. „Við áttum að vinna. Það
var brotið á mér þarna í lokin en
dómararnir sögðust ekki hafa tek-
ið eftir því. Þeir voru mjög tauga-
veiklaðir. Nokkru áður var ég
kýldur niður og þeir ráku mig út af
fyrir leikaraskap,“ sagði Sigurður
V. Sveinsson, þjálfari og leikmaður
HK. Hlynur markvörður var besti
maður liðsins í leiknum og vörnin
mjög sterk. Markvarsla og vörn
voru líka í lagi hjá KA en sóknin
bitlaus. Liðið saknaði Jóhanns G.
Jóhannssonar fyrirliða sem meidd-
ist á fótum í vinnuslysi.
BLAK
Þróttara-
slagur í
undanúr-
KA-menn
kreistu fram
jafntefli
Alex
McLeish
tekur við
Hibs
FYRRUM landsliðsbakvörð-
ur Skota, Alex McLeish, var
í gær ráðiiui þjálfari skoska
úrvalsdeildarliðsins Hiberni-
an, sem Ólafur Gottskálks-
son og Bjarnólfur Lárusson
leika með. Hann tekur við af
Jim Duffy sem var rekinn
frá félaginu fyrir tíu dögum.
Liðinu hefur gengið illa og
aðeins unnið einn af síðustu
19 leikjum.
McLeish, sem er 39 ára og
lék 77 landsleiki fyrir Skota,
lék áður með Aberdeen.
Samningur hans við Hibs er
til þriggja og hálfs árs.
„Hibs er stórt borgarfélag
og það réð úrslitum að ég
tók að mér starfið. Þetta er
umhverfi sem ég kann vel
við mig í. Eg veit að liðið á í
miklum erfiðleikum um
þessar mundir, en mitt verk-
efni verið að snúa blaðinu
við,“ sagði McLeish.
■ EINNAR mínútu þögn var fyrir
leik ÍBV og Breiðabliks til minning-
ar um Valtý Snæbjörnsson, eins aí
forystumönnum íþróttahreyfingar-
innar í Eyjum um áratuga skeið.
Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja 10. febrúar.
■ INGVAR Guðjónsson og Jónas
Elíasson dæmdu leik ÍBV og
Breiðabliks. Þetta var frumraun
þeirra í 1. deild karla. Þeir fengu
auðdæmdan leik og komust ágæt-
lega frá sínu hlutverki.
■ BCJ HAMBORG, lið Guðmundar
Bragasonar í þýsku 2. deildinni tap-
aði 88:61 fyrir Göttingen um síðustu
helgi og er liðið nú í 3. sæti með 28
stig. Göttingen er með 30 stig i öðru
sæti og Oldenburg er efst með 32
stig.
■ JONATAN BOW og félagar í Ba-
yreuth i þýsku 1. deildinni töpuðu,
75:85, fyrir Alba Berlín um helgina
og gerði Bow 13 stig, en hann gerði
5 stig í tapleik við Trier helgina þar
á undan.
■ BRAINE, lið Jóns Amars Ingv-
arssonar í Belgíu er í neðsta sæti
deildarinnar ásamt Leuven, hefur
aðeins sigrað í þremur leikjum. Lið-
ið tapaði, 89:80, fyrir efsta liðinu,
Quaregnon um helgina og 81:87
fyrir Gent helgina þar á undan.
■ HERBERT Arnarsson og félagar
í Antverpen er í öðru til þriðja sæti
deildarinnar eftir 90:74 sigur á
Aalst um helgina.
■ ST NIKLAAS, sem Hermann
Hauksson leikur með i 2. deildinni í
Belgíu tapaði síðustu tveimur leikj-
um, 94:58, fyrir Brabo og 83:77 fyrir
Aarschot. Liðið er nú í 8. til 12. sæti
með sex unna leiki og átta tapaða.
■ ÓÐINSVÉ tapaði, 101:80, fyrir
Roskilde í dönsku deildinni, en vann
Ábyhoj, 86:75, um fyrri helgi. Liðið
er i 6. sæti með 20 stig eftir 20 leiki.
■ EDDI Pope, varnarmaður lands-
liðs Bandaríkjanna í knattspyrnu,
var í gær útnefndur leikmaður árs-
ins 1997 í Bandaríkjunum. Claudio
Reyna var í öðru sæti og markvörð-
urinn Kasey Keller þriðji