Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 2
I
2 C ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Gott að muna
erfiðleikana
Markaðurinn
Mikilvægt er að gleyma sér ekki í allri
bjartsýninni og uppganginum, segir Grét-
ar J. Guðmundsson, rekstrarstjóri Hús-
næðisstofnunar ríkisins. Erfíðleikatímar
geta að sjálfsögðu komið aftur.
FUNALIND 9, húsið fyrir miðju, er þegar uppsteypt og eru íbúðirnar þar til afhendingar í lok ágúst nk. Upp-
steypa er að heQast á Funalind 11, sem er yzt til hægri og verða þær íbúðir afhentar í nóvember. íbúðirnar
eru til sölu hjá fasteignasölunni Bifröst.
BYGG byggir þrjú fjölbýlis-
hús við Funalind í Kópavogi
Fasteignamarkaðurinn hefur
tekið verulega vel við sér á
undanfömum misserum. Á það
jafnt við um viðskipti með notaðar
íbúðir og nýbyggingar. Fasteigna-
viðskiptin hafa verið stöðug og
ekki verður annað merkt en nokk-
urrar bjartsýni gæti meðal bygg-
ingarmanna eftir samdrátt síðustu
ára.
Þessi umskipti hafa ekki ein-
göngu náð til höfuðborgarsvæðis-
ins heldur hafa viðskipti á lands-
byggðinni jafnvel sums staðar
einnig glæðst, þó markaðurinn sé
þar víða enn ekki svipur hjá sjón
miðað við það sem áður var. Mikil-
vægt er að menn gleymi sér ekki í
allri bjartsýninni og uppganginum,
því erfíðleikatímar geta að sjálf-
sögðu komið aftur. Þá er betra að
vera eins vel viðbúinn og aðstæður
leyfa.
Á markaði sem er eins ftjáls og
raun ber vitni með fasteignamark-
aðinn, er alltaf við því að búast að
upp geti komið aðstæður eins og
verið hafa fram að þessu. Erfið-
leikar undanfarinna ára ættu
einnig að sjálfsögðu að vera ljósir í
minningu þeirra sem starfa á þess-
um markaði og því geta þeir varað
þá við, sem ekki fást við þessi við-
skipti nema einu sinni, tvisvar eða
þrisvar á lífsleiðinni. Hætta er hins
vegar alltaf á því, að slíkt gleymist
þegar vel gengur.
Dýrar fbúðir
seljast aftur
Stórar og dýrar íbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu eru famar að selj-
ast aftur. Ekki er svo langt síðan
að eigendur slíkra íbúða þóttu
heppnir ef þeir áttu möguleika á
að losna við þær. Þá heyrði það til
undantekninga ef seljendur stórra
og dýrra íbúða á höfuðborgar-
svæðinu gátu selt fyrir verð sem
nálgaðist byggingarkostnaðinn.
Menn töpuðu með öðrum orðum í
mörgum tilvikum stórum fjárhæð-
um við sölu þessara íbúða. Nú
horfír hins vegar til betri vegar í
þessum efnum.
Margt hefur því breyst til batn-
aðar á fasteignamarkaðnum. En
það á ekki síður við um fjármagns-
markaðinn. Þar er allt annað um-
hverfi nú en áður. Vextir hafa
lækkað og möguleikar fólks á
langtímalánum hafa aukist til
muna.
Þessir tveir markaðir eru að
sjálfsögðu verulega háðir hvor öðr-
um og myndu ekki þrífast að
nokkru marki hvor fyrir sig án
hins. Bættir möguleikar fólks á
fjármagnsmarkaði hafa þess vegna
bein og jákvæð áhrif á fasteigna-
markaðinn. En ekki er víst að allt
sé til bóta sem gert er.
Að njóta lffsins
Sérstök fasteignalán eru nú í
boði á fjármagnsmarkaðnum fyrir
eldri borgara, „til þess að þeir geti
notið lífsins“, eins og sagt hefur
verið í kynningu þessara lána. Eru
þau einkum ætluð þeim sem eiga
skuldlitlar fasteignir á höfuðborg-
arsvæðinu, meðal annars til þess
að þeir geti lækkað eignaskatta
sína, að því er sagt er.
í raun er ekkert sérstakt við
þessi lán, því þau hljóta að lúta
sömu lögmálum og önnur lán, sem
fjármálafyrirtæki veita gegn ör-
uggri tryggingu, jafnt eldri borg-
urum sem öðrum. Hins vegar
verður að teljast undarlegt ef fólk
er tilbúið að „njóta Iífsins“ út á
lán, þegar eignir eru til staðar.
Væri ekki nær að selja húsnæðið,
minnka við sig ef mögulegt er og
„njóta lífsins“ fyrir mismuninn?
Líklegt verður að teljast að
ánægjan yrði meiri þegar allt
kemur til alls.
Þetta er sagt með hhðsjón af
því, að alltaf má búast við að erfið-
leikar komi einhvem tíma síðar
upp með sölu á íbúðum. Á það sér-
staklega við um stórar og dýrar
íbúðir, sem þessi sérstöku lán eru
helst hugsuð fyrir.
En auðvitað ræður fólk hvað
það gerir í þessum efnum. Ljóst
er hins vegar hvernig best er að
standa að þessum málum með
hliðsjón af þeirri reynslu, sem
fengist hefur af erfiðleikum á fast-
eignamarkaði á undanfómum ár-
EKKERT lát er á uppbyggingunni í
austurhluta Kópavogs. Nú hefur
Byggingafélag Gylfa og Gunnars
ehf., BYGG, hafið framkvæmdir við
þrjú fjölbýlishús við Funalind 7, 9 og
11 í Lindahverfi. í þeim verða 38
íbúðir alls og þær verða afhentar
fullbúnar en án gólfefna. Hús nr. 9
er þegar uppsteypt og eru íbúðimar
þar til afhendingar í lok ágúst nk., en
uppsteypa að hefjast á húsi nr. 11 og
þær íbúðir afhentar í nóvember.
Hönnuður eru Guðmundur Gunn-
laugsson arkitekt, en íbúðimar eru
til sölu hjá fasteignasölunni Bifröst.
í hvoru húsi, Funalind 9 og 11, er ein
2ja herb. íbúð, þrjár 3ja herb. íbúðir,
sex 4ra herb. íbúðir og ein sex herb.
íbúð á tveimur hæðum. Verð á þess-
um íbúðum er frá 7,5 millj. kr. á 2ja
herb. íbúðunum upp í 10,9 millj. kr. á
sex herb. íbúðunum.
FASTEIGNASALA Mosfellsbæjar
hóf fyrir skömmu göngu sína og
hefur hún aðsetur í Kjama, Mos-
fellsbæ. Eigendur eru Ástríður
Grímsdóttir hdl., löggiltur fast-
eigna- og skipasali og Þorbjörg I.
Jónsdóttir hdl. Sölumaður er Ómar
Karlsson.
Ástríður Grímsdóttir vann í mörg
ár á fasteignasölunni Högun sem
ritari og síðan sem sölumaður á
fasteignasölunni Gimli og hefur því
bæði þekkingu og reynslu af sölu
fasteigna. Ástríður hefur búið í
Mosfellsbæ frá árinu 1982 og rekið
lögmannsstofu frá 1993. Hún mun
sjá um alla skjalagerð ásamt því að
liðsinna við aðra þætti fasteignasöl-
unnar.
Ómar Karlsson hefur reynslu af
sölu fasteigna frá Skipa- og báta-
sölunni, þar sem hann vann um ára-
bil. Ómar mun skoða og meta fast-
eignir og annast alla upplýsinga- og
gagnaöflun fyrir fasteignasöluna.
„Við erum í frábæru húsnæði í
Tveggja herb. íbúðimar, sem eru
á jarðhæð, eru mjög rúmgóðar eða
82,5 ferm. Þeim fylgir sérlóð með
trépalli og skjólgirðingu. Þriggja
herb. íbúðimar eru 97 ferm. og 4ra
herb. íbúðirnar eru ýmist 99 ferm.
eða 112 ferm. Að aulá er hver íbúð
með hlutdeild í sameign hússins.
Svalir snúa ýmist í suður eða vestur.
Að sögn Pálma B. Almarssonar
hjá Bifröst eru innréttingar sérsmíð-
aðar. Litaval getur verið eftir óskum
kaupenda, sé keypt nógu snemma á
byggingartímanum. „í öllum íbúðun-
um er þvottaherbergi og sjónvarps-
hol, sem er mikill kostur fyrir fjöl-
skyldufólk," sagði Pálmi.
„Utan á húsinu skiptast á sléttir,
málaðir fletir og veggir með marm-
arasteiningu, sem er mjög viðhalds-
lítið efni. Þak er klætt með lituðu
stáli, en á lóðinni verða malbikuð
Kjarna, sem er stór skrifstofu- og
þjónustumiðstöð í miðbæ Mosfells-
bæjar,“ sagði Ástríður Grímsdóttir.
„f tumbyggingunni eru m. a. bæj-
arskrifstofurnar og í verzlunar-
kjarnanum, sem er sambyggður,
eru Hagkaup, Heilsugæslan og sér-
verzlanir.
Markaðurinn hér í Mosfellsbæ er
alltaf að verða stærri og stærri og
umsvif á markaðnum fara hér vax-
andi ár frá ári. í Mosfellsbæ búa nú
um 5.200 manns og fólk er bæði að
flytja til bæjarins, frá bænum eða
að skipta um húsnæði innan bæjar-
ins.
Við teljum því tímabært, að Mos-
fellingar og aðrir íbúar á svæðinu
geti leitað til fasteignasölu í Mos-
fellsbæ um þessa þjónustu, vilji
þeir selja eða kaupa fasteign, í stað
þess að þurfa að fara til Reykjavík-
ur, eins og hingað til. Við munun
leggja metnað okkar í að veita við-
skiptavinum okkar sem öruggasta
og bezta þjónustu."
bflastæði, grasflatir og trjágróður
við verandir. Göngustígar á lóðinni
eru ýmist heUulagðir, malbikaðir eða
malarlagðir. Á lóðinni verða sjö bfl-
skúrar, sem eru seldir sér og kosta
þeir 1.150.000 kr.“
„Lindahverfið liggur vel við sam-
göngum og er vel staðsett með tilliti
til vinnustaða á höfuðborgarsvæðinu,
því að greið leið er úr hverfinu inn á
aðal umferðaræðar það er Reykja-
nesbraut, Breiðholtsbraut og Arnar-
nesveg," sagði Pálmi ennfremur.
„Það verður stutt í skóla, íþrótta-
mannvirki og verzlanamiðstöðvar,
sem rísa munu í þægilegu göngu-
færi. Góð útivistarsvæði eru í ná-
grenninu. Það þarf því ekki að koma
á óvart, þó að sala á íbúðum sé góð á
þessu svæði, enda er það án efa eftir-
sóttasta svæðið á öllu höfuðborgar-
svæðinu nú.“
Fasteignasölur
í blaðinu
í dag
Agnar Gústafsson bls. 15
Ás bls. 9
Berg bls. 9
Bifröst bls. 13
Borgir bls. 29
Brynjólfur Jónsson bls. 15
Eignamiðlun bis. 16-17
Eignasalan bls. 5
Eignaval bls. 6
Fasteignamarkaður bls. 25
Fasteignamiðstöðin bls. 19
Fasteignasala íslands bls. 20
Fasteignas. Mosfellsbæjar bls. 5
Fasteignaþjónustan bls. 20
Fjárfesting bls. 21
Fold bls. 10-11
Framtíðin bls. 16
Gimli bls. 24
Hátún bls. 11
Hóll bis. 22-23
Hóll Hf. bls. 19
Hraunhamar bls. 14-15
Húsakaup bls. 28
Húsvangur bls. 8
Höfði bls. 12
Kjöreign bls. 27
Lundur bls. 7
Mótás bls. 16
Miðborg bls. 26
Óðal bls. 4
Skeifan bls. 3
Stakfell bls. 5
Valhöll bls. 30-31
um.
BIJÐARLÁN
TIL ALLT AÐ
Þú átt góðu láni
að fagna hjá
Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis
SPARISIOÐUR
REYKJAVlKUR OC NAGRENNIS
Morgunblaðið/Kristinn
Ómar Karlsson sölumaður og Ástríður Grfmsdóttir hdl., löggiltur fast-
eigna- og skipasali.
Fasteignasala Mosfellsbæjar tekin til starfa
Stækkandi markað-
ur og aukin umsvif