Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
\
I
mmmsgm
ÚTLITSTEIKNING af aðkomuhlið byggingarimiar. f henni á að fara fram sala á stórvirkum vinnuvélum og þar verður eitt fullkomnasta verkstæði fyrir slík tæki á landinu.
Kópavogur
Sérhannað
atvinnu-
húsnæði við
Dalveg
ÚTLITSTEIKNING af vesturhlið byggingarinnar. Byggingin er bogalaga en veggimir einangraðir að utan
með steinull og síðan klæddir með bárujámi. Þakið er úr lúntré, sem er líka klætt með bámjámi.
Það verður stöðugt algengara, að stærri
fyrirtæki byggi sérhannað húsnæði yfír
starfsemi sína. Magnús Sigurðsson kynnti
sér nýbyggingu Kraftvéla í Kópavoffl, en
hún á að verða 1 senn hentug og glæsileg.
SÚ MIKLA uppbygging, sem á
sér stað í austanverðum Kópa-
vogsdal, fer ekki framhjá neinum,
sem ekur Reykjanesbraut. I
Smárahvammslandi, rétt fyrir
vestan Reykjanesbraut, er hvert
fyrirtækið af ððru að reisa glæsi-
lega nýbyggingu yfir starfsemi
sína. Þeirra á meðal er verzlunar-
fyrirtækið Kraftvélar, sem byggir
nær 2.000 ferm. hús við Dalveg 6-
8. Húsið er steinsteypt og er á
tveimur hæðum. Það verður að
ýmsu leyti óvenjulegt, bæði að því
er varðar útlit og hönnun.
Húsið er hannað af arkitektun-
um Finni Björgvinssyni og
Hilmari Þór Bjömssyni. Neðri
hæðin verður um 1.500 ferm. og sú
efri tæpir 500 ferm. Lóðin er nyög
stór eða 9.000 ferm., en aðkoma er
frá Dalvegi og ekið inn botnlanga
að byggingunni.
Á efri hæðinni verða skrifstofur
fyrirtækisins og aðstaða fyrir
starfsfólk svo sem mötuneyti, bún-
ingsklefar og annað af því tagi. Það
sem einkum gefur byggingunni
óvepjulegan og skemmÓlegan svip
er stór glerskáli, sem kemur eins
og út úr neðri hæðinni. „Þennan
hluta köllum við Demantinn, en
þar er sýningarsalur og aðstaða
fyrir sölumenn," segir Finnur. „í
hinum hlutanum á neðri hæðinni er
stórt verkstæði, sem er með mikilli
lofthæð. Þar verður unnið að því að
gera við skurðgröfur, ýtur, lyftara
og önnur stórvirk tæki.“
Þeir Finnur og Hilmar Þór
segja þetta hús hagkvæmt í bygg-
ingu, þrátt fyrir það að um nyög
sérhæft húsnæði sé að ræða. „í
húsinu eiga að fara fram sala og
viðgerðir á stórvirkum vinnuvél-
um. Þar þarf því að vera fyrir
hendi nyög rúm og góð aðstaða
fyrir hvort tveggja, þar á meðal
sýningaraðstaða fyrir þessi tæki,“
segja þeir félagar. „í rauninni er
það sjaldgæft, að margþætt starf-
semi fari fram undir einu þaki, en
í þessu húsi er hugsað vel fyrir öll-
um þáttum starfseminnar. Starfs-
aðstaða fyrir starfsfólk er jafn-
framt afar góð.
Útisvæðið við húsið er tvískipt.
Að norðanverðu er aðkoma fyrir
viðstóptavini og starfsfólk en að
sunnanverðu er sérstakt svæði
fyrir ýtur, gröfur og önnur tætó.
Sú nýjung er á þessu svæði, að þar
verður sérstakur reitur fyrir þá,
sem vilja prufa þær vinnuvélar,
sem Kraftvélar hafa á boðstólum.
Bogalaga og klætt
með bárujárni
Lögun og útlit hússins vekja
óneitanlega athygli að öðru leyti.
Það er bogalaga en veggir hússins
einangraðir að utan með steinull
og síðan klæddir með bányámi.
Þatóð er úr límtré, en síðan er það
líka klætt með bárujámi.
Að sögn þeirra Finns og
Hilmars Þórs verður byggingar-
hraðinn meiri með þessri aðferð en
veiyulega, þar sem húsið er þurrt,
en byrjað var á framkvæmdum við
húsið í lok september. Núna er það
tilbúið undir tréverk og ætlunin að
flytja inn í það um miðjan apríl.
Þetta á emifremur að vera við-
haldslétt hús, en allir gluggar em
með innbrenndum lit. Það þarf því
hvergi að mála.
Eins og fram er komið, verður
húsið klætt með bárujámi. „Bám-
jámið á sér talsverða hefð hér á
landi, því að farið var að nota það
um 1870,“ segir þeir Hflmar Þór
og Finnur. „Sagt hefur verið, að
eftir að bárujámið kom tfl sögunn-
ar, hafi þjóðin loks losnað við hinn
sífellda þakleka. Eftár bmnana
miklu í Reykjavík 1915 fékk bám-
jámið svo nýjan tflgang, sem var
að veija eldinn frá nærliggjandi
húsum.
Nú er bárujámið farið að ryðja
sér tfl rúms á nýjan leik, en núna
er það gert tfl þess að verja
steypuna gegn skemmdum en ektó
gegn bmna. Bárujámið er raunar
séríslenzk aðferð, sem vatóð hefur
athygli víða um lönd. Hinn heims-
frægi artótekt og hugsuður, Buck-
minster Fuller, sem kom hingað tfl
lands í fyrirlestraferð á sínum
tíma, var yfir sig hrifinn af bám-
jáminu og kvaðst ætla að skrifa
bók um íslenzku bányámshúsin.
Hann benti sérstaklega á Fríkirkj-
una við Tjömina sem einstaka
kirkju í öllum heiminum, hvað
varðar byggingarefiii.
Nú stöndum við hér á landi
frammi fyrir nýju klæðningartíma-
bili í byggingarhstinni. En það era
ektó timburhúsin, sem þarf að
klæða vegna bmna og óþéttleika,
heldur em það steinhúsin, sem
þarf að klæða vegna steypu-
skemmda. Steypan molnar niður
og húsin era smátt og smátt að
hryiya.
Með því að setja steinull utan á
húsin og klæða þau síðan með
bárujámi eða á annan hátt, er ein-
MorgunbladitVÁmi Sæberg
ARKITEKTARNIR Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson hafa hannað bygginguna, sem stendur við Dalveg 6-8 í Kópavogi. Hér sjást þeir
ásamt Guðlaugu Sigurðardóttur, fjármálastjóra Kraftvéla, fyrir framan bygginguna, sem núna er tilbúin tmdir tréverk. Vinstra megin er sýningar-
salurinn, sem hefur fengið nafnið „Demanturinn."