Morgunblaðið - 03.03.1998, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Björn
Dæhlie
SIGURSÆLUSTU ÍÞRÓTTAMENN
Á VETRARÓLYMPÍULEIKUM
oqp
íþróttamaður íþróttagrein Fjöldi verðlauna Ólympíuleikar
Gull Silfur Brons SAMT. Fjöldi Árin
1. Björn Dæhlie, Noregi Skíðaganga 2. Lyubov Yegorova, Rússl. Skiðaganga 3. Lidiya Skoblikova, Sovétr. Skautahlaup 4. Clas Thunberg, Finniandi Skautahlaup 5. Bonnie Blair, Bandar. Skautahlaup 6. Eric Heiden, Bandar. Skautahlaup 8 4 0 6 3 0 6 0 0 5 1 1 5 0 1 5 0 0 12 9 6 7 6 5 3 '92 '94 '98 2 '92 '94 2 '60 '64 2 '24 '28 3 '88 '92 '94 1 1980
7. Raisa Smetanina, Sovétr. Skiðaganga 4 5 1 10 _ '76 '80 '84 '88 '92
8. Sixten Jernberg, Svíþj'óð Skiðaganga 4 3 2 9 3 '56'60 '64
9. Galina Kulakova, Sovétr. Skiðaganga 4 2 2 8 . '68 '72 '76 '80
10. Ivar Ballangrud, Noregi Skautahlaup 4 2 1 7 3 '28 '32 '36
■ SIGURÐUR Jónsson meiddist á
vinstri ökla í leik Dundee United og
St. Johnstone í skosku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu um helgina og
verður frá í nokkrar vikur.
■ PAUL Kane braut á Sigurði und-
ir lok fyi-ri hálfleiks með fyrmefnd-
úm afleiðingum. Þá var staðan 1:0
fyrir Sigurð og samherja í Dundee
United, en heimamenn jöfnuðu
stundarfjórðungi fyrir leikslok.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson átti mjög
góðan leik með Genk sem vann
Sint-Truiden í belgísku 1. deildinni
á útivelli 2:0. Þórður lagði upp síð-
ara markið. Atti fyrirgjöf sem
Branko Strurpar skallaði í netið.
Genk er í öðru sæti og leikur við
efsta lið deildarinnar, Brugge, á
heimavelli á föstudagskvöld.
■ EYJÓLFUR Sverrisson lék ekki
með Hertha um helgina vegna
meiðsla en liðið gerði jafntefli, 1:1,
við Rostock í þýsku deildinni í
knattspymú.
■ ANDREAS Thom, miðherji
Hertha, meiddist á hásin í leiknum
við Rostock og verður frá næstu
tvær vikurnar.
■ GUNNAR Einarsson lék með
MVV Maastricht er liðið gerði jafn-
tefli við Twente, 2:2, í hollensku 1.
deildinni um helgina. Twente komst
FOLK
í 2:0 en MVV náði að jafna fyrir hlé.
Gunnar, sem lék á miðjunni, lagði
upp jöfnunarmarkið. MVV er nú í
þriðja neðsta sæti deildarinnar.
■ YEVGENY Kafelnikov frá Rúss-
landi sigraði á alþjóðlegu tennis-
móti innanhúss í London á sunnu-
dag. Hann vann Cedric Pioline frá
Frakklandi í úrslitum 7-5 og 6-4.
Jana Novotna frá Tékklandi vann
Dominizue van Roost frá Belgíu í
úrslitum á opna austurríska innan-
húsmótinu í Linz, 6-1 og 7-6.
■ PETER Pysall er tekinn við þjálf-
un Dormagen í þýsku deildinni í
handknattleik. Liðið vann Hameln,
lærisveina Alfreðs Gíslasonar,
33:24 um helgina en þá stýrði Pysall
því í fyrsta sinn.
■ MIKAEL Kallmann frá Finnlandi
hefur gert samning til tveggja ára
við þýska handknattleiksliðið Esen.
Kállmann, sem er 34 ára og hefur
leikið 177 landsleiki, lék með
Massenheim til 1996.
■ DANSKI varnarmaðurinn Niclas
Jensen er við það að gera samning
við FC Kaupmannahöfn til fjögurra
og hálfs árs. Jensen, sem er 23 ára
landsliðsmaður, lék með Lyngby áð-
ur en hann fór til PSV í Hollandi
1996.
■ NEVILLE Southall, fyrrum
markvörður Everton og velska
landsliðsins sem var lánaður til
Southend fyrr á þessu tímabili, er
nú orðinn samherji Lárusar Orra
Sigurðssonar hjá Stoke.
■ ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, herðir leit sína að
miðherja til að taka þátt í lokabar-
áttunni um Englandsmeistaratitil-
inn. Hann vill fá leikmann sem get-
ur fyllt skarð Ians Wrights, sem er
meiddur.
■ WENGER hefur augastað á
Dwight Yorke, miðherja Aston
Villa, sem er metinn á sjö millj.
punda. Wenger hefur haft Yorke í
sigtinu um tíma.
■ TONY Adams, fyrirliði Arsenal,
segist ekki vera á förum frá liðinu -
að hann skilji ekki þær fréttir að
hann sé á faraldsfæti. „Ég hef verið
og er ánægður hjá Arsenal," sagði
Adams.
AFREKSMENN
Islenskt afreksfólk var í sviðs-
Ijósinu um helgina og gekk mis-
vel eins og gengur og gerist. A
Evrópumeistaramótinu í frjáls-
íþróttum á Spáni varð Vala
Flosadótth- að sætta sig við að
missa af Evrópumeistaratitlinum
og missa heimsmetið í stangar-
stökki kvenna. Vala
stökk 4,40 metra og
varð í þriðja sæti,
nokkuð sem í sjálfu sér
er hægt að sætta sig
við en því er ekki að
neita að þegar Vala og
helstu afreksmenn þjóðarinnar
eru að keppa, vonast maður alltaf
eftir sigri. Það er ekki flóknara
en það þótt menn vilji ef til vill
ekki viðurkenna það.
Vala er mikill íþróttamaður og
sem slík sættir hún sig auðvitað
ekki fyllilega við að ná ekki
lengra en raun bar vitni að þessu
sinni. Vala getur þó sætt sig við
að hún á eftir að stökkva tölvert
hærra á næstunni. Það sáu allir
sem fylgdust með mótinu. Vala
verður í sviðsljósinu, ásamt ný-
ki-ýndum Evrópumeistara og
heimsmethafa, í Laugardalshöll-
inni á fimmtudaginn og verður
fróðlegt að fylgjast með viðureign
þeirra.
Annai- mikill íþróttamaður, Jón
Amar Magnússon, tugþrautar-
kappi úr Tindastóli, keppti í sjö-
þraut og varð fimmti þrátt fyrir
að setja bæði íslands- og Norður-
landamet. Þrautin hjá Jóni Arn-
ari var dálítið skrýtin því það var
aðeins ein grein þar sem manni
fannst hann virkilega ná sér á
strik, í stangarstökkinu, enda
segir hann sjálfur að það hafi ver-
ið eina greinin sem hann hafi ver-
ið fyllilega ánægður með. Jón á
greinilega að geta betur og bæði
hann og Gísli Sigurðsson, þjálfari
hans, eru staðráðnir í að sýna efa-
semdarmönnum að þeir eru á
réttri braut.
Leikmenn Aftureldingar fóru
fyluferð til Svíjyóðar þar sem lið-
ið féll úr átta liða úrslitum Borga-
keppni Evrópu. Mosfellingar
höfðu sigi-að með sjö marka mun í
heimaleiknum viku áður og gerðu
sér vonir um að komast í fyrsta
sinn í undanúrslit. En Svíarnir
voru enn eina ferðina ofjarlai-
okkar og Mosfellingar voru mjög
óánægðir með sjálfa sig enda léku
þeir illa.
Skíðakappinn Kiistinn Bjöms-
son frá Ólafsfirði keppti á heims-
bikarmóti f Suður-Kóreu um helg-
ina. Hann féll úr keppni í fyrri
ferðinni og nú er aðeins eitt
heimsbikarmót eftir og vonandi
nær Kristinn að sýna hvers hann
er megnugur í brekkunum í Sviss.
Enn einn afreksmaðurinn kem-
ur við sögu í vikunni. Birgir Leif-
ur Hafþórsson, kylfingur úr
Leyni á Akranesi, keppir á fyrsta
móti sínu í evrópsku áskorenda-
mótai'öðinni og hefur leik á
fimmtudaginn. Birgir Leifur er
gi-íðarlegt efni og gerir miklar
kröfur til sjálfs sín, eins og þeir
íþróttamenn sem hér hafa verið
nefndir. Hann veit þó að hann á
enn talsvert í land til að komast í
röð þeirra allra bestu, en þangað
er stefnt.
íslendingar gera miklar kröfur
um árangur og sé höfðatalan
margfræga notuð era kröfumar
óraunhæfar. En í heimi íþrótta er
ekkert óraunhæft. Það hafa ís-
lenskir íþróttamenn sýnt í gegn-
um tíðina og munu vonandi gera
um ókomin ár.
Skúli Unnar
Sveinsson
íslendingar gera mjög
miklar kröfur til
afreksmanna sinna
Hvort hélt BIRNA PETERSEN með íslandi eða Noregi á NM f badminton?
Hélt með fs-
landi innst inni
BIRNA Petersen átti í innri baráttu um helgina þegar unglinga-
landslið Noregs, sem hún þjálfar, atti kappi við það íslenska á
Norðurlandamóti unglinga í badminton, sem haldið var í húsum
TBR. Ekki síst þar sem systir hennar, Eva, var f íslenska hópn-
um. Reyndar kemur það ekkert á óvart að systir hennar sé þar
því það má segja að fjölskyldan hafi í nokkra ættliði haft bad-
minton í blóðinu. Til dæmis spilaði afi þeirra, Gunnar eldri,
badminton af krafti hátt í hálfa öld, Steinar faðirinn var lengi
íslandsmeistari og landsliðsmaður og Gunnar yngri, bróðir
Birnu, var einnig í landsliðinu. Haft er á orði að Gréta móðir
þeirra hafi ekki mikið spilað badminton - einhver varð að vera
heima og haida utan um hópinn.
Birna, sem er 27 ára, var oft ís-
landsmeistari í tvíliða- og
tvenndarleik fyrir utan að vera í
■■■■■■ landsliðinu, sem hún
Eftir reyndar er ennþá þó
Stefán að hún búi í Noregi
Stefánsson þannig ag því fer fjarri
að ferlinum sé lokið.
Birna þykir kraftmikill spilari, sem
gefur lítið eða ekkert eftir. Hún lauk
íþróttakennaraprófi frá íþrótta-
kennaraskólanum að Laugarvatni
og frétti af þjálfaraskóla, sem rek-
inn er af danska íþróttasambandinu.
Birna sótti um og fékk inngöngu þar
sem fyrir valinu varð þjálfunarsvið í
hverju öðru en badminton. Hróður
hennar hefur eflaust borist út og
hefur Bima ekki þurft að kvarta yfir
aðgerðarleysi undanfarið.
Kom eitthvað annað til greina en
þjálfunarsvið í badminton?
„Eg hafði svo sem áhuga á að
spreyta mig við þjálfun en áhuginn
jókst til muna þegar ég byrjaði í
þjálfaraskólanum.“
Hvernig stóð á því að þú tókst að
þjálfa norskt lið?
„Þegar ég var að ljúka þjálfunar-
skólanum danska fékk ég tilboð um
að þjálfa lið Sandefjord í Noregi,
sem er í litlum bæ sunnan við Ósló,
og ég tók því.“
En hvernig kom til að norskt
landslið bættist við?
„Þegar ég var svo búin að vera
þar í hálft ár var ég beðin um að
bæta við mig landsliðinu, sem ég og
samþykkti en síðan hafa málin þró-
ast þannig að ég sé um flesta hluti
Morgunblaðið/Ásdfs
BIRNA Petersen hélt innst inni með íslandi þegar norsku
unglingarnir hennar kepptu við þá íslensku.
tengda liðinu. Eftir að hafa verið
með liðið í hálft ár tímdi ég ekki að
hætta þar sem margt spennandi var
framundan svo að það eru komin
tvö ár í vor.“
Þú hefur sem sagt nóg að gera
við að þjálfa?
„Reyndar er svo komið að ég er
einnig að vinna í markaðsmálum
fyrir Evrópumót, sem fram fer hér í
Noregi.“
Hver er helsti munurinn á að
þjálfa í Noregi og á íslandi?
„Það eru fjarlægðirnar, sem hef-
ur kosti og galla. Varðandi mót er
stutt til Svíþjóðar og Danmerkur en
þegar kalla þarf liðið saman er langt
að fara fyrir marga því vegalengdir
eru allt aðrar en hér heima á ís-
landi.“
Er aðstaðan svipuð og hér á
landi?
„Nei, við höfum þurft að berjast
um tíma í íþróttahúsinu við hand-
boltaliðið á staðnum og því ekki
fengið þá tíma, sem ég hefði viljað.
Það er því svo að ég hugsa oft heim
og hefði gjarnan viljað komast í
hús eins og TBR hefur því aðstað-
an hérna við Gnoðarvoginn er frá-
bær.“
Og hvenær kemur þú svo heim?
„Mig langar heim en ég á eitt ár
eftir og vil ekki skilja við ki-akkana
á miðju tímabili. Annars veit maður
aldrei."
Að lokum ein samviskuspurning
okkar á milli, með hverjum hélstu
þegar þitt lið keppti við þína
landa?
„Það er alltaf frábært að vinna en
innst inni hélt ég með íslendingun-
um.“