Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 3. MARZ 1998 B 11 KNATTSPYRNA Reuters RONALDO skoraði sitt 15. deildarmark sitt á tímabilinu á Ítalíu, er Inter vann Napoií 2:0. Hér hefur hann leikið á varnar manninn Francesco Baldini. Köln stöðvaði Bayern KÖLN gerði góða ferð til Miinchen og vann Bayern 2:0 í þýsku deildinni um helgina. Bayern er sex stig- um á eftir Kaiserslautern sem gerði markalaust jafn- tefli við Karlsruhe en Köln fór upp um tvö sæti og er í 13. sæti. Heimamenn, vel studdir af 45.000 áhorfendum, áttu fyrri hálfleik en Köln náði óvænt forystunni fljótiega eftir hlé - Markus Miinch, fyrrverandi Ieikmaður Ba- yern, skoraði úr vítaspyrnu. 13 mínútum síðar lagði hann upp annað mark gestanna, íraninn Khodadad Azizi skoraði og innsiglaði fyrsta sigur Köln á Bayern f Munchen síðan 1982. Celtic í góðum gír á sigurbraut Juventus, sem tapaði 3:0 fyrir Fi- orentina um fyrri helgi, fagnaði íyrsta sigrinum í þremur síðustu leikjum, vann Bari 1:0 á sjálfsmarki varnarmannsins Rachids Neqrouz á 19. mínútu eftir skot frá Filippo Inzaghi. Juve hafði ekki neistann sem hefur svo oft áður verið ein- kenni liðsins og engu skipti þó mótherjarnir væru einum færri síð- asta hálftímann en miðjumaðurinn Diego De Acsentis var rekinn af velli í kjölfar annarrar áminningar. „Við verðum að leika mikið betur á móti Dynamo Kiev,“ sagði Frakkinn Didi- er Deschamps en Juve tekur á móti úkraínska liðinu í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á morgun. 10 mínútum eftir markið lék Zinedine Zidane framhjá þremur varnarmönnum og sendi síðan á Inzaghi en mótherjarnir komu í veg fyrir að hann skoraði. Þetta voru einu umtalsverðu færi Juve, sem er efst í ítölsku deildinni með 51 stig. Inter vann Napólí 2:0 og er fjór- um stigum á eftir Juve. Ivan Zamorano gerði gull af marki og Ronaldo skoraði úr vítaspyrnu seint í leiknum. Nwankwo Kanu frá Ní- geríu lék í fyrsta sinn með Inter síð- an han fór í hjartaaðgerð í fyrra en skömmu eftir að hann fór af velli fyrir Zamorano skoraði sá síðar- nefndi eftir sendingu frá Francesco Moriero. Fram að markinu átti Int- er í erfiðleikum með að komast í gegnum vel skipulagða vöm Napólí en í kjölfar marksins var Argentínu- manninum Fabian Ayala, fyrirliða Napólí, vikið af velli og eftirleikur Inter var auðveldur. Ronaldo, sem hafði lítið haft sig í frammi, var felldur á 73. mínútu, fékk víti, tók það sjálfur og gerði 15. deildarmark sitt á tímabilinu. Lazio hefur sjaldan leikið betur en í vetur en fór illa að ráði sínu þegar það sótti Atalanta heim og gerði markalaust jafntefli. Emiliano Mondonico, þjálfari Atalanta, er kunnur fyrir að skipuleggja vel út- færðan varnarleik og hann lokaði á eitt helsta sóknarlið deildarinnar auk þess sem menn hans fengu tvö góð marktækifæri eftir gagnsóknir. Lazio, sem vann Inter 3:0 í umferð- inni á undan, er sex stigum á eftir Juve. Roma vann Fiorentina sannfær- andi 4:1. Marco Delvecchio gerði tvö mörk á sex mínútum en Brasilíu- maðurinn Paolo Sergio og leik- stjórnandinn Francesco Totti gerðu sitt markið hvor. Austurríski mark- vörðurinn Michael Konsel varði víta- spyrnu frá Gabriel Batistuta snemma í seinni hálfleik en Argent- ínumaðurinn gerði eina mark Fior- entina um miðjan hálfleikinn, 16. mark hans á tímabilinu. Þetta var fyrsta tap Fiorentina í síðustu sjö leikjum en fjórði sigur Roma í röð. Empoli vann Udinese óvænt 1:0 og gerði Carmine Esposito eina mark leiksins úr vítaspyrnu 10 mín- útum fyrir hlé. Mario Stanic og Massimo Crippa skoruðu fyrir Parma sem vann Bologna 2:1 eftir að hafa verið marki undir. Varnarmaðurinn Giacomo Dicara gerði bæði mörk Vicenza í 2:1 sigri á Brescia. GÍFURLEG spenna er á toppn- um í skosku úrvalsdeildinni þar sem Celtic, Hearts og Rangers - meistari undanfarin níu ár - berjast um titilinn. Celtic vann Hibs 1:0 og er ineð tveggja stiga forystu á Hearts sem gerði jafntefli, 2:2, við Rangers en meistar- arnir eru fjórum stigum á eftir nágrönnunum í Celtic. Jörg Albertz bjargaði stigi fyrir meistara Rangers, jafnaði á síðustu mínútu með skoti af um 20 metra færi, en hann jafnaði líka skömmu fyrir hlé. Þrátt fyrir stig- ið púuðu um 50.000 áhangendur Rangers á liðið - gerðu sér grein fyrir stöðunni. Ekki bætti úr skák að Richard Gough, fyrirliði Ran- gers, fékk að líta rauða spjaldið um miðjan seinni hálfleik og fékk síðan rautt spjald í annað sinn eftir leik, að þessu sinni fyrir mótmæli, en fyrir vikið á hann íangt bann yf- ir höfði sér. Jim Jefferies, þjálfari Hearts, var óánægður með jafnteflið. „Stigin voi-u tekin frá okkur en þó við værum betri gátum við ekki hrist Rangers af okkur.“ Hearts hefur hvorki sigrað Celtic né Ran- gers á tímabilinu en var nálægt fyrsta sigrinum á Ibrox síðan 1996 þegar Neil McCann notfærði sér lélegt útspark markvarðarins Andys Gorams og skoraði af 25 metra færi eftir hálftíma leik. Ran- gers sótti meira í seinni hálfleik þar til Gough var vikið af velli. Jim Hamilton gerði annað mark gest- anna stundarfjórðungi fyrir leiks- lok, 13. mark hans á tímabilinu, en mínútu síðar fékk Grant Murray, samherji hans, aðvörun í annað sinn og þar með rautt spjald. Walter Smith, þjálfari Rangers, sagði að liðið sjálft væri helsti and- stæðingur þess. „Lið hafa ekki verið að sigra okkur að undan- förnu heldur höfum við tapað fyrir okkur sjálfum með mörkum sem við höfum fært mótherjunum á silfurfati. Hins vegar var ég ánægður með baráttuna núna og Egyptaland Afríkumeist- ari í fjórða sinn EGYPTALAND vann Suður- Afríku 2:0 í úrslitum Afríku- keppninnar í knattspymu um helgina. Egyptaland vai-ð síð- ast meistari fyrir 12 ámm og hefur fjórum sinnum fagnað sigri eins og Ghana, sem er met. Ahmed Hassan skoraði eftir fimm mínútur og Tarek Mostafa bætti öðru marid við átta mínútum síðar. „Við töpuðum og það var sanngjamt," sagði Jomo Sono, þjáifari Suður-Afríku. „Við áttum ekki að ná í úrslit en ferðum það og ég er ánægður. Ig hef gert mitt og er hætt- ur.“ Frakkinn Philippe Troussier, sem þjálfaði Burk- ino Faso í keppninni, tekur við liðinu og stýrir því í heims- meistai-akeppninni í Frakk- landi. Mahmoud el-Gohari, þjálf- ari Egýþtalands, varð fyrstur til að verða roeistari sem leik- maðúr 'Og þjálfari í keppninni en hann var í sigurliðinu og markakóngur 1959. Juventus aftur jöfnunarmarkið en held að Ric hard Gough hafi ekki átt skilið ai vera vikið af velli." Mark Rieper tryggði Celtic 1:( sigur á Hibs í Edinborg. Craij Burley fékk tækifæri til að bæt: öðm marki við skömmu síðar of John Hughes var nálægt því ai jafna í seinni hálfleik en mörkii urðu ekki fleiri. Robbi Winters skoraði fyri Dundee United um miðjan fyrr hálfleik en varamaðurinn Rodd; Grant jafnaði fyrir St. Johnstom stundarfjórðungi fyrir leikslok. Paul Gascoigne Öfund út í Rangers PAUL Gascoigne, leikmaður Glasgow Rangers, sakaði ieikmenn annarra liða í skosku úrvalsdeildinni um að reyna meira á sig á móti Rangers en Hearts og Celtic sem eru í baráttu við meist- arana um titilinn. Enski landsliðsmaðurinn sagði að um öfund væri að ræða - ótrúlega margir væru á móti því að Rangers yrði meistari 10. árið í röð. „Margir eru sárir og öf- undsjúkir og ég skil ekki hvers vegna svo margir vilja ekki að Rangers verði meist- ari 10. árið í röð,“ sagði Gascoigne rétt fyrir leik Rangers og Hearts á Ibrox á laugardag. „Ótrúlegt er að sjá hvað menn leggja mikið á sig þegar þeir spila á móti Rangers í samanburði við hvað þeir gera á móti öðrum liðum. Engum dylst hvað býr að baki.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.