Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tugþrautin á stigamótin FRÁ og með næsta sumri verða nokkur tugþrautarmót hluti af stigamótaröð Alþjóða- fijálsíþróttasambandsins í fyrsta skipti. M.a. verða mótin í Götzis í Austurríki og í Ta- lence í Frakklandi inni í þess- ari mótaröð. Verða svipuð pen- ingaverðlaun fyrir sigur í mót- unum eins og í völdum grein- um á öðrum stigamótum sam- bandsins. Gtsli Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars Magnús- sonar, sagði að að sjálfsögðu myndi Jón taka þátt í þessum mótum eins og kostur væri á. Þá hefur Jóni verið boðið á sterkt tugþrautarmót í Kali- forníu 26. og 27. apríl, en hann verður í æfíngabúðum þar síð- ari hluta mánaðarins. Gísli sagði að þeir ætluðu að taka þátt í þrautinni en ekki yrði lögð áhersla á að slá einhver met í henni því aðallega væri horft til þess að ná góðum ár- angri í Götzis rúmum mánuði sfðar. Bætti heimsmetið ASHIA Hansen frá Bretlandi varð Evrópumeistari í þrístökki kvenna í Valencia á laugardag og bætti heimsmetið í greininni. Hún stökk 15,16 metra og bætti þriggja ára gamalt met Yolöndu Chen frá Rússlattdi um 13 sentímetra. Þjóðverjar bestir ÞJÓÐVERJAR urðu í þremur efstu sætunum í stangarstökki karla og er það í fyrsta sinn sem það gerist á Evrópumóti. Tim Lobinger sigraði, stökk 5,80 metra í þriðju tilraun og bætti eigin árangur um 10 sentímetra. Michael Stolle nældi í silfrið og Danile Ecker bronsið. Tveir bestu stangar- stökkvarar Evrópu, Sergei Bu- bka frá Ukraínu og Rússinn Maksim Tarasvo, voru ekki með í Valenciu. Meðan keppnin fór fram t stangarstökkinu var einnig keppt í þristökki kvenna. Fyrsta gull Portúgala RUI Silva, tvítugur Portúgali, sigraði óvænt í 1.500 metra hlaupi karla. Hann var þar með fyrsti Portúgalinn til að verða Evrópumeistari innan- húss. Frakkinn Chekhamani, sem var með forystu t' hlaupinu eftir 400 metra, varð annar og Rússinn Andrey Zadorozhniv þriðji. Baulað á breska þjóð- sönginn LEIÐINLEG uppákoma átti sér stað við verðlaunaafhend- ingu í 3.000 m hlaupi karla þar sem gullið kom í hlut Johns Mayocks frá Bretlandi. Þegar þjóðsöngur Bretlands var leik- inn við verðlaunaafhendinguna bauluðu heimamenn á áhorf- endapöllunum. Vildu þeir þar með láta óánægju st'na í ljós þar sem þeir töldu Mayock hafa beitt bolabrögðum við að komast fram úr þremur heima- mönnum á lokasprettinum. Ma- yock beitti engum bolabrögð- um að mati dómara, en hann sýndi mikla ákveðni, sem fór illilega fyrir bijóstið á heima- mönnum. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Völu tókst ekki að verja Evrópmeistaratitilinn, en hún gaf hann ekki átakalaust eftir Heims- metið var lagt undir Engum blöðum er um það að fletta að stangarstökkskeppni kvenna var ein allra skemmtileg- asta greinin á Evr- ■har ópumeistaramótinu. Benediktsson Niðurstaðan var skrífar Völu Flosadóttur og frá Valencia felensku þjóðinni e.t.v. vonbrigði en samt sem áður var hún sanngjöm þar sem sú besta stóð uppi sem sigurvegari, Evrópu- meistari og heimsmethafi, 4,45 m, það var Anzhela Balakhonova frá Úkraínu. Hún sýndi kænsku með því að taka áhættuna á að byrja seint og kom því óþreytt til keppni þegar aðrir keppendur voru búnir að brenna nokkru af þrekinu. Hún notaði aðeins 7 stökk til þess að tryggja sér gullið, á sama tíma og Vala varð að nota 14 stökk til þess að fá brons með 4,40 m. Tékkinn Daniela Bartova varð önnur, stökk jafnhátt og Vala, en notaði færri til- raunir til að ná þeirri hæð. Vala tapaði heimsmetinu og hún missti Evrópumeistaratitilinn sem hún hefur átt sl. tvö ár, en hún sýndi keppnisskap, þrek, og gaf hvergi eftir fyrr en í fulla hnefana, eins og alltaf. „Eg ætlaði að gera mitt besta,“ sagði hún að lokinni undankeppninni og víst er að hún gerði það, en það nægði ekki, því miður. Eftir sem áður getur hún borið höfuðið hátt eftir þessa fræknu keppni þar sem hver dropi af orku var nýttur til hins ýtrasta. Þessi tvítuga ljóshærða stúlka sem var á hvers manns vörum á Evrópu- mótinu, er ljósið sem lýsir upp ís- lenskt íþróttalíf, öðrum fyrirmynd utan vallar sem innan. Vala byrjaði að stökkva er hæðin var 3,95 og fór létt yfir, líkt og hún gerði einnig með 4,05, 4,15 og 4,25. Þá var keppendunum tekið að fækka. Ungversku stúlkurnar, Ez- ster Szemerdi og Zsuzsa Zsabo heltust úr lestinni með 4,15 m og hín Nicola Rieger stökk 10 cm hærra. Sama gerði Janine Whitlock og setti um leið breskt met. Eftir stóðu þá þrjár stúlkur, Vala, Balak- honova og Bartova. Vala lenti í vandræðum með at- rennuna í tilraunum sínum við 4,30 og fór ekki yfir fyrr en í þriðju til- raun. Bartova lenti í því sama, en Balakhonova var öryggið uppmálað og lét ekkert vefjast fyrir sér, stökk ævinlega yfir í fyrstu tilraun, nema í 4,25 m þá þurfti tvær atrennur. Til- raunir Völu við 4,30 kostuðu orku sem hún hefði betur átt síðar. Vala stökk 4,35 í fyrstu tilraun og var hátt yfir. Hún átti frumkvæðið í einvíginu við Bartovu sm tók áhætt- una á að sleppa þeirri hæð, enda stóð hún eklri betur að vígi færi hún yfir. Ekki var hins vegar að spyrja að Úkraínustúlkunni, hún fór yfir og það léttilega. Vala felldi 4,40 í fyrstu tilraun og Bartova líka, en Balakhonova hélt sínu striki. Bar- tova sá silfurverðlaunin er hún fór yfir 4,40 í annarri tilraun eftir að Vala hafði fellt aftur, eftir að hafa aðeins vantað herslumuninn upp á. Hann kom síðan í þriðja stökki. Þar með var ekkert annað að gera en hækka rána í 4,45 m tilraun við heimsmet. Heimsmethafinn Vala reyndi fyrst. Fyrsta tilraunin var best og hún komin yfir er hún feldi á leið niður og ekki ósvipað gerðist í 2. umferð. Bartova var líka í basli og felldi í tvígang og loks í þriðja sinn eftir að Vala hafði einnig fellt þriðja sinni. Balakhonova var hins vegar sem fyrr öryggið uppmálað fór yfir 4,45 í íyrstu tilraun og þar með var titillinn hennar að hálfu og að öllu eftir að Vala og Bartova höfðu orðið að játa sig sigraðar. Evrópumeistarinn reyndi síðan við 4,50 í þrígang áður en hún var krýnd titli sínum en hafði ekki ár- angur sem erfiði, var fjarri markinu í öll skiptin. Engin vafi var á að besti kepp- andinn sigraði að þessu sinni, þetta var dagur Balakhonovu, aðrir voru skrefinu á eftir. íl MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 B 9 FRJALSIÞROTTIR Morgunblaðið/RAX ANZHELA Balakhonova á fullri ferð með stöngina, Vala liggur fremst á myndinni í hvíldarstöðu og fyrir aftan hana Bartova, sem gjóar augunum til Balakhonovu, sem augnabliki síðar var búin að hrifsa heimsmetið frá Völu og einnig gullsætið, sem Vala var í í Gautaborg fyrir tveimur árum. Nú taka við ný markmið Eg'þurfti miklu meira að hafa fyrir bronsinu nú en gullinu fyrir tveim- ur árum,“ sagði Vala Flosadóttir, stangarstökkvari úr ÍR eftir að hún hafði tekið við bronsverðlaunum fyrir stangarstökkið og um leið þurft að sjá á bak Evrópumeistaratigninni. Vala átti möguleika á að verða fyrsti íslend- ingurinn sem verður Evrópumeistari tvö mót í röð. „Sigurinn í Stokkhólmi var frekar léttur, a.m.k. í minningunni en nú var ég alveg búin með alla krafta,“ sagði Vala og víst er að hún lagði sig fram. Gerði hvað sem hún gat til þess að vinna, en það þurfti að slá heimsmetið hennar til þess að það væri hægt. Vala stökk 4,40 m eins og Dani- ela Bartova sem varð önnur, Anzhela Balankhonova var hins vegar öruggur sigurvegari með 4,45 m. ,Að sjálfsögðu er ég ekki sátt við að tapa, en ég gerði mitt besta að þessu sinni. Keppnin var spennandi og tók mikið á, bæði líkamlega og andlega. Nú taka hins vegar við ný markmið," sagði Vala. „Ég hélt að keppnin stæði á milli mín, Balakhonovu, Batovu og Ezsterar Szmeredí frá Ungverjalandi, en hún náði sér ekki á strik. Annars gekk þetta að mestu eftir eins og fyrirfram var talið.“ Vala telur það ekki hafa verið mistök að byrja í 3,95 m en ekki 4,05 eins og hún hafði upphaflega gert ráð fyrir. Hver tilraun tekur sinn toll og þegar upp var staðið hafði Úkraínumaðurinn notað helmingi færri tilraunir en Vala. „Mér leið ekki vel í upphituninni, at- rennan var ekki að passa og því vildi ég ekki hætta á neitt og kaus að byrjað 10 cm lægra en upphaflega var á dag- skrá. Satt er að þetta voru óþarflega marga tilraunir, það er rétt, en svona æxlaðist þetta að þessu sinni.“ M.a. þurfti Vala í þrígang að fara yfir 4,30 m og var í basli. „Atrennan passaði ekki og síðan var ég orðin þreytt þegar þarna var komið við sögu og þar af leiðandi náði ég ekki eins vel að ein- beita mér í stökkinu. Síðan átti ég einnig í vandræðum með 4,40 og náði þeirri hæð einnig í þriðju tilraun og þá má segja að búið hafi verið úr rafhlöð- unum.“ Vala segir að framfarirnar séu mikl- ar í greininni enda er um nýlega keppnisgrein að ræða, og spurð að því hvort hún teldi að bæta þyrfti 30 cm við sigurhæðina nú til þess að vinna gullið á næsta EM innanhúss eftir 2 ár, svaraði hún: „Ég reikna fastlega með því að svo verði.“ Eftir að Vala losnaði við meiðslin sem hrjáðu hana hluta síðasta árs og komu að mestu leyti í veg fyrir að hún gæti keppt sl. sumar, hafa æfingar gengið að óskum og framfarimar ekki látið standa á sér. „Þær hafa gengið ótrúlega vel. Við höfum verið að leggja sérstaka áherslu á hlaupatæknina og þar af leiðandi hefur þyngdarpunktur- inn orðið annar sem leiðir aftur til þess að ég næ hærra uppstökki. Ég og þjálfarinn höfum verið að vinna í mörg- um öðrum atriðum og höldum því áfram. Þess vegna má búast við að ég taki miklum framförum á næstunni til viðbótar við það sem nú er.“ Vala segist hafa verið viss um slá þyrfti heimsmet sitt til að sigra á Evr- ópumeistaramótinu. Spurningin var bara hver ætti besta daginn og Balak- honova virkaði strax mjög létt.“ Vala kemur heim til Islands í dag í boði ríkisstjómarinnar. „Ég reiknaði ekki með því að hún myndi bjóða mér, frekar ÍR-ingar eða FRÍ, og boðið kom mér því á óvart. Það er gaman að koma heim og heyra hvernig fólk tekur þessu öllu og hitta um leið vini og ætt- ingja. Einnig vona ég að heimsóknin og ár- angur minn verði til þess að fleiri fylgi kjölfarið og sjái að allt sé hægt hafi fólk á annað borð trú á sjálfu sér.“ ■ ROMAN Seberle frá Tékklandi sem tók sæti heimsmeistarans í sjö- þraut, Roberts Zmeliks, í liði þjóðar sinn í sjöþrautarkeppninni á EM hrökk úr skaptinu vegna meiðsla í hné. Seberle tók þátt í fyrstu grein, 60 m hlaupi, en meiddist á læri í upphitun langstökksins og lét þá staðar numið. ■ ALEKSANDR Aberbukh hinn ungi sjöþrautarkappi frá Rússlandi stökk hæst allra í stangarstökki, 5,60, 30 cm hæira en Dezso Szabo frá Ungverjalandi sem næstur kom með 5,30 m. Aberbukh stökk fyrst 5 metra og síðan 5,20 en byrjaði síðan ekki af krafti fyrr en í 5,40, hæð sem Szabo felldi þrisvar. ■ KORZIZOGLOU frá Grikklandi sem sigraði í 60 m hlaupi sjöþraut- arinnar og tók forystu datt fljótlega úr keppni efstu manna. Hann hélt þó þokkalega á spöðunum, sá setti grískt met 5.989 stig. ■ ÍSLENDINGAR fengu sem kunn- ugt er ein verðlaun á EM er Vala Flosadóttir varð í þriðja sæti stang- arstökksins. Svíar fengu ein silfur- verðlaun, Finnar eitt silfur og eitt brons og Norðmenn ein bronsverð- laun. Danir fengu engan verðlauna- pening að þessu sinni. ■ MARIE Rasmussen frá Dan- mörku var nærri því að setja danskt met í stangarstökki. Hún komst í úrslit og var aðeins hárs- breidd frá því að fara yfir 4,05 m og bæta danska metið um 2 cm. ■ FIONNA May fyrrverandi heims- meistari í langstökki kvenna sigraði örugglega í langstökki á EM. Hún stökk lengst 6,91 m sem ítalskt met innanhúss.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.