Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 3
MORGUNB LAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 B 3 ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA ■ KÖRFUKNATTLEIKUR Wilson látinn Barcelona heldur toppsætinu Barselona skaust aftur á toppinn á Spáni í gærkvöldi, með góðum útisigri á Racing Santander, 4:2. Ri- valdo og Sonny Anderson skoruðu sín hvor tvö mörkin fyrir liðið. Real Madrid, sem var á toppnum í rúman sólarhring, vann Maliorca 2:0 að viðstöddum 90.000 áhorfend- um á sunnudaginn. Brasilíumaðurinn Roberto Carlos skoraði fyrir Real eftir 10 mínútur og slökkti þar með neista mótherj- anna sem tryggðu sér sæti í úrslit- um bikarkeppninnar í liðinni viku. Júgóslavinn Predrad Mijatovic inn- siglaði öruggan sigur Real eftir lið- lega hálftíma leik. „Við vorum agaðri, skipulagðari, spiluðum betur og stjórnuðum leiknum í fyrri hálfleik," sagði Jupp Heynckes, þjálfari Real. ■ tírslit / B14 ■ Staðan / B14 Grindvíkingar ráku bandaríska leikmanninn Darryl Wilson, en talsverðrar óánægju hafði gætt með hann undanfamar vikur og mánuði. Wilson, sem er stigahæsti maður DHL-deildarinnai-, er einn besti erlendi leikmaðui'inn í deild- inni, en Grindvíkingar voru ekki ánægðir með hann utan vallar og eins töldu þeir andann í liðinu ekki nægilega góðan. „Eigum við ekki að segja að tilfinningamar séu beggja blands," sagði Pétur Guðmundsson, fyi-irliði UMFG, í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. ,Andrúms- loftið verður skemmtilegra en á hinn bóginn skal viðurkennt að mikill hæfileikamaður hverfur á brott. Ég tel mikilvægara að allt liðið sé í góðum gír frekar en einn leikmaður. Þessi ákvörðun var tek- in í samráði við flesta sem málið snertir og það eru allir sáttir við þetta,“ sagði Pétur. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Grindvfltínga, sagði að Wilson væri látinn fara vegna síendurtekinna agabrota. „Það er ýmislgt búið að ganga á undanfarna mánuði. Wil- son var sannkallaður gullmoli þegar hann kom til landsins, hann gerði 38 stig að meðaltali í leik fyrir ára- mót og þá var hann að gefa stoðsendingar, stela boltanum og taka fráköst, en eftir áramót hefui’ hann ekki verið að gera slflct þótt hann sé með 28 stig að meðaltali í leik,“ sagði Benedikt í gærkvöldi. Og hann hélt áfram: „Skömmu eftir að hann kom fór hann að sýna á sér aðrar hliðar og í nóvember var strax ljóst að hann var ekki að gera eins vel og hann gat og leikmenn voru famir að kvarta undan honum. Strákamir koma þreyttir úr vinnu eða skóla á æfingar, og taka á af fullum krafti. Þeim líkaði illa að at- vinnumaðurinn var með hangandi haus og hugsaði um það eitt að ljúka æfingunni á sem ódýrastan hátt og komast til Reykjavíkur. Þessi hugsunarháttur skemmdi út frá sér og hinir ungu leikmenn liðsins urðu óöruggir með sig. Ástandið versnaði enn í desember og þá gerði ég honum ljóst að hann yrði að breyta hegðun sinni, annars yrði hann látinn fara. Hann lagað- ist, en kom svo úr jólafríi eins og hann hafði verið áður, með hang- andi haus og áhugalaus. Þá var rætt við hann á ný og fljótlega eftir bikarúrslitin var hon- um gefið síðasta tækifærið til að bæta ráð sitt Það gerðist ekki og því var hann látinn fara.“ Benedikt sagði að á vissan hátt væri eftirsjá í Wilson. Hann er góð- ur leikmaður, en hann verður að leggja sig fram. Það er litið upp til erlendu leikmannanna og þótt þeir telji sig eiga heldur heima í NBA- deildinni verða þeir að leggja eitt- hvað á sig. Við vomm búnir að heyra ýmsar sögur af honum sem við vildum ekki trúa. En nóttina fyrir biarúrslitaleikinn reyndi hann að lauma sér út af hótelinu til að komast á einhverja skemmtistaði og þvi miður reyndust margar af þessum sögum sannar. Mér fannst hann alveg geta verið í eina og hálfa klukkustund á dag í íþrótta- húsinu og látið eitthvað gott af sér leiða. Eftir það hefði hann mátt gera hvað sem vai- innan þeirra reglna sem gilda hjá liðinu en hann virtist ekki geta sætt sig við þetta. Hann fékk nokkur tækifæri til að bæta ráð sitt en gerði ekki,“ sagði Benedikt. Grindvíkingar era að leita að nýjum erlendum leikmanni og von- ast til að sá verði kominn til lands- ins áður en flautað verður til leiks KR og UMFG á fimmtudaginn. Pippen á fullt og Chicago að stinga af Á verðlaunapalli í Valencia Morgunblaðið/RAX VALA Flosadóttir, sem fékk brons, er hér (th) á verðlaunapalli á EM innanhúss í frjálsum iþróttum í Valencia. Evrópumeistarinn og heimsmethafinn Anzhela Balakhonova frá Úkraínu var sigurvegari, stökk 4,45 m, er fyrir miðju. Daniela Bartova (t.v) varð önnur, stökk jafnhátt og Vala, 4,40 m, en not- aði færri tilraunir til að ná þeirri hæð. I Heimsmetið... / B8 HANDKNATTLEIKUR KA-sigur í köflótt- um leik á Akureyri Ekki mátti miklu muna að ís- landsmeistarar KA dyttu niður í sjötta sæti deildarinnar því liðið var undir gegn Hauk- Stefán Þór um er skammt var til Sæmundsson leiksloka í KA-heimil- skrifar jnu j gærkvöldi. Allt var á öðrum endanum þessar lokamínútur en heimamenn unnu taugastríðið og mörðu sigur, 28:27, og komu sér þar með fyrir í þriðja sætinu á ný, stigi á eftir Fram. Leikurinn var í heild köflóttur, ansi harður en afar spennandi í lok- in. KA-menn vora mun betri í fyrri hálfleik og leiddu þá, 14:11. Haukar náðu sér ekki á strik í sókninni, skoruðu ekki mark í 9 mínútur þeg- ar KA breytti stöðunni úr 7:7 í 10:7 og raunar skoruðu þefr aðeins af vítalínunni síðustu 18 mínútur hálf- leiksins, með einni undantekningu þó. Þetta átti hins vegar eftir að breytast því allt annað og sprækara Haukalið mætti til leiks í seinni hálfleik, Gústaf Bjamason og Þor- kell Magnússon létu til sín taka og liðið skoraði 6 mörk á rúmum 5 mínútum á móti 2 mörkum KA og staðan orðin 16:18. KA-mönnum tókst að jafna met- in af harðfylgi en Haukarnir sprettu aftur úr spori og náðu þriggja marka forskoti, 20:23, rétt fyrir miðjan hálfleikinn. Mikil bar- átta í vörn KA, gegnumbrot Sverris Bjömssonar, öryggi Halldórs Sig- fússonar á vítalínunni og lagleg markvarsla Sigtryggs Albertssonar á mikilvægum augnablikum skiluðu síðan því sem þurfti á æsilegum lokamínútum. Harka var hlaupin í leikmenn og mikið um pústra en KA-menn höfðu betur þegar upp var staðið. Sverrir var liðinu mjög mikilvægur, braust hvað eftir ann- að í gegnum vöm Hauka og skoraði eða fískaði vítakast, sem Halldór skoraði ávallt úr. Þá var Karim Yala sérlega öflugur í fyrri hálfleik og þeir Björgvin Björgvinsson og Leó Öm Þorleifsson traustir. Hjá Haukum sýndu Gústaf og Þorkell góð tilþrif í seinni hálfleik og aðrir skiluðu þokkalegu dagsverki en lið- ið hélt ekki fullum dampi síðustu mínúturnar og Haukum tókst því hvorki að halda forskoti sínu né hanga á jafntefli. Nú er aðeins um þriðjungi af riðlakeppninni í NBA-deildinni ólokið og því rétt að spá í stöðu lið- ■■■■ anna. Seattle virðist Gunnar vera að stinga af í Valgeirsson Vesturdeildinni og hafa fengið Seottie Pippen til baka úr meiðslum. Bæði lið léku vel um helgina. Seattle vann Phoenix heima á sunnu- dag, 89:87, í leik þar sem Phoenix átti þrjú tækifæri á síðustu sekúnd- unum til að jafna. Gary Payton, leik- stjómandi Seattle, hefur verið frá- bær í vetur og hann skoraði 22 stig fyrir lið sitt. Undirritaður fór nýlega á leik Los Angeles Lakers gegn Seattle, sem fór í framlengingu. Payton og framherjinn Vin Baker spila báðir geysivel þessa dagana og liðið mun sennilega hafa besta ár- angurinn fyrir úrslitakeppnina í Vesturdeildinni, jafnvel í allri deild- inni. George Karl, þjálfari Seattle, sagði eftir sigur Seattle gegn Los Angeles: „Ég er með mjög sérstakt lið í höndunum núna. Þetta er án efa besta liðið sem ég hef haft síðan ég kom hingað. Vin Baker hefur skipt sköpum hvað varðar samheldni hópsins og ég hef aldrei áður notið þess eins mikið að þjálfa og nú.“ Fjögur lið berjast um annað sætið í Vesturdeildinni: Utah, Los Angeles Lakers, Phoenix og San Antonio. Minnesota, Portland og Houston virðast einnig líkleg til að komast í úrslitakeppnina. Los Angeles heldur áfram að vinna erfiðu leikina en tapa gegn lé- legri liðum hér og þar. A sunnudag heimsótti liðið veikt lið New York, sem er án þriggja lykilmanna. New York lék sinn besta leik í langan tíma og vann sanngjarnt, 101:89. Al- an Houston hefur leikið vel fyrir New York undanfarið og hann skor- aði 32 stig fyrir heimaliðið. Utah Jazz vann góðan sigur í Hou- ston á sunnudag, 106:100, þar sem Karl Malone skoraði 21 stig. San Antonio er að taka við sér eftir end- urkomu Davids Robinsons, en hann missti 18 leiki vegna meiðsla. í Austurdeildinni hefur Chicago tekið mikinn kipp eftir að Scottie Pippen kom aftur inn í liðið. Það hef- ur unnið 19 af síðustu 24 leikjum sín- um. A laugai'dag vann Chicago lið Sacramento heima, 109:94. Pippen skoraði 29 stig og Michael Jordan 28. Dennis Rodman tók 18 fráköst og er kominn aftur í byrjunarliðið eftir að hafa angrað forráðamenn liðsins undanfamar vikur með hegðun sinni (hann hefur sennilega verið orðinn leiður á að hegða sér of vel!). „Scottie byrjaði að hitta í þriggja stiga skotunum og hann er óstöðv- andi fyrir vörn andstæðinganna þeg- ar hann byrjar á því,“ sagði Micahel Jordan eftir leikinn. Miami Heat hefur verið „heitasta" liðið í deildinni undanfarið. Liðið hef- ur unnið fjórtán af síðustu fimmtán leikjum sínum. Alonzo Mouming, miðheiji liðsins, krafðist þess nýlega af Pat Riley að fá boltann meira í sókninni og eftir þá ósk hefur leikur liðsins teldð stakkaskiptum. Indiana Pacers hefur leikið mjög vel undanfarið undir stjórn Larrys Birds og hann hlýtur að koma til greina sem þjálfari ársins. Liðið vann Portland, 124:59, á föstudag og er það í fyrsta skipti í 52 ára sögu deildarinnar. Ingólfur og Edda sigruðu með yfirburð- um í Árósum Edda Blöndal vann danska stúlku 6-1 í úrslitum um fyrsta sætið i +55 kg flokki (kumite) á alþjöðlegu rnðti í Árósum í Dan- mörku um helgina og varð í 2. sæti í kata. Ingólfur Snorrason sigraði með yfirburðum í +80 kg flokki og vaim dauska mótherja sinn 6-1 í úrslitum. Halldór Svavarsson varð i 2. sæti í -70 kg flokki. Um 160 keppendur frá 10 löndum tóku þátt í mótinu. Keppt var i tveimur flokkum kvenna og þremur flokkum karla og er þetta besti árangur íslendinga í keppninni. Mótið er hugsað sem undir- búningur fyrir opna Skandinav- íska meistaramótið sem haldið verður i Svíþjóð eftir tvær vik- ur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.