Morgunblaðið - 03.03.1998, Page 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Leikmaður
seldur fýrir kjöt
RÚMENSKA knattspyruufélagið Jiul Petrosani seldi miðjumanninn Ion
Radu til Vilcea í 2. deild og fékk tvö tonn af nautakjöti og svínakjöti í
staðinn. Forseti félagsins sagði að kjötið yrði selt til að hægt væri að
greiða leikmönnum félagsins laun. Han sagði ennfremur að varnarmað-
ur hefði verið seldur til félags í 2. deild fyrir 10 bolta og búninga. Staða
félagsins er ekki aðeins slæm hvað fjármálin varðar heldur virðist liðið
dæmt til að falla í 2. deild - er á botninum með sex stig.
Fyrsta
mark
Nevilles
VARNARMAÐURINN Philip Neville gerði fyrsta mark sitt fyrir
Manchester United þegar liðið sótti Chelsea heim á Stamford
Bridge á laugardag og vann 1:0. Þetta var 74. leikur þessa tví-
tuga enska landsliðsmanns og markið sem hann gerði eftir hálf-
tíma leik stóð upp úr baráttunni. Það kom eftir ágætt spil. Denis
Irwin var upphafsmaðurinn á miðjunni; hann sendi á Teddy
Sheringham sem spiiaði þríhyrning við Andy Cole og sendi síðan
á Neville. Varnarmaðurinn skaut framhjá Dmitri Kharine í stöng-
ina fjær og inn.
Chelsea er 14 stigum á eftir
United og úr leik í baráttunni
um titilinn. United hafði nokkra yfir-
burði og heimamenn fengu ekki
nema þrjú umtalsverð færi, Mark
Hughes tvö og Gianfranco Zola eitt.
Peter Schmeichel, markvörður
United, hafði lítið að gera en þurfti
einu sinni að teygja úr sér - sló bolt-
ann yfir jlána eftir þrumuskot frá
DanJPetfescu í fyrri hálfleik.
„Ég hélt að ég væri rangstæður,"
sagði Neville um aðdragandann að
markinu en í sjónvarpi mátti sjá að
ekkert var athugavert við staðsetn-
ingu hans. „Ég var ekki viss um hvað
ég ætlaði að gera þegar ég fékk bolt-
ann því ég var í óvanalegri stöðu.“
j Rnattspyrnustjórinn Alex Ferguson
tók í sama streng. „Það var óvana-
legt að sjá Philip skora en hann nýtti
- tækifærið mjög vel.“
Ferguson sagði að leikurinn væri
ekki góð auglýsing fýrir liðin. „Vind-
urinn og völlurinn hjálpuðu ekki til
en þetta var slakur leikur. Við vörð-
úmst mjög vel og ég er sérstaklega
ánægður með sigurinn, miklu
ánægðari en þegar við unnum liðið
hérna í bikarnum í síðasta mánuði.
Ég hélt að Chelsea yrði helsti keppi-
nautur okkar um titilinn en liðið er
nú 14 stigum á eftir okkur og 10 um-
ferðir eftir. Þessi úrslit hafa gert
stöðu liðsins mjög erfiða.“
Spjöldin voru 16 sinnum á lofti í
tveimur fyrri viðureignum liðanna á
tímabilinu og ámóta ólga var í mönn-
um að þessu sinni, sex voru bókaðir -
^ þrír úr hvoru liði. David Beckham,
Nicky Butt og Paul Scholes áttu
miðjuna og Ronny Johnsen var
traustur í vöm United en varnar-
maðurinn Gary Pallister fór meiddur
af velli í fyrri hálfleik. Leikurinn var
árla dags vegna Evrópuleiks United
og Mónakó á morgun og taldi Fergu-
son að Pallister gæti leikið. „Evrópu-
leikurinn er mikilvægur fyrir okkur
og þetta hjálpaði í undirbúningnum,"
sagði Ferguson um sigurinn.
Sutton með þrennu
Atta mörk voru gerð á Ewood
,' Park, þar sem Blackburn komst í 5:0
en vann Leicester 5:3. Chris Sutton
var með þrennu fyrir heimamenn en
Martin Dahlin og Colin Hendry
gerðu sitt markið hvor. „Við stóðum
okkur vel í klukkutíma," sagði
Sutton, sem er kominn með 16 mörk
í deildinni. „Það var gott að ná að
sigra á ný eftir slakt gengi að undan-
fómu en síðustu mínútumar vora
ekki alveg í lagi hjá okkur.“ Það er
mikið til í því - Leicester gerði þrjú
mörk á átta mínútum - Stuart Wil-
son, Muzzy Izzet og Robert Ullat-
home skoraðu.
Collymore maður leiksins
Stan Collymore gerði bæði mörk
Aston Villa í 2:1 sigri á Liverpool.
Þetta var fyrsti leikur Villa undir
stjóm Johns Gregorys og Collymore
stóð undir væntingum hans en mið-
herjinn, sem Villa keypti frá Liver-
pool í fyrrasumar, hafði aðeins gert
fimm mörk í 32 leikjum.
Michael Owen, sem er 18 ára og
lék í treyju númer 18, gerði 18. mark
sitt á tímabilinu, skoraði úr víta-
spymu á fimmtu mínútu. Bosnich
markvörður braut á Leonhardsen
sem var kominn í gegn og víti var
óumflýjanlegt en markvörðurinn var
heppinn að fá ekki rautt. Collymore
jafnaði fimm mínútum síðar eftir
vamarmistök og innsiglaði sigurinn
með marki af stuttu færi um miðjan
seinni hálfleik. „Stan stóð sig vel,“
sagði Gregory. „40.000 áhorfendur
púuðu á hann þegar hann lék í fyrsta
sinn í Liverpool eftir að hafa farið
frá félaginu. Nú þurfti hann að sanna
ýmislegt fyrir 40.000 áhangendum
og hann gerði það.“
Brad Friedel lék í marki Liverpool
í fyrsta sinn en David James hafði
leikið 212 leiki í röð síðan í febrúar
1994.
Met hjá Coventry
Coventry vann Crystal Palace á
útivelli 3:0, sjöundi sigur liðsins í röð
sem er félagsmet. Paul Telfer braut
ísinn á fyrstu mínútu eftir vamar-
mistök, Viorel Moldovan bætti öðra
marki við á Selhurst Park skömmu
fyrir hlé og Dion Dublin innsiglaði
öraggan sigur stundarfjórðungi fyrir
leikslok. Hann hefur gert 63 mörk
fyrir félagið í efstu deild og er
markahæsti leikmaðm- þess, hafði
sætaskipti við Cyrille Regis.
Hermann Hreiðarsson þótti góður
í liði Palace sem er nú á botni deild-
arinnar í fyrsta sinn á tímabilinu.
Steve Coppell ákvað að sækja til sig-
urs og stillti upp leikkerfinu 4-4-2 en
hðið átti ekkert í gestina. Sérstak-
lega reyndist Darren Huckerby ný-
liðunum erfiður og ekki tókst þeim
að fagna sigri á heimavelli að þessu
sinni frekar en fyrr í vetur.
Púað á Speed
Gary Speed, fyrrverandi fyrirliði
'
Reuters
Collymore fagnar
STAN Collymore skoraði tvö mörk fyrir Aston Villa gegn fyrrum félögum sínum hjá
Liverpool og tryggðl liðl sínu slgur, 2:1. Hér sést hann fagna öðru markinu.
Everton, lék á Goodison Park í
fyrsta sinn síðan hann fór frá
Éverton til Newcastle og áhorfendur
sem áður klöppuðu honum lof í lófa
púuðu á hann lengst af. Newcastle
átti meira í leiknum en tókst ekki að
notfæra sér yfírburðina. Everton
barðist fyrir veranni í deildinni og
fagnaði markalausu jafntefli en liðið
er fimm stigum frá fallsæti.
Don Hutchison lék fyrsta leik sinn
fyrir Everton og John O’Kane var í
fyrsta sinn með á Goodison Park en
Éverton var án níu manna sem ann-
ars hefðu væntanlega verið í byrjun-
arliðinu. Norðmaðurinn Thomas My-
hre gerði mistök sem hefðu getað
kostað mark snemma leiks en var
frábær eftir það.
Óvæntir sigrar
Southampton vann 1:0 í Leeds og
Bamsley gerði sér lítið fyrír og vann
Wimbledon 2:1 en þessi úrsht þóttu
frekar óvænt.
Þetta var annar útisigur Sout-
hampton í röð og liðið virtist ekki
hafa mikið fyrir honum. Reyndar var
markið í byrjun seinni hálfleiks í
ódýrari kantinum og líklegt að mark-
vörðurinn Nigel Martyn kenni sér
um. John Beresford tók aukaspymu
og sendi á Palmer sem skallaði fyrir
markið. Martyn missti af boltanum,
Egil Östenstad skaut að marki og
David Hirst bætti púðri í skotið rétt
utan marksins, gulltryggði að bolt-
inn færi rétta leið.
Leeds átti meira í fyrri hálfleik en
Jimmy Floyd Hasselbaink og Rod
Wallace komu boltanum ekki fram-
hjá Paul Jones í marki gestanna.
Östenstad var klaufi að bæta ekki
öðra marki við. Stundarfjórðungi
fyrir leikslok fékk Carlton Palmer,
fyrrverandi leikmaður Leeds, rauða
spjaldið og við það vænkaðist hagur
Leeds en liðinu tókst samt ekki að
nýta sér liðsmuninn.
Bamsley, sem sló Manchester
United út úr bikamum með 3:2 sigri
sl. miðvikudag, fylgdi sigrinum eftir,
vann Wimbledon 2:1 og færðist upp í
18. sæti en liðið hafði verið í neðsta
sæti síðan 8. desember.
Öruggt hjá Derby
Dean Sturridge lenti í árekstri á
leikdag og var ekki með Derby þeg-
ar liðið vann Sheffield Wednesday
3:0. „Það var gengið frá okkur,“
sagði Ron Atkinson, knattspyrnu-
stjóri Sheffield. „Við vorum ömur-
legir og eram heppnasta lið lands-
ins,“ bætti hann við en Sheffield
hefði þess vegna getað tapað 6:0.
Paulo Wanchope skoraði þegar á
þriðju mínútu, bætti öðra marki við í
byrjun seinni hálfleiks og Gary
Rowett gerði þriðja markið. „Þeir
gerðu allt betur en við,“ sagði Atkin-
son um leikmenn Derby. „Þetta var
einn lakasti leikurinn undir minni
stjóm.“
Lánleysi Bolton
Tottenham vann Bolton 1:0 og
komst af hættusvæðinu en Bolton
hefur leikið 12 leiki í röð án sigurs og
staða liðsins allt annað en góð við
botninn.
Allan Nielsen gerði eina markið á
White Hart Lane undir lok fyrri
hálfleiks en Bolton átti að fá víta-
spyrnu í bytjun þegar markvörður-
inn Baardsen braut á Dean
Holdsworth. „Við voram heppnir að
ekki var dæmt víti,“ sagði Christian
Gross, stjóri Spurs. „Það var mikil-
vægt fyrir okkur að sigra lið sem er
líka að berjast við að forðast fall. Við
voram taugaóstyrkir í byrjun en sig-
urinn eykur sjálfstraustið."
Todd sagði að leikmenn slnir lékju
ekki eins og þeir best gætu og væra
því í hópi þriggja neðstu liða. „Ég
var óánægður með sendingarnar á
miðjunni og við voram ekki að skapa
neitt - gáfum mótherjunum boltann
hvað eftir annað. Við þurfum að
bæta spilið og enn er von.“
Guðni Bergsson lék í vörninni hjá
Bolton og Arnar Gunnlaugsson kom
inná fyrir Pollock um miðjan seinni
hálfleik.
■ Úrslit / B14
■ Staðan / B14