Morgunblaðið - 20.03.1998, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ________________________________________________________FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 B 7
DAGLEGT LÍF
PALINA JONSDOTTIR
kennari
Lætur ekki
mata sig
PÁLÍNA Jónsdóttir kennari sagð-
ist ætla að læra frönsku og á píanó
þegar hún færi á eftirlaun, en hefur
ekki enn haft tíma til þess því hún
er á ferð og flugi frá morgni til
kvölds. Og þegar hún loks er heima
við þagnar síminn ekki.
Starfsævinni hefur hún að mestu
eytt í kennslu og barnavemdarmál.
Hún er með kennarapróf og BA í
þýsku ög dönsku, og kenndi lengst
af í Námsflokkunum og í Kennara-
skólanum. Síðar hafði hún umsjón
með endurmenntunarnámskeiðum
kennara í Kennaraháskólanum.
„Starfslok voru auðveld fyrir mig.
Ég hafði verið stundakennari við
Menntaskólann við Sund áður en ég
lét formlega af störfum árið 1994,
en ég hef nú samt komið þangað á
hverjum vetri síðan sem forfalla-
kennari. Ég er semsagt ekki hætt!“
Auk þess að grípa i forföll er Pá-
lína með nokkra nemendur í auka-
tíma. Einnig hefur hún réttindi sem
leiðsögumaður og var síðast um
áramótin á ferð með Þjóðverjum
um landið. „Það er mín heilaleik-
fimi. Ég les allt sem ég kemst yfir
um sögu, jarðfræði og það sem efst
er á baugi í þjóðmálum. Leiðsögu-
mannsstarfið krefst þess að maður
fylgist vel með, og það bætir aftur
minnið. Mér fmnst það mjög gef-
andi að vera með erlendum ferða-
mönnum og ég hef kynnst landinu
mínu á nýjan leik. Börnin mín hafa
viljað tölvuvæða mig svo ég geti
verið í sambandi við fólk á netinu,
en ég vil miklu heldur fara út úr
húsi og hitta fólkið."
Fyrir tuttugu árum missti Pálína
eiginmann sinn, Ágúst Sigurðsson
cand.mag., og þá gerði hún ýmsar
ráðstafanir. „Ég minnkaði allt,
húsnæðið, bílinn og vinnuna. Ég
seldi íbúðina okkar sem var 200
fermetrar því ég gat ekki hugsað
mér að eyða tíma mínum í þrif og
viðhald á svo stóru húsnæði,
greiddi börnunum föðurarfinn og
keypti mér 100 fermetra íbúð
hérna í Kópavogi. Og vinnuna hafði
ég minnkað smám saman því ég
vildi hafa tíma fyrir sjálfa mig og
Sjúkravinur í rúm tfu ár
Pálína á fimm börn, er að fá tí-
unda barnabarnið og á eitt
langömmubarn. Jafnhliða kennsl-
unni var hún dagmamma barna-
barnanna, en það er ekki aðeins
ungviðið sem hefur notið umönnun-
ar hennar. í rúm tíu ár hefur hún
starfað sem sjúkravinur hjá deild
Rauða krossins í Kópavogi. „Þegar
foreldrar mínir létust hafði ég laus-
an tíma og gekk þá niður í Sunnu-
hlíð, hjúkrunarheimili aldraðra, og
spurði hvort þau gætu ekki eitthvað
notað mig. Þar voru starfandi
sjúkravinir og ég gekk í þeirra hóp.
Við lesum fyrir vistmenn, og reyn-
um að flytja lífið fyrir utan inn til
þeirra og sýna þeim lífið fyrir utan
ef það hefur heilsu til.“
Sjálf hugsar Pálína vel um heils-
una. „Þegar maðurinn minn veiktist
áttaði ég mig á því að ég hafði bara
einn skrokk og að hann yrði að duga
hvað sem á bjátaði. Ég fór í leikfimi.
Svo var annað nýrað tekið úr mér,
ég varð hundslöpp á eftir og hætti
þá í leikfiminni, en fer núna í göng-
ur með systur minni sem er íþrótta-
kennari. Við bregðum okkur líka á
skíði þegar færið er gott. I sam-
bandi við mataræði læt ég bara lík-
amann velja. Hann vill til dæmis
ekki fitu, en hollan mat að öðru leyti
held ég.“
Rauði krossinn er ekki eina félag-
ið sem Pálína starfar í, hún er bæði
í stjórn Samtaka um kvennaathvarf
og í Félagi eldri borgara, og skýrir
það að vissu leyti söng símans allan
daginn. En hvernig getur stunda-
tafla kennslukonunnar litið út á
venjulegum degi?
„Til hádegis gæti ég verið í
Sunnuhlíð, eftir hádegi tekið tvo
nemendur í aukatíma og seinnipart
dags gæti ég farið á fund, tvo í gær.
Einu sinni í viku syng ég svo með
„senjorítunum“ sem er hluti af
Kvennakór Reykjavíkur, og einu
sinni í viku gæti ég tvíbura."
Þrátt fyrir ofangreinda athafna-
semi hefur Pálína tíma fyrir áhuga-
málin. Hún segist vera tónlistarf-
rík. „Það skemmtilegasta sem ég
fjölskylduna." geri er að hlusta á plöturnar og
en hefur reynslu stjórnenda og ef til vill verið frumkvöðlar á ýmsum svið- Freistandi að fara suður á bóginn
um, ætti að vera ráðið sem sérstakir
ráðgjafar til að miðla þeim yngri af
kunnáttu sinni. í Bretlandi hefur
ráðgjafarþjónusta sem þessi verið
nefnd „Senior Service", og hefur gef-
ist mjög vel.“
Sveinn segist ekki hafa búið sig
sérstaklega undir þetta æviskeið
fjárhagslega. „Ég skipulagði ekkert,
og fram til þessa hefur þjóðin víst
verið fremur óskipulögð í flestum
efnum. Ég hef til dæmis tekið eftir
því hjá útlendingum sem þykir gam-
an að ferðast, að þeir viða að sér
bókum og spólum um það land sem
þá langar að heimsækja og skipu-
leggja síðan allt ferðalagið. Auðvitað
fá þeir fyrir bragðið miklu meira út
úr ferðinni heldur en við íslendingar
flestir sem pöntum okkur ferð ef
hann rignir mikið og lengi, og fórum
svo í sömu viku. Sama gildir um ævi-
kvöldið, við erum ekki skipulögð eins
og aðrar þjóðir að því leytinu til.
Það sem skiptir máli á þessu tíma-
skeiði er að heilsufai’ið sé gott og að
maður eigi góðan hóp ættingja og
vina sem geta umborið mann. Við
hjónin erum svo dásamlega heppin
að eiga fimm börn og ellefu barna-
börn sem við höfum mjög náið sam-
band við, auk barnabarnabarns á er-
lendri grundu. Fólk verður líka að
geta komist sæmilega af fjárhags-
lega svo það geti látið eftir sér ein-
föld áhugamál og farið í leikhús eða
skroppið til útlanda."
Ferðalög hafa verið hluti af lífs-
munstri Sveins og Helgu, og hann
segir að sér finnist það óeðlilegt ef
hann eigi að fjara út. „Mér finnst
það lágmark að komast út einu sinni
á ári til að minna mig á að heimur-
inn er stærri en eyjan okkar. Ég á
enn eftir að skoða mikið af hnettin-
um, en það er alltaf freistandi að
fara suður á bóginn þar sem sólin
skín. Ég hef komið í flestöll ríki
Bandaríkjanna og til margra Evr-
ópulanda, en lítið annað. Égyar nú
rabba við kunningja minn i Ástralíu
á netinu og hann var að spyrja
hvort við ætluðum ekki að fara að
koma!“
Þegar Sveinn er spurður hvað
honum finnist nú skemmtilegast að
gera þegar félagsstörfum sleppir,
setur hann brids í efsta sætið. „Mér
finnst sérstaklega gaman að spila
brids og má alls ekki missa af því.
Nú bókastaflinn er við náttborðið,
ferðalög eru ofarlega á listanum og
svo finnst mér ánægjulegt að eyða
tímanum með ættingjum og vinum."
En hver eru framtíðaráformin?
„Ef við segjum að heilsan verði
góð þá býst ég við halda svipuðu
striki. Ég vildi gjarnan skreppa oftar
í veiðitúr og gera eitt og annað sem
gefur lífsfyllingu á efri árum. Svo
vona ég bara að ég fái að vera sam-
ferða vinum og ættingjum sem
lengst.“
Morgunblaðið/Ásdís
PÁLÍNA: „Ég minnkaði allt, húsnæðið, bílinn og vinnuna."
diskana mína. Ég fer líka á tón-
leika, oft tvisvar í viku og er fasta-
gestur á sinfóníutónleikum. Ég get
alveg farið ein á tónleika en oftast
hitti ég vinkonur mínar og við sitj-
um saman, eða ég fer með systrum
mínum. Síðast fór ég með barna-
barni mínu. Við systurnar höfum
líka alltaf sótt endurmenntunar-
námskeið Háskólans, eitt eða tvö á
hverjum vetri, og höfum til dæmis
verið á námskeiðum í leikritun,
tónlist, myndlist, sögu og bók-
menntum."
Sjónvarpið krefjandi tímaþjófur
Hjá Pálínu er hvergi sjónvarp að
finna. „Sjónvarpið er krefjandi
tímaþjófur og ég vil ekki láta mata
mig heldur taka mér eitthvað fyrir
hendur sjálf. Ég uni mér vel með
bækurnar mínar og geisladiskana
Kynslóðin á undan mér fór á elli-
heimili, var hógvær og þakklát,
kynslóð mín gerir meiri kröfur og
næsta kynslóð mun gera enn meiri
kröfur.
Við í Félagi eldri borgara viljum
minni forsjárhyggju og meira frum-
kvæði aldraðra, og Hana-nú hópur-
inn í Kópavogi hefur starfað sam-
kvæmt þeim hugmyndum með frá-
bærum árangri í 15 ár. Sumum
finnst eins og þeim sé ýtt út í horn
þegar þeir eru hættir að vinna.
Þeim finnst þeir verða gagnslausir,
og það er það versta sem komið get-
ur fyrir. Én vissulega er það mis-
jafnt hvernig fólk eldist. Skapgerð-
areinkenni virðast skerpast með
aldrinum. Þeir sem eru mann-
blendnir og glaðsinna gera sér
ánægju úr öllu en þeir sem eru ein-
rænir á annað borð fara ekki á
mannamót þrátt fyrir mikið fram-
boð. Ég tel það tvímælalaust erfið-
ara fyrir karla en konur að hætta að
vinna því starfið virðist vera svo
stór hluti af lífi karla. En uppakon-
ur samtímans hljóta líka að lenda í
sömu vandræðum í framtíðinni. Ég
vil að vinnulok verði sveigjanleg og
að fólk geti dregið hægt úr vinnu
sinni. Það fær þá tíma til að undir-
búa þetta æviskeið og laga sig að
nýjum aðstæðum."
Pálína segist ekki hafa gert nein-
ar ráðstafanir í peningamálum aðr-
ar en þær að minnka við sig hús-
næði og bíl. „Auk eftirlauna minna
fæ ég líka eftirlaun eftir manninn
minn og er því vel sett. Kjör aldr-
aðra eru mjög misjöfn og margir
þurfa að lifa af 60 þúsund krónum á
mánuði. Þeir geta varla hreyft sig
og þurfa að spara allt við sig, meira
að segja mat. Ég vil berjast fyrir
því í Félagi eldri borgara að aldrað-
ir þurfi ekki að lifa við þessi sultar-
mörk. Það er þjóðinni allri til
skammar. Hvernig geta ráðamenn
ætlast til þess að einhver lifi af
þessari upphæð? Treysta þeir sér.
kannski til þess? Mér finnst það
lágmark að fólk hafi um 100 þúsund
krónur á mánuði og helst bíl til um-
ráða. Það er kannski lúxus að eiga
bíl, en hann gefur frelsi til að skoða
sig um, fara á tónleika og hitta
kunningja í stað þess að láta sjón-
varpið mata sig.“
Pálina hittir líka kunningja sína
erlendis, fór síðast til Genfar. „Ég
sæki mest til Mið-Evrópu, og einnig
mundi ég gjarnan vilja koma aftur
til Grikklands og dvelja eitthvað á
Krít.
En nú vil ég helst ferðast innan-
lands og kynnast landinu með því að
ganga um það meðan kraftar leyfa.“
Hún segist ekki hafa gert neinar
framtíðaráætlanir, lifir í núinu og
tekur þakklát einn dag í einu og
reynir að nýta hann til gagns og
gleði fyrir sig og aðra. Þó er ýmis-
legt sem hún mundi vilja gera ef
heilsan leyfir. „Fjölskylda mín
gengur fyrir, ég vil hafa tíma fyrir
hana. Eg mun sækja tónleika
áfram, það er mín besta skemmtun,
og ég gæti vel hugsað mér að læra
jarðfræði. 'g''
Mér finnst það vera forréttindi
að vera sjötug og hafa heilsu til að
gera það sem mig langar. Og hafa
kjarkinn til þess.“
Nýkomin efni
Fjölbreytt úrval bútasaumsefna frá 685 kr. m.
Þvegið stretch nankin, 1.275 kr. m.
Einlit stretch buxnaefni, 1.770 kr. m.
Teinótt stretch buxnaefni, 1.960 kr. m.
OgllÖ-búðirnar
FALLE6AR FERMIN6AR6JAFIR
Mjúkar, fisléttar og hlýjar gæsadúnssængur.
Stungnar í ferninga sem tryggir að dúnninn er alltaf á sínum
stað. Fallegt hvítt bómullarver,
Vandaðir koddar, fylltir með hvítum gæsadún
og örsmáu fiðurkurli, Gott fjaðurmagn.
Ath. Eigum eirnúg tvíbreiðar sængur,
barnasængur og vöggusængur.
SVJÍFIU 40x45 cm
VERO KR. 2.900
Mikið úrval af fallegu sængurlíni i nýja bæklingnum okkar.
Hringdu, við sendum jiér cintak án cndurgjalds.
pöntunarsími
5611717
VERSLUN/l
LAUGAVEG1
ÍOl REYKJAVÍK