Morgunblaðið - 20.03.1998, Síða 1
HANDKNATTLEIKUR
vÍHÉfJÍSfe-
'Msitti;
Meistarar tagna
Valur B.
Jónatansson
sknfar
Islandsmeistarar KA bættu enn einni
skrautfjöðrinni í hattinn í gærkvöld er
þeir fógnuðu deildarmeistaratitlinum í Vals-
heimilnu efth- jafntefli, 26:26.
Önnur úrslit í deildinni urðu
hagstæð Norðanmönnum þvi
Fram tapaði og Afturelding
gerði jafntefli.
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, var kátur í
lokin enda fyrsta keppnistímabilið sem
hann er með liðið. „Satt að segja bjóst ég
ekki við sigri okkar í deildarkeppninni fyr-
ir síðustu umferðina því Fram var með bik-
arinn nánast í hendi sér og eins átti Aftur-
elding góða möguleika. Ég reyndi að ein-
beita mér að þessum leik á móti Val og
hugsa ekki um hvernig færi hjá hinum lið-
unum. Ég reyndi að prenta það inn hjá
mínum strákum að hugsa fyrst og fremst
um að vinna þennan leik. Þegar staðan var
jöfn, 26:26, og þrettán sekúndum síðar
fékkst það staðfest út í sal að ókkur dugði
jafntefli. Ég öskraði því inn á og bannaði
mönnum að skjóta á markið fyrr en á síð-
ustu sekúndu,“ sagði Alti.
Hann sagði að árangurinn í deildarkeppn-
inni væri framar vonum. „Okkur var spáð
fimmta sæti í deildinni og það er ekkert
undarlegt því við höfum skipt um sjö leik-
menn frá í fyrra. En þessi árangur undir-
strikar að við erum með gott lið. Strákarnir
hafa allir æft mjög vel í vetur. Þátttaka okk-
ar í Evrópukeppninni hefur líka verið góður
skóli fyrir okkur og við komum tO með að
njóta góðs af því. Þess má einnig geta að ég
tók við góðu búi af Alfreð Gíslasyni og öll
umgjörðin í krinum liðið er góð.“
„Urslitakeppnin verður áreiðanlega mjög
spannanai. Liðin hafa sjaldan verið eins jöfn
að styrkleika. Við ætlum okkur þann stóra
og við vitum hvað við þurfum til að gera
það. Flestir strákanna í liðinu þekkja sigur-
tilfinninguna og vilja upplifa hana aftur. Við
erum í sjöunda himni í dag enda ástæða tíl,
en á morgun kemur nýr dagur og þá verð-
um við að vera komnir aftur niður á jörðina
því það er stutt í úrslitakeppnina," sagði
Atli.
■Um leikina / C4
■Lokastaðan / C6
Morgunblaðið/Golli
KA-MENN fögnuðu vel og lengi í Valsheimilinu er Ijóst var að þeir væru deildarmeistarar. Hér eru það Erlingur Krist-
jánsson, Jóhann G. Jóhannsson, Sverrir Björnsson, Halldór Sigfússon og Ámi Stefánsson liðsstjóri sem fagna.
Liðin sem
mætast
I gærkvöldi var ljóst hvaða lið mætast í 8
liða úrslitum. Það lið sem fyrr vinnur tvo
leiki kemst í undanúrslit.
Þriðjudagur 24. mars:
KA - Stjarnan
FH - Haukar
Annar leikurinn fer fram fimmtudaginn
26. mars, ef til þriðja leiks kemur verður
hann laugardaginn 28. mars.
Midvik.uda.gur 25. mars:
Fram - ÍBV
Afturelding - Valur
Annar leikurinn fer fram fóstudaginn 27.
mars, ef til þriðja leiks kemur verður
hariií sunnudaginn 29. mars.
• Sigurliðin í þriðjudagsleikjunum mæt-
ast í undanúrslitum 2. og 4. apríl, ef til
þriðja leiks kemur, verður hann 6. apríl.
• Sigurliðin í leikjunum á miðvikudag
leika í undanúrslitum 3. og 5. apríl, ef til
þriðja leiks kemur verður hann 7. apríl.
• Fyrsti úrslitaleikurinn verður 11. apríl
og það lið sem sem fyrr vinnur þrjá leiki,
verður Islandsmeistari. Hinir leikirnir eru
settir á 13., 15., 18. og 20. apríl.
I
KÖRFUKNATTLEIKUR: LÍTIÐ SKORAÐ í FYRSTU LEIKJUM ÚRSLITAKEPPNINNAR / C3