Morgunblaðið - 20.03.1998, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UNGLINGAR
BÆKLINGUR um íþróttir bai-na og unglinga kom út
á vegum íþrótta: og Ólympíusambands íslands ekki
alls fyrir löngu. í honum er ritað um ýmislegt tengt
íþróttaiðkun bama annars vegar, sem eru einstakling-
ar 12 ára og yngri, og unglinga hinsvegar, 13 til 19
ára, en aldursskiptingin er skilgreind þannig í bæk-
lingnum.
Meðal efnis í honum eru markmið við þjálfun þess-
ara ungu íþróttaiðkenda, hvernig íþróttir börnin vilja
stunda, hvemig réttast sé að haga keppni meðal
bama o.s.frv. Auk þess er brýnt fyrir þjálfumm að
auka gildi þátttökunnar.
Vitnað er í stefnuyfirlýsingu ÍSÍ á ýmsum stöðum í
ritinu. „Hjá ungum bömum er rétt að leggja áherslu á
liðakeppni og almenna þátttöku, óháð getu,“ segir í
bæklingum. „Ferðalögum barna vegna keppni skal
stillt í hóf. Böm ættu ekki að taka þátt í keppni er-
lendis fyrr en við 13 ára aldur.“
Par segir ennfremur: „Æskilegt er að í keppni
yngstu barnanna fái allir jafna viðurkenningu fyrir
þátttöku. Ekki er æskilegt að krýna íslandsmeistara
fyrr en í fyrsta lagi við 11 ára aldur.“ Loks er ritað um
mikilvægi þess að yngstu íþróttaiðkendum séu kynnt-
ar margvíslegar greinar, til að auka hreyfígetu og
fjölhæfni.
Ágætur
árangur
íslend-
inga
í Noregi
Börnin fái
viðurkenningu
fyrir þátftöku
síðari umferð svigs-
ins. Haukur M.
Sveinsson hafnaði í
6. sæti í svigi í
flokki 12-13 ára og í
21. sæti í stórsvigi.
Gunnar Lár fór út
úr í báðum grein-
um.
Hanna Dögg
Maronsdóttir náði
bestum árangri ís-
lendinganna í
göngu er hún varð í
5. sæti í 4 km
göngu. Katrín
Arnadóttir varð sjö-
unda í sínum flokki
og Steinþór Þórðar-
son í 15. sæti.
Haukur S. Ólafsson
datt í göngukeppn-
inni og meiddist lít-
illega og hætti
keppni.
HÉR er alpagreinahluti skíðahópsins eftir keppnina í svigi: Frá vinstri: Sólrún Flókadóttir, Fram,
Fanney Blöndahl, Víkingi, Elín Arnarsdóttir, Ármanni, Steinn Sigurðsson, Ármanni, Helga Björk
Árnadóttir, Ármanni, Þórarinn Birgisson, KR, Haukur M. Sveinsson, Ármanni og Gunnar Lár
Gunnarsson, Ármanni.
ÍSLENSKIR skíðakrakkar
náðu ágætum árangri á
svæðismeistaramóti Buske-
rud í Noregi fyrir skömmu.
Fanney Blöndahl úr Víkingi
og Helga B. Árnadóttir úr Ár-
manni sigruðu í svigi í sínum
flokkum. Tólf unglingar á
aldrinum 12-15 ára fóru utan
til keppni, fjórir í göngu og
átta í alpagreinum.
Undanfarin fjögur ár hefur
verið samstarf milli Skíðaráðs
Reykjavíkur og Skíðaráðs Bu-
skerund um unglingastarf skíða-
ráðanna, sem skiptast á að bjóða
bestu unglingum hvors svæðis að
taka þátt í stærstu mótunum. Nú
var komið að Norðmönnum að
bjóða. Buskerud-svæðið nær frá
Drammen til Geilo. íslensku
krakkarnir bjuggu inni á norskum
heimilum meðan á dvöl þeirra
stóð.
í alpagreinum voru 120 kepp-
endur og yfir 300 tóku þátt í
göngu. Skilyrði til keppni voru
frekar erfið því skíðafærið var
mjög hart, nánast svell. Prátt fyr-
ir þessar aðstæður komu íslensku
unglingarnir heim með tvenn
gullverðlaun og tvenn bronsverð-
laun. Islenski hópurinn var skip-
aður eftirtöldum (alpagreinar):
Elín Arnarsdóttir, Gunnar Lár
Gunnarsson, Haukur M. Sveins-
son, Helga B. Árnadóttir og
Steinn Sigurðsson, öll úr Ár-
manni, Fanney Blöndahl, Víkingi,
Sólrún Flókadóttir, Fram, Þórar-
inn Birgisson, KR. (Skíðaganga):
Katrín Árnadóttir, Isafirði,
Hanna Dögg Maronsdóttir, Ólafs-
firði, Haukur S. Ólafsson, Ár-
manni og Steinþór Þórðarson,
Dalvík.
Fanney sigraði í svigi 12-13 ára
stúlkna og varð þriðja í stórsvigi.
Elín Ai-narsdóttir hafnaði í 4. sæti
í sviginu og 6. sæti í stórsviginu.
Helga B. Árnadóttir sigraði í svigi
13-14 ára. Sólrún Flókadóttir
varð fimmta í stórsvigi í sama
flokki. Steinn Sig-
urðsson varð þriðji í
svigi 14-15 ára og
14. í stórsvigi. Þór-
arinn Birgisson var
í 11. sæti í svigi í
sama flokki og í 6.
sæti í stórsviginu.
Hann náði besta
brautartímanum í
Æfingabúðir úrvalshópa FRÍ á veturna þykja skila góðum árangri
Fræðsla og framfarir
Unglingar í úrvalshóp Frjáls-
íþróttasambands íslands, 15
til 18 ára, voru í æfingabúðum í
Reykjavík fyrir skömmu. Alls voru
um fimmtíu ungir frjálsíþróttaiðk-
endur saman komnir, en um
fimmtán þeirra komu af lands-
byggðinni. Að þessu sinni var tekið
upp á þeirri nýbreytni að halda
mót á fyrsta degi æfingabúðanna
og mæltist það vel fyrir á meðal
þátttakenda. Auk þess hlýddu þeir
á fyrirlestra sérfróðra manna um
ýmis málefni, t.d. lyfjamál og hug-
arfar.
Egill Eiðsson, frjálsíþróttaþjálf-
ari og verkefnisstjóri Sydney-
hópsins, sagði vel hafa tekist til að
þessu sinni. „Við fengum jákvæð
viðbrögð frá krökkunum. Tilgang-
ur þessara æfingabúða er að halda
unglingunum við efnið. Keppnis-
tímabilið er ekki mjög langt - frá
maí til mánaðamóta ágúst og sept-
ember. Veturinn er langur og við
reynum að hafa æfíngabúðir á um
tveggja mánaða fresti eða fjórum
sinnum yfir veturinn," sagði Egill
Eiðsson, verkefnisstjóri Sydney-
hópsins.
Breyting á aldursskiptingu
úrvalshópanna
Hann segir að venjulega komi
hópurinn saman einu sinni fyrir
áramót, en þrisvar eftir þau - í síð-
asta sinn þegar keppnistímabilið
fer brátt að hefjast að vori. I vetur
var fyrst tekið til bragðs að breyta
aldursskiptingu úivalshópanna.
Frjálsíþróttaiðkendur á aldrinum
15 til 20 ára komu saman áður, en
nú voru unglingar fimmtán til
átján ára látnir æfa saman og þeir,
sem eru á aldrinum 19 til 22 ára
æfa á öðrum tímum.
Að sögn Egils hófst þessi æf-
ingaáætlun FRÍ haustið 1994.
„Iðkendum á þessum aldri hefur
fjölgað. Til dæmis hafa keppendur
fimmtán til átján ára á Meistara-
móti Islands aldrei verið fleiri en í
fyiTa,“ sagði hann.
Ennfremur sagði hann að tekist
hefði að fækka þeim sem hætta að
iðka frjálsíþróttir á 14 ára aldri
eða þar um bil. „Það var mikið
brottfall hjá 14 ára unglingum, en
því hefur seinkað og það virðist
ekki eiga sér stað fyrr en þegar
unglingarnir ná u.þ.b. 18 ára
aldri,“ sagði Egill.
Morgunblaðið/Edwin Rögnvaldsson
ÞAU Rafn Árnason og Silvía Úlfarsdóttir hvíldu sig eftir erfiðar æfingar.
Gersamlega
SILVÍA Úlfarsdóttir, 17 ára FH-
ingur, og Rafn Arnason, 18 ára úr
Aftureldingu, eru „gamlar kemp-
ur“ í æfingabúðum úrvalshópa í
frjálsíþróttum. Morgunblaðið tók
þau tali er þau voru við æfingar í
Baldurshaga á dögunum, en hvað
fer fram í æfingabúðunum auk lík-
amlegra æfinga? „Við hlýðum á
fyrirlestra um ýmislegt, t.d. teygj-
ur, lyfjamisnotkun og hugarfar,"
segir Silvía. Rafn bætir við: „Þetta
kemur manni aðallega í góða æf-
ingu, held ég.(!)“
Sérgrein Silvíu er spretthlaup,
en Rafn segist hrifnastur af
grindahlaupi og hefðbundnu 400
m hlaupi. „Ég á eftir að prófa 400
m grindahlaup," segir haim og fær
að heyra glósur frá Silvíu um leið.
„Þú verður alveg gjörsamlega bú-
inn eftir 400 m grindahlaup,“ segir
hún. „Ég ætla að prófa það,“ bætir
Rafn við.
En hvers vegna hefur Rafn
meira gaman af því að hlaupa og
stökkva yfir grindur fremur en að
hlaupa á auðri braut? „Það er erf-
iðara og þarf meiri tækni til þess.
Hver sem er getur hlaupið beint
áfram,“ segir grindahlauparinn í
háðslegum tón. Silvía bregst illa
við þessu.
Rafn talar loks í alvöru: „Ég hef
ágæta tækni í grindahlaupið, en er
ekki nógu fljótur til að hlaupa ein-
göngu spretthlaup.“ Þegar blaða-
maður spurði þau hvort það væru
þeir hægfara sem færu í grinda-
hlaup, mótmælti frjálsíþróttafólkið
harðlega.
En hversu lengi hafa þau æft
fijálsíþróttir? „Eg hef ekki æft
neitt að ráði nema í um eitt og
hálft ár, ég hef keppt í nokkur ár,“
segir Silvía, en hún vann Skólaþrí-
þrautina árið 1994 og keppti því á
Eyrarsundsleikunuin í Svíþjóð
búinn
sama ár. Rafn hefur æft í sjö ár og
var einnig á meðal keppenda á
Eyrarsundsleikunum 1994, en
hann keppti á leikunum þijú ár í
röð - í síðasta skiptið í æfingaferð
með Aftureldingu. „Ég lenti einu
sinni í öðru sæti í hástökki," segir
hann og bendir á bolinn, sem hann
klæðist, en á honum er merki Eyr-
arsundsleikanna. „Ég ætlaði nú að
fá gullið,“ bætir hann við.
„Ég hafði ekkert komið nálægt
fijálsíþróttum fyrr, en fékk að
fara þangað út og fannst það mjög
gaman,“ segir Silvía og segist hafa
fengið áhuga á fijálsíþróttum eftir
þessa för. Hún og Rafn hafa ekki
látið sér nægja að fara einungis til
Svíþjóðar, því þau voru á Ólympíu-
dögum æskunnar í Portúgal í
fyrra. „Ég held að við þurfum að
fara oftar til útlanda, ef við eigum
að ná árangri," segir Rafn - Silvía
er sammála.