Morgunblaðið - 20.03.1998, Side 4
4 C FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Fram
ekki
stóðsl
prófið
100 marka klúbburinn
EYJAMAÐURINN Zoltan Belányi varð
markakóngur í 1. deildarkeppninni annað
árið í röð. Hér er listinn yfir þá leikmenn
sem skoruðu yfir hundrað mörk í deildinni.
Zoltan Belányi, ÍBV ............165/73
Ragnar Óskarsson, ÍR ...........156/37
Sigurður Sveinsson, HK..........151/57
Valdimar Grímsson, Stjörnunni ... .142437
Halldór Sígfússon, KA...........124/70
Oleg Tidov, Fram ...............124/32
Guðmundur Pedersen. FH..........117/26
Páll Þórólfsson, Afture.........116/25
Hilmar Þórlindss., Stjömunni ...112/14
Karim Yala, KA...................108/4
Daði Hafþórsson, Fram...........107/ 6
Jón Kristjánsson, Val...........100/42
uðu aðeins einu sinni og þessu fjög-
urra marka forskoti héldu þeir fram
undir miðjan fyrri hálfleikinn, þegar
lífsmark greindist í leikmönnum ÍBV
og þeir náðu að jafna leikinn og kom-
ast einu marki yfir. En IR-ingar áttu
svar við þessu; tóku Robertas
Pauzuolis úr umferð þegar vel var
liðið á fyrri hálfleikinn. Við það
hrundi leikur Eyjamanna og með
góðum endaspretti í fyrri hálfleik
endurheimtu IR-ingar forystuna og
komust tveimur mörkum yfir þegar
Ólafur Sigurjónsson skoraði langt
utan af velli þegar aðeins tvær sek-
úndur lifðu af hálfleiknum. Staðan
því 12:14 í hléi.
I upphafi síðari hálfleiks héldu
leikmenn ÍR áfram þar sem frá var
horfið í þeim fyrri. Frosti Guðlaugs-
son gerði fyrsta mark hálfleiksins
rétt eins og hann hafði byrjað þann
fyiri og síðan fylgdu þrjú mörk frá
Ragnari Óskarssyni. Ekki nóg með
það, heldur náði Hallgrímur Jónas-
son í marki ÍR að verja tvö vítaskot
frá Zoltan Belányi á upphafsmínút-
um hálfleiksins. A meðan náðu Eyja-
menn aðeins að gera eitt mark og
ÍR-ingar voru því komnir fimm
mörkum yfir, 18:13, og um miðjan
síðari hálfleik var staðan 23:17 íyrir
gestina. Eyjamenn tóku sig aðeins
saman í andlitinu þegar þarna var
komið sögu, gerðu fjögur mörk í röð
en þá fór aftur að draga í sundur
með liðunum og ÍR-ingar, með þá
Ólaf Sigurjónsson og Ragnar
Óskarsson í miklum ham, unnu
nokkuð auðveldan sigur, 29:27. IR-
ingar stigu að vonum villtan dans að
leik loknum.
Víkingar féllu með sæmd
Víkingar eru fallnir úr efstu deild
karla í handknattleik. Þrátt fyrir
frækilega frammistöðu gegn Hauk-
um í gærkvöldi - þar
BorgarPór sem Víkingar sýndu
Einarsson allar sínar bestu hlið-
skrifar ar og sigruðu örugg-
lega, 26:22 - má hið
fornfræga félag sætta sig við fall, því
á sama tíma sigruðu ÍR-ingar ÍBV í
Vestmannaeyjum.
Sumir leikir eru þess eðlis, að hver
einasta sókn er orrusta í stríði og
stríðið er leikurinn sjálfur. Fyrir
Víkinga var leikurinn gegn Haukum
þess eðlis og það var greinilegt á
leikmönnum liðsins að þeir voru
meðvitaðir um hvað til þurfti. Allir
sem einn börðust þeir hetjulega og
fór fyrirliði liðsins og besti maður
þess í leiknum, Birgir Sigurðsson,
fyrir sínum mönnum. Þetta var hans
leikur; síðasti leikur þessa magnaða
handknattleiksmanns, sem lék sinn
fyrsta leik í meistaraflokki fyrir
sautján árum. Áræði og kraftur Vík-
inga tryggði þeim fljótlega gott for-
skot, sem þeir létu ekki af hendi,
þrátt fyrir harða atlögu Hauka.
Síðustu mínútur leiksins voru
æsispennandi og stemmningin meðal
fjölmargra áhorfenda í Víkinni var
ólýsanleg. Um tíma virtust Haukar
Vonbrigði! Magnús Arnar Arngrímsson leikmaður Fram var nið
ætla að ná yfirhöndinni en Víkingar
gáfu ekkert eftir, sýndu mikinn
styrk og héldu forskoti sínu til enda.
En skuggi færðist yfir fögnuð Vík-
inga að leik loknum, þegar þær frétt-
ir bárust úr Eyjum að IR hefði unn-
ið, og þar með voru Víkingar fallnir.
Víkingar léku mjög vel í þessum
leik. Þeir komu greinilega vel undir-
búnir til leiks; léku yfirvegaðan
sóknarleik og vörnin var feiknarlega
öflug. „Gömlu brýnin“, Páll Björg-
vinsson og Steinar Birgisson, börð-
ust af miklum krafti í vörninni og
ungu mennirnir í liðinu skiluðu sínu
engu síður: Þröstur Helgason, Rögn-
valdur Johnsen og Hjörtur Örn Arn-
arson, að ógleymdum Birki Guð-
mundssyni markmanni, léku allir
geysilega vel.
Haukar náðu aldrei að komast al-
menniiega í takt við leikinn. Leik-
menn liðsins virtust kærulausir á
köflum og einstaklingsframtak var
áberandi. Aron Kristjánsson og
Bjami Frostason voru bestu menn
Hauka.
Árni Indriðason, þjálfari Víkings,
var ánægður með frammistöðu sinna
manna í leiknum: „Við komum til
leiks í góðu jafnvægi og héldum and-
legum styrk allan leikinn. Við vorum
yfirvegaðir í sóknarleiknum og vörn-
in var þétt, þetta var í raun fyrsti
heilsteypti leikur okkar í vetur. Ég
tel að tilkoma eldri leikmannanna
hafi haft góð áhrif á liðið. Fyrr í vet-
ur var mikið óöryggi í liðinu og við
vorum oft að tapa leikjum á síðustu
mínútunum." Árni sagði að það væru
vissulega vonbrigði að falla þrátt fyr-
ir að hafa unnið leikinn: „Það er hinn
bitri sannleikur, að það hjálpar þér
enginn nema þú sjálfur.“ Árni bar
ekki kvíðboga fyrir framtíðinni hjá
Víkingum, þrátt fyrir að liðið væri
fallið úr efstu deild: „Ég hef ekki
áhyggjur af liðinu til lengri tíma litið.
Við höfum sterkan hóp yngri leik-
manna sem á framtíðina fyrir sér.“
DEILDARMEISTARATITILL var við sjóndeildarhring Framara er
þeir mættu til leiks í Kaplakrika og eðlilega nokkur spenna í
þeim. En spennan var Frömurum ofviða og þeir féllu á prófinu
og fór tómhentir heim. FH-liðið hirti bæði stigin með eins marks
sigri, 23:22. Enn sárari var sú staðreynd Safamýrarpiltum að
þegar öllu var á botninn hvolft hefði þeim nægt eitt stig.
Stígandinn sem hefur verið í leik FH síðustu vikur náði hámarki
og liðið tryggði sér þriðja sætið.
Nokkur skjálfti var í báðum liðum
á upphafsmínútunum. Guðjón
Árnason kom FH á bragðið eftir 20
sekúndur, en Fram-
jvar liðinu gekk illa og
Benediktsson svaraði ekki fyrr en
skrifar eftir 2,40 mín., eftir
að tvær sóknir höfðu
farið í súginn og þeim átti eftir að
fjölga. Bæði lið léku sterkar 6-0
vamir með trausta markverði sér að
baki. Kom það niður á sóknarleikn-
um sem varð tilþrifalítill, einkum
Fram-megin. Var hann oft á tíðum
klaufalegur þar sem sendingar á
milli manna rötuðu ekki rétta leið.
Hávaxnir varnarmenn FH náðu að
loka vel fyrir skyttur Framliðsins.
En þrátt fyrir að Framarar væru að
leika illa gekk FH-ingum illa að
refsa þeim. Hraðaupphlaupin gengu
illa í fyrri hálfleik og þrjú þeirra
enduðu á miðri leið upp völlinn með
óyfirveguðum sendingum. Sóknar-
leikur FH varð fyrir áfalli strax á
fjórðu mínútu er leikstjórandinn Val-
ur Amarson var rekinn af leikvelli
íyrir að brjóta á Nirði Árnasyni í
hraðaupphlaupi, e.t.v. strangur dóm-
ur en réttlætanlegur. Eftir það leysti
Lárus Long stöðu Vals og gekk all
sæmilega. Það kom í hlut reynslu-
mannanna að draga FH-vagninn í
„Þetta
var sárt“
etta var íyi-st og fremst
sárt,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Fram,
daufur í bragði í leikslok og
ekki hvað síst sagði hann að
það væri í Ijósi þess að eitt stig
úr leiknum hefði nægt til að
vera í efsta sæti. „Svona er
þetta.
Fyrst og fremst var það
skotnýtingin og sóknarleikur-
inn sem brást hjá okkur, hann
var óagaður þar sem menn
leyfðu sér að skjóta úr
vafasömum færam, þvert á
það sem talað hafði verið um
fyrir leik.“
Guðmundur sagði að eftir að
hafa lent undir og unnið síðan
upp muninn í byrjun síðari
hálfleiks hefði sínum mönnum
ekki tekist að fylgja þessum
góða kafla eftir.
Vildum gera betur
„Eftir góða byrjun í mótinu
misstum við dampinn um mið-
hlutan, en höfum sótt í okkur
veðrið í síðustu leikjum," sagði
Kristján Arason, þjálfari FH.
„Ég sáttur við þriðja sætið, og
hlakka til þess að glíma við
Hauka í úrslitunum."
Kristján sagði um leikinn
við Fram að varnarleikurinn
hefði tekist vel, eins og hann
hafði iagt upp með. „Við vorum
hins vegar í vanda í sókninni,
en ég held að það hafi öðru
fremur verið meiri barátta í
okkur og því unnum við leik-
inn. Mínum mönnum hefur
gengið illa á móti Fram í und-
anfömum leikjum og þeir vora
staðráðnir í að gera betur, fóru
með því hugarfari til leiks og
tókst það.“
höfn, þeirra Guðjóns, Gunnars Bein-
teinssonar, Hálfdáns Þórðarsonar og
Kristjáns Arasonar, sem lék einvörð-
ungu í vörn utan einnar sóknar.
FH-ingar höfðu framkvæðið allan
fyrri hálfleikinn, Fram náði að jafna
nokkrum sinnum en tókst aldrei að
komast yfir þrátt fyrir að tækifærin
byðust. FH náði mest þriggja marka
forystu, 12:9, þegar ein mínúta var
til hálfleiks og átti þess kost að kom-
ast fjóram mörkum yfir, 13:9. Reynir
Reynisson kom í veg fyrir það með
því aðyerja vítakast Knúts og Sigur-
páll Árni klóraði i bakkann með
marki 2 sekúndum fyrir hlé.
Skipun Guðmundar Guðmunds-
sonar, þjálfara Fram, í hálfleik hefur
örugglega verið að leika af meiri aga
í sókninni, þvi heldur skánaði hann í
upphafi síðari hálfleiks og Fram
skoraði fjögur fyrstu mörkin og náði
forystu í fyrsta sinn, 13:12. FH-ingar
settu Guðjón á miðjuna í upphafi síð-
ari hálfleiks og Sigurgeir Ægisson í
skyttustöðu í hans stað. Þessi breyt-
ing gafst illa og var hætt eftir að
Fram hafði náð forystu. Tók þá við
sama uppstilling og áður með betri
árangri, en margar sóknirnar voru
nokkuð langdregnar. Þolinmæði og
yfirvegun Framara í sókninni entist
illa og fljótlega sótti í sama farið og í
fyrri hálfleik. FH komst yfir á ný
16:15 og gaf aldrei eftir þar til yfir
lauk.
Það munaði miklu um reynslu-
mennina í FH-liðinu þegar á hólminn
var komið. Gunnar fór mikinn í sókn-
inni og var óþreytandi í vörninni
ásamt Kristjáni og Hálfdáni. Þá
barðist Sigurgeir af krafti átti um
tíma allskostar við Oleg Titov.
Markvörðurinn, Suik Hyung Lee,
fór á kostum. Guðjón var góður í
sókninni og átti ófáar sendingar sem
gáfu mörk eða tækifæri.
Sóknarleikmenn Fram brugðust
algjörlega að þessu sinni. Vörnin
stóð hins vegar lengst af sína vakt
með sóma og sama á við um Reyni
markvörð. Skyttur Fram, Gunnar
Berg Viktorsson, Magnús Arnar
Amgrímsson og Daði, léku illa og
skoruðu ekki nema úr tæpum fjórð-
ungi skota sinna, auk þess sem
margar sendingar þeirra brugðust
illa. Auk Reynis var Titov góður,
einkum í vörninni, en nýtti vel þau
fáu færi sem hann fékk í sókninni.
ÍR-ingar börðust
fyrir Iffi sínu
W
IR-ingar, sem áttu í mikilli baráttu
við Víkinga um hvort liðið héldu
sæti sínu í deildinni, voru með tak-
mark sitt á hreinu
Sigfús l>egar þeir fóru til
Gunnar Eyja til að leika við
Guðmundsson heimamenn. Þeir
skrifar mættu með baráttu-
andann þaninn í brjósti sér og upp-
skára vel því þeir sigruðu slakt lið
ÍBV 29:27 eftir að hafa lengstum
verið með forystu.
„Þetta var gífurleg barátta. Við
vissum að þetta væri upp ó líf eða
dauða og ætluðum að ná í þá auka-
krafta sem menn sækja þegar þeir
vita að þeir eru að berjast fyrir lífi
sínu,“ sagði Matthías Matthíasson,
þjálfari ÍR, kampakátur eftir sigur-
inn.
Það var ljóst strax í byrjun að það
var mikið í húfi hjá IR-ingum en
Eyjamenn virtust ekki vita á hvað
þeir stefndu því það var lið ÍR sem
komst strax í góða forystu. Gerði
fimm mörk á meðan Eyjamenn skor-