Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
iurlútur og hafði ástæðu til í leikslok.
Beiskur sigur
Þrátt fyrir stórsigur HK á stigalausu liði
Blika, 21:32, dugði það ekki liðinu til að
komast í úrslitakeppnina. Stjaman náði stigi
gegn Aftureldingu og það var
Hörður nóg til að senda HK út í
Magrússon kuldann. Leikur nágranna
skrifar liðanna í Kópavogi varð aldrei
rishár. Það var aðeins spurning
hve stór sigur HK yrði. Sigurði Sveinssyni,
þjálfara og leikmanni HK, varð því ekki að ósk
sinni að komast í úrslitakeppnina. Sigurður var
á leikskýrslu en er meiddur í baki og kom því
ekkert inn á.
Þetta hefur verið langur og erfiður vetur
fyrir hið unga lið Breiðabliks. Til liðsins voru
fengnir tveir Bandaríkjamenn sem sendir voru
heim, stóðu ekki undir væntingum. Liðið
styrkti sig ekki nægilega til að eiga möguleika
að halda sæti sínu.
Geir Hallsteinsson þjálfari var því eflaust
feginn að heyra lokaflautið í leiknum, veturinn
hefur eflaust verið langur fyrir þennan snjalla
þjálfara.
+
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 C 5^
HANDKNATTLEIKUR
(slandsmeistarar KA fögnuðu deildamneistaratitlinum í Valsheimilinu
KA fram í sviðs-
Ijósið á réttum tíma
SPENNAN í lok leik Vals og KA í Valsheimilinu í gærkvöldi var
mikil. Þegar flautað var til leikslok var staðan jöfn, 26:26. Þá
liðu nokkrar sekúndur þar til KA-liðið og stuðningsmenn þess
ærðust af fögnuði. Ástæðan var að staðfestar fréttir bárust af að
Fram hefði tapað fyrir FH og Afturelding gert jafntefli við Stjörn-
una. Þar með var KA orðið deildarmeistari. Eitthvað sem fáir
áttu von á, nema kannski KA-menn sjálfir.
Jóhann G. Jóhannsson, fyrirliði
KA, tók við deildarmeistarabik-
arnum eftir leikinn og var í sjöunda
himni. „Við áttum
ValurB erfitt með að trúa
Jónatansson því að jafnteflið
skrifar myndi duga okkur.
Við erum búnir að
vera hlémegin við Aftureldingu og
Fram og höfum látið þau um at-
hyglina í vetur. Nú voru það við
sem skutumst fram í sviðsljósið -
þegar það skipti máli. Þetta var
stórkostlegt," sagði Jóhann. „Þetta
var hörkuspennandi leikur, enda
Valsmenn með gott lið. Nú er það
úrslitakeppnin sem tekur við og hún
verður áreiðanlega spennandi. Ég
get lofað því að við erum ekki hætt-
ir. Við viljum meira.“
Fyrri hálfleikur var jafn og
spennandi. Eftir að KA komst í 2:0
tóku Valsmenn við sér og gerðu
fjögur mörk í röð. Mikið var um
mistök 1 sóknarleik bekkja liða í
upphafi og sem dæmi um það gerði
KA tvö mörk úr átta fyrstu sóknum
sínum og Valur tvö úr sjö sóknum.
En þegar mesta taugaspennan var
farin úr leikmönnum lagaðist leik-
urinn. Staðan í hálfleik var 14:14.
Spennan hélst í síðari hálfleik.
Valsmenn voru sterkari framan af
og náðu þrisvar tveggja marka for-
skoti. Þegar staðan var 22:20 og
fyrri hálfleikur hálfnaður tóku KA-
menn mikinn kipp með Yala fremst-
an í flokki. Þeir gerðu fjögur mörk í
röð á sjö mínútna kafla og breyttu
stöðunni í 22:24. Valsmenn jöfnuðu,
24:24, þegar sex mínútur voru eftir.
Leó Örn og Yala komu KA í væn-
lega stöðu 24:26 þegar tæplega fjór-
ar mínútur eftir og sigurinn virtist
blasa við. Unga skyttan Daníel
Ragnarsson var ekki á sama máli og
gerði tvö glæsilegt mörk og jafnaði,
26:26, og þar við sat.
KA-menn sýndu mikinn sigur-
vilja á lokasprettinum í deildar-
keppninni og uppskeran var eftir
því. Þó svo að breytingar hafi verið
miklar á liðinu frá því það vann ís-
landsmeistaratitlinn í fyrra er ljóst
að maður kemur í manns stað. Þeir
eru með góðan hóp leikmanna sem
hafa fengið eldskírn í Evrópu-
keppninni íyrr í vetur. Sú reynsla
er dýrmæt og á eftir að nýtast lið-
inu í úrslitakeppninni.
Vörn KA-manna var sterk í gær
og hinn síungi Erlingur Kristjáns-
son þar fremstur í flokki. Alsíring-
urinn Karim Yala lék vel í sókninni
og tók af skarið þegar á þurfti að
halda. Halldór Kristjánsson stjórn-
aði sóknarleiknum og var drjúgur,
sérstaklega í vítaskotunum þar sem
hann var öryggið uppmálað. Leó
Örn lék vel á línunni, fiskaði 3 víta-
köst og gerði 4 mörk. Rússinn Vla-
dimir Goldin byi’jaði leikinn en fann
sig ekki og var skipt út eftir 10
mínútur. Sverrir Björnsson tók
stöðu hans vinstra megin og stóð
sig vel.
Valsmenn eru með gott lið og
sýndu það í þessum leik að þeir
verða til alls líklegir í baráttunni um
meistaratitilinn. Daníel Ragnarsson
sýndi góða takta í sókninni, efnileg-
ur piltur og gaman að sjá til hans.
Jón Kristjánsson var drjúgur að
vanda og hornamennirnir Valgarð
og Davíð. Guðmundur Hrafnkelsson
hefur oft varið betur en þegar hann
hrekkur í stuð er Valsliðið illviðráð-
anlegt.
Bikarinn á ferðinni
ÞAÐ var ekki Ijóst hvaða lið
hreppti deildarmeistaratitilinn
fyrr en leikirnir í 1. deild karla
voru búnir. Það var því erfitt
verk fyrir Guðmund Ingvarsson,
formann HSÍ og Pálma Matthí-
asson, formann landsliðsnefnd-
ar, að ákvarða hvar bikarinn
ætti að vera staðsettur fyrir síð-
ustu umferðina til að geta af-
hent hann strax eftir leik.
Þeir ákváðu að vera með bik-
arinn í bfl og keyra síðan á þann
stað um leið og ljóst væri hvaða
lið yrði deildarmeistari. „Við
vorum á Grensásveginum þegar
við ákváðum að fara í Hafnar-
fjörð því allt benti til að Fram
myndi vinna. En það breyttist
og þá héldum við áleiðis upp í
Mosfellsbæ þar sem útlit var
fyrir að Afturelding næði sigri.
En það breyttist einnig, því
Sljarnan var að vinna Áftureld-
ingu og KA var komið yfir á
móti Val. Það var því úr að tek-
in var stefnan á Hlíðarenda og
við náðum þangað rétt þegar
búið var að flauta alla leikina
af,“ sagði Pálmi.
Stjörnumenn
stigu stríðsdans
HALLÓ Akureyri, halló Akureyri sungu kampakátir Stjörnumenn
eftir að hafa gert jafntefli, 25:25, við Aftureldingu í Mosfelis-
bænum í gærkvöldi og tryggt sér þar með sæti í úrslitakeppn-
inni. Heimamenn voru að sama skapi allt annað en kampakátir;
jafnteflið gerði það að verkum að þeir enduðu í fjórða sæti
deildarinnar, en með sigri hefði deildarmeistaratitillinn orðið
þeirra.
Greinilegt var í upphafi leiks í
hvað stefndi. Stjömumenn
vora mjög fastir fyrir, börðust eins
og ljón í vörainni og
Björnlngi til marks um það
Hrafnsson fengu þeir sína
skrifar fyrstu brottvísun
eftir rúmlega eina
mínútu. Að sama skapi voru leik-
menn Aftureldingar hinir rólegustu
og rétt náðu að hanga í gestunum
og í leikhléi leiddi Stjaman með
einu marki, 14:15. í seinni hálfleik
var allt við suðumark frá íyrstu
mínútu. Stjörnumenn voru áfram
sterkari aðilinn og náðu mest
þriggja marka forystu, til dæmis
16:19 og 21:24. Þá vöknuðu heima-
menn af sínum væra blundi og fóru
að taka fastar á í vörninni. Upp-
skera þeirra var eftir því, þrjú mörk
í röð og þeir náðu að jafna metin,
reyndar eftir að Bergsveinn varði
víti frá Valdimari Grímssyni, leik-
manni og þjálfara Stjörnunnar.
Lokasekúndurnar urðu síðan
æsispennandi; Heiðmar Felixson
kom Stjörnunni yfir þegar hálf mín-
úta var eftir og Afturelding klúðraði
næstu sókn þar á eftir. Þegar rúm-
ar tíu sekúndur voru eftir varði
Bergsveinn skot Valdimars úr horn-
inu, grýtti boltanum yfir endilangan
völlinn þar sem Skúli Gunnsteins-
son tók við honum og jafnaði metin í
þann mund, sem lokaflautan gall.
Sannarlega dramatískur enda-
sprettur.
Þrátt fyrir þetta stigu Stjörnu-
menn stríðsdans í leikslok, enda ær-
in ástæða til. Bestir þeirra voru,
eins og fyrr sagði, þeir Heiðmar
Felixson og Ingvar Ragnarsson, en
einnig áttu Valdimar Grímsson og
Hilmar Þórlindsson góðan leik.
Hjá heimamönnum stóð frammi-
staða landsliðsmarkvarðarins,
Bergsveins Bergsveinssonar, upp
úr en auk hans átti Einar Gunnar
Sigurðsson ágætan leik og gerði að-
eins glæsimörk. Mikið munaði hins
vegar um hve Gunnar Andrésson,
leikstjórnandi liðsins, var seinn í
gang og einnig hversu illa homa-
maðurinn Páll Þórólfsson fann sig.
Hann var allt að því fjai*verandi
löngum stundum og menn höfðu á
orði að Valdimar hefði hreinlega
„pakkað honum saman“ í leiknum.
Vel kom í ljós hversu mikilvægur
Páll er liði Aftureldingar og hann á
örugglega eftir að taka sig saman í
andlitinu fyrir leikina gegn Val í úr-
slitakeppninni.
Eftir leik var stemmningin í klef-
um liðanna eins og svart og hvítt.
Valdimar Grímsson, þjálfari Stjörn-
unnar, var kampakátur: „Þetta var
mikið stress í lokin, sérstaklega eft-
ir að við höfðum leitt allan leikinn.
Við vorum hins vegar ákveðnir í að
komast í úrslitakeppnina, stígand-
inn hefur verið góður hjá okkur í
undanförnum leikjum og vörn og
markvarsla öll að koma til. Nú er
næsta verkefni að takast á við deild-
armeistarana fyrir norðan og ég
hlakka bara til að mæta þar í troð-
fullt húsið.“
Skúli Gunnsteinsson, leikmaður
og þjálfari Aftureldingar og fyrrum
Stjömumaður, var hins vegar grút-
spældur: „Það skildi eitt mark að
fjórða sætið og dolluna,“ sagði
hann. „Stjarnan kom til að berjast
upp á líf og dauða en við ekki. Við
áttuðum okkur fyrr en í blálokin og
því fór sem fór. Við höfum hins veg-
ar engan tíma til að velta okkur upp
úr þessu, nú tekur úrslitakeppnin
við eftir helgi og hana ætlum við að
vinna.“
Birgir hættur
BIRGIR Sigurðsson, leikmað-
ur Víkings, hefur ákveðið að
hætta að leika handknattleik
eftir sautján ára feril. Birgir
hefur á ferli sínum leikið með
þremur félagsliðum; Þrótti,
Fram og Víkingi. Leikur Vík-
ings gegn Haukum í gær-
kvöldi var kveðjuleikur Birg-
is og fékk hann afhentan
þakklætisvott frá Víkingum
áður en leikurinn hófst. Birg-
ir var einn besti leikmaður
Víkings i leiknum og var
sáttur við að ljúka ferlinum
með þessum leik, þrátt fyrir
að hann þyrfti að horfa á eft-
ir félagi sínu niður í 1. deild:
„Ég vil þakka strákunum í
Iiðinu fyrir að gera mér
kleift að ljúka ferlinum með
sigri. Ég get kvatt sáttur.“
KAíNorður-
landakeppni
félagsliða
KA mun taka þátt í Norður-
landamóti félagsliða sem
fram fer í Svíþjóð helgina
25.-27. aprfl. Það eru deildar-
meistararnir og bikarmeist-
ararnir sem verða fulltrúar
íslands í keppninni í Svíþjóð.
Enn er ekki Ijóst, vegna
kærumála, hvort það verður
Valur eða Fram sem fara
með sem bikarmeistari.
Að bjarga
sér í Eyjum...
RÉTT eins og þegar Víking-
ar féllu í aðra deild síðast,
fyrir tveimur árum, réðist
það í síðastu umferð hvaða
lið féll. Þá voru þeir í baráttu
við Eyjamenn, sem héldu sér
uppi með því að sigra KA í
Eyjum í sfðasta leiknum;
bjöi’guðu sér reyndar frá falli
með ævintýralegum
lokakafla í mótinu.
í fyrra náðu leikmenn HK
að bjarga sér frá falli í síð-
ustu umferð, með því að
sigra ÍBV í Vestmannaeyjum,
14:13.