Morgunblaðið - 20.03.1998, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 C <7
BÖRN OG UNGLINGAR
Vel heppnað
tennismót
UM SÍÐUSTU helgi
var haldið í tennis-
höllinni í Kópavogi ís-
landsmót unglinga í
tennis innanhúss. Keppt
var í fimm aldursflokk-
um, sem voru kynja-
skiptir, og flokkarnir því
tíu í heildina. íslands-
mótið var nú haldið í
þriðja skipti og virðist
mikill uppgangur vera
innan tennisíþróttarinn-
ar hér á landi. Skipulag
mótsins var með tals-
vert öðru sniði en und-
anfarin ár. Ákveðið var
að gefa þeim keppend-
um, sem féllu út í fyrstu umferðun-
um, kost á að halda keppni áfram í
sk. B-úrslitum. Þetta fyrirkomulag
er mjög gott og til þess fallið að gera
mótið skemmtilegt fyrir alla þátt-
takendur.
íris Staub, 18 ára stúlka úr tenn-
isfélagi Kópavogs, varð
íslandsmeistari í ald-
ursflokki stúlka 17-18
ára. Hún stundar nám
við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og til marks
um áhuga hennar á
tennis, stundar hún
heimanámið jafnvel í af-
mörkuðu rými í Tennis-
höllinni í Kópavogi.
Hún hafði nokkra yfir-
burði í sínum flokki, en
sagði samt: „Eg verð að
spila virkilega vel til að
vinna og ef ég slaka að-
eins á eru hinar stelp-
urnar fljótar að komast
inn í leikinn." íris hefur keppt tals-
vert á mótum erlendis og segir ís-
lenska keppendur standa jafnöldr-
um sínum nokkuð að baki: „Það eru
of fáir sem æfa hér á landi, það er
fyrst og fremst það sem stendur í
vegi fyrir framþróun íþróttarinnar.“
íris Staub
Morgunblaðið/Borgar Þ6r Einarsaon
Glæsilegur hópur
ÞÁTTTAKENDUR í íslandsmótinu í tennis innanhúss stilltu sér upp til myndatöku að lokinni keppni
og voru allir kátir eftir tvo skemmtilega keppnisdaga.
íslandsmótið í badminton í Stykkishólmi
Fyrsti meistarí
Hrunamanna
TBR, Katrín Atladóttir, TBR, og
Sara Jónsdóttir, TBR, sem sigr-
uðu í einliða-, tvíliða- og tvenndar-
leik.
Jafet Ólafsson, formaður Bad-
mintonsambands Islands, afhenti
verðlaun og sleit mótinu. Hann
var ánægður með aðstöðuna í
Stykkishólmi og móttökur allar.
Hann sagði það vera stefnu sam-
bandsins að halda mót úti á lands-
byggðinni og kynna íþróttina um
leið. Iðkendum badminton fjölgar
stöðugt, en mest úti á landi. Nú
stunda um 6.000 manns badmint-
on hér á landi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
SIGURVEGARAR í tvíliðaleik hnokka, Arthúr Jósepson og Atli
Jóhannesson, TBR.
Alþjóðlegt handboltamót
ALÞJÓÐLEGT handboltamót
unglinga, Ice Cup, fer fram í
Hafnarfirði 8.-12. apríl nk. Mótið
er nú haldið í sjötta skipti og
hafa 10 hópar frá útlöndum til-
kynnt þátttöku sína. Ice Cup er í
raun eina alþjóðlega handknatt-
leiksmótið sem haldið er árlega
hér á landi. Meðal liða sem
hyggjast taka þátt eru fjögur
sænsk lið og eitt hollenskt. Þátt-
takendur á Ice Cup hafa verið
um 1.300 síðustu ár og því hefur
verið mikið líf og fjör í íþrótta-
húsum Hafnarfjarðar, og fjöldi
áhorfenda lagt leið sína þangað.
Ekki er ætlunin að spila hand-
knattleik eingöngu, því einnig
verður boðið upp á margt annað
til skemmtunar, s.s. diskótek,
myndbandakvöld, skemmtiatriði
o.fl.
Handknattleiksdeild FH sér
um framkvæmd mótsins og eru
allar nánari upplýsingar veittar
þar á bæ. Islensk lið þurfa að til-
kynna þátttöku sem allra fyrst.
Islandsmeistarmót unglinga í
badminton var haldið í Stykkis-
hólmi dagana 13.-14. mars. Það
var vel til fundið að halda mótið í
Stykkishólmi, því þar liggja rætur
þessarar íþróttar.
Fyrsta íslandsmótið
Ámason skrifar 1 badminton var
frá Stykkishólmi haldið í Stykkis-
hólmi árið 1949 og
eignuðust „Hólmarar" fyrsta ís-
landsmeistarann, Ágúst Bjarna-
son. Síðast var íslandsmótið hald-
ið á Stykkishólmi fyrir 40 árum.
Á þessu íslandsmeistaramóti
voru 240 keppendur, 19 ára og
yngri, frá 15 félögum víðs vegar
að af landinu. Mótið var því um-
fangsmikið. Keppt var í fjórum
flokkum karla og kvenna, og alls
voru leiknir 315 leikir þessa þrjá
daga. Iðkun badminton breiðist út
um landið og eignaðist Ung-
mennafélag Hrunamanna sinn
fyrsta íslandsmeistara, Daníel
Reynisson, en hann sigraði í
hnokkaflokki. Þá átti Ungmenna-
félag Aftureldingar lið í fyrsta
sinn í úrslitum. Þrír einstaklingar
sigruðu þrefalt á þessu móti og
sýndu mjög góðan árangur; það
voru þau Helgi Jóhannesson,
Draumaskóli allra
knattspyrnukrakka
Morgnunblaðið/Borgar Pór Einarsson
MIKIL stemmning var meðal þátttakenda á námskeiðinu og voru
krakkarnir hæstánægðir. Auk ýmiss konar æfinga fengu krakk-
arnir að spyrja spurninga sem leiðbeinendur svöruðu og einnig
voru gefnir minjagripir. Hér er stjórnandi Knattspyrnuskóla
Bobbys Charltons, lan Bateman, í hópi kappsamra þátttakenda.
UM SÍÐUSTU helgi voru
staddir hér á landi fulltrúar
frá hinum víðfræga knattspyrnu-
skóla Bobbys Charlton. Þeir
héldu kynningarnámskeið í Vík-
inni sem opið var strákum og
stelpum frá sex ára aldri. Heppn-
aðist kynningin mjög vel og voru
yfir 200 krakkar á námskeiðinu.
Knattspyrnuskóli Bobbys
Charlton hefur nú verið starf-
ræktur í tvo áratugi og þar hafa
margir heimsfrægir knattspyimu-
menn stigið sín fyrstu spor. Einn
sá frægasti er örugglega David
Beckham, en tíu ár eru síðan hann
sótti námskeið við skólann. Þá var
hann einmitt valinn í úrtakshóp
sem fékk að fara til Barcelona,
þar sem Terry Venables var við
stjórnvölinn. Þetta var upphafið
að glæstum ferli Beckhams.
Ian Bateman, sem er einn leið-
beinenda við skólann, segir að
mest áhersla sé lögð á tækniæf-
ingar: „Það er mjög mikilvægt að
þjálfa þá eiginleika hjá ungum
krökkum - því fyrr því betra. ís-
lenskir krakkar eru mjög dugleg-
ir að læra og leggja sig virkilega
fram við æfingarnar. Ég mundi
segja að áhugi og eljusemi væri
megineinkenni norænna knatt-
spyrnumanna, og þar eru krakk-
arnir engin undantekning."
Námskeiðið nú var hugsað sem
kynning á ferðum sem Samvinnu-
ferðir/Landsýn bjóða upp á í sum-
ar. Þegar hafa um 100 krakkar
skráð sig og virðast þessi nám-
skeið njóta vaxandi vindsælda hjá
krökkum, enda um sannkallaða
draumaferð að ræða. Einnig leitar
skólinn eftir íslensku starfsfólki
til að vera til aðstoðar þennan
tíma. Nánari upplýsingar um
hugsanlegt starf og sjálfa ferðina
veitir Lúkas Kostic hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn.
Úrtaks-
æfingar
U-16
lands-
liðsins
Magnús Gylfason, þjálfari
íslenská landsliðsins, sem
skipað er leikmönnum 16
ára og yngi-i, hefúr valið
23 leikinenn til úi'taksæf-
inga vegna úslitakeppni
Evrópumdtsins sem fram
fer í apríl á þessu ári. Is-
lenska landsliðið er í riðli
með Dönuni, Svíum og sig-
urvegara undanriðils Kýp-
ur, Grikklands og Möltu.
Riðlakeppnin fer fram 26.
til 30. apríl og komast tvö
lið upp úr liverjum riðli.
Um helgina verða leiknir
tveir æfingaleikir og verð-
ur hinn endanlegi lands-
liðshdpur væntalega valinn
með þá leiki til hliðsjdnar.
Fyrri leikurinn er gegn 2.
flokki KR og hefst laugar-
daginn 21. mars kl. 19. Síð-
ari leikurinn hefst kl. 9
morguninn eftir, sunnu-
daghm 22. mars, og er þá
leikið gegn 2. flokki Fram.
Eftii*taldir leikmenn
hafa verið valdir til að taka
þátt í þessum leikjum:
Markmenn: Rdbert Viðar-
son, KR, og Valþór Hall-
dói-sson, Þrótti N. Aðrir
leikmenn: Helgi Valur
Daníelsson, Fylki, Valur
Úlfarsson, Víkingi, Elvar
Guðjónsson, Val, Daði Guð-
mundsson, Fram, Andri Jó-
hannesson, Fram, Magnús
Edvaldsson, Frain, Ólafur
Páll Snorrason, Ejölni, Ind-
riði Sigurðsson, KR, Magn-
ús Lúðvíksson, KR, Victor
Victorsson, KR, Daníel
Frímannsson, Þrótti R.,
Þorgil Þorgilsson, Stjörn-
unni, Magnús Ingi Einars-
son, FH, Magnús Þorsteins-
son, Keflavík, Sævar Gunn-
arsson, Keflavík, Emil Sig-
urðsson, ÍA, Jóhannes
Gíslason, ÍA, Pétur Geir
Svavarsson, Bolungarvík,
Grétar Sveinsson, KS, EIí-
as Isfjörð, KS, Þórður Hall-
dórsson, Þór.