Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 13

Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 13 FRÉTTIR Samið um samstarf í prentiðnaði NÝLEGA undirritaði Prent- tæknistofnun og Myndlista- og handiðaskóli Islands viljayfir- lýsingu um samstarf. Þörfín fyrir slíkt samstarf segja aðil- arnir til komna vegna aukinnar tölvutækni í upplýsinga- og Ijöl- miðlageiranum. Segja þeir að slíkt kalli á gott og náið sam- starf milli þeirra sem standa að grunn- og endurmenntun fólks í þessum starfsgreinum. Samstarfíð mun fela í sér skipti á kennurum, leiðbeinend- um og sérfræðiþekkingu og er nefnt sem dæmi að Prenttækni- stofnun þarf að efla þekkingu sína í grafískri hönnun þar sem MHÍ geti miðlað af reynslu sinni. Á móti geti MHI leitað aukinnar þekkingar til Prent- tæknistofnunar um prenttækni, frágang prentgagna og sam- skipta prentiðnaðarins við verð- andi grafíska hönnuði eins og segir í fréttatilkynningu. Samstarf er nú þegar hafíð en alls eru um 1100 manns í fé- Iagi bókagerðarmanna. Síma- skráin á alnetinu SÍMASKRÁIN er komin á al- netið og er aðgangur öllum opinn að kostnaðarlausu. Slóðin er www.simaskra.is. Símaskráin á netinu verður með réttustu upplýsingar um símanúmer Islendinga sem fá- anlegar eru á hverjum tíma, því gagnagrunnurinn er upp- færður daglega af starfs- mönnum Landssímans. í ársbyrjun var sú ný- breytni tekin upp að boðið var upp á að skrá netfóng og vef- 1 föng í símaskrána, segir í fréttatilkynningu. Þessar und- irlínur birtust í fyrsta sinn í skránni í ár og eru í síma- skránni á netinu. Tekið er á móti skráningum netfanga og veffanga á heimasíðu síma- skrárinnar. Skráningar birt- ast nokkrum dögum síðar. Tengjast heimasíðu fyrirtækja í símaskránni eru fjöl- breyttir leitarmöguleikar og er hægt að leita eftir mismun- andi skilyrðum, t.d. eftir for- nafni, föðurnafni, heimilis- fangi, póstnúmeri eða síma- númeri. Einnig er hægt að leita eftir atvinnuflokki eins og ski-áð er í gulu síðurnar í símaskránni. Ollum þessum leitaraðferðum má blanda saman, jafnvel með hluta úr orðum til að þrengja leitina að nákvæmlega því sem sóst er eftir. Hægt er að tengjast heima- síðu fyrirtækja eða senda tölvupóst með því að smella á vef- og netföng séu þau skráð. Þannig geta einstaklingar og fyrirtæki auðveldlega nálgast upplýsingar um fyrirtæki í ákveðinni atvinnugrein, skoð- að heimasíðu þeirra og borið saman vöru og þjónustu, allt í gegnum símaskrána á alnet- inu. Þá er í undirbúningi teng- ing símaskrárinnar við götu- kort, þar sem hægt verður að sjá á andartaki hvar viðkom- andi símanúmer er. Morgunblaðið/Arnaldur BJÖRN Bjarnason, menntamálaráðherra, undirritaði ásamt Gunn- steini Gíslasyni, skólastjóra MHÍ, og Hirti Guðnasyni, framkvæmda- stjóra PTS, viljayfirlýsingu um samstarf. Kviknaði í út frá einnota grilli SLÖKKVILIÐ Borgarfjarðardala var kallað út að sumarhúsi í Húsa- felli um tvöleytið aðfaranótt mánu- dags en þar hafði kviknað í klæðn- ingu út frá einnota grilli sem skilið hafði verið eftir á palli undir hús- vegg. Að sögn Bernhards Jóhannesson- ar slökkviliðsstjóra var búið að ná tökum á eldinum að mestu þegar slökkviliðið kom á staðinn en slökkviliðsmenn rufu klæðninguna til að leita af sér allan grun um að eldur kraumaði fyrir innan hana. Bernhard segir að tilkynnt hafi verið um eldinn til umsjónarmanns sumarhúsa í Húsafelli en það hafi tafið fyrir og bendir Bernhard fólki á að hringja beint í Neyðarlínuna þegar aðstoðar er þörf. Allir milli- liðir tefji fyrir og skilaboð verði öll óljósari. Bernhard segir að margir hafi verið að nota einnota kolagrill und- anfarið vegna þess að grillgas hafi ekki fengist. I slíkum tilfellum ráð- leggur hann fólki að setja einnota grillin í gasgrillin og slökkva síðan í kolunum með vatni. Þau þorni fljótt og þá megi nota þau aftur. Síður kjóll Sundbolir Winona Blússa Stuttur kjóll Jakki Pils Barnafatnaður Ýmisleg tilboð KRINGU 0 n

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.