Morgunblaðið - 25.06.1998, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Salat í hádeginu og
súkkulaði klukkan tvö?
Á TÍMUM vaxandi meðvitundar um
hollt mataræði og mikilvægi hreyf-
ingar ákveða margir að sleppa kjöt-
bollunum og sósunni í hádeginu og fá
sér frekar salat í hádegismat. Flest
útivinnandi fólk hefur ekki tækifæri
til þess að elda aðalmáltíð heimilisins
í hádeginu og kýs því frekar léttari
málsverð á vinnustað. Salatbarir
stórmarkaðanna eru því vænlegur
kostur og víst er að þar úr mörgu að
velja. Hins vegar skiptir miklu máli
hvað er valið í salatbakkann og alls
ekki víst að allir salatbakkar flokkist
sem létt fæði, né að þeir geti tahst
fullgild máltíð ef of orkusnauðar vör-
ur eru valdar.
Fullgild máltíð
ef rétt er valið
Flestir tengja orðið salat og salat-
bar hollustu og heilsu, enda er það
yfirleitt raunin, en svo þarf þó alls
ekki að vera. Salat af salatbar getur
vel verið fullgild úrvalsmáltíð ef rétt
er valið í bakkann, en það er ekki
alltaf svo.
Orkuþörf fólks er mismunandi en
ef við tökum meðalmanninn og með-
alkonuna er orkuþörfin um 2100
kcal á dag fyrir konur en 2700 kcal
á dag fyrir karlmenn. Æskilegt er
að 25% af orku dagsins sé neytt í
hádeginu ef hádegisverðurinn er
léttari málsverður dagsins eins og
er hjá flestum. Konur þurfa að fá
530 kcal orku úr sínum hádegisverði
en karlar 680 kcal. Fólk sem hreyfir
sig mikið þarf að sjálfsögðu meiri
orku til þess að halda þyngd, þannig
að þeir sem grípa salatbakkann eft-
ir að hafa eytt hádeginu í líkams-
rækt þyrftu veglegri og hitaeininga-
ríkari skammta en hinir sem hreyfa
sig minna.
Bryndís Eva Birgisdóttir næring-
arráðgjafi var fengin til að velja salat
í þrjá bakka og mæla hitaeiningarn-
ar. Akveðið var að velja í bakkana
þannig að einn væri of orkulítill til að
uppfylla orkuþörf neytandans, annar
mátulegur og sá þriðji of hitaein-
ingaríkur. Salatbakkamir taka u.þ.b.
550 ml og fyrsti bakkinn er valinn
með þá fjölmörgu einstaklinga í
huga sem eru í stöðugri megrun og
reyna að sleppa öllu úr sínu fæði sem
orkuríkt er.
Of fáar hitaeiningar
Kona sem er hrædd við að þyngj-
ast reynir að velja sem hitaeininga-
snauðasta hráefnið á salatbarnum.
Hún forðast öll salöt sem eru með
majónesi eða sýrðum rjóma og hefur
þar að auki heyrt að egg og túnfisk-
ur séu fitandi. Hún velur sér því ein-
göngu hreint grænmeti og ávexti
eins og iceberg salatblöð, sér-
rítómata, gúrkur, sveppi, papriku,
gulrætur, zuccini og ananas.
I þessum fyrsta salatbakka eru:
MIKILVÆGT er að vanda valið á salatbarnum svo orka máltíðarinnar endist fram að kvöldverði.
SALATBAKKI konunnar sem
er í stöðugri megrun og er
of orkusnauður til að duga
út daginn.
Hitaeiningar 76 kcal
Prótein 3 g
Fita 1 g
Kolvetni 15 g
Trefjar 5 g
C-vítamín 117 mg
Járn 1 mg
Konan sleppir salatsósu en borðar
salatið með einu ósmurðu hrökk-
brauði og drekkur sykurskertan gos-
diykk með. Heildarhitaeiningamagn
hádegisverðarins er því einungis 110
kaloríur.
Þetta er alltof h'til orka fyrir þessa
konu til að endast henni fram að
næsta málsverði. Þrátt fyrir að hún
borði jafn mikið magn í grömmum
talið og aðrir sem fóru á salatbarinn
er orkan sem hún fær úr salatinu svo
lítil að hún orðin sársoltin strax aftur.
Aðeins tveimur tímum eftir þennan
„létta“ hádegisverð hleypur hún út í
næstu sjoppu og kaupir sér súkkulaði
og kók. Hún borðar það af mikilli
áfergju og finnst hún svo ómöguleg
manneskja á eftir og fær sér meira.
Margir borða sig ekki sadda í há-
deginu þar sem þeir eru alltaf að
SALATBAKKI skrifstofu-
mannsins, sem er svo orkuríkur
að hann gæti alveg eins fengið
sér kjötbollurnar í hádeginu.
„passa sig“ og sleppa jafnvel hádeg-
ismat en verða þá glorhungraðir um
leið og verða þá að komast í orkuríkt
fæði sem fyrst og þá verða sætindin
oft fyrir valinu. Þegar heim er kom-
ið er stokkið á kexið eða kökurnar
sem þar er oft hægt að finna ef vel
er leitað. Bryndís Eva ráðleggur
fólki sem er alltaf að hugsa um
aukakílóin að velja örlítið hitaein-
ingaríkari samsetningu í salatbakk-
ann, eða fá sér t.d. jógúrt með,
þannig að hungrið sverfi ekki strax
að aftur.
Of margar hitaeiningar
En öllu má nú ofgera. Næst tökum
við dæmi af skrifstofumanni sem
ákveður að breyta um lífsstíl, sleppa
heitu máltíðinni í matsalnum og fara
á salatbarinn. Hann er fullviss um að
sú ákvörðun skili sér í minnkun
magamáls, af því að allir vita hve gíf-
urlega grennandi salatið er. Hann
velur í sinn bakka tvö egg, fær sér
ríflega af túnfisk í olíu, ólífum og
ostatortellini, smá pastasalat, kota-
sælu og brauðmola og fyllir svo upp
með salthnetum og rúsínum. Að lok-
HÉR er hæfilega orkuríkur sal-
atbakki þar sem fjölbreytnin er
höfð að Ieiðarljósi og ætti að
endast fram að kvöldverði.
um bætir hann smá káli ofan á bakk-
ann til málamynda.
Þetta val í bakkann er ekki til þess
fallið að minnka mikið þær hitaein-
ingar sem hann hafði áður fengið sér
í formi heitrar máltíðar í matsalnum.
Sérstaklega ekki ef hann bætir við
salatsósu úr majónesi sem hægt er
að fá með á salatbarnum.
I þessum öðrum salatbakka eru:
Hitaeiningar 870 kcal
Prótein 51 g
Fita 59 g
Kolvetni 32 g
Trefjar 7 g
C-vítamín 1 mg
Járn 6 mg
Salatið borðar hann síðan með
vænu rúnstykki með smjöri og
drekkur appelsínusafa með. Heildar-
hitaeiningamagn hádegisverðarins
er 1150 kaloríur.
Þessi hádegismatur er of orkurík-
ur fyrir skrifstofumann sem borðaði
morgunmat og á eftir að fai-a heim
og elda um kvöldið og ætlai’ því bara
að fá sér eitthvað „létt“ í hádeginu.
Að velja einungis hitaeiningaríkustu
FJOLBREYTT úrval
á salatbarnum og þá er bara
að velja rétt.
vörurnar á salatbarnum er ekki væn-
leg leið til árangurs gegn aukakíló-
unum og fellur engan veginn undir
„léttan“ málsverð, þó að sjáist í
eitthvað grænt.
Góð samsetning
og hæfileg orka
Þá er það konan sem velur rétt í
salatbakkann. Hún veit að það er
fjölbreytnin sem gildir og þekkh-
hina ágætisreglu að fylla hálft boxið
af grænmeti en láta orkuríkari af-
urðir eins og egg, túnfisk, kotasælu,
baunir og pastasalöt fylla hinn helm-
inginn. Hún velur sér eitt egg, 1
msk. túnfisk, 2 msk. nýrnabaunir, 3
msk. pastasalat, icebergssalat,
tómata, lauk, 3 ólífur, sveppi, spírur,
maís, papriku, og grasker. Síðan set-
ur hún u.þ.b. 1 tsk. af hnetum og rús-
ínum ofan á salatið. Hún velur sér
létta salatsósu ofan á en passar að
hún sé búin til úr súrmjólk eða
sýrðum rjóma en ekki majónesi.
I þessum þriðja salatbakka eru:
Hitaeiningar 350 kcal
Prótein 22 g
Fita 15 g
Kolvetni 31 g
Trefjar 7 g
C-vítamín 49 mg
Járn 3 mg
Konan borðar salatið með einni
grófri brauðsneið, drekkur vatn með
og fær sér ávöxt í eftirmat. Heildar-
hitaeiningafjöldi hádegisverðarins er
530 kaloríur sem er hæfilegur orku-
skammtur fyrir daginn og ætti að
endast fram að kvöldverði.
Fjölbreytni
er lykilorðið
Af ofantöldum dæmisögum má
ráða að heillavænlegast er að velja
salat sem er kolvetnaríkt, en
sniðganga ekki allar orkuríkari vör-
umar. Þó skyldi a.m.k. helmingur
salatbakkans vera hreint grænmeti.
Gott er síðan að borða brauðbollu
með salatinu, drekka vatn með og
enda síðan á ávexti í eftirrétt. Það er
ljúf máltíð sem uppfyllir orku- og
næringarþörf yfir daginn fram að
kvöldverði og stuðlar að því að ekki
er hlaupið í óhollari vömtegundir
milli mála vegna svengdar.
Bryndís Eva segir að lykilorðið í
heilbrigðu mataræði sé fjölbreytni,
þó að orðin hófsemi og ímyndunarafl
fylgi þar fast á eftir.
Gróðiirvinin
er í Mörkínní
• Ráðleggjum um plöntuval.
• Sendum plöntur hvert á land sem er.
• Gerum ræktunarsamninga til lengri tíma.
• Auðvelt að semja um hagstæð kjör
ef um stærri kaup er að ræða.
• Góð lausn fyrir fyrirtæki, félagasamtök,
húsfélög og bæjarfélög.
Tré og runnar
Lauftré • Skrautrunnar • Banliv
• Harðgerðar, stórar og fallegar plöntur
eru aðalsmerki okkar. Þið fáið vel
ræktuð lauftré, skrautrunna og barrtré
í miklu úrvali.
• Til eru þrjú veggspjöld með myndum
og upplýsingum um skrautrunna,
lauftré og barrtré
GRÚÐRAKSrðtm
Opnunartímar:
• Virka daga kl. 9-21
• Umhelgarkl. 9-18
II /1 * Tvö ný fræðslurit komin:
IV jLvJrJL „Gróðursetning" og
srjúKmmórm sámm <m&, mxm xm „Ræktaðu garðinn þinn“
m
<2
5
c
Nýtt
Hringt á Netinu
NÚ GETA þeir sem eiga ætt-
ingja eða vini erlendis lækkað
símreikning sinn talsvert því
hægt er að nýta sér forritið
Internet Phone 5.0. VG Vörur
ehf. eru með umboð fyrir forrit-
ið og samkvæmt upplýsingum
þeirra geta þeir sem tengdir eru
við Netið hringt í hvaða síma
sem er í heiminum á lægra verði
en nú þekkist. Mínútan til
Bandaríkjanna kostar 9 kr. og
það kostar 11 kr. að hringja til
Svíþjóðar.
Ef annar aðili úti í heimi er
með sama forrit, er hægt að tala
við hann á verði innanbæjar-
samtals. Þá er einnig hægt að
varpa út mynd ef annar aðilinn
er með tölvumyndavél. Með
Intemet Phone forritinu fylgir
aðgangur að spjallrás fyrir not-
endur, þar sem hægt er að tala
við fólk út um allan heim eða sjá
það ef það er með tölvumynda-
vél.
Forritið er auðvelt í notkun
og fljótlegt í uppsetningu. Hægt
er að senda „Audio“-tölvupóst
og skiptast á skjölum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Einungis er hægt að keyra
forritið í tölvum sem hafa Penti-
um 75 Mhz örgjörva eða meira
og minnið þarf að vera minnst
16 Mb. Eins þarf að vera hátal-
ari við tölvuna eða heymartæki
og míkrófónn.
Verðið á Intemet Phone er
5.690 krónur með virðisauka-
skatti og er hægt kaupa forritið
í flestum tölvuverslunum.
SækiU sumarift tíl ökkar