Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
„Ægilega fallegxir fískur“
Þrjú skip hafa verið að fá gúðan
karfaafla á línu við Kolbeinsey
„ÞETTA er ægilega fallegur fisk-
ur, eldrauður og stór,“ sagði Einar
Sigurðsson, skipstjóri á Albatros
GK, um karfann, sem hann hefur
verið að fá á línu við Kolbeinsey
síðustu daga. Undir það tók Sævar
Sigurðsson á Fjölni GK en það var
hann, sem byrjaði á þessum veiði-
skap fyrir rúmum hálfum mánuði.
Hefur hann nú landað tvisvar, alls
130 tonnum af karfa og öðrum
fiski, og er raunar búinn með
karfakvótann. Þriðja skipið er
Hrungnir GK.
Sævar, sem hefur verið með Núp
frá Patreksfirði og er að leysa af á
Fjölni, sagði, að útgerðin hefði átt
nokkurn karfakvóta og verið farin
að hafa nokkrar áhyggjur af hon-
um og því hefði hann leitað þar
norður að Kolbeinsey.
„Eg var þama fyrir um 20 árum,
rerum þá með net frá Grenivík, og
þá fengum við mikið af þorski og
karfa í netin. Þá fórum við al-
veg út á 30 mílur en við vor-
um ekki svo norðarlega nú,
bara rétt við Kolbeinseyna.
Eg held, að það sé hægt að fá
þokkalegan karfaafla þama en
hann er aðallega á hólum og hiyggj-
um, írá 80 föðmum og niður undir
200 faðma,“ sagði Sævar, sem firrti
útgerðina áhyggjum sínum af
karfakvótanum því að hann klárað-
ist í tveimur stuttum túrum.
Bullandi straumur
„Þetta er ægilega fallegur fiskur
en við frystum ekkert. Ef þetta
væri vinnsluskip þá færi þessi
karfi áreiðanlega á Japan, hann er
svo fallegur, rauður og stór,“ sagði
Einar á Albatros en í gær var
hann á fjórðu lögn og búinn að fá
um 35 tonn frá því á sunnudag.
Kvaðst hann vera með fremur
stutta línu, 20.000 króka, en mjög
svera þannig að miklu meira kæm-
ist ekki fyrir í ganginum. Sagði
hann, að raunar hefði verið dálítið
erfitt að eiga við þetta fyrir
straumi og brælu og það var bull-
andi straumur í gær.
Einar sagði, að þeir væm ekki á
karfanum vegna kvótastöðunnar
þótt vissulega væra menn heldur
að forðast þorsldnn. Það væri þó
allt í lagi að
fá hann
með.
Kvaðst
hann ekki vita
hvert framhald yrði
á þessu. Útgerðin væri líklega með
um 100 tonn í karfanum en karfa-
kílóið væri dýrt í dag. Var það ekki
ljóst í gær hvar aflanum yrði land-
að en Einar hafði hug á að landa
fyrir norðan enda stímið til Grinda-
víkur langt.
LjósmySnorri Snorrason
ALBATROS GK 60, eitt skipanna þriggja, sem hafa verið að veiða
karfa á línu við Kolbeinsey.
Gullkarfi
hann raunar láta þess getið með
keiluna, að henni væri einfaldlega
verið að útrýma, hann og aðrir hefðu
séð um það, enda ætti hún að vera
komin á kvóta fyrir lifandislöngu.
Upp í 15 tonn á dag
Fjölnir er minna skip en Albatros
og Sævar sagði, að þeir væm með
miklu grennri línu en hefðu ekki lagt
hana alla, 20-25.000 króka á dag.
Hefðu þeir verið að fá upp í 15 tonn
á dag, mest af karfa en öðram fiski
líka, tíl dæmis hlýra og keilu. Vildi
Þorsteinn Sigurðsson fiskifræð-
ingur á Hafrannsóknastofnun sagði
í viðtali við Morgunblaðið, að karf-
inn, sem nú væri að veiðast við Kol-
beinsey, væri líklega gullkarfi eða
stóri karfi. Hann héldi sig á þessu
dýpi, 150 og niður á 400 metra, og
gjarnan á hólum og hryggjum, sem
hefðu fengið nokkurn frið. Sagði
hann, að gangurinn væri þó yfirleitt
sá, að aflinn minnkaði fljótlega.
Ráðstefna um endurvinnslu í nútíð og framtíð
Ráðstefna um „Endurvinnslu í nútíð og framtíð" verður haldin
í tengslum við fjölskyldusýninguna Umhverfisdaga 1998.
Ráðstefnan er haldin í samstarfi Umhverfisráðuneytis, SORPU,
og fyrirtækja í atvinnugreininni.
Ráðstefnan verður í húsakynnum Áburðarverksmiðjunnar hf.,
í Gufunesi 26. júní kl. 13:30. Ráðstefnustjóri er Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri í Umhverfisráðuneytinu.
Geir Haarde, fjármálaráðherra, setur ráðstefnuna.
Jeff Cooper, formaður starfshóps I.S.W.A (International Solid Waste Association):
„Endurvinnsla og minnkun úrgangs.
Stefna og framkvæmd Evrópu í minnkun úrgangs og endurvinnslu".
Hlé.
Cristian Fisher, aðst.frkvstj. ETV/W, (Europian Topic Centre on Waste) í
Kaupmannahöfn „Þýðing samræmdra skilgreininga og tölfræði í úrgangsmálum".
Niels Jorn Hahn, aðalframkvstj. Renholdningsselskabe af 1898 (R98).
Stærsta fyrirtæki Danmerkur á þessu sviði.
„A. Takmörk endurvinnslu".
„B. Hvernig getum við hagnast á gagnkvæmri miðlun upplýsinga innanlands og utan?"
Samantekt og niðurstöður. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri.
Hlé.
Stofnun Fagráðs á (slandi.
Gunnar Bragason, Endurvinnslunni hf. og Ingi Arason, Gámaþjónustunni hf.
Ingibjörg Sólrún Gfsladóttir, borgarstjóri,
opnar fjölskyldusýninguna Umhverfisdagar 1998.
Léttar veitingar.
Sýningin er opin til kl. 19:30 og 10:00-18:00 um helgina.
Væntanlegir þátttakendur í ráðstefnunni eru beðnir að skrá sig í síma eða á faxi
til SORPU fyrir 25. júní nk. Þáttökugjald er kr. 5.000. Sími 520 2200. Fax 520 2209.
S©RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi • Box 12100 • 132 Reykjavík • Sími 520 2200 • Bréfasími 520 2209 • www.sorpa.is
Loðnu-
veiðin að
g-læðast
LOÐNUVEIÐI glæddist talsvert
aðfararnótt gærdagsins, að sögn
Hafþórs Sigurðssonar verksmiðju-
stjóra SR-mjöls á Raufarhöfn í
gærdag. Guðmundur Ólafur landaði
þá tæplega 800 tonnum á Raufar-
höfn og Þórður Jónasson 350 tonn-
um á Seyðisfirði. A leið þangað voru
einnig Óm með 1100 tonn og Svan-
ur með rúm 700 tonn.
Hafþór sagði að skipin hefðu ver-
ið norðaustur af Langanesi, en dá-
lítið austar heldur en byrjað var
fyrstu veiðidagana. Alls var í gær
búið að landa 6.896 tonnum af loðnu
á þremur stöðum, mest hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar, rúmlega
3.600 tonnum, samkvæmt upplýs-
ingum hjá Samtökum fiskvinnslu-
stöðva.
Rannsóknarskip
á sildarslóðum
„Markmiðið með ferðinni er að
kanna hversu mikið er af síld innan
íslensku lögsögunnar," sagði Páll
Reynisson, leiðangursstjóri á Árna
Friðrikssyni, rannsóknarskipi Haf-
rannsóknastofnunar, sem er í sfld-
arleit á miðunum norðaustur af
landinu.
Páll sagði að „ósköp lítið“ væri að
frétta, það væru „smápeðrur" á víð
og dreif sem væra „ábyggilega sfld“
eins og hann komst að orði.
--------------
Norræna
vélstjórasambandið
Menntunar-
kostir bættir
NORRÆNA vélstjórasambandið,
sem er fulltrúi meira en 20.000 vél-
stjóra í dönskum, fínnskum, fær-
eyskum, íslenskum, norskum og
sænskum skipum, hélt stjómarfund
hinn 4. júní sl. í Jprlunde í Dan-
mörku, undir stjórn formanns síns,
Helga Laxdal.
I fréttatilkynningu frá samband-
inu kemur fram, að rætt hafí verið
um árangur kjarasamninga á Norð-
urlöndunum og skipst á upplýsing-
um um kjaramál. Þá var rætt um
hlutverk Norðurlanda í tengslum
við IMO (Intemational Maritime
Organization) og var eining um að
hvetja siglingastofnanir á Norður-
löndum til að einbeita sér enn frek-
ar að vandamálum í vélarrúmi og
gera það að forgangsmáli að setja
reglur um vinnuumhverfl/vinnu-
skipulag og hvemig störf skuli skip-
uð.
A fundinum kom fram, að árum
saman hefði alþjóðleg reglusetning
miðast við öryggi skipa, ásamt
vinnu í brú og á dekki, en nú væri
kominn tími tii að tryggja öryggi
þeirra, sem era ábyrgir fyrir því að
skipin geti siglt. Nútímaskip væru
fljótandi iðnfyrirtæld og því lífs-
nauðsynlegt að settar yrðu betri al-
þjóðlegar reglur um öryggi og
vinnuskilyrði í vélarrúmi.
Einnig voru menn sammála um
að nú á tímum væri það verulegt
vandamál í vélstjórastarfínu
hversu erfitt væri að vekja áhuga
ungmenna á tæknilegri menntun.
Það hefði í för með sér skort á
tæknimenntuðu ungu fólki. Því riði
á, að stjórnvöld á Norðurlöndum
bættu menntunarkosti á þessu
sviði og gerðu þá sýnilegri með
átaksverkefnum og með því að
gera tæknimenntun hærra undir
höfði.
í fréttatilkynningunni kemur það
einnig fram hjá Helga Laxdal, að
vélstjórar í Svíþjóð hafi nýlega
samið um það við kaupskipaútgerð-
ir þar í landi, að yfirvélstjóri hafi
aldrei lægri laun en skipstjóri.
\
)
I
I
I
>
I
í