Morgunblaðið - 25.06.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 31
ar tek ég eftir því að þau læra list-
ina að fara í leikhús og það er mikil-
vægt að þau kunni það síðar.
Brúðusýningar ýta líka undir sköp-
unargleði barna því oft sýna þau
okkur brúður sem þau hafa gert á
' milli heimsókna." Ekki einasta læt-
ur Helga sér nægja að sjá unga
áhorfendur sína læra hinar form-
legu athafnir leikhússins, heldur
leggur hún áherslu á fræðsluinntak
verkanna sjálfra. Sýningin sem nú
er að hefjast heitir Brúður, tröll og
trúðar og að henni lokinni ættu
áhorfendurnir í Safamýrinni,
hverra tala er orðin á annað hund-
rað, að hafa lært sitthvað um hafíð
og nokkrar lííverur þess. Allt dettur
í dúnalogn þegar sýningin hefst og
Helga byi'jar að kynna. „Við höld-
um athygli barnanna með tíðum
skiptingum, mörgum brúðum og
'skemmtilegum texta,“ segir hún.
Það era engin rólegheit að tjalda-
baki í Brúðubílnum. Sigrún Ex-la
bíður í framsætinu og hlustar eftir
í'éttu augnabliki. Síðan er hún þot-
in. Þau Fiímann þurfa tíðum að
skjóta sér inn og út úr bílnum til að
skipta um gervi og era snögg að því.
„Það má ekkert klikka,“ segir Sig-
rún Ei'la og það má til sanns vegar
færa því ekki bíður hljóðbandið efth'
neinum. Fyrsta atriðið hennar er
um strengjabrúðu sem losar sig
undan stjórnanda sínum. A hátíðis-
stund gæti verið viðeigandi að túlka
þetta atriði á þann veg að börnum
sé þama kennt að athafna sig ekki
eftir forskrift annai-ra.
Ekki reynt að plata
Blaðamaður að tjaldabaki með
lífvana tröll gapandi yfir sér í
þi'engslunum tók eftir því í næsta
atriði þai' sem nokkur brögð
brúðuleikhússins voru afhjúpuð, að
á sýningu Brúðubílsins er ekki
reynt að plata neinn, heldur höfðað
til rökhugsunar bai'nanna. Helga
sýnir það í verki hvernig hægt sé
að gera flókna hluti á einfaldan
hátt í brúðuleikhúsi og rökstyður
þar með staðhæfingu sína um að
bi-úðuleikhúsið sé gott kennslu-
tæki. Nóg um fræðsluna því stuðið
er í algleymingi og börnin reyna
allt hvað þau geta til að vara aum-
ingja tröllið undir brúnni í sam-
nefndu ævintýri við geitafjölskyld-
unni ágengu. Þótt allt tal sé á
bandi er samt gert ráð fyrir þátt-
töku barnanna í sýningunni með
úthugsuðum smáhléum. Sigx-ún
Erla leikur aumingja tröllið sem á
samúð barnanna og segir Helga að
þetta sé með ráðum gert; hvaða
ástæða er til að hatast út í tröllin
sífellt? Megininntakið er að sé
maður eigingjarn verður maður
einmana. Tröllið og geitafjölskyld-
an sættast í sögulok en geitapabbi
fær samt að stanga tröllið, enda
var það liður í að bregðast við
mjög alvarlegum málsverðarhót-
unum, sem tröllið hafði uppi af fá-
dæma fi'amhleypni.
„Það mætti vinda þau,“ segir
Helga um Sigi'únu Erlu og Frím-
ann, þar sem þau taka til við að
ganga frá eftir dynjandi lófaklapp
þakklátra áhorfendanna. Búning-
arnir eru heitir og æðimargir
kroppslegir tilburðir fylgja sýning-
unni svo svitinn bogar af þeim.
Sumarið er rétt að hefjast hjá
Brúðubílnum og Helga segir að
lokum að ekki sé hægt að óska sér
betri verðlauna en alls þess fjölda
áhorfenda sem sækir sýningarnar,
en í'eikna má með að um 20 þús-
und manns sjái sýningar Brúðu-
bílsins í sumar.
HÁkAN Boström og Knut H. Larsen.
Hnýsilegt
sjónarhorn
BÆKUR
Viðtalsbók
ISLÁNDSKA DAGAR
eftir Hákan Boström. Með myndum
eftir Knut H. Larsen. Södermanlands
Lans Bildingsförbund, 1998. 74 bls.
HÖFUNDUR þessarar sænsku
viðtalsbókar, Svíinn Hákan
Boström, kom fyrst til íslands árið
1978 og þá í sömu eidndagjörðum
og hann var hér í í fyri'asumar, það
er að segja að hitta nokkra íslenska
í’ithöfunda að máli með það í huga
að skrifa viðtals- og ferðabók; í
þetta skipti hafði hann sett saman
lista af höfundum í samráði við
Ingibjörgu og Ragnheiði hjá Rit-
höfundasambandinu sem gekk þar
undir nafninu snillingalistinn. Milli
þess sem hann á fundi með rithöf-
undum ætlar hann að fai'a í stuttar
ferðii' út á land með teiknaranum,
Knut H. Larsen, sem myndski'eyt-
ir bókina. Þeir fara suður á land og
vestur á Snæfellsnes og auðvitað á
Þingvelli. Allir skila þessir staðir
sér inn í bókina, ýmist í innblásn-
um textanum sem er fullur af aðdá-
un eða í látlausum og fallegum
teikningum Knuts.
Höfundarnir sem rætt er við í
bókinni ei'u Jóhann Hjálmarsson,
Jón úr Vör, Olafur Gunnarsson,
Vigdís Grímsdóttir, Sjón, Þor-
steinn frá Hamrij Kristján Jóhann
Jónsson, Fríða A. Sigurðardóttir,
Einar Már Guðmundsson, Matthí-
as Johannessen, Svava Jakobsdótt-
ir og Thor Vilhjálmsson.
Bókin er öll mjög skemmtileg af-
lestrar og er gi-einilegt að Hákan
hefur sjálfur skemmt sér konung-
lega við að skrif'a hana. Sjónarhorn
hans á höfundana er oft nýstárlegt
og hnýsilegt fyrir íslenskan les-
anda og kannski kemst hann nær
mörgum þein'a, nær þeii'ra eigin-
Iega kárakter en íslenskur viðtals-
höfundur gæti komist. Honum
tekst sérlega vel upp í köflunum
um Thor Vilhjálmsson og Matthías
Johannessen.
Þótt þessi litla bók Hákans
Boströms sé ekki til þess ætluð að
leiða sænska lesendur í allan sann-
leika um íslenskar bókmenntir og
samfélag mun hún alveg örugglega
vekja áhuga þeiri'a fi'ekar en hitt.
Þröstur Helgason
Reitir jarðar
MYNDLIST
Bílaleigan Geysir
MÁLVERK
Eva Benjamínsdóttir. Opið alla daga
frá 12-18. Til 31. júní. Aðgangur
ókeypis.
í TILEFNI af því að bflaleigan
Geysir flutti fyrir skemmstu í ný og
glæsileg húsakynni að Dugguvogi
10, kom það líkast til af sjálfu sér að
listakonunni Evu Benjamínsdóttur
sem býi' á efii hæðinni yrði boðið að
sýna þar. Ekki síst vegna þess að
hún mun hafa verið í sýningarhug-
leiðingum eftir nokkui't hlé á vett-
vanginum og var að litast um eftir
hentugum sýningarstað. Einnig
gæti þetta vei'ið liður í auknum og
lofsverðum áhuga fyi’irtækja á að
bakka upp listir og listamenn á ýms-
an hátt, sem maður hefur meira en
greinilega orðið var við undanfarin
misseri, og ber okkur sem um
myndlistir fjöllum að vera hér með á
nótunum.
Sýningin sem nefnist Reitir -
myndlist, var opnuð 16. maí og var í
óbeinum tengslum við listahátíð í
Reykjavík, eins og svo margar aðrar
hliðarframkvæmdir sem ekki bar að
loka augunum fyi-ir. Fyrir mistök og
utanlandsferð eins listrýnisins hefur
ekki verið fjallað um hana fyrr, en
meginhluti hennar er enn uppi og
mun svo vei'a til mánaðarmóta.
Eva Benjamínsdóttir, sem lauk
námi frá The School Of The Muse-
um Of Fine Arts og Tuft University
Medford Mass., vorið 1984, hefur
haldið nokkrar einkasýningar hér í
borg og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga frá árinu 1975. Bjó lengi í
Bandaríkjunum en hefur verið bú-
sett í Reykjavík undanfarin ár og
leitast við að hasla sér völl á íslenzk-
um listavettvangi. Fer
ekki endilega troðnar
slóðir í vali sýninga-
staða og þannig hefur
hún einungis haldið
eina sýningu í grónum
og viðurkenndum sýn-
ingarsal, Ásmundarsal,
áifð 1983, sýnt í Litla
horninu, Listhúsi 39 í
Hafnaxfirði, meðan það
var og hét, en verið
með þeim fleiri gjörn-
inga á listasviði út um
tvist og bast að segja
má.
Að sýna í fyrirtækj-
um er ekki alveg nýtt
og var lengi vel rýnt í
slíkar framkvæmdir,
sem er ei heldur óalgengt erlendis,
eða áður en sýningabylgjurnar
hófust, sem byrjuðu raunar á sjötta
áratugnum en vei'ða stöðugt fleiri
og stæn-i. Að því kom á tíma sam-
di'áttar að við neyddumst til að taka
nær alveg fyrir skrifm og listkynn-
ingar ýmis konar, en vísuðum til
fréttadeildar. En í Ijósi breytti'a við-
horfa og betri tíma er rétt og skylt
að koma á móts við þau á einhvern
hátt, finna hér fastan flöt í markaðin
umfjöllun, einkum þegar fram-
kvæmdirnar standa undir nafni.
Eva Benjamínsdóttir hefur gert
víðreist um heiminn og er uppfull af
hugmyndum um lífíð og tilveruna,
áhugamálum sem um þessar mund-
ir skara helst mannleg samskipti og
rýni í móður jörð. Er sjálfmenntað-
ur sérfræðingur í blóma- og mat-
jurtagerð, og hafði á tímaskeiði
fundið athöfnum sínum á vettvang-
inum stað á svo frábæran og skil-
virkan hátt í mynd og
máli að heyrir helst
undir núlistir í ljósi þess
sem blasir við í sýning-
arsölum heimsins. En
undanfarið hefur lista-
konan einbeitt sér að
pentverkinu og tvívíð-
um grannflöt, helst olíu
og akrylmálverkum á
striga, krossvið og
pappír, en einnig fram-
bera athafnir hennar
einþrykk, vatnslita-
myndir og verk unnin í
blandaðri tækni. En hér
er hún þó sem fyrr í ná-
vígi við náttúruna og er
stöðugt að hugsa um
moldarsvörðinn og lit-
brigðin allt um kring. Myndvei'kin
bei'a helst nöfn lita og litasmbanda
jafnvel dökkgrænrautt og höi'bleik-
rautt sem gefur í skyn hugará-
standið og myndferlið hvei'ju sinni,
en það er hvei'jum gildum lista-
manni nóg.
Ei'í'itt er að gera sér fulla grein
fyrir myndverkunum í þessari
dreifðu og brotnu upphengingu, en í
ljósi þess liggur beinast við að
hvetja listakonuna til að sýna í
hentugri húsakynnum innan tíðar,
gefa þar með verkunum tækifæi'i til
að njóta sín og anda. En hér er til-
gangurinn helstur að vekja athygli
á mai’kverðri framkvæmd svo hún
fari ekki að fullu fi’amhjá áhuga-
sömum.
Bragi Ásgeirsson
Eva
Benjamínsdóttir
KVIKMYJVPIR
Sambíðin Alfabakka
ug Regnboginn
ÞÁ SJALDAN ÞAÐ RIGNIR
„HARD RAIN“ ★ ★ 'k
Leikstjói’i: Mikael Salomon. Aðal-
hlutverk: Morgan Freeman, Christ-
ian Slater, Minnie Driver, Ed
Asner, Randy Quaid, Betty White
og Richard Dysart. Paramount
Pictures 1998.
í BANDARÍSKU spennumynd-
inni Þá sjaldan það rignir eða
„Hai'd Rain“ fær hin dæmigerða
fonuúluhasaxTnynd frá
Hollywood, sem í þessu tflviki
byggist á einskonar bankai'áni í
smábæ, aukna vikt með því að
hún er staðsett á flóðasvæðum
þar sem rignir gegndarlaust og
stíflan ofan við bæinn getur
brostið á hverri stundu. Hið
mikla úrfelli og það að myndin
gerist öll í kolniðamyi'kri að næt-
urlagi skapar henni vissulega
nokki'a sérstöðu og það er alltaf
nóg að horfa á en það felur þó
ekki þá staðreynd að hér er enn
einn formúluhasarinn á ferðinni.
Leikstjórinn, Mikael Solomon,
nýtir sér býsna vel það umhverfi
Detta
tír lofti
dropar
sttírir
sem sögunni er skapað. Það er
aldi-ei þurr þráður á leikuranum
hans, rigningin mikla minnir
hálft í hvoru á syndafallið, vatns-
borðið hækkar óðfluga þar til það
nær uppfyrir höfuð leikaranna,
sem gjarnan sitja fastir og virð-
ast sífellt á leið að að drukkna,
himinninn er kolsvartur líkt og
dómsdagur sé í nánd og síðast en
ekki síst eru þi-jár milljónh- doll-
ara einhvei'staðar á floti í vatn-
inu.
Moi’gan Fi'eeman og bófa-
flokkur hans ætlaði að ræna þeim
úr biynvörðum flutningabíl en
Christian Slater kom í veg fyrir
það um það bil sem félagi hans,
gamli sjónvarpsleikarinn Ed
Asner, fékk skot í sig. Slater
kemst við illan leik tfl lögreglu-
mannsins Randy Quaids með
óþokkalegri aðstoð Minnie Dri-
vers, en útifyrir siglir Freeman
tilbúinn að myrða allt kvikt sem á
vegi hans verður.
Um þetta leyti verða nokkur
hvörf í sögunni sem virka ekki
sannfæi’andi en það er vai'la tími
til að íhuga það mikið því
Solomon gætir þess að draga
aldi-ei niður í hasarkeyrslunni;
maður hefur ekki einu sinni tíma
til að pæla í því hvernig þeir
sökktu heilum smábæ fyrir kvik-
myndagerðina. Fi'eeman er ým-
ist illur eða góður svo maður veit
aldrei hvar maður hefur hann í
rauninni, Slater er atoi-kusamur
flóttamaður, Di-iver sér um kven-
legu hliðina og Quaid er alltaf
sami bjárnnn.
Eltingai’leikurinn er óstöðv-
andi rétt eins og rigningin.
Solomon veit eins og svo margir
aðrir að vatn er álitlegur spennu-
gjafi í bíómyndum, ógnvekjandi
og miskunnarlaus, og brúkar það
til góðra lxluta. Handritið hefði
mátt vera vatnsheldai-a en hon-
um hefur tekist að gera úr hvora
tveggja prýðilega afþi'eyingu.
Arnaldur Indriðason
Njtjar bækur
• SA GNFRÆDIRANNS ÓKNIR -
Studia historica er rítröð, sem hleypt
var af stokkunum árið 1972. Að rit-
röðinni stendur Sagnfræðistofnun
Háskóla íslands. í ritröð þessari birt-
ast prófritgerðir frá Háskóla Islands,
sagnfræðirannsóknh-, sem unnið hef-
ur verið að á vegum Sagnfræðistofn-
unar, svo og aðrar sagnfræðiritgerð-
ir, sem sérstök ástæða þykir tii að
birta.
Þrh• titlar úr þessari röð hafa verið
uppseldir um nokkurt skeið en koma
nú út aftur. Þeir eru: „Frá goðoi'ðum
til ríkja, þróun goðavalds á 12. og 13.
öld, efth• Jón Viðar Sigurðsson. Hval-
veiðar við ísland 1600- 1939, eftir
Trausta Einarsson og Lífshættir í
Reykjavík 1930-1940, eftir Sigurð
Gylfa Magnússon. Háskólaútgáfan
annast útgáfu og di'eifingu.
Elizabeth
Elizabetb Arden
kynning í Hygea,
Austurstræti,
í dag og á morgun
Nýtt frá Elizabeth Arden
Ceramide Firm Lift Body
Lotion.
Mýkjandi og rakagefandi
húðmjólk sem endumærir
húðina og stinnir hana og
styrkir.
Hefur sömu góðu styrkingar-
áhrifin fyrir líkamann og Firm
Lift Lotion fyrir andlitið
H Y Lr E A
Austurstræti 16,
sími 511 4511.