Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGINN
11. júní sl. birtist á síð-
um Morgunblaðsins
grein sem bar yfír-
skriftina „Valkostur
fyrir listaháskóla", rit-
uð af Sigurði Gunnars-
syni. Hann og félagar
hans höfðu stofnað fé-
lagið Mýrargata 26 ehf.
til að kaupa gömlu
Hraðfrystistöðina og
innrétta þar gagna- og
munavörslu af full-
komnustu gerð, eins og
segir í greininni. Þeir
félagar sáu þó fljótlega
að þetta húsnæði,
ásamt gamla BÚR-hús-
inu, myndi frekar nýt>
ast fyrir listaháskóla. Virðast þeir
hafa lagt mikla vinnu og kostnað í að
kynna og útfæra þessa hugmynd. Ég
verð að játa að mér var illa brugðið
er ég las um þessa framtíðarsýn
þeirra félaga. Ég efast ekki um að
listaháskóli sómdi sér vel á þessum
stað, en ég legg þó til að þeir breyti
þessari tillögu sinni yfír í annan far-
veg, þ.e.a.s. valkost fyrir sjóminja-
safn. Fyrir nokkrum árum, þegar
Grandi hf. flutti starfsemi sína úr
BÚR-húsinu og Hraðfrystistöðinni
yfír í Isbjamarhúsið á Norðurgarði,
kviknaði hjá mér sú hugmynd að til-
valið væri að setja þar upp sjóminja-
og fískvinnslusafn. Ég hef hingað til
ekki haldið þessari hugmynd á loft,
en geri það nú af fullri alvöru.
Glataðar minjar
Það er næstum grátlegt að hugsa
til þess að fiskveiðiþjóð eins og ís-
lendingar skuli ekki eiga neitt alvöru
sjóminjasafn. í gegnum árin höfum
við kastað á glæ ýmsum minjum um
þessa atvinnusögu okkar. Gamlir tré-
bátar eru úreltir, þeim sökkt eða þeir
brenndir. Er skemmst að minnast
bátasafns Þjóðminjasafnsins sem
brann í timburhjalli í Kópavogi.
Gömlu nýsköpunartogaramir, sem á
sínum tíma möluðu gull í þjóðarbúið,
voru dregnir út, nánast á rassgatinu,
í brotajárn. Gaman væri að eiga nú,
þó ekki væri nema einn slíkan til sýn-
is fyrir okkur og kom-
andi kynslóðir. Gömlum
áhöldum, vélum og
tækjum til fiskvinnslu
og sjósóknar er einfald-
lega hent eða sett í
brotajám þegar ekki er
þörf fyrir það lengur.
Þanpig mætti lengi
teija. Þjóðminjasafnið
geymir að vísu töluvert
af gripum tengdum
þessari atvinnusögu
okkar, en sú deild safns-
ins, sem að hluta til er
vísir að sjóminjasafni í
Hafnarfirði, hefur í
gegnum árin verið hálf-
gerð homreka. Er ekki
löngu orðið tímabært að
gera eitthvað í málinu?
Sjóminjasafnið í frystihús
Hús Hraðfrystistöðvarinnar og
BÚR eru einkar vel til þess fallin að
hýsa sjóminjasafn. Þar er hátt til
lofts og vítt til veggja og óteljandi
möguleikar á útfærslum á smekkleg-
an og ódýran hátt á um 12.000 fm.
Auk þessara húsa gefur nánasta um-
hverfí þeirra milda möguleika til við-
bótar. Má þar nefna Daníelsslipp,
í Hraðfrystistöðinni
------------------------------
og BUR-húsinu er, að
mati Ólafs T.
Snæbjörnssonar, kjörið
að setja upp sjóminja-
og fiskvinnslusafn.
hafnarkrikann bak við BÚR og ver-
búðimar hinum megin götunnar.
Hvar á sjóminjasafnið annars staðar
heima en einmitt við gömlu höfnina?
Vonandi verður gamla höfnin alltaf
„gamla höfnin“ með sitt aðdráttarafl
og sjarma. Veglegt sjóminjasafn á
þessum stað verður sú skrautfjöður
sem höfnin, lífæð okkar, á skilið. Úr
því minnst er á Daníelsslipp má til
fróðleiks geta þess að á kreppuárun-
um fyrir stríð létu borgaryfirvöld
smíða þar þrjá 30 brl. eikarbáta til
atvinnuuppbyggingar. Einn af þess-
um bátum var Aðalbjörg RE 5,
frægt happafley, sem gefið var
Reykjavíkurborg til varðveislu árið
1986. Þessi bátur grotnar nú niður í
Árbæjarsafni. Væri óskandi að borg-
aryfírvöld sýndu þessum bát og fyrr-
verandi áhöfnum hans þá virðingu
sem þeir eiga skilið og gerðu hann
upp og staðsettu á sínum heimaslóð-
um.
Safn Jósafats Hinrikssonar
Inn við Súðarvog í Reykjavík er
staðsett safn Jósafats heitins Hin-
rikssonar. Þar gefur að líta fjölbreytt
og viðamikið safn sjó- og smiðjumuna
sem Jósafat kom upp í vélsmiðju
sinni af einskærum áhuga og smekk-
vísi. Væri óskandi að samstaða næð-
ist um að skipa því heiðurssess á nýj-
um stað í réttu umhverfi með útsýni
yfír gömlu höfnina.
Kostnaður og fjármögnun
I áðumefndri grein Sigurðar
Gunnarssonar kemur fram að hann,
ásamt Kristni Má Þorsteinssyni, hafi
gert kostnaðaráætlun fyrir uppbygg-
ingu listaháskóla ásamt kaupum á
fasteignum upp á 800 milljónir króna.
Þar er ekki reiknað með neinum
íburði, en vönduðum frágangi fyrir
þarfirnar eins og þar segir. Ég er
sannfærður um að hægt væri að
halda kostnaði við uppbyggingu sjó-
minjasafns innan þessara marka. Nú
skora ég á alla þá hagsmunaaðila
sem tengjast sjávarútvegi á einn eða
annan hátt, svo og félagasamtök og
áhugasama aðila, að sameinast í
breiðri fylkingu til framgangs á
þessu þjóðþrifamáli. Grandi hf. varð
eins og kunnugt er til við sameiningu
Bæjarútgerðar Reykjavíkur og Is-
bjarnarins. Síðar kom Hraðfrysti-
stöðin inn í fyrirtækið. Vil ég skora á
Granda hf. að ríða á vaðið og leggja
málinu lið með því að gefa BÚR hús-
ið undir sjóminjasafn. Leiðir til að
fjármagna uppbyggingu og rekstur
sjóminjasafns eru margar en verða
ekki tíundaðar hér. Þó má ljóst vera
að stuðningur Ríkisins og Reykjavík-
urborgar mun vega þar þungt.
Þennan möguleika á að eignast
loks alvöru sjóminja- og fiskvinnslu-
safn megum við ekki missa frá okk-
ur. Hálfnað er verk þá hafið er. Hefj-
umst strax handa og reisum mynd-
arlegt safn til heiðurs okkar Hrafn-
istumönnum.
Höfundur er fyrrv. sjómaður.
Valkostur fyrir
sjóminjasafn
Ólafur Tryggvi
Snæbjörnsson
ÍSLENSKIR vinstri-
menn bíða nú óþreyju-
fullir næstu alþingis-
kosninga, uppfullir af
eldmóði sem aldrei fyrr.
Það er skiljanlegt þar
sem vatnaskil munu
verða í íslenskri pólitík
náist samkomulag um
sameiginlegt framboð
Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Kvenna-
lista.
Þegar hefur náðst
samstaða í grundvallar-
málum og málefna-
grundvöllur liggur skýr
fyrir. Einungis er eftir
að taka formlega ákvörð-
un um að jafnaðarmenn
og -konur bjóði fram sameiginlegan
lista og starfi saman eftir kosningar
sem einn samstilltur þingflokkur.
Frammistaða stjórnarflokka
Um þessar mundir er grundvöllur
fyrir stórum félagshyggjuflokki hinn
ákjósanlegasti. Þar ráða miklu um
stjómarathafnir (og athafnaleysi)
Sjálfstæðisflokksins með Framsókn
sér til fulltingis. Þar hefur hvert
hneykslismálið rekið annað. Nýju há-
lendislögin eru einhver sárgrætileg-
asti minnisvarði sitjandi stjómar, þar
sem hálendinu er úthlutað til fárra.
Að sjálfsögðu hefur ekki
verið hróflað við gjafa-
kvóta sægreifanna, enda
ekki við því að búast.
Nýjar reglur í félags-
lega húsnæðiskerfinu
eru svo til að bíta höfuð-
ið af skömminni. I of-
análag misnotar forsæt-
isráðherra valdamikið
embætti sitt, t.d. með
ósæmandi dylgjum í
garð fréttamanna ríkis-
fjölmiðils, vegna ósigurs
flokks síns í sveitar-
stjómarkosningum,
þannig að með ólíkind-
um þykir. Er nú fátt eitt
talið af afrekalista
stjómarflokkanna.
Vinstri forysta
En það er fleira sem skapar góðan
jarðveg fyrir vinstrimenn en afglöp
sitjandi stjórnar. Skoðanakannanir
hafa sýnt að sameiginlegt framboð
gæti halað inn 35-45% atkvæða. I ný-
afstöðnum sveitarstjómarkosningum
náðist víðtæk samstaða félags-
hyggjuflokkanna um gervallt landið.
Hér hefur farvegur fyrir farsælt
samstarf verið lagður í samræmi við
ákall grasrótarinnar. Akall almenn-
ings, sem var orðinn langþreyttur á
minniháttar ágreiningi smáflokkanna
Vatnaskil munu verða í
íslenskri pólitík, segir
Harpa Hrönn
Frankelsdóttir, náist
samkomulag um sam-
eiginlegt framboð.
á vinstri væng. Ágreiningi sem hefur
tryggt íhaldsmenn í sessi og gert þá
að kjölfestu íslensks samfélags.
Það er löngu kominn tími til að
jafnaðarmenn fylki sér saman í nafni
jöfnuðar, kvenfrelsis og félagslegs
réttlætis. Höfuðmarkmiðið nú er að
jafnaðarmenn eigi fyrstir tilkall til
stjómarmyndunarumboðs sem sig-
urvegarar kosninganna eða fylgis-
mesti listinn.
Davíð í fréttirnar!
Ég sé fyrir mér gjörbreytt samfé-
lag eftir næstu alþingiskosningar. Ég
sé vinstrimenn bæta kjör almennings.
Ég sé vinstrimenn ráðast gegn launa-
misrétti og koma á raunverulegu jain-
rétti kynjanna. Ég sé siðvæðingu í
stjómsýslunni. Ég sé Davíð Oddsson
stoftia sína eigin ftjálsu, óháðu frétta-
stofu. Ég sé sægreifa borga veiði-
leyfagjald. Ég sé bætta heilbrigðis-
þjónustu. Ég sé ekki óhófleg skóla-
gjöld. Ég sé að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur verið alltof lengi í ríkisstjóm.
í byrjun júlí munu alþýðuflokks- og
alþýðubandalagsmenn ákveða hvort
af sameiginlegu framboði verður fyrir
sitt leyti. Vinstrimenn! Við eigum
samleið. Bjóðum upp á öflugan vinstri
valkost í komandi alþingiskosningum.
Höfundur er í stjórn Verðandi, sam-
taka unfrs alþýðubandalagsfólks
og óháðra.
Við eigiim
samleið
Harpa Hrönn
Frankelsdóttir
Yandaðir veð-
urfréttatímar
Öryggisatriði og
meira til...
UMRÆÐA varð um
veðurfréttir fjölmiðla
eftir nokkra atburði í
vetur þar sem leita
þurfti að ferðafólki á
hálendinu. Þá kom
fram að með litlum
veðurfréttum á Stöð 2
og færslu veðurfrétta
fram fyrir fréttir í
Sjónvarpinu (RUV),
fylgdist almenningur
miku verr með fregn-
um af veðri og spám.
Hvorki útvarpsspár né
blaðaefni eða veður-
fréttasími Veðurstofunnar telst
hafa sama þunga og lifandi veður-
spár í sjónvarpi. Nú hefur orðið
gjörbreyting í þessum efnum. Stöð
2 hóf útsendingu veðurfrétta í
19-20 með nýju og glæsilegu sniði í
vor og nú í júní tók RÚV einnig
upp svipaða tölvuframsetningu
Vegna fjölmargra fyrir-
spurna (og stundum
misskilnings) gerir Ari
Trausti Guðmundsson
grein fyrir veðurfrétt-
um Stöðvar 2.
veðurs og færði hana aftur inn í
fréttatímann. Þetta er mikil fram-
fór og þar með ættu landsmenn að
eiga greiðari og eftirsóttari aðgang
að traustum og vönduðum veður-
fréttum en áður enda veðrið óað-
skiljanlegt mannlífinu.
Til upplýsingar
Vegna fjölmargra fyrirspurna
(og stundum misskilnings) geri ég
nú grein fyrir veðurfréttum Stöðv-
ar 2. undirbúningsvinna að veður-
fréttunum stóð í rúmt ár. Allar
upplýsingar eða spár sem þarf til
veðurfréttanna koma frá Veður-
stofu Islands skv. samstarfssamn-
ingi. Stofnunin aflar gagna og
tölvuspáa heima og heiman og
vinnur efni fyrir marga fjölmiðla.
Sérstök forrit sem fengin voru frá
fyrirtækinu Earthwatch í Banda-
ríkjunum til Stöðvar 2 vinna þar úr
gögnunum efni sem fellt er að kort-
um og ýmsum sýniferlum. Feik-
iöfluga tölvu þarf til að vinna allt
efnið. Þannig eru t.d. nýttar gervi-
tunglamyndir sem sýna skýjafar,
með eða án úrkomu, yfir landinu og
umhverfis það og felldar að þrívíðu
flugi sem hægt er að ráða að öllu
leyti og sýnir ísland frá hvaða
sjónarhomi sem er. Tölvan býr til
hnökralaust flug í 15-20 sek. úr
mörg hundruð myndum sem hún
skeytir saman. Úpplýsingar um
veður dagsins og spár um breyt-
ingar á lægðum og hæðum eða um
veður næsta sólarhrings eru unnar
í tölvunni; sumt vinnur hún sjálf-
virkt en annað þarf starfsfólk graf-
ískrar deildar að setja handvirkt
inn á kort. Kortagrunnar eru
fengnir frá Landmælingum Is-
lands. Veðurtákn og yfirbragð
skjámyndanna var allt unnið inn-
anhúss áður en útsending hófst.
Um það bil 4 klukkustundir líða frá
því að byrjað er að vinna úr upp-
lýsingum frá Veðurstofunni á miðj-
um degi þar til útsending hefst.
Grafískur hönnuður hefst handa
einn en síðdegis eru veðurmenn
mættir og eftir það er verkinu lok-
ið í samstarfí.
Kostun
Hið nýja símafyrirtæki TAL
kostar mikilvægan hluta alls þessa
dagskrárþáttar eins og kemur
fram í sérstakri kynningu. Án
stuðningsins væri vart
um jafn viðamiklar
veðurfréttir að ræða
og fólk sér nú. Fyrir-
tækið kom þó ekki að
undirbúningi eða
hönnun veðurfrétt-
anna; né heldur sér
það Stöð 2 fyrir gögn-
um eða spám eins og
haldið var fram í les-
endabréfi í DV á dög-
unum.
Þrískipt útsending
Veðurfréttimar eru
þrískiptar hvert
kvöld. Einstakir þætt-
ir þeirra eru enn í þróun og smám
saman verður breytt um gerð eða
röð liða til þess að auka fjölbreytn-
ina og efla enn innihaldið.
Fyrsta útsending fleygast á milli
Islands í dag og sjálfra fréttanna;
sá hluti tekur allt að 3 mín. og 15
sek. Þar kemur fram veður dags-
ins, yfirlit yfir skýjafar og hita í
landinu, ásamt úrkomu, staða
hæða og lægða, myndræn færsla
veðurkerfa, þrýstilína og aðal-
skýjasvæða til morguns og svo loks
kemur spáin fyrir Island (skipt í
þrennt: Hitastig, vindátt og -styrk-
ur og úrkoma/skýjafar); frá kl 12 á
hádegi til kl 12 á hádegi daginn eft-
ir. Næsta útsending er í lok 19-20,
eftir fréttir og tekur um 1 mín. og
50 sek. Þá er spá morgundagsins
ávallt endurtekin en auk þess ým-
ist sagt frá veðri í 12-14 borgum í
Evrópu og Ameríku, auk sólar-
hringsspár, eða sett fram spá fyrir
Island fimm daga fram í tímann.
Borgaveður er á þriðju-, miðviku-,
laugar- og sunnudögum, sett fram í
dálkum, en aðra vikudaga er sett
fram langtímaspáin með fjórum,
skýrum kortamyndum. Þetta verð-
ur haft svona í sumar en smám
saman þróast framsetningin eins
og áður sagði. T.d. er sagt frá færð
á hálendinu fyrri hluta sumars,
einu sinni í viku. Þriðja útsending
er í lok frétta sem hefjast kl. 22.30.
Þá er spá morgundagsins endur-
tekin á innan við 1 mín.
Veðurvitarnir
Við sem sjáum um veðurfrétt-
irnar erum enn sem komið er fjög-
ur. Unnur Ólafsdóttir, Einar
Sveinbjörnsson og Sigurður Jóns-
son eru öll menntaðir veðurfræð-
ingar; tvö þau fyrrnefndu eru
starfsmenn Veðurstofunnar en
Sigurður er sjálfstætt starfandi
(og vinnur m.a. í tengslum við Veð-
urstofuna). Þau fyrstnefndu koma
til vinnu á Stöð 2 eftir að vinnu
lýkur á Veðurstofunni eða á frí-
dögum sínum. Greinarhöfundur er
ekki veðurfræðingur, heldur sjálf-
stætt starfandi jarðeðlisfræðingur
en almenn veðurfræði er ein
grunngreina í því fagi. Hann sá um
veðurfréttir í sjö ár á Stöð 2 (með-
an veðurfréttamenn voru þar leik-
menn) og þrífst bærilega í þessum
fríða flokki. Veðurfræðingarnir
þrír hafa allir komið við sögu veð-
urfrétta hjá RÚV. Þau kusu sjálf
að skipta um fjölmiðlavinnustað en
voru hvorki keypt á Stöð 2 né
hrakin í burtu af RÚV.
Að lokum
Með þessu ætti ýmislegt að vera
ljósara en ella varðandi veðurfrétir
Stöðvar 2. Áhorfskönnun fór fram
um 10 dögum eftir að veðurfréttir
hófust með þessum hætti hjá fyrir-
tækinu. Samkvæmt henni höfðu
um 90% landsmanna séð þennan lið
og vel ríflega 80% svarenda voru
mjög ánægð eða ánægð með þjón-
ustuna.
Höfundur er umsjónarmaður
veðurfrétta á Stöð 2.
Ari Trausti
Guðmundsson