Morgunblaðið - 25.06.1998, Qupperneq 42
142 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Hagræðingaraðförin að
heilbrigðiskerfinu
UM NÆSTU mánaðamót taka
uppsagnir hjúkrunarfræðinga gildi
og er ekki annað sýnna en heil-
brigðisþjónusta landsmanna leggist
að mestu af gangi hjúkrunarfræð-
ingar út.
Samkvæmt því vinnulagi er
tíðkast hjá stjórnvöldum var þá
fyrst tekið að ræða við hjúkrunar-
fræðinga er samningar þeirra
runnu út og fyrst sjö mánuðum síð-
ar, í júní 1997, náðist samkomulag
um samning sem í voru ákvæði um
röðun í nýjan launaramma en
greiðslur samkvæmt þeim ramma
áttu að hefjast 1. febrúar sl. sam-
kvæmt samkomulaginu. Þegar
hvorki gekk né rak í þeim efnum
sögðu hjúkrunarfræðingar upp
störfum 1. apríl.
I ljósi þess að aldrei var staðið
við samninginn frá júní 1997, því
engin röðun í launaramma hefur
enn átt sér stað, kemur mönnum
óneitanlega nokkuð spánskt fyrir
sjónir að bæði heilbrigðisráðherra
og varaformaður heilbrigðisnefnd-
ar eru mjög undrandi á þessum
uppsögnum og telja að þær geri
stjórnvöldum afar erfitt fyrir. Þessi
undrun verður varla skilin öðruvísi
en svo að hafi launþegar gert samn-
ing skipti engu hvort samningurinn
er uppfylltur af viðsemjanda eða
ekki og allar tilraunir til þess að
knýja hann til þess að virða eigin
samning geri málið aðeins erfiðara
viðfangs.
Það hefur vísast ekki fai'ið fram-
hjá neinum landsmanni að fjárlög
voru um jólaleytið afgreidd halla-
laus. Ráðhen'arnir snýttu sér á
skýjunum vegna þessa afreks og
töldu að við þvílíka snilli í fjármála-
stjórn yrði seint jafnast. Að vísu
benti minnihluti fjárveitingarnefnd-
ar ítrekað á að þessu hallaleysi
væri náð með þeim einfalda hætti
að láta sem ýmis óhjákvæmileg út-
gjöld væru ekki til.
Fyrir alllöngu kom svo upp á
borðið að uppsafnaður rekstrar-
Uppsagnir hjúkrunar-
fræðinga ættu ekki að
koma á óvart, segir
Sigríður Jóhannes-
dóttir, því ekki var
staðið við samninga
sem gerðir voru við þá
árið 1997.
vandi sjúkrahúsanna skiptir millj-
örðum sem var litið framhjá við af-
greiðslu fjárlaga til þess að geta
státað af hallalausum fjárlögum.
Nú þessa dagana berast af því
fréttir að enn sé lagt fyrir sjúkra-
húsin að spara þrátt fyrir að borð-
liggjandi sé að meiri spamaður
verði trauðla kreistur fram nema
með því að loka deildum sjúkrahús-
anna.
Ekki skal ég draga í
efa að hagræðing í
rekstri sjúkrahúsa hafi
í byrjun skilað betri af-
komu þótt ekki hafi
dugað til en þegar for-
stöðumönnum þeirra er
gert að klappa þann
steininn sýknt og heil-
agt án þess að nokkuð
annað komi til hljóta
afleiðingarnar að verða
versnandi þjónusta.
Þrátt fyrir þá stað-
reynd að hér séu færri
heilbrigðisstarfsmenn
á hvern íbúa en annars
staðar á Norðurlöndum
hefur heilbrigðisþjón-
usta hér á landi verið með því
besta sem þekkist í heiminum. En
með ofurhagræðingu hefur vinnu-
álag starfsmanna aukist mjög
undanfarin ár og fjarvistir þeirra
jafnframt farið vaxandi. í 70% til-
vika rekja starfsmenn þessa aukn-
ingu á fjarvistum til þreytu og
streitu.
En stjórnvöld luma á fleiri ráð-
um til hagræðingar en ofþrælkun
heilbrigðisstétta. Eitt þeirra er
vaxandi kostnaðarþátttaka sjúk-
linga en það þjóðráð, sem á sínum
tíma var réttlætt með því að verið
væri að „auka kostnað-
arvitund sjúklinga“,
hefur m.a. leitt til
þess, skv. heimildum
landlæknis, að sl. tvö
ár hafa milli 20 og 30%
sjúklinga frestað
heimsókn til lækna
vegna fjárskorts.
Eg get út af fyrir
sig tekið undir þá
skoðun Davíðs Odds-
sonar að við eigum að
fara vel með góðærið
og nýta það til að
grynna á skuldum,
spara og búa í haginn
fyrir mögru árin en ég
hef rökstuddan grun
um að þeir sem flæmast úr landi
vegna ofþrælkunar og slæmra
kjara og þeir sem spara sér lækn-
ishjálp búi ekki við margumtalað
góðæri.
Eg hef líka um það ljótan grun
að þá fyrst takist að „auka kostnað-
arvitund" stjórnvalda í þeim mæli
að þau skilji verðmæti starfs og
menntunar heilbrigðisstétta er
heilsugæsla í landinu verður einka-
vædd. Er sú e.t.v. ætlunin?
Höfundur er alþingismaður fyrir Al-
þýðubandalagið í Reykjanesi.
Sigríður
Jóhannesdóttir
TILK YNNINGAH
* Auglýsing
varðandi íslenskan ríkisborgararétt
Með lögum nr. 62 12. júní 1998 um breytingu
á lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/
1952 er sett ákvæði til bráðabirgða þar sem
þeim hjónabandsbörnum íslenskra mæðra
og erlendra feðra, sem fædd eru á tímabilinu
eftir 1. júlí 1964 en fyrir 1. júlí 1982 og hefðu
öðlast íslenskt ríkisfang ef lagabreyting, sem
tók gildi 1. júlí 1982, hefði verið í gildi við fæð-
inguna, er veitt heimild til að öðlast íslenskan
ríkisborgararétt að fullnægðum tilteknum skil-
yrðum.
Þeir sem óska eftir að notfæra sér þessa heim-
-»*ild skulu tilkynna það til dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins.
Samkvæmt lagaákvæðinu skal móðir barns
sem fætt er á þessu tímabili og er innan 18 ára
aldurs lýsa yfir að hún óski eftir íslenskum rík-
isborgararétti fyrir barn sitt og skal barnið
einnig samþykkja yfirlýsinguna. Móðirin skal
vera íslenskur ríkisborgari og hafa forsjá barns-
ins. Hafi barn sem lagaákvæði þetta á við náð
18 ára aldri getur það tilkynnt ráðuneytinu um
að það óski eftir að nýta sér þessa heimild til
að fá íslenskan ríkisborgararétt. í því tilviki skal
móðirin hafa haft íslenskan ríkisborgararétt
við fæðingu barnsins og a.m.k. til 1. júlí 1982
og barnið skal fullnægja skilyrðum 8. gr. laga
»iim íslenskan ríkisborgararétttil að vera
íslenskur ríkisborgari. Samkvæmt þeirri laga-
grein skal barnið vera fætt hér á landi eða hafa
átt lögheimili hér áður en það náði 22ja ára
aldri eða dvalið hérlendis umtalsverðan tíma.
Yfirlýsingu eða tilkynningu þess sem óskar
eftir að notfæra sér ofangreindan rétt skulu
fylgja eftirtalin gögn:
1. Fæðingarvottorð barnsins.
2. Fæðingarvottorð móðurinnar.
3. Gögn um ríkisborgararétt móðurinnar.
4. Gögn um forsjá móður sé barnið undir 18
jt ára aldri.
5. Vottorð Hagstofu íslands um búsetu eða
önnur gögn um dvöl hér á landi sé barnið
yfir 18 ára aldri og ekki fætt hérlendis.
6. Upplýsingar um í hvaða ríki barnið á nú ríkis-
borgararétt.
Dóms- og
x kirkjumálaráðuneytið,
* 23. júní 1998.
Niðjamót
Bjarneyjar S. Guðmundsdóttur og Líkafróns
Sigurgarðssonar verður haldið í Hótel Reyk-
holti (s. 435 1260) dagana 10.-12. júlí nk.
Upplýsingar í símum 567 1073, 551 7006,
562 6461.
TILBDÐ/ÚTBOÐ
L
Landsvirkjun
Útboð
Lúkning Kröfluvirkjunar
Stálsmíði
Landsvirkjun óskar hér með eftirtilboðum í
stálsmíði o.fl. vegna lúkningar Kröfluvirkjunar
í samræmi við útboðsgögn KRA-20.
Verkið felst m.a. í smíði á undirstöðum, lagn-
ingu safnæða, tengingu gufuháfs, einangrun
og álklæðningu, smíði og uppsetningu á holu-
toppsbúnaði auk uppsetningar og tengingar
á gasdælum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68,103 Reykjavík, frá
og með föstudeginum 26. júní 1998 gegn óaft-
urkræfu gjaldi að upphæð 1.000 krónur m. vsk
fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu Lands-
virkjunarað Háaleitisbraut 68, Reykjavíktil opn-
unar 10. júlí 1998 kl. 14.00. Fulltrúum bjóðenda
er heimilt að vera viðstaddir opnunina.
atviimisiuhúsimæði
Skrifstofuhúsnæði
Mjög gott ca 120 fermetra skrifstofuhúsnæði
til leigu í norðurturni, Kringlunni 6.
Upplýsingar í síma 562 3300.
TIL SÖLU
Skómarkaður
Ármúla 23, vesturendi
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00 til
18.00. Mikið úrval. Góðir skór.
Verð frá krónum 500.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
2 herbergja íbúð óskast
til leigu
Óskum eftir 2. herb. íbúð á Reykjavíkur-
svæðinu. Helst á jarðhæð eða á fyrstu hæð.
Upplýsingar í s. 564 3904 eftir kl. 19 á kvöldin.
FUNOIR/ MANNFAGNABUR
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
heldurauka sjóðfélagafund mánudaginn 29.
júní kl. 18 í Grand Hótel Reykjavík.
Fundarefni: Stofnun séreignadeildar og aðrar
reglugerðarbreytingar.
Stjórnin.
Hluthafafundur
Stjórn Hótels Húsavíkur hf. boðartil hluthafa-
fundarfimmtudaginn 2. júlí 1998 á Hótel Húsa-
vík, Ketilsbraut 24, 640 Húsavík og hefst fund-
urinn kl. 20.30.
Dagskrá fundarins:
1. Kosning nýrrar stjórnar.
2. Önnurmál.
Stjórn Hótels Húsavíkur.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
§) ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir 26.-28. júní
a) Fjölskylduhetgi í Þórs-
mörk. Árleg ferð sem jafnan
nýtur mikilla vinsælda. Mjög
hagstætt fjölskyldutilboð. Gist í
Skagfjörðsskála eða tjöldum.
Fjölbreytt dagskrá, léttar göngur,
ratleikur, kvöldvaka.
b) Fimmvörðuháls — Þórs-
mörk. Aukaferð á gódum
kjörum. Gist í Þórsmörk og
gengið yfir hálsinn á laugardeg-
inum. Brottför föstudaginn kl.
20.00. Pantið strax á skrifst.,
Mörkinni 6.
Skógarganga í kvöld, 25.
júní. Brottför með rútu kl. 20
frá Mörkinni 6.
Laugardagur 27. júní
Kl. 9.00: Skarðsheiði —
Skessuhorn. Skemmtileg fjall-
ganga. Verð 2.500 kr.
Sunnudagur 28. júní
Kl. 9.00: Dímon — Hrafna-
björg — Reyðarbarmur. Fjall-
ganga austan Pingvalla. Verð
1.500 kr.
Kl. 13.00: Þingvellir —
plöntu- og náttúruskoðun.
Brottför frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Samkoma í umsjá Gils
Guðmundssonar.
TILKYNNINGAR
Einkatímar með
Helgu Mogensen
• Þú lærir að lesa
úr skilaboðum
líkamans.
• Þú lærir rétta
öndun.
• Þú lærir slökun.
Upplýsingar og tímapantanir i
síma 552 4365.