Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 48

Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ DIETER ROTH + Dieter Roth, fullu nafni Karl Dietrich Roth, fæddist í Hannover í Þýskalandi 21. apríl 1930. Hann varð bráðkvaddur í Basel í Sviss 5. júní síðastliðinn og hefur bálför hans farið fram. ~r Dieter Roth hefur lokið lífsgöngu sinni. Hann snaraðist inn um dauðans dyr einn og óstuddur nýstaðinn upp úr vinnu- stólnum. Þó verður ekki sagt að frá- fall hans komi í opna skjöldu, því hann lifði hratt og ekki alltaf heilsu- samlegu lífi, svo hjartað var farið að lýjast. En fjarri fer að Dieter Roth sé allur. Aður yfír lauk var hann orð- inn svo fyrirferðarmikill í myndlist- arlífi Vesturlanda að framhjá honum kemst enginn sem heiðarlega vill kanna listasögu tuttugustu aldar í okkar heimshluta. Ahrif hans á unga íslenska myndlistarmenn verða seint ofmetin. « Ég heyrði nafn Dieters fyrst nefnt á fundi í ritstjóm Birtings snemma vetrar 1957 heima hjá Herði Ágústs- syni að Laugavegi 135. Thor hafði með sér á fundinn mynd/bók eða bók/mynd eftir Dieter til að sýna okkur og leita umsagnar Harðar, sérfræðings okkar um allt sem að myndlist laut. Eftir að hafa skoðað gripinn um stund kvað hann upp úr með að þetta væri af ætt hins allra nýjasta í evrópskri myndlist. „Bók- in“ var að öllu leyti handunnin, eins- konar faktúrumappa með lausum A blöðum, geómetrísk form skorin í hvítan karton og glærur í ýmsum lit- um; blöðunum mátti raða að vild og komu þá fram nýjar myndir í nýjum litbrigðum þegar formin hópuðu sig eða sköruðust á nýjan hátt og glær- urnar skiptu litum. Það var ekki fyrr en allnokkru eft- ir þetta að fundum okkar Dieters bar fyrst saman. Hörður lá á Landa- kotsspítala og ég var í heimsókn hjá honum þegar inn í sjúkrastofuna tróðst ungur maður með eitthvert mynd- eða prentlistardót í möppu sem hann var að sýna Herði, og við vorum kynntir. Ég vissi að Dieter hafði starfað um skeið í Danmörku og talaði því við hann dönsku; hélt honum þætti það þægilegra. Við urð- um samferða út. Á leið fram ganginn sneri hann sér að mér og spurði með vanþóknun: „Hvers vegna talarðu dönsku við mig? Getum við ekki not- að íslensku?“ Ég varð skömmustu- legur yfír skorti mínum á þjóðlegum metnaði en gat þó ekki varist brosi, því hann átti sem vonlegt var flest ólært í málinu þá. En eftir þetta bauð ég honum aldrei upp á annað en tæra íslensku og hann tók vel við: var alla ævi frá því er ég kynntist honum að bæta kunnáttu sína þótt hægar gengi en skyldi vegna langra fjarvista í öðrum löndum þar sem ís- lenska var ekki töluð virka daga á torgum. Það var áreiðanlega að ráði Harð- -^%r sem Dieter var boðið að sjá um uppsetningu á 1.-2. hefti Birtings 1957. Ég var um sumarið fararstjóri íslenskra ferðamanna á vegum Or- lofs um Norðurlönd en Thor á Ítalíu. Ég var staddur í Kaupmannahöfn þegar mér barst þetta stóra nýstár- lega hefti í hendur og hófst á loft af hrifningu. Þótt menn sæju slíkt um- brot nú á dögum hrykki enginn við. En þetta varð ýmsum hneykslunar- hella þá og olli alvarlegum deilum í ritstjórninni sem frægt er, svo ekki varð af frekara samstarfi Dieters og Birtings. M Haustið 1957 fluttust Dieter og Sigga á Ljósvallagötu 14. Við bjugg- um á Hjarðarhaga 38, svo skammt var í milli. Kalli sonur þeirra var þá í vöggu og við Dieter að hjálpast að við að skipta á honum þegar Sigga kom heim og við heilsuðumst í fyrsta sinn. Þetta var í sannleika falleg fjöl- skylda og aðlaðandi, enda varð ég ^fljótlega heimagangur þar og við Dieter brölluðum margt saman. Á þess- um haustmánuðum stofnuðum við „forlag ed“ (einar og diter) sem gaf út nokkur af fyrstu bókverkum hans, en þau losuðu hundraðið að lokum og betur þó. Um þann kafla úr list- ferli Dieters skrifaði Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur 3Ö síðna ritgerð í vorhefti Skírn- is 1988 og nægir að vísa á hana. Þegar litið er aftur til þessara ára undrast ég hve lítið mátti í Miðengi. Ef vikið var frá hinu allra vanalegasta ætlaði allt um koll að keyra. I janúar ‘58 gáfum við út sárasaklaust ljóðaplakat eftir mig (í hökli úr snjó), hið fyrsta sinnar teg- undar á Islandi. Efnið var rifið innan úr ófullgerðri djöflasónötu um upp- reisnina í Ungverjalandi og Dieter bjó það mjög smekklega til prentun- ar á löngum renningi. Ðt af þessu til- tæki birtust bullandi svívirðingar um höfundinn í Vísi og Tímanum og út- varp allra landsmanna lét ekki hjá líða að senda honum tóninn! Fyrsta bók Dieters sem forlag ed gaf út hét Kinderbueh. Dieter vann hana í höndunum að öllu leyti undir prentun. Hún var í stóru broti, prentuð á þykkan karton og spíral- heft. Nú tókst svo ólánlega til að prentaranum láðist „að leggja á milli“, svo að allt klesstist og eyði- lagðist nema fáeinar efstu síðurnar í hverjum bunka. Nokkur eintök voru þó heft og engin tvö alveg eins, held- ur síðunum raðað saman á mismun- andi vegu. Við fórum hróðugir með kynningareintak í nokkrar bókabúð- ir og létum fylgja lista sem áhuga- samir kaupendur gátu skráð sig á. Þegar við smöluðum listunum viku seinna kom í Ijós að einn maður hafði reyndar gerst áskrifandi í Bókabúð Braga við Lækjartorg. Hinir listarn- ir voru allir auðir. Þessi eini var Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt. Við vorum svo klökkir yfir að hafa þó fundið einn áhugamann um fagrar listir í höfuðborginni að okkur kom saman um að heiðra hann með því að gefa honum bókina. Það vakti fljótt athygli mína og undrun hve Dieter var eldsnöggur að læra á borgina. Hann vissi áður en við kynntumst upp á hár hvar efni og alls kyns tæki og tól sem hann þurfti að nota í starfi sínu var að finna og gat gengið að því blindandi, oft á stöðum sem ég hafði ekki grun um að væru til. Ég var stundum með honum í útréttingum og þegar á staðinn kom leyndi sér ekki að hann hafði verið þar margoft áður, var orðinn kunningi afgreiðslufólksins og allir fúsir að leysa vanda hans eða vísa honum á staði þar sem úrlausn væri að fá. Dieter var einn þeirra snillinga sem fá í vöggugjöf hagleikshendur sem allt geta og smiðsauga sem sér á svipstundu einfóldustu lausn hvers viðfangsefnis. Þar á ofan var hann gífurlega hugmyndaríkur, átti sífrjóa frumlega sköpunargáfu og skorti hvergi áræði að ganga gegn straumnum. Einhver sagði að mála- miðlun hefði ekki verið til í orðabók hans þegar um list var að ræða. Allt þetta ásamt vandvirkni, góðri menntun og óhemjulegu vinnuþreki gerði hann að einum fjölhæfasta, frumlegasta og afkastamesta lista- manni aldarinnar. Það var ekki fátt sem Dieter lagði á gjörva hönd frumbýlingsárin á Is- landi í þeim tilgangi að sjá sér og sínum farborða: leirkerahönnun, glerhönnun, skartgripahönnun, blómaskreytingar, módelsmíði, bókahönnun, auglýsingagerð, hönn- un á almanökum, bókbandspappír, húsgögnum, samstarf við arkitekta osfrv, osfrv. Þessu voru gerð nokk- ur skil á einni síðu í Morgunblaðinu 9. þm, en fyllri könnun bíður list- fræðinganna. Dieter var inn við beinið ákaflega ljúfur maður eða „góður strákur“ eins og hann kall- aði þá sem honum var vel við. Hjálpfýsi hans voru lítil takmörk sett og hann var höfðingi í lund: gjafmildur úr hófi fram, ef heimilt er að taka svo til orða um mann- kosti. Það varð að taka fram fyrir hendurnar á honum til þess að hann gæfi manni ekki myndir sem nægðu til að þekja alla veggi í heilu félags- heimili. Hann var verkglaður, gam- ansamur og góður félagi. Þrátt fyrir þetta var ýmsum uppsigað við hann, eins og eitthvað í fari hans færi í taugarnar á þeim, enda þurfti ekki alltaf mikið til. Hann skar sig úr í klæðaburði. 68-kynslóðin getur al- veg hætt að guma af að hafa innleitt frjálslegan fatnað á Islandi. Þar var Dieter Roth langt á undan eins og í svo mörgu öðru. Hann var alltaf hreinn og snyrtilegur. En her- mannanærskyrta sem kostaði ekki neitt var honum fullboðleg peysa og fór honum líka ágætlega. Þegar Lido var vígt var Dieter meðal boðsgesta því hann hafði unnið eitt- hvað að innréttingum eða þess hátt- ar á lokastigi. Hann klæddi sig upp á og var að ofan í forlátapeysu sem tengdamóðir hans hafði prjónað og gefið honum. Við urðum samferða og þriðji maður sem ég man ekki hver var. Þegar við komum að dyr- unum stóð þar fyrir herðibreiður vörður sem neitaði Dieter um inn- göngu vegna óviðeigandi klæðnað- ar. Stoðaði ekkert þótt við hinir reyndum að koma vitinu fyrir manninn. Fóru svo leikar að Dieter varð að snúa frá og ég fylgdi hon- um. Dieter var algjör bindindismaður á áfengi fyrstu ár sín á íslandi og allt að því dýrlingur í öllu sínu lífemi, svo maður blygðaðist sín fyrir að játa að hafa stundum fengið sér í staupinu. Svo var það einhvern tíma upp úr ‘60 að hann brá sér til útlanda snögga ferð og þegar heim kom fór hann að fá sér í aðra stórutána og stundum báðar. Kom þá í ljós það sem forfeðumir veittu reyndar at- hygli fyrir mai’gt löngu: að öl er ann- ar maður. Ég vissi ekki fym en mörgum árum seinna að hann hafði drakkið ótæpilega í fögra, fógra Kaupinhöfn og kannski víðar og hér voru að endumýjast samvistir við gamla Bakkus sem stóðu með stutt- um hléum upp frá því til æviloka. Framan af var sá slægi þrjótur eins og góður þjónn og veitti honum vafa- laust margar gleðistundir á vina- fundum, en færði sig smátt og smátt upp á skaftið sem hans er vandi og gerðist að lokum harður húsbóndi. Og þá fór að kárna gamanið. Það var líkt með Strindberg og Di- eter að annar treysti sér ekki til að vera við framsýningar á leikritum sínum, hinn ekki til að vera viðstadd- ur opnanir á sýningum mynda sinna. Þó veittist mér einu sinni sú ánægja að hitta Dieter við opnun sýningar. Það var hinn 29. júní 1995 á Seyðis- firði. Mér hafði verið boðið til hátíða- halda vegna 100 ára afmælis bæjar- ins. Þar vora margar sýningar á boðstólum og ein þeirra eftir Dieter. Strax og hátíðin hafði verið sett steðjaði ég á sýningu hans. Hún var í gömlu húsi svo hrumu að það mátti heita að hrani komið. Þegar ég kom að dyrunum var dimmt inn að líta nema tveir sjónvarpsskjáir lýstu á móti manni. Þannig stóð á þeim að Dieter hafði látið mynda öll hús í bænum bæði að vetrarlagi og sumri og var verið að sýna árangurinn, vetrarmyndir á öðrum skjánum, sumarmynd af sama húsi á hinum. Þegar ég kom inn úr dyranum sá ég hvar höfðinginn sat í hálfrökkri tví- breiður miðað við umfang yngri ára og að því skapi þykkur undir belti, hvítur á skör og skegg og við fóðm- uðumst innilega glaðir. Hægra meg- in við hann var stærðar mubla, eins konar altari Bakkusar eða bar sem hann hafði smíðað í tilefni dagsins fullur af dýrastu veigum, við hliðina á altarinu hlaðar af bjórkössum og gátu sýningargestir valið sér drykk að vild. Um kvöldið borðuðum við saman á hótelinu. Þar kom líka að borðinu Bjössi sonur hans sem hefur verið samverkamaður fóður síns og hjálparhella frá æskuáram. Eftir kvöldverð buðu þeir mér að skoða Bryggjuhúsið þar sem Dieter bjó sér síðast hæli eftir að umferð var orðin óþolandi mikil í Loðmundarfirði! í öðrum enda hússins var hraðbátur sem þeir feðgar notuðu til að skjót- ast í Loðmundarfjörð að vitja óðals síns, í hinum endanum og á efrihæð íveruherbergi og vinnustofur, öllu haganlega fyrir komið eins og vænta mátti. ★ Þegar Dieter kom til Islands var hann 27 ára vel menntaður og full- mótaður listamaður. Hann hafði vax- ið upp í foreldrahúsum í fæðingar- borg sinni Hannover til 13 ára aldurs og átti ekki endurminningu um ham- ingjusama bernsku. Árið 1943 var sprengjuregn yfir þýskar borgir orð- ið fastur þáttur hversdagslífsins og allir sem gátu reyndu að forða börn- um sínum úr eldhafinu. Vegna fað- ernis hafði Dieter svissneskan ríkis- borgararétt. Honum bauðst vist í fóðurlandi sínu og varð frelsinu feg- inn. Af frásögn hans mátti vart milli greina hvoru hann fagnaði meir: að sleppa úr djöfulæði stríðsins eða undan harðneskjulegum aga foreldr- anna. Hann hafnaði á hóteli í Zúrich innan um litríkt lið sem kom og fór; hann átti aldrei á visst rúm að róa en svaf í því sem laust var þá og þá, rokkandi milli hæða og herbergja í fjögur ár. Hann átti góðu atlæti að fagna og þetta var líf sem honum lét. Ég gat ekki betur skilið en hóteld- völin sú arna hefði verið blómaskeið bernsku hans og æsku. Á þeim áram gekk hann í menntaskóla, nam fom- málin auk frönsku og ensku og var þá þegar farinn að hneigjast að myndlist og ljóðlist. Hann yfirgaf menntaskólann 17 ára og hóf nám í grafiskri hönnun á auglýsingastofu í Bern, átti um drjúgan veg að sækja en notaði tímann í lestinni milli Bern og Solothurn þar sem hann bjó þá til að teikna og yrkja. Náminu lauk hann á fjóram áram (*47-’51) og vann síðan fyrir sér önnur fjögur þar í borg sem lausamaður í listum. Kona sem þekkti hann á þeim áram (Sibyl Spalinger) hefur sagt að manna á meðal í Bern hafi verið rætt um Di- eter af aðdáun: „að skaparinn skyldi hafa léð þessu efnilega skáldi og listamanni yfirbragð sjálfs Apollos". Handrit að einhverjum æskuljóða hans munu vera varðveitt á safni í Bern. Eftir 12 ára dvöl í Sviss komst hann með aðstoð vinar síns til Kaup- mannahafnar og vann þar fyrir sér sem hönnuður á annað ár hjá virt- ustu auglýsingastofu Norðurlanda. I Höfn kynntist hann listakonunni Sigríði Björnsdóttur 1956, og þar með voru örlög þeirra ráðin. Hjóna- bönd tveggja listamanna hafa löng- um reynst brothætt og bætir ekki úr skák séu hjónin þar á ofan sitt af hvora þjóðemi. Kunnugir þóttust fljótlega sjá að Dieter Roth fengi aldrei notið sín sem listamaður hér á landi, enda varð hann um síðir að velja á milli þess að koðna hér niður eða sækja á önnur mið og gerði það. Erlendis biðu verkefni í öllum áttum og hann tók að hasla sér völl í Vest- urevrópu og Bandaríkjunum. Þá reyndi á hvort hjónabandið bæri eða brysti, og það brast. Hjónin skildu 1964 og Dieter hvarf á brott. ★ Nú má segja að frægðarferill Diet- ers hefjist. Ég hef séð skrá yfir einkasýningar hans í 25 ár frá 1958- 1983. Fyrsta áratuginn er hann lengstaf búsettur á Islandi og sýn- ingar 6; eftir það býr hann erlendis og annan áratuginn era sýningar hans 82, seinustu fimm ár þessa tímabils eru þær 44. Fyrsta áratuginn sýnir hann í þremur Evrópulöndum: Islandi (1), Danmörku (2) og Þýskalandi (2); einu landi utan Evrópu: Bandarikj- unum (1). Annan áratuginn sýnir hann í níu Evrópulöndum: Þýska- landi (45), Sviss (12), Hollandi (6), Austurríki (3), Englandi (3), Frakk- landi (1), Ítalíu (2), Danmörk (1), Spáni (5); tveimur löndum utan Evr- ópu: Bandaríkjunum (3), Bresku Columbíu (1). Seinustu fimm árin fram að ‘83 sýnir hann í níu Evrópu- löndum: Englandi (2), Sviss (15), Spáni (2), Þýskalandi (14), Hollandi (2), Frakklandi (1), Ítalíu (1), Aust- urríki (4), Islandi (1); einu landi utan Evrópu: Bandaríkjunum (1). Samtals eru þetta 132 sýningar í 12 löndum. Borgirnar hef ég ekki talið en meðal þeirra eru stórborgir eins og Kaupmannahöfn, Vín, Lond- on, París, New York, Barcelona, Berlín, Hamborg, Los Angeles, Am- sterdam, svo nefndur sé einn tugur. Hve margar sýningar vora haldnar á verkum hans seinustu 15 árin veit ég ekki, en þær hafa verið ófáar; sú seinasta var opnuð á laugardag fyrir viku í Nýlistasafninu. Meðal safna sem keypt höfðu verk hans fyrir 1983 era Tate Gallery í London, Stedelijk Museum í Amsterdam, Museum of Modem Art í New York, Centre Pompidou í París, Moderna Museet í Stokkhólmi, Louisiana í Danmörku, Museum des 20. Ja- hrhunderts í Vínarborg. Ég hefði viljað gera þessu megin- skeiði á listferli Dieters miklu betri skil. En mig skortir til þess bæði hæfileika og heimildir, og þótt ég hefði hvorttveggja væri vonlaust að komast sómasamlega frá því í stuttri blaðagrein. Enda er engin hætta á að listfræðingar framtíðarinnar láti sér úr greipum ganga slík efni í doktorsritgerðir sem ævistarf Diet- ers hefur að geyma. ★ Þótt Dieter gerðist aldrei íslensk- ur ríkisborgari hefur Island ekki eignast marga raunbetri og trygg- lyndari drengi. Þegar honum uxu efni bjó hann sér hreiður hér og hvar - í Loðmundarfirði, á Seyðisfirði, í Mosfellssveit, Reykjavík, á Hellnum - vitjaði þeirra eins og farfugl varp- stöðvanna og verður lagður til hinstu hvflu í íslenskri mold. Börn hans Karl, Bjöm og Vera og stjúpdóttirin Adda eiga öll heima á íslandi og barnabörnin níu. Ég tel því enga goðgá að kalla hann íslenskan lista- mann. Það væri þá einna helst hæpið vegna þess að þeir sem áttu að gæta virðingar þjóðarinnar sáu aldrei sóma sinn í að efna meðan hann lifði til svo myndarlegrar sýningar á verkum hans sem verðugt hefði ver- ið. Samgleðjast má heiminum yfir að hafa átt jafnhæfileikaríkan lista- mann og Dieter Roth. Þeir sem hryggðin slær við að sjá á bak nán- um ættingja og góðum vini geta einnig glaðst yfir að hann komst hjá þeirri kröm og niðurlægingu sem langvarandi helstríði einatt fylgir. Einar Bragi. Hann gaf mér uppblásna kanínu þegar ég var sjö ára. Hann var að koma frá útlöndum. Hann var alltaf að koma frá útlöndum, færandi börn- unum sínum framandi varning. Og einhvem veginn atvikaðist það þannig að ég var stundum, - nei, alloft, viðstaddur þessar langþráðu gjafastundir. Langþráðar vegna þess að Dieter og Sigga voru skilin og Dieter dvaldi langdvölum erlend- is, að því er mér skildist við að leggja grunn að heimsfrægð. Kannski var það eina gilda afsökunin sem hann hafði fyrir að vera svo oft fjarri börnunum sínum. Hans var sárlega saknað hvern einasta dag sem hann var ekki á íslandi. Hann vissi það, og hann bar öragglega sama söknuð í brjósti. Því kom hann alltaf færandi hendi. Gjafmildi er mælikvarði á ást í huga barns sem nýtur ekki stöðugrar samvistar við foreldri. Og Dieter var sannarlega gjafmildur, og hann var ekki maður sem skilur út- undan. Ef einhver hafði á síðustu stundu bæst við móttökunefndina var hann ekki sendur tómhentur heim. Ég velti því stundum fyrir mér hvort hann hefði hugsað fyrir þessu og haft með sér aukadót frá útlönd- um. Ástæðan fyrir því að ég fylgdist svona vel með ferðalögum Dieters var einfóld: Kalli, elsti sonui- hans, og ég vorum ekki aðeins frændur heldur óaðskiljanlegir vinir. Hann gaf út plötu með okkur frændum þegar við voram á sautj- ánda ári. Þar með gerðist Dieter bakhjarl og sérlegur verndari hljóm- sveitarinnar Melchior. Við bárum mikla virðingu fyrir velgjörðarmanni okkar og öllu sem hann stóð fyrir. Mig minnir að hann hafi orðið við öll- um okkar óskum, jafnvel þeim sem aldrei vora upp bornar. Hann kallaði mig vin þegar ég var tuttugu og tveggja ára. Þá dvaldi ég á heimili hans í Stuttgart í nokkra daga meðan verið var að ganga frá Melchior-plötunni Balapoppi, sem Dieter fjármagnaði að stórum hluta. Hún var kennd við heimili hans, Bala í Mosfellssveit. Þar varð hún til. Honum þótti vænt um þá plötu. Og mér þótti vænt um hann þegar við kvöddumst. Mér fannst ég loks hafa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.