Morgunblaðið - 25.06.1998, Síða 51

Morgunblaðið - 25.06.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 5 JÓNAS ÞÓR JÓNASSON + Jónas Þór Jón- asson fæddist í Reykjavík 15. apríl 1948. Hann lést á heimili sínu 7. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 18. júní. Við kveðjum hér góð- an vin og félaga Jónas Þór sem hetjulega barð- ist við illvígan sjúkdóm sem að lokum hafði yfir- höndina. Jónasi Þór kynntumst við á sjóstangaveiðimóti fýrir um tíu árum. A þeim tíma hafði hann mikinn hug á að endurvekja Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur sem stofnað var 1961 en það hætti síðan starfsemi. Hann kallaði nokkurn áhugamannahóp á sinn fund og sú ákvörðun var tekin að hrinda því í framkvæmd og varð hann formaður félagsins sem aftur tók til starfa 1991. Gegndi hann þeirri stöðu með sóma í nokkur ár eða þar til hann fór að hafa meiri afskipti af stjómmálum sem hann hafði einnig áhuga á þannig að minni tími gafst í „stöng- ina“. En ekki losnuðum við við kall- inn því af brennandi áhuga varð hann að fylgjast með og varð því með- stjómandi félagsins og mætti á alla fundi þegar tími gafst og Jónas Þór hafði mikið skap og ákveðnar skoð- anir og lét þær ávallt í ijós. Undirrit- aður kynntist þeirri hhð hans mjög vel því oft voram við ósammála um hlutina en ræddum þá alltaf þar til við komumst að niðurstöðu. Það er gott að eiga samstarf með þannig mönnum. En í öllu félagsvafstrinu sem hann eyddi miklum tíma í tókst honum ásamt sinni góðu konu, „frú Katrínu", að opna glæsilega verslun, Gallerí Kjöt, sem hann lagði fag- mannlegan metnað í og er sárt að hann skyldi hverfa frá því svo skjótt. Endalaust væri hægt að skrifa um vin okkar Jónas Þór. En ekki stóð hann einn í barátt- unni því Kötu sína hafði hann ávallt sér við hlið og hún með allri sinni ást og umhyggju gerði allt sem unnt var til að honum liði sem best fram á síð- ustu stundu sem var í faðmi fjöl- skyldunpar á heimili þeirra. Elsku Kata, Hreinn Rúnar, Jónas Þór, Sandra Björk og aðrir ástvinir, við biðjum Guð að blessa ykkur og styrkja á erfiðri stundu. Blessuð sé minning Jónasar Þórs. Rósa og Birkir Þór. Kæri vinur. Það var mnninn upp bjartur og fagur sjómannadagur þegar þú kvaddir þennan heim. Þeir sem vel þekktu til þín vissu hve ríkt sjómannseðlið var í þér og hvað þú naust þín úti á sjó. Það var einhvem veginn svo auðvelt að sjá þig fyrir sér að veiða, þegar Kata útskýrði fyrir Jónasi yngri að nú þegar þú værir dáinn og kominn til Guðs værir þú frískur aftur og liði vel og þú værir að veiða fisk. Eg þykist vita að nú loksins sértu frjáls frá vanlíðan og verkjum og farinn, af eldmóði þínum og krafti, að sinna hugðarefnum þín- um. Þú varst hugsjóna- og fram- kvæmdamaður fram í fingurgóma. Það er sárt fyrir okkur sem eftir sitj- um að horfa á eftir þér, því mér eins og öðrum fannst þú eiga svo margt eftir, bæði að gera og upplifa. Sjá ár- angur erfiðis þíns blómstra. Búðin þín og það sem hún hefur upp á að bjóða var stolt þitt og það var gaman þegar þú gast komið henni á legg þrátt fyrir þröngsýni margra í upp- hafi. Þig langaði að fylgjast með börnunum þínum og sjá þau vaxa og dafna. Þú varst stoltur og góður fað- ir. Þau voru augasteinamir þínir og allt vildirðu geta gert fyrir þau. Já, Jónas minn, þú varst líka hreykinn af henni Kötu þinni. „Þú veist það Inga mín hvað hún Kata er sérstök." „Já, Jónas minn, ég veit það.“ Ég er þakklát fyrir það að þú naust ástai- hennai- og umhyggju í erfiðum veik- indum þínum. Þið voruð félagar og vinir og missir hennar er mikill og sár. Þú barðist við krabbameinið, reist upp aftur og aftur eftir þung högg. Þú varst hetja í augum okkar sem ekkert gát- um gert til hjálpar þér og urðum að horfa á þig hverfa frá okkur. Fyrst svona þurfti að fara, Jónas minn, þá er ég fegin því að þú fékkst að kveðja þennan heim með reisn og fara á fal- legum degi. Ég vil þakka þér góðan vin- skap og traust í gegnum árin. Eg bið að þeir sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls þíns fái styrk til að ganga í gegnum missinn. Elsku Kata mín, Hreinn Rúnar, Jónas Þór, Sandra Björk og aðrir að- standendur; megi allt hið góða styðja ykkur á erfiðum stundum. Minningin um mætan mann lifir í hjörtum okkar allra. Inga. Það var haldið stórafmæli um dag- inn. Og í sjálfu sér er það engin frétt, því þau era svo til daglegt brauð þessi afmæli út um allt. En þetta afmæli var að mínum dómi eitthvert það sér- stæðasta, sem um getur. Ekki fyrir þær sakir, að umgjörð og íburður hafi þar slegið út fyrri heimsmet á ís- lenskan mælikvarða. Heldur hitt, að þama hélt deyjandi maður stórveislu á Argentínu, með tilheyrandi kræs- ingum úr íslenskum landbúnaði, og fagnaði þannig fimmtugsafmæli sínu með ættingjum, ástvinum og félögum um leið og hann var í raun að kveðja sama fólkið, starf sitt og allt lífið. Og þakka samfylgdina. Þetta upplifði ég svo sterklega þegar ég kvaddi afmæl- isbamið, tók utan um visnandi axlir hans og lagði kinn að beinabera og gráfólu andhtinu. Hann sagði ekkert. En ég fékk skilaboðin í svipmótinu. Þannig var einmitt hann Jónas Þór. Kom ávallt til dyranna eins og hann var klæddur og bauð uppá sjálfan sig í heild. Allt eða ekkert. Leiðir okkar Jónasar lágu saman í Alþýðuflokknum. Við sátum saman í stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavík- ur og á þeim vettvangi kynntist ég persónu hans og lífsviðhorfi. Sjónar- mið okkar féllu oftast vel saman og ég átti auðvelt með að láta mér þykja vænt um velvild hans, réttlætiskennd og hjartahlýju. En Jónas Þór var einnig mikill baráttumaður og brautryðjandi. Hann varð þjóðkunnur fyrir skarpa gagnrýni á ríkjandi stefnu í landbún- aðarmálum hér á landi og þá sér í lagi á úrelta pólitík að baki ríkis- verndaðri og miðstýrðri kjötvöra- framleiðslu. Hann áttaði sig snemma á því besta sem íslensk kjötvöra- framleiðsla getur boðið uppá og vildi koma vinnslu og markaðssetningu á hærri plön. Og gerði það. Og spum- ingin er einmitt, hvort nokkrir já- menn hinnai- ríkjandi landbúnaðar- stefnu hafi gert meira fyrir neytend- ur og framleiðendur íslenskrar kjöt- vöru en einmitt gagnrýnandinn og jafnaðarmaðui-inn Jónas Þór. Ég held ekki. Og hin spurningin vaknar líka, hvort forsvarsmönnum landbún- aðarins væri ekki hollast, að hlusta áfram og enn betur á gagnrýni Jónasar Þórs, eins og hún á eftir að enduróma að honum gengnum. Veikindi Jónasar Þórs voru afar erfið. Og varla er unnt að reyna manninn umfram það sem hann og fjölskyldan hafa mátt þola í þeim efn- um í langan tíma. Missir eiginkonu, bama og annarra ástvina er mikill og eiga þau alla mína samúð. Með Jónasi Þór er genginn góður dreng- ur. Honum vil ég þakka alla viðkynn- ingu, félagsskapinn og vináttuna og ég vil fá að geyma minninguna um hann í þeim anda gleði og sorgar, sem hann skapaði sjálfur í fimmtugs- afmælinu á Argentínu, þar sem gleð- in spannaði líf hans og tilveru, en sorgin missinn og söknuðinn. Gunnar Ingi Gunnarsson. Þegar Jónas Þór Jónasson gekk til liðs við Alþýðuflokkinn gerði hann það af atfylgi og heilum hug. Hann gerðist einn af helstu burðarásunum í félagsstarfi flokksins í Reykjavík og átti m.a. sæti í stjórn Alþýðuflokksfé- lags Reykjavíkur. Þar lagði hann sig allan fram af þeim áhuga og kappi, sem honum var lagið hvarvetna þar sem hann lagði hönd á plóginn. Ahugamál Jónasar vora ekki síst á sviði landbúnaðar- og sjávarútvegs- mála. Þar hafði hann mjög afdráttar- lausar skoðanir og var t.d. af heitu hjarta sammála Alþýðuflokknum í landbúnaðarmálunum. Jónas gerði sér fulla grein fyrir því, að miðstýr- ingaráráttan og kerfiskarlahugsun- arhátturinn, sem ráðið hafa ferðinni í landbúnaðarstefnu stóra flokkanna, vora, eru og verða bændum sjálfum fjötur um fót. Sú stefna vinnur gegn framforam í landbúnaði þ.á m. bættri afkomu þeirra, sem þann atvinnuveg stunda, og hefur raunar hneppt bændur í fjötra fátæktargildra. Jónas var sannfærður um, að með auknu frjálsræði í viðskiptum, bættri vöravöndun og meiri atvinnu- mennsku í markaðs- og sölumálum mætti ná miklu betur til neytenda en gamla kerfið áorkaði, og í slíku starfi fælist viðreisn íslensks landbúnaðar og afurða hans. Sjálfur sannaði Jónas þessa skoðun sína með eigin athöfn- um. Fáir kjötverkendur á Islandi hafa náð jafn miklum árangri og hann í að kynna góða vöra og koma henni á framfæri og enginn, hvorki einstaklingur né stofnun, stóð honum þar framar. Það var Alþýðuflokknum ómetanlegur styrkur að eiga slíkan skoðanabróður og málsvara sem Jónas var. Honum varð nefnilega ekki núið því um nasir að í afstöðu hans fælist fjandskapur við íslenskan landbúnað og bændur. Til þess vora góð samskipti hans við bændur, áhugi hans á markaðssetningu á af- urðum þeirra og velvilji hans í garð íslenskrar landbúnaðarframleiðslu of þekkt. Afstaða Jónasar í landbúnað- armálunum var til komin vegna vel- vildar hans til atvinnugreinarinnar og þeirra, sem hana stunda. Liðveisla slíks manns var Alþýðuflokknum mikilvæg. En liðveisla Jónasar var okkur mikilvæg á fleiri sviðum. Hann var einstaklega áhugasamur og kapp- samur og mikill og góður félagi. Þeir eiginleikar hans nýttust okkur vel í félagsstarfinu í Reykjavík. Þar er skarð fyrir skildi eftir að Jónas er horfinn. Fyrir hönd Alþýðuflokksins, Jafn- aðarmannaflokks Islands, færi ég Jónasi innilegar þakkir fyrir sam- fylgdina. Konu hans, börnum og öðr- um ættingjum sendi ég samúðar- kveðjur. Jónas féll frá langt um aldur fram, hann háði harða baráttu við erfiðan sjúkdóm sem greip hann öll- um að óvöram og er nú allur. Alþýðu- flokkurinn minnist Jónasar með virð- ingu og þökk. Sighvatur Björgvinsson, form. Alþýðuflokksins, Jafnaðarmaimaflokks Islands. Jónas Þór vinur minn er látinn. Með honum er genginn drengur góð- ur. Við kynntumst fyrir 17 áram þegar hann var kjötiðnaðarmaður hjá Tommaborgurum og strax við fyrstu kynni leið mér vel í návist hans. Það var eitthvað í fari hans sem ég hreifst af en ég áttaði mig ekki á því hvað var fyrr en mörgum áram síðar. Það var þessi fram- kvæmdakraftur og vinnusemi ásamt óbilandi trú á þeim hlutum sem hann tók sér fyrir hendur. Þá hluti vann hann fagmannlega og vel. Fyrir það stendur nafn Jónasar Þórs í mínum huga. Jónas átti auðvelt með að hrífa fólk með sér og vekja áhuga þess á því sem hann var að gera og berjast fyrir hverju sinni. Þau vora ófá skiptin sem ég sat á litlum stólgarmi á Grensásveginum og Jónas las yfir mér pistilinn um ruglað landbúnað- arkerfi og vitleysu í kjötframleiðslu. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að kaupa úrvals íslenskt kjöt hjá Jónasi á gamla staðnum neðst á Grensásveginum. Það klikkaði aldrei kjötið sem ég fékk hjá honum enda úrvals gæði í hverju grammi. Þeir sem nutu höfðu ávallt orð á þvi hve kjötið væri óvenju gott. Jónas Þór var framkvöðull í sínu fagi. Hann innleiddi nýja hugsun í kjöt- og matvælaiðnaðinn og hann þreyttist aldrei á því að segja mönn- um hve mikilvægt það væri að missa aldrei sjónar á aðalmarkmiðinu. í hans huga voru það gæðin sem skiptu mestu máli. Jónas kom oft í morgunkaffi í Bæj- argilið eldsnemma á sunnudags- morgnum. Þá var hellt upp á sterkt, svart kaffi og málin rædd. Oftast snerist umræðan um sjóstangveiði, sem var stórt áhugamál hjá honum á seinni áram. Leiðir okkar Iágu saman á ýmsum sviðum; í einkalífi, fjölmiðlum og við- skiptum, og alltaf voru það forréttr indi að eiga samskipti við Jónas Þór. Hann átti ótakmarkað magn af kær- leika í hjarta sínu og hann var hann tilbúinn að gefa öllum þeim sem við honum vildu taka. Kæri vinur, takk fyrir allar góðu stundirnar og árin. Megi Guð vera með þér, Katrínu og bömunum. Jón Axel Ólafsson. Hann Jónas er allur, hann er sá fyrsti af okkur bekkjarfélögunum fæddum 1948 frá unglingaskólanum á Höfn að hverfa úr þessu jarðlífi. Arið 1961 kom snöggkhpptur og snaggaralegur strákur til Homa- fjarðar og settist þar á skólabekk. Fljótlega kom í Ijós að þarna fór eng- inn meðalmaður. Jónas hafði sérstakt skopskyn og var ávallt með hnyttin tilsvör á takteinum og bar með sér sérstakan þokka. Að sið Hornfirð- inga var Jónas skírður upp, og var ætíð nefndur Jónas Beck og tengd- um við hann þannig stjúpfóður hans honum Páli. Jónas var fjöragur félagi sem ávallt var gaman að vera nálægt. Hann var GYLFIMÁR GUÐBERGSSON tGylfi Már Guðbergsson, prófessor við Háskóla fs- lands, fæddist á Siglufirði 18. október 1936. Hann lést í Reykjavík 1. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 10. júní. Okkur langar í örfáum orðum að minnast kennara okkar, Gylfa Más Guðbergssonar sem féll frá eftir skamma baráttu við illvígan sjúkdóm. Gylfi Már var landfræðingur og hans sérsvið vora landnytjar og kortagerð og þá einkum gróður- kortagerð sem hann starfaði alla tíð ötullega að og var framkvöðull á því sviði hér á landi. Þegar litið er yfir farinn veg er það snyrtimennska og vandvirkni sem einkenndu Gylfa Má. Eftir- minnilegar era glærur hans og glós- ur prýddar einstaklega fallegri og snyrtilegri rithönd og að öðram kennurum ólöstuðum stóð hann fremstur í flokki hvað skipulag kennslu varðaði. í landfræðiskor er gjarnan gert góðlátlegt grín að goretexgöllum og gönguskóm sem hafa löngum þótt einkenna klæðaburð landfræðinga og landfræðinema. Gylfi var sómi landfræðiskorarinnar útávið, alltaf í nýpressuðum buxum og bónuðum skóm hvort sem við vorum inni í fyr- irlestrum eða úti í feltinu. Síðastliðið haust fóram við í viku- langa námsferð til Akraness. Kom þá berlega í ljós hversu þekking hans á landinu var mikil. Við áttum að kortleggja gróður umhverfis Aki-afjall og þar þekkti hann hverja þúfu eins og lófann á sér. Þannig að engin leið var að kaupa sér tíma í góða veðrinu og svindla örlítið með því að áætla gróðurlendi úr mikilli fjarlægð. Nú líður að útskrift okkar úr jarð- og landfræðiskor og við vor- um við því búin að kveðja Gylfa Má en þó datt okkur aldrei í hug að kveðjustundin yrði á þennan hátt. Gylfa verður sárt saknað og stórt skarð er höggvið í raðir landfræð- inga. f okkar huga er Gylfi Már fróður og fróðleiksfús og virtist alltaf þurfa að hafa eitthvað mikið fyrir stafni. A þessum áram virtist hann ætíð vera að leita að einhverju til að gera, athafnaþráin var óþijótandi. Vissulega kom það fyrir að vinahóp-" urinn gerði ýmislegt sem fór fyrir brjóstið á eldra fólkinu. Eitt sinn tók- um við dráttarvél og heyvagn traustataki suðui’ í Suðursveit og veltum hvora tveggju. Við sem þama stóðum að verki bundumst fastmæl- um um að þegja yfir athæfinu, en upp komst þegar aðstandendur okkar sáu allar skrámurnar og marið. Eftir að við höfðum útskrifast frá Höfn fóram við hvert sína leið til þess að finna okkar stað í tilveranni. Jónas fór á sjóinn og stundaði ýmis störf um ára- bil. A þeim áram fann hann sig ekki og átti erfitt með að átta sig á því hver hann var eða hvar hæfileikar hans myndu njóta sín best. En öll él birtir upp um síðir. Jónas fann sinn starfsgrandvöll þar sem allir hans hæfileikar og ímyndunarafl fengu að njóta sín. A mínum frambýlingsáram kom Jónas iðulega í heimsókn til okkar hjóna þegar hann gerði sér bæjar- ferð. Éitt sinn horfði hann á elda- mennskukunnáttu mína með mikilli athygli og tjáði mér að hann þyrfti að kenna mér að steikja lauk án þess að ég brenndi mig eða köttinn. Næsta kvöld var Jónas mættur með lauk og smjör og kenndi mér frumreglurnar í mafreiðslu. Árin liðu og við urðum bæði stór,*- alltaf var jafn gaman að hitta Jónas hvar sem það var. Hann varð auð- vitað stórtækur í sinni grein og kenndi okkur íslendingum að meta okkar eigið kjöt og hvernig best væri að matreiða það. Hann átti mörg áhugamál og stundaði þau af kostgæfni og með árangri. Fyrir nokkrum árum hittumst við bekkj- arfélagarnir frá Höfn uppi á Vatna- jökli, Jónas brást ekki frekar en fyrri daginn, hann var primus motor í því að halda uppi skemmt- „ uninni. Þarna uppi á jökli 30 árum síðar var einsog ekkert hefði í rauninni breyst, allir voru eins og fyrr og við nutum þess innilega að vera saman. Nú vorum við orðin fullorðin og sumir orðnir afar eða ömmur en við vorum samt í sömu hlutverkunum innan hópsins og við höfðum verið sem óharðnaðir ung- lingar. A síðustu árum hefur jólahátíðin byrjað hjá mér með því að fara og versla við Jónas, þaðan hef ég ætíð komið endurnærð með eina góða sögu í kaupbæti og koss á kinn. Það er gott að vita til þess að sonur hans og vinir munu standa við af- greiðsluborðið á næstu jólum og bjóða uppá sælkeramat að hætti ■ Jónasar. Genginn er góður drengur sem við munum minnast fyrir það sem hann kenndi okkur og lifði fyr- ir. Ég vil að lokum votta konu hans, börnum, foreldrum og vinum samúð mína. Sölvína Konráðs. Landfræðingurinn - með stóru L-i. Við vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga. Að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. (PállJ.Árdal.) 3. árs nemar í landfræði. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.