Morgunblaðið - 25.06.1998, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 25.06.1998, Blaðsíða 58
-t '58 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Ljóska Smáfólk SURE, THERE I U)AS HAVIN6A600DTIMEAT THE DANCE,AND THEN VOU MADT0 6ET SICK.. 50ME0NE SAIP YOU PROBABLY DRANK TOO MUCH PUNCH... I ATÉ TOO MUCH.. I DRANKTOOMUCH AND I DANCED TOO MUCH... _ Auðvitað, þarna skemmti Einhver sagði að þú hefðir Ég át of mikið ... ég Gerum það aftur annað ég mér dável á ballinu, og lfldega drukkið of mikið drakk of mikið ... og kvöld ... þá þurftir þú að verða púns... ég dansaði of mikið... ., veikur ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Opið bréf til hreppsnefndar Bessastaðahrepps og sveitarstjóra, Gunnars Vals Gíslasonar Frá Guðnýju Th. Bjarnar og Arna Bjömssyni: AGÆTU hreppsnefndarmenn og hreppsnefndaroddviti, Guðmundur Gunnarsson! Okkur hafa borist þau tíðindi, að skólastjóra tónlistarskóla Bessastaðahrepps, Sveinbjörgu Vil- hjálmsdóttur, hafi verið vikið úr starfi, fyrirvaralítið eða fyrirvara- laust. Látið er í veðri vaka að brott- vísunin tengist skipulagsbreyting- um á starfsemi tónhstarskóla um land allt og mun hin nýkjörna hreppsnefnd undtr forystu oddvit- ans Guðmundar Gunnarssonar ætla að ganga hér á undan öðrum sveit- arfélögum með góðu eftirdæmi við framkvæmd nýrra laga um grunn- skóla. Svo hyggjast hreppsnefndar- menn meirihlutans í sveitarstjóm væntanlega vilja sýna í verki hreppskunnan áhuga sinn á tónlist og annarri menningarstarfsemi í hreppnum. Við hjónin hörmum þessi vinnu- brögð, sem án efa eiga eftir að valda úlfúð í annars sæmilega friðsama sveitarfélaginu okkar. Okkur eru málefni tónlistarskólans hugstæð af ýmsum ástæðum. Við vorum svo lánsöm að geta skotið skjólshúsi yf- ir hluta af skólanum í upphafinu á starfsemi hans og við höfum síðan séð hann vaxa og dafna undir far- sælli stjóm Sveinbjargar og verða að stofnun, sem ætti að vera stolt hvers sveitarfélags, sem hefði hana innan sinna vébanda. Þá höfum við íylgst með tveim barnabörnum okk- ar nema við skólann og ná góðum árangri. Loks höfum við, sem unn- endur tónlistar, átt ómældar ánægjustundir við að hlusta á unga tónlistarnema svo og kennara skól- ans, sem flestir hafa verið hámennt- aðir tónlistarmenn, flytja fjöl- breytta og vandaða tónhst. Skólastjórinn, Sveinbjörg Vil- hjálmsdóttir, hefur sýnt mikla sam- viskusemi og metnað í starfi sínu og má vera að skoðanir hennar og ráðamanna hreppsins, sem að sjálf- sögðu hafa fyrst og fremst stjómast af ráðdeild fyrir hönd hreppsins, svo sem í menntamálum, hesthúsa- málum, o.fl., hafi ekki alltaf farið saman. Sveitarfélagið okkar hefur ekki af sérlega mörgu að státa. Hér er þó að jafnaði gott mannlíf, nema helst kringum sveitarstjórnarkosningar, en þá er stundum eins og siðferðis- vitundarþröskuldurinn lækki hjá ýmsum þeim sem sækja til valda. Oftast hefur hann þó hækkað aftur eftir kosningar. Nú virðist hann hafa staðið á sér. Væri nú ekki rétt að staldra við og lofa þröskuldinum að komast í eðlilega hæð? Ef íyrsta verk ný- kjörinnar hreppsnefndar verður að reyta af hreppnum eina af litfeg- urstu skrautfjöðrunum, er þá ekld hætt við að fuglinn verði orðinn dá- lítið strípaður í lok kjörtímabilsins, ef svo skal áfram haldið? Með vinsemd og virðingu miðað við aðstæður. GUÐNÝTH. BJARNAR, ÁRNI BJÖRNSSON, Blátúni 4, Bessastaðahreppi. Islendingar bikar- meistarar árið 3964 Frá Birgi Bragasyni: NÚ TRÖLLRÍÐUR landslýð ein- hver fjandans heimsmeistarakeppni í tuðrusparki, sem gerir lýðinn ýmist arfavitlausan vegna röskunar á anm ars hefðbundinni dagskrá sjónvarps- ins - sem var svo sem ekki upp á marga fiska - eða fyllir aðra slíkum spennuæsingi að þeir neyta vart svefns né matar meðan á leik stend- ur. („Hann gæti kannski skorað meðan ég er að kyngja og mér svelgist á og dey án þess að vita hvernig leikurinn fór. Komdu með koppinn. Ég hef ekki komizt til að pissa síðan um síðustu helgi.“) En fyrir þá sem hafa velt fyrir sér hverjir verða heimsmeistarar þetta árið er ágætt að kíkja á nokkrar staðreyndir. Brazilía vann síðast heimsbikarinn 1994. Áður höfðu þeir unnið bikarinn 1970. Leggið saman 1970 og 1994. Útkoman verður 3964. Argentína vann síðast bikarinn 1986. Áður höfðu þeir unnið hann 1978. Leggið saman 1986 og 1978. Útkoman verður 3964. Þýzkaland vann síðast bikarinn 1990. Áður höfðu þeir unnið hann 1974. Leggið saman 1990 og 1974. Útkoman verður 3964. Og ef einhverjir vilja veðja um úr- slitin vann England bikarinn 1966. Leggið 1966 við árið 1998. Útkoman verður 3964!!!! Og þá vitum við hvernig þetta fer og getum slökkt á imbanum og farið og leigt okkur spólu! En ekki er öll von úti enn því ein þjóð hefur aldrei unnið bikarinn þó að hún eigi heimsmethafa í kvenlegri fegurð, sterkasta mann í heimi og heimsmethafa í stangarstökki - í tæpa viku - Samkvæmt tölfræði ætt- um við að vinna bikarinn 3964. Nú er bara að bíða og vona - og æfa sig í oley-oley-oley-oley!. BIRGIR BRAGASON, Laugavegi 81, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.