Morgunblaðið - 25.06.1998, Page 1

Morgunblaðið - 25.06.1998, Page 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA KNATTSPYRNA fyrrakvöld. Fólk var tryllt af gleði, söng og trallaði, veifaði fánum og blés í lúðra. Andrúmsloft- ið í Ósló var sem á kjöt- kveðjuhátíð í Rio de Jan- eiro og var haft á orði að þessi Jónsmessunótt gleymdist aldrei. „Þetta var frábært og í minum huga einn stærsti íþróttasigur Norðmanna sem um getur,“ sagði Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra í sam- tali við norska útvarpið. „Fyrir hönd Norðmanna óska ég strákunum til hamingju en ég verð að viðurkenna að trú mín var nánast engin þegar 10 mínútur voru eftir. En bæði mörkin voru stór- kostleg.“ Evrópusigur á Poltava dæmdur af Lerftri Félagið verður einnig að greiða 350 þúsund krónur í sekt Sigur Leifturs frá Ólafsfirði á úkraínska liðinu Vorskla Poltava, 1:0, í Getraunadeild Evr- ópu (Inter-toto) um síðustu helgi var dæmdur tapaður, 0:3. Leik- maður Leifturs sem kom inn á sem varamaður í umræddum leik var ekki á leikskýrslu og er það ólöglegt samkvæmt reglum Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA. Leiftur var auk þess dæmt til að greiða 350.000 krónur í sekt. Tveir leikmenn liðsins, Jens Mart> in Knudsen og Peter Ogaba, voru reknir út af í fyrri leiknum á Ólafs- fu-ði og voru þeir úrskurðaðir í eins leiks bann vegna brottvísunarinnar. Leiftursliðið hélt utan til Úkraínu í gær og má segja að úrskurðurinn hafi ekki verið það veganesti sem leikmenn hefðu viljað óska sér. Að sögn Geirs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ, er um stranga niðurstöðu að ræða, og sagði hann það reyndar reglu frem- ui- en hitt að strangt væri tekið á mistökum af því tagi sem átt hefðu sér stað í leik Leifturs og Vorskla. Viðkomandi leikmaður var á lista yf- ir leikmenn Leifturs sem tilkynntur var á sínum tíma til UEFA en vegna mistaka heimamanna gleymdist að setja nafn hans á leikskýrsluna fyrir leikinn. „Þetta er ekki brot af ásetn- ingi og ætti því ekki að taka eins strangt á því. Mér fmnst þessi dóm- ur mjög strangur,“ sagði Geir. Leiftur hefur möguleika á að áfrýja úrskurðinum til sérstakrar áfrýjunamefndar UEFA fyi-ir mið- nætti 27. júní. Geir sagðist reikna með að Leiftrn- myndi áfrýja. Síðari leikur liðanna fer fram á laugardag- inn í Úkraínu. KNATTSPYRNA: FRAMARAR FÖGNUÐU FYRSTA SIGRINUM Á HLÍÐARENDA / C5 Tvö töp íNoregi 1998 ■ FIMMTUDACUR 25. JÚNÍ BLAÐ GÍFURLEGUR fógnuður braust út í Noregi eftir sigur Norðmanna á heimsmeisturum Brasihu- manna í A-riðli HM í Laudrup skoraði gegn Frökkum Ruters MICHAEL Laudrup, fyrirllði Dana, varð fyrstur til að skora mark hjá Frökkum ■ HM, er hann skoraði úr vítaspyrnu. Það dugði ekki, þar sem Frakkar skoruðu tvö mörk, 2:1. Hér á myndinni fagna þeir Michael Schjönberg og Thomas Helveg Laudrup, sem jafnaði 1:1. „ÞESSIR ieikir voru tilvaldir til að gefa strákun- um tækifæri til að rétta úr kútnum eftir strangar þrekæfingar í tvær vikur. Þeir þurftu á hreyf- ingu að halda, en því miður náðum við ekki að leggja Norðmenn að velli að þessu sinni,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, eftir að landsliðið hafði tapað fyrir Noregi í gærkvöldi 24:30 í Moelven fyrir utan Noreg, en á mánudaginn tapaði íslenska liðið 19:26 ( Elverun. Landslið.shópurinn kemur heim í dag og framundan eru tveggja vikna æfingabúðir. „Leikirnir þróuðust svipað. Norðmenn náðu fljót- lega undirtökunum, en við náðum ekki að kom- ast yfir. Það eru ekki þessir leikir sem skipta máli fyrir okkur, heldur leikirnir i undankeppni HM sem verða í haust. Fyrir þá leiki - gegn Finnlandi, Ungverjalandi og Sviss - erum við að undirbúa okkur,“ sagði Þorbjörn. Á þriðjudag léku liðin æf- ingaleik í víkingaskipinu í Hamri, sem var þrisvar sinn- um 30 mínútur. Mörkin í fyrri leiknum skor- uðu: Valdimar Grímsson 7, Róbert Julian Duranona 4, Dagur Sigurðsson 2, Patrek- ur Jóhannesson 2, Björgvin Björgvinsson 2, Geir Sveins- son 1, Daði Hafþórsson 1, Sig- urður Bjaraason 1. Þeir sem skoruðu í gær- kvöldi voru: Geir 5, Patrekur 5, Ragnar Óskarsson 4, Ólaf- ur Stefánsson 4, Bjarki Sig- urðsson 3, Valdimar 1, Dagur 1, Sigurður Bjarnason 1. DANIR mæta Nígeríumönnum í 16-Iiða úrslitum í heimsmeistara- keppninni á sunnudaginn. Leikur- inn fer fram á Saint Denis-vellin- um í París kl. 19. Frakkland leikur gegn Paraguay í Lens kl. 14.30 á sunnudaginn. Spánveijar sátu eftir með sárt ennið, þrátt fyrir stórsig- ur á Búlgörum, 6:1. ■16-liða úrslit / C6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.