Morgunblaðið - 25.06.1998, Side 5
M0RGUNBLA3DIÐ
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 C j^_
Eiður Smári Guðjohnsen eftir „stór-
meistarajafntefli“ á Akranesi
Dýrkeypt að
vamarmúr niður. KR-ingar hafa
fengið á sig fá mörk í deildinni og
ekki tapað leik,“ sagði Logi.
Það er ekki annað hægt að segja
en leikurinn á Akranesi hafi verið
baráttuleikur frá byrjun. Það tók
leikmenn liðanna lengi að stilla
strengi sína, en KR-ingar voru fyrri
til. Sturlaugur Haraldsson bjargaði
markskoti Sigþórs Júlíussonar á
marklínu og Andri Sigþórsson átti
þrumuskot, sem skall á slánni á
marki KR á 27. mín.
Eftir þetta fóru Skagamenn að
lifna til lífsins, fengu ágæt tækifæri
sem þeir nýttu sér ekki. Meiri yfir-
vegun var í leik liðanna í seinni hálf-
leik, leikmenn þeirra náðu að skapa
sér ágæt tækifæri. Gunnleifur Gunn-
leifsson, sem kom í markið fyrir Kri-
stján Finnbogason á 47. mín., bjarg-
aði tvisvar vel. Kristján fékk högg á
háls, rotaðist og var fiuttur á sjúkra-
hús. Hann verður að taka sér hvíld
frá knattspymu í viku til tíu daga.
KEFLAVIK
LEIFTUR
GRINDAV.
ÞRÓTTUR
FRAM
VALUR
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
skrifar
„VIÐ sofnuðum einu sinni á
verðinum. Það varð okkur dýr-
keypt og kostaði okkur sigur
hér á Akranesi. Það var grát-
legt að missa leikinn niður á
síðustu stundu og gefa Skaga-
mönnum tækifæri til að nýta
eina góða marktækifæri sitt,“
sagði Eiður Smári Guðjohnsen,
eftir að Skagamenn og KR-ing-
ar höfðu gert „stórmeistara-
jafntefli" 1:1.
Þrátt íyrir þetta verðum við að
bera höfuðið hátt og halda áfram
á þeirri braut sem við emm á. Við
getum betur en við
sýndum hér. Það
kemur alltaf niður á
gæðum knattspyrn-
unnar þegar baráttan
er eins mikil og alltaf þegar KR og
Akranes mætast," sagði Eiður
Smári, sem var ekki búinn að vera
lengi inni á vellinum er hann lagði
upp mark KR-inga, sem Andri Sig-
þórsson skoraði, 0:1. Það var aðeins
ein mín. til leiksloka er Skagamenn
skoruðu - Keflvíkingurinn Kristján
Jóhannsson, eftir fyrirgjöf frá Heimi
Guðjónssyni, íyrrverandi leikmanni
KR.
Logi Ólafsson, þjálfari Skaga-
manna, sagði að þeir hafí ekki náð að
hefna fyrir tapið fyrir ungmennaliði
KR í bikarkeppninni. „Við getum
verið ánægðir að ná að jafna undir
lokin - úr því sem komið var. Það
vora sanngjörn
úrslit.
„Vörn okkar
opnaðist einu
sinni illa og það
nýttu KR-ingar
sér. Það er erfitt
að leika sóknar-
leik gegn KR-
ingum, sem eru
með mannmarga
og skipulagða
vöm. Það er
alltaf erfitt að
brjóta þannig
u J T Mörk Stig
5 1 1 19: 6 16
4 1 2 7: 7 13
2 5 0 8: 3 11
2 4 1 12: 7 10
3 1 3 6: 9 10
2 2 3 7: 10 8
1 4 1 9: 9 7
2 1 3 6: 9 7
1 2 4 3: 9 5
0 3 4 8: 16 3
0B ^ Eiður Smári Guð-
■ I johnsen, sem var ný-
kominn inn á sem varamaður,
átti stungusendingu inn fyrir
vöm Skagamanna á 80. mín.
Andri Sigþórsson komst á auð-
an sjó, lék með knöttinn inn í
vítateig og er hann var kominn
að vítapunkti vippaði hann
knettinum með hægri fæti yfir
Þórð Þórðarson markvörð,
sem kom út á móti honum og
kastaði sér niður. Knötturinn
hafnaði í miðju marki.
■A m Kristján Jóhannsson,
I ■ 1 sem kom inná sem
varamaður, jafnaði fyrir
Skagamenn á 89. mín. Heimir
Guðjónsson tók aukaspyrnu út
við endamörk vinstra megin,
sendi knöttinn fyrir mark KR.
Kristján var við markteigslínu
og sendi knöttinn með hægri
fæti í netið.
sofna á
verðinum
Morgunblaðið/Jim Smart
RISTINN Björnsson, þjálfari Vals-
na, var þungur á brún, er hann yfir-
gaf völlinn að skipun dómarans.
iðsins á Val í gærkvöldi
áfram að sækja, en þversláin varð
þeim þó aftur til bjargar stundarfjórð-
ungi fyrir leikslok þegar Kristófer Sig-
urgeirsson skaut föstu skoti úr auka-
spyrnu. Allt kom fyrir ekki hjá heima-
mönnum og þeir verða því að bíða enn
um sinn eftir fyrsta sigri sínum í úr-
valsdeildinni á þessu keppnistímabili.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði en
sigurinn hefði svo sem getað lent hvor-
um megin sem var,“ sagði Lárus Sig-
urðsson, markvörður og fyrirliði Vals,
eftir leikinn. „Það þýðir þó ekkert að
leggja árar í bát því við höfum verið í
þessari stöðu áður og vitum hvað þarf
til þess að snúa blaðinu við,“ sagði Lár-
Liðin höfðu í gærkvöldi sætaskipti á
botni deildarinnai-, en Framarar sitja
nú í næstneðsta sæti með fimm stig og
Valsmenn í því neðsta með þrjú.
HM í FRAKKLANDI 1998 - ÚTSLÁTTARKEPPNIN
FRAKKLAND 98
Sunnudagur, 12. júlí
°aris. 19.00)
wia
■ KRISTINN Jakobsson knatt-
spyrnudómari dæmdi leik TPS
Turku og Sion frá Sviss í Inter-toto
keppninni og fór leikurinn fram í
Finnlandi og endaði með sigri Sion,
1:0. Aðstoðardómarar í leiknum
voru Einar Guðmundsson og Ólaf-
ur Ragnarsson.
■ EYJÓLFUR Ólafsson verður
dómari á leik eistneska liðsins Tu*
levik Viljandi og Svisslendingana í
St. Gallen í Intertoto keppninni nk.
laugardag. Aðstoðardómarar með
Eyjólfi í leiknum verða Pjetur Sig-
urðsson og Ari Þórðarson.
■ REBECCA Brown, heimsmet-
hafi í 200 metra bringusundi frá
Ástralíu, er hætt að keppa, aðeins
21 árs gömul. Frá því að hún setti
heimsmetið (1.24,76 mín.) aðeins 16
ára gömul 1994 hefur ekkert gengið
hjá henni. Hún náði ekki að komast
í ólympíulið Ástrala fyrir ÓL í Atl-
anta fyrir tveimur árum og heldur
ekki fyrir HM í Perth á þessu ári.
„Eg er búin að fá nóg af sundinu.
Eg hef ekki sýnt neinar framarir og-
geri það varla úr þessu þó að ég
hafi lagt mikið á mig,“ sagði
Brown.
■ FERMIN Cacho Evrópumethafi
í 1.500 m hlaupi karla og ólympíu-
meistari í sömu grein árið 1992
verður ekki með spænska landslið-
inu í Evrópubikarkeppni landsliða í
Pétursborg um helgina. Hann er
meiddur á ökkla og óvíst er hvenær
hann verður kominn á skrið á nýjan
leik.
■ HANNE Haugland heimsmeist-
ari í hástökki kvenna frá Noregi
keppir ekkert í sumar, en hún
meiddist á ökkla á þrekæfingu um
liðna helgi.
■ JACKIE Joyner-Kersee hefur
ákveðið að hætta keppni í sumar og
keppir í síðasta sinn á sérstöku
kveðjumóti sem verður Illinois,
ekki fjarri heimabæ hennar East
St. Louis III, hinn 25. júlí.
■ KERSEE vann til þrennra gull-
verðlauna á ólympíuleikum, einna
silfurverðlauna og tvennra brons-
verðlauna. Hún á heimsmetið í sjö-
þraut kvenna og bandaríska metið í
langstökki, 50 og 60 m grinda-
hlaupi.
■ MEÐAL þeirra sem keppa á
kveðjumóti Kersee eru Michael
Johnson og Gail Devers, en keppt
verður í 17 greinum og heildarupp-
hæð verðlauna er um 35 milljónir
króna.
■ ANDY Moog, markvörður
Montreal Canadiens í NHL-ís-
hokkídeildinni vestra, hefur ákveðið
að hætta eftir 18 ára feril í deildinni.
■ MOOG, sem er 38 ára, er sjöundi
sigursælasti leikmaðurinn í sögu
deildarinnar, en hann var þrisvar
meistari með Edmonton, 1984,1985
og 1987, og fjórum sinnum var
hann valinn í stjörnuliðið, 1985,
1985,1991 og 1997.
■ MOOG sigraði í 372 leikjum með
Montreal, Edmonton, Boston og-.
Dallas og vinningshlutfall hans er
62,2%, sem er það hæsta í hópi 15
markvarða sem hafa fagnað 300
sigrum eða meira.
■ MOOG byrjaði í skugga Grants
Fuhrs hjá hinu sigursæla liði Ed-
monton og var markvörður Kanada
á Ólympíuleikunum 1988.
í kvöld
Knattspyrna
Landssímadeildin:
Valbjarnarv.: Þróttur - ÍR.....20
1. deild karla:
Akureyri: KA - FH...............20
Kópavogur: Breiðablik - Þór.... 20
Garðabær: Stjarnan - Skallagr. . 20
Víkingsv.: Víkingur - Fylkir .... 20
2. deild kai'la:
Fjölnisv: Fjölnir - Víðir.......20
Sauðárkrókur: Tindast. - KS ... 20
3. deild:
Stykkish.: Snæfell - Vík. Ó1...20