Morgunblaðið - 25.06.1998, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 C 3
HM í FRAKKLANDI
Beckham ;
í öðrnm
heimi
GLENN Hoddle, landsliðs-
þjálfari Englands, gagn-
rýndi miðjumanninn David
Beckham fyrir að einbeita
sér ekki að ltðandi verkefni,
leikjunum í HM. Beckham,
Isem er mjög vinsæll á
Englandi, sérstaklega eftir
að hafa opinberað trúlofun
sína og kryddstúlkunnar
Victoriu Adams, var ekki í
byijunarliði Englands í
fyrstu tveimur leikjum riðla-
keppninnar og varð það til
þess að Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchest-
er United, gagnrýndi val
liðsins opinberlega. Hoddle
svaraði gagnrýninni, sagði
að Beckham hefði ekki verið
rétt stemmdur. „Það er hluti
Ivandamálsins og félag hans
hefði átt að taka til hendi
fyrr. Hann hefur ekki ein-
beitt sér að fótboltanum
heldur verið reikull í spori.“
Hoddle sagðist hafa rætt
vandamálið við Beckham.
„Hann er mun einbeittari nú
og gerði góða hluti þegar
hann kom inná á móti Rúm-
eníu,“ sagði Hoddle og bætti
; við að ummæli Fergusons
hefðu verið að hætti áhuga-
manna. „Ef hann á við
vandamál að stríða átti hann
að hringja í mig í stað þess
að fara beint í dagblöðin
með málið. Og að gera það á
leikdegi okkar var ekki at-
vinnumannslegt."
Mario Zagallo, þjálfari Brasilíu
Norðmenn leika
ekki knattspyrnu
MARIO Zagallo, þjálfari Brasilfu, hrósaði Marokkó fyrir góðan Ieik í
liðinni viku en liðið sem hann dáði situr eftir þrátt fyrir 3:0 sigur á
Skotlandi þar sem Brasilfa tapaði 2:1 fyrir Noregi í fyrrakvöld.
„Norðmenn leika ekki knattspyrnu," sagði Zagallo. „Þeir eru með
eina íjögurra manna varnarlínu og síðan aðra Hmm manna varnar-
línu fyrir framan. Þeir Ieika alltaf sama kerfi, sama hver staðan er,
jafnvel eftir að við skoruðum. Eftir markið slökuðum við á og leyfð-
um þeim að senda háar sendingar inn í vítateiginn hjá okkur. Þetta
er kerfið þeirra, það hefur verið árangursríkt hjá þeim og ég óska
þeim til hamingju."
„Ég veit að nokkrir leikmenn eiga við
andleg vandamál að stríða og ég veit
hverjum ég get treyst"
BERTI Vogts, iandsliðsþjálfari Þýskalands, hefur meiri trú á að
eldri leikmenn hópsins Ijúki ætlunarverkinu á móti íran og komi
Þýskaiandi í 16 liða úrslit. Gert er ráð fyrir að Lothar Mattháus
verði miðvörður og Olaf Thon og Thomas Helmer á miðjunni í
staðinn fyrir Dietmar Hamann og Jens Jeremies.
F%ýskaland varð heimsmeistari
■^1954, 1974 og 1990 og hefur að-
eisn einu sinni orðið að hætta eftir
riðlakeppnina en það var 1938, þegar
keppnin var síðast haldin í Frakk-
landi.
„Ef við ætlum áfram verðum við að
sigra Þýskaland og ekkert er
ómögulegt," sagði Khodadad Azizi,
miðherji Irans, sem lék með Köjn í
þýsku deildinni á liðnu tímabili.
Tveir aðrir leikmenn írans þekkja
vel til í Þýskalandi, miðherjinn Ali
Daei og miðjumaðurinn Karim Bag-
heri, eftir að hafa leikið með Arminia
Bielefeld. Gert er ráð fyrir að aðeins
þrír leikmenn yngri en 30 ára verði í
byrjunarliði Þýskalands á móti íran;
Michael Tarnat, Jörg Heinrich og
Christian Wöms, sem em 28 ára.
„Ég varð að stokka upp spilin á móti
Júgóslavíu því frammistaða nokk-
urra leikmanna var ekki góð,“ sagði
Vogts og átti við yngri leikmenn.
„Ég veit að nokkrir leikmenn eiga
við andleg vandamál að stríða og ég
veit hverjum ég get treyst. Mikil-
vægt er að hugarfarið verði rétt á
móti íran.“
Vogts var allt annað en ánægður
með leik Þýskalands á móti Jú-
góslavíu og eins sætti hann sig ekki
við hugmyndir í hópnum þess efnis
að Þýskaland hætti keppni vegna
árásar hryðjuverkamanns á fransk-
an lögreglumann eftir leikinn. And-
rúmsloftið var hreinsað á fundi og
þar fór ekki á milli mála hvers Vogts
óskar. „Hann hitti naglann á höfuð-
ið,“ sagði miðjumaðurinn Andy Möll-
er eftir fundinn. „Við lékum mjög illa
en klukkan verður ekki færð aftur.
S-Kórea stefnir að
fýrsta sigrinum
telgía verður að sigra Suður-
Kóreu til að eiga möguleika á
að komast í 16 liða úrslit HM en sig-
urinn nægir hugsanlega ekki því
aukinheldur verða Belgar að vinna
3:0 geri Holland og Mexíkó jafntefli.
„Við fömm í leikinn með því hugar-
fari að sigra en hugsum ekki um að
gera þrjú mörk,“ sagði miðjumaður-
inn Enzo Scifo.
Hins vegar verður Suður-Kórea
ekki auðveld bráð í dag. Kantmað-
urinn Danny Boffin meiddist í leikn-
um við Mexíkó og leikur ekki auk
þess sem markvörðurinn Filip de
Wilde er tæpur vegna meiðsla eins
og fyrirliðinn Franky Van der Elst.
Suður-Kórea hefur aldrei fagnað
sigri í úrslitakeppni HM og nýr
þjálfari hefur hug á að byrja með
stæl.
„Við höfum leikið fjómm sinnum í
röð í HM en aldrei sigrað og ætlum
að gera það sem við getum til að
snúa blaðinu við,“ sagði þjálfarinn
Kim Pyung-seok.
Reuters
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Þýskalands, var ekki ánægður
með sína leikmenn gegn Júgóslavíu.
G01TM0T
OPEN
Golfklúbburinn Oddur gengst
fyrir opnu golfmóti á hinum
glæsilega golfvelli Oddfellowa
laugardaginn 27. júní 1998
Leikin verður höggleikur með og án forgjafar i
Hámarksgefin forgjöf er 24.
Ótrúlega vegleg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin með 3
og án forgjafar, m.a. Prestige golfsett,
driverasett, pokar og kerrur. Veglegar
gjafakörfur fyrir lengsta upphafshögg á
12. og 18. braut og nándarverðlaun á 4 og 13 braut.
Nýjung - Drive keppni verður haldin kl. 17:00 *
á 10. braut. Glæsileg verðlaun.
Þátttökugjald er aðeins kr. 2.000.-
Ræst verður út frá kl. 8:00
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við
200 keppendur og því er vissara að panta
rástíma sem fyrst hjá vallarverði
í síma 565-9092
HREYSTI
Þar sem þú færð golfvörur og fatnað við hæfi...
Sorg og gleði í Rúmeníu
RÚMENSKUR táningur lést í fagnaðarlátum í Búkarest í Rúmeníu í
kjölfar sigursins á Englendingum á mánudaginn. 19 ára pilturinn,
sem var drukkinn, féli nieð fymiefnduni afleiðingum en meira en
50.000 manns söfnuðust saman í miðborginni.
Sigrinum var fagnað úti um allt land en 60 ára gamall maður í
norðurhluta Rúmeníu lifði ekki fögnuðinn af, dó úr hjartaslagi þegar
hann var að horfa á sjónvarpsútsendingu frá leiknum. Hins vegar var
greint frá því að glaður Rúmeni lét skíra son sinn, sem fæddist á leik-
dag, Adrian Bie í höfuðið á miðherjanum sem gerði sigurmarkið í
fyrsta HM-sigri Rúmeníu á múti Kólumbíu.