Morgunblaðið - 25.06.1998, Qupperneq 8
Stórsigur á Búlgaríu dugði Spánverjum ekki til
FRAKKLAND 98
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
m DERBY hefur fest kaup á þýska
varnarmanninum Stefan Schnorr
frá Hamburg. Hinn 27 ára gamli
Pjóðverji fékk frjálsa sölu frá Ham-
borgarliðinu og er tólfti erlendi leik-
maðurinn í herbúðum enska liðsins.
■ ASTON Villa hefur einnig farið
mikinn á leikmannamarkaðinum að
undanförnu og í gær keypti liðið
ítalska leikmanninn Fabio
Ferraresi.
■ FERRARESI kostaði Aston Villa
ekki krónu, því hann var með frjáls-
an samning eins og svo margir fleiri
atvinnumenn þessa dagana.
■ GUUS Hiddink, þjálfari Hollands,
sagðist ekki ætla að gera miklar
breytingar á liðinu sínu, sem leikur
við Mexíkó í dag, frá viðureigninni
við Suður-Kóreu um síðustu helgi.
Hann sagðist bíða eftir upplýsingum
um það hvort Phillip Cocu og Ron-
ald de Boer yrðu klárir í slaginn en
þeir urðu fyrir meiðslum gegn S-
Kóreu.
■ HIDDINK sagðist ennfremur
reikna með að Mexíkó myndi leika
sóknarleik frá fyrstu mínútu. Hvað
sem því líður ætlar hann ekki að láta
sína menn bakka, þeir myndu leika
til sigurs og vinna riðilinn.
■ LUIS Hernandez er bjartsýnn á
að geta leikið í fremstu víglínu
Mexíkó í dag gegn Hollendingum en
hann hefur verið meiddur í ökkla.
„Eg hef það gott og finnst ég vera til-
búinn í slaginn," sagði Hernandez.
■ RAUL, framherji Real Madrid,
var ekki í byrjunarliði Spánverja
gegn Búlgaríu eftir slakan leik gegn
Paragvæ. Hann kom þó inn á sem
varamaður á 52. mínútu fyrir
Etxeberria.
■ LUIS Enrique var heppinn að
vera ekki rekinn út af á 75. mínútu
gegn Búlgaríu er hann kom aftan að
Gosho Ginchev og felldi hann gróf-
lega. Enrique slapp með gult spjald.
■ CLAUDIO Caniggia, framherji
argentínska landsliðsins á HM 1990
og 1994, er afar ósáttur við að vera
ekki í landsliði þjóðar sinnar sem nú
leikur í Frakklandi. Caniggia, sem
nú leikur með Boca Juniors í heima-
landi sínu, segir að allir aðrir þjálfar-
ar en Daniel Passarella hefðu valið
sig í landsliðið.
Paragvæ
óvænt áfram
VONBRIGÐI!
Spænskur áhorfandi getur
ekki leynt vonbrigðum
sínum þótt öruggur sigur á
Búlgaríu sé í höfn.
Spánverjar, sem töpuðu ekki
Ieik í undankeppninni, eru
úr leik á HM og er það
versti árangur liðsins síðan
1978.
SPÁNVERJAR og Búlgarir eru
úr leik á HM, en Paragvæar
fylgja Nigeríumönnum upp úr
D-riðli keppninnar. 6:1-stórsig-
* ur Spánverja á Búlgörum
dugði þeim ekki til að komast
áfram í sextán liða úrslitin, því
baráttuglaðir Paragvæar gerðu
fyrstu þrjú mörk sín í keppn-
inni til þessa er þeir lögðu Ní-
geríumenn 3:1.
Sigur Paragvæa var fyllilega
verðskuldaður en Nígeríumenn
verða vart dæmdir af þessum leik,
enda með marga leikmenn í hvíld á
bekknum og þar að auki búnir að
tryggja sér sigur í riðlinum áður en
hann hófst. Byrjun leiksins hlýtur
þó að hafa komið þeim í opna
skjöldu, því það tók ekki nema tæpa
mínútu fyrir Paragvæ að ná forystu
í leiknum. Var þar að verki Celso
Ayala með laglegum skalla eftir
góða aukaspymu. Engum leik-
manni á HM að þessu sinni hefur
tekist að skora jafnfljótt.
Nígeríumenn svöruðu þó fyrir sig
tíu mínútum síðar með marki Wil-
sons Oruma og voru oft með undir-
tökin á miðjunni í fyrri hálfleik, án
þess þó að skapa sér teljandi færi.
í seinni hálfleik áttu Nígeríu-
menn hins vegar ekkert svar við
firnagóðum skyndisóknum Parag-
væa. Á 57. mínútu skoraði fram-
herjinn Miguel Benitez eitt af
mörkum keppninnar - þrumuskot í
markslána og inn - og fjórum mín-
útum fyrir leikslok gulltryggði Car-
dozo síðan óvæntan sigur með góðu
marki.
Paragvæ vann leikinn á mikilli
baráttu. Þeir vissu að ekkert annað
en sigur kæmi þeim áfram og léku
Bonev hættir
með Búlgari
HRISTO Bonev, þjálfari
Búlgarfu, sagði starfi sínu
lausu í gærkvöldi strax eftir
að lið hans hafði tapað 6:1
fyrir Spáni og lent í neðsta
sæti D-riðils með aðeins eitt
stig. „Mér er ómögulegt að
halda áfram starfi mínu eftir
þennan leik,“ sagði Bonev.
Hann tók við þjálfun
búlgarska Iiðsins í ágúst 1996
eftir að forverí hans hafði
veríð látinn taka pokann sinn
að lokinni úrslitakeppni Evr-
ópumótsins á Englandi.
Búlgariumenn höfðu vonast
til að lið þeirra næði góðum
árangri í heimsmeistara-
keppninni að þessu sinni, en
þeir komust í undanúrslit
fyrir fjórum árum eftir að
hafa slegið þáverandi heims-
meistara Þjóðverja úr leik.
samkvæmt því. Liðið hefur aðeins
einu sinni áður komist í aðra umferð
HM. Líklega kemst liðið þó ekki
miklu lengra en það, því á sunnudag
mætir það gestgjöfunum Frökkum.
Þjálfarinn, Paolo Cesar Carpeggi-
ani, sagðist enda vera himinlifandi.
„Biðin eftir lokaflautunni tók veru-
lega á taugarnar. Nú er tími til að
fagna og þjóðin getur verið stolt af
sínum mönnum. Þeir áttu skilið að
vinna, spiluðu þétta vöm og sóttu
síðan hratt.“
Nígeríumenn, sem gerðu sjö
breytingar frá sigurleiknum gegn
Búlgaríu, virtust æði áhugalitlir og
voru greinilega þegar komnir með
hugann við sextán liða úrslitin. Þar
mæta þeir Dönum og verða fyrir-
fram að teljast sigurstranglegri.
Stórsigur dugði ekki til
Spánverjar sitja hins vegar eftir
með sárt ennið, þrátt fyrir stórsigur
á Búlgörum. Markalausa jafnteflið
gegn Paragvæ og tapið gegn Níger-
íu vó þyngra þegar upp var staðið
og stjömurnar frá Spáni pökkuðu
fóggum sínum mun fyrr en búist
hafði verið við.
Liðið fann loksins rétta taktinn í
leiknum, eftir dapra frammistöðu til
þessa. Liðið fékk óskabyrjun og tók
forystu úr vítaspyrnu Femandos
Hierros á sjöttu mínútu leiksins.
Tólf mínútum seinna jók Luis En-
rique forystuna og staðan í leikhléi
var 2:0, Spánverjum í vil.
Seinni hálfleikur var líkur þeim
fyrri. Hristo Stoichkov, sem sá ekki
til sólar í þessum leik fremur en
öðrum í keppninni, var tekinn af
leikvelli í hálfleik. Á 53. mínútu
gerði Morientes þriðja mark Spán-
verjanna en skömmu síðar minnk-
aði öldungurinn Emil Kostadinov
muninn.
Fyrsta mark Búlgara í keppninni
að þessu sinni hleypti auknum
krafti í leikmenn liðsins og snarlega
fjölgaði í framlínunni. Allt kom þó
fyrir ekki og í stað þess að minnka
muninn enn frekar bættu Spánverj-
ar þremur mörkum við og innsigl-
uðu sannfærandi stórsigur sinn.
Fagnaðarlætin yfir mörkunum sex
urðu þó sífellt vandræðalegri, enda
bárust fréttir af velgengni Parag-
væa jafnharðan.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1978
sem Spánverjar falla úr HM í fyrstu
umferð. Búlgarir geta heldur ekki
verið sáttir við sína frammistöðu,
liðið sem lék til undanúrslita á HM
‘94 var hvorki fugl né fiskur að
þessu sinni, gerði eitt jafntefli en
tapaði tveimur leikjum og gerði eitt
mark en fékk sjö á sig.
Javier Clemente, þjálfari Spánar,
var svekktur í leikslok en óskaði þó
Paragvæum til hamingju með ár-
angurinn. „Þeir eiga heiður skilinn,"
sagði hann. „Eg er miður mín, en
lífið heldur áfram. Liðið sýndi ein-
ingu í leikjum sínum, en heilladís-
irnar voru víðsfjarri."
Hristo Bonev, þjálfari Búlgara,
tilkynnti eftir leik að hann væri
hættur með liðið. .Aðdáendur okkar
hafa orðið fyrir sárum vonbrigð-
um,“ sagði hann. „Við vorum með
lakasta lið riðilsins og getum engum
um kennt nema okkur sjálfum."
Hoddle segir Kólumbíu-
menn sakna Asprilla
Glenn Hoddle, landsliðsþjálf-
ari Englendinga, segist bjart-
sýnn fyrir hönd sinna manna
fyrir leikinn gegn Kólumbíu-
mönnum á morgun. Sigurveg-
ari í þeim leik mun fylgja
Rúmenum upp úr G-riðli.
„Við erum með sterkara lið
en þeir og fjarvera Faustinos
Asprilla mun veikja framhnu
þeirra,“ sagði þjálfarinn á
blaðamannafuudi í gær.
„Sóknarleikur Kólumbíu-
manna hefur snúist í kringum
Asprilla á undanförnum árum
og því hafa þeir átt í erfiðleik-
um með að leika án hans.“
Hoddle mun að öllum líkindum
tefla fram táningnum Micheal
Owen í framlínu Englendinga
í stað Teddys Sheringhams og
sömuleiðis er ekki loku fyrir
það skotið að David Beckham
leiki á miðjunni í stað Pauls
Ince, sem enn hefur ekki náð
sér fyllilega af meiðslunum
sem hann hlaut í leiknum gegn
Rúmeníu.
HM hitinn
bræðir suð-
urskautið
TILFINNINGAHITA manna
vegna Heimsmeistarakeppn-
innar virðist engin takmörk
sett. Þannig hafa 37 starfs-
menn bresku heimskauts-
rannsóknarstofnunarinnar á
suðurskautinu sent neyðar-
kall heim af heldur óvenju-
legum ástæðum; þeir ná
nefnilega engri sjónvarps-
stöð og nýlega misstu þeir
útvarpssambandið við
Heimsþjónustu BBC og þar
af leiðandi hafa þeir ekki átt
þess kost að fylgjast með
máli málanna, Heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu.
Sem nærri má geta brugð-
ust yfírvöld í Cambridge vel
við þessari málaleitan starfs-
manna sinna og nú hefúr
tölvusamband stöðvarinnar
gegnum gervihnött leyst
málið. Tölvupósti með úrslit-
um leikja, fréttum og öðruin
upplýsingum rignir nú yfir
boltaóða vísindamennina,
sem vitaskuld una glaðir við
sitt.
KNATTSPYRNA / HM I FRAKKLANDI