Morgunblaðið - 05.07.1998, Page 7

Morgunblaðið - 05.07.1998, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1998 E 7 LANDSPITALINN þágu mannúðar og vísinda... Tölvunarfræðingar, verkfræðingar, kerfisfræðingar óskast til starfa á hugbúnaðardeild Ríkisspítala. Fyrir höndum er mikil uppbygging og endur- nýjun tölvukerfa spítalans, sem koma inn á flesta þætti í starfsemi hans. Um er að ræða ran nsó kn astofu ke rf i, f j á rh ag ske rf i, starfsmannakerfi, birgðakerfi, sjúklinga- og sjúkraskrárkerfi, og margt fleira. Starfsumhverfi hugbúnaðardeildar: Staðar- og víðnet, Unix, Novell, Informix o.fl. Starfsvið: • Greining og hönnun tölvukerfa í samvinnu við notendur. • Þátttaka í gerð útboðslýsinga og vali á tölv- ukerfum. • Stýring og uppsetning tölvukerfa. • Þátttaka í gæðastarfi og stefnumótun. Menntunar- og hæfniskröfur: • Tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun. • Æskilegt að viðkomandi þekki hlutbundna aðferðafræði. • Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að starfa með öðrum. Spennandi og áhugaverð störf eru í boði í góðum hópi reyndra starfsmanna. Framtíðarmöguleikar og fagmenntun í starfi. Nánari upplýsingar veitir Jón Freyr Jóhannsson, forstöðumaður hugbúnaðardeild- ar í síma 560 2384. Skriflegar umsóknir sendist til hugbúnaðardeildar Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31,105 Reykjavík fyrir 8. júlí 1998. --------- i Laun samkv. gildandi samningi vidkomandi stéttarfélags og fjármálarádherra. Umsóknareyftublöd fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala. Öllum umsóknum verftur svaraft þegar ákvörftun um ráftningu hefur verift tekin. Ræstingarstörf — öruggar tekjur Yfir 400 manns starfa í ræstingardeild Securitas og hópurinn stækkar sífellt vegna fjölgunar verkefna. Starfsmenn fá kennslu og þjálfun og bestu áhöld og efni sem völ er á. Einnig fá starfsmenn aðstoð frá ræstingarstjórum. Securitas ehf. leitar að fólki í þann góða hóp starfsmanna sem fyrir er. Þú sem ert að leita að fullu starfi eða bara hlutastarfi, tímabundið eða til langframa, finnur það e.t.v. hjá okkur. Hafðu samband og kannaðu málið. Upplýsingar og umsóknareyðuböð hjá starfs- mannastjóra, Síðumúla 23, næstu viku kl. 11- 12 og 14-15. Netfang erna@securitas.is rm SECUKITAS Skrifstofumaður Óska eftir skrifstofumanni í hlutastarf. Upplýsingar í síma 896 9371. Kennara vantar í hlutastarf við almenna kennslu í Broddanes- skóla, Strandasýslu. Áhugasamir hafi samband við skólastjóra í símum 451 3359 og 451 3350 eða skólanefnd- arformann í síma 451 3339. Húsvörður Óskum eftir að ráða húsvörð í 50 íbúða fjölbýlishús . Um er að ræða mjög vinsælt hús í austurborginni. Starfið felst í umsjón og viðhaldi á hús- eigninni, jafnt innanhúss sem utan, ásamt ræstingu á sameign, umsjón með lóð og eftirlit og aðstoð [ samkomusal hússins, sem er leigður út til samkomuhalds. Leitað er að starfsmanni, sem á gott með mannleg samskipti, og hefur reynslu af viðhaldsstörfum. Æskilegur aldur 45-55 ára. Hreint sakavottorð er skilyrði. í boði er mjög gott starf, sem myndi henta hjónum, góð 75 fm íbúð fylgir, auk skrifstofu (með stjórn húsfélagssins). Húsið er nýlegt og allur frágangur sérlega skemmtilegur. Ráðning frá og með 15. október n.k. Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí n.k. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eingöngu veittar á skrífstofu Liðsauka. Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um á http://www.lidsauki.is Fd/fr ogr þekking Lidsauki 0 Skipholt 50c, 105 Reykjavfk sími 562 1355, fax 562 3767 Netfang: www.lidsauki.is Tölvupóstur: lidsaukl@knowledge.ls A&P LÖGMENIV Eínkaritari - Aðstoðarmaður Óskum eftir að ráða einkaritara og aðstoðarmann lögmanns fyrir A&P Lögmenn. Starfið felst í ritvinnslu og almennri töivuvinnslu, skjalavistun, móttöku viðskiptavina, svörun fyrirspuma m.a. í síma auk aðstoðar við ýmis sérverkefni. Unnið er að verulegu leyti eftir upplestri á "diktafóni" bæði á ensku og íslensku. Við leitum að dugmikilli og drifandi manneskju, sem hefur áhuga á að starfa í krefjandi starfsumhverfi. Viðkomandi þarf að vera glöggur tölvunotandi og með góða tal- og ritkunnáttu í íslensku og ensku. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, kurteisi, áreiðanleika, fagmennsku og metnað til að ná góðum árangri i starfí. Góð laun era í boði fyrir réttan aðila. Umsóknarfrestur ertil ogmeð 17. júlí n.k. Ráðning verður ffá og með 1. september. Unnið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Guðný Harðardóttir og Ingibjörg Einarsdóttir veita nánari upplýsingar. Viðtalstímar eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin frá kl. 10-16 allarvirkadaga. STRA STARFSRÁBNINGAR eM. ámrit'Ts mnislti GUÐNY HARÐARDOTTIR MBrkinni 3,108 licykjavík. sími. 588 3031, brcfsími 588 3044 NAMMCO Staða vísindastjóra Staða vísindastjóra hjá skrifstofu Norður- Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO) í Tromsö, Noregi, er laus til umsóknar. NAMMCO er alþjóðleg stofnun sem stofnsett var árið 1992. Tilgangur ráðsins er að vinna með svæðisbundnu samráði og samvinnu að verndun, skynsamlegri stjórnun og rannsókn- um á sjávarspendýrum í Norður-Atlantshafi. Aðildarríki ráðsins eru Noregur, ísland, Græn- land og Færeyjar. Starf vísindastjóra felst í samhæfingu á vinnu vísindanefndar ráðsins og vinnunefnda henn- ar, þ.m.t. skipulagningu funda, gerð fundar- skjala og fundarskýrslna. Vísindastjóri ber enn fremur ábyrgð á tæknilegri ritstjórn vísindarits NAMMCO (NAMMCO Scientific Publication Series), skráningu heimilda og viðhaldi gagn- abanka um veiðar ásamt reglulegri uppfærslu á skýrslu um ástand sjávarspendýrastofna í Norður-Atlantshafi. Starfinu fylgja u.þ.b. þriggja vikna ferðalög erlendis á ári. Umsækjendurskulu hafa háskólapróf í viðeig- andi náttúru- eða félagsvísindum, reynslu á sviði stjórnunar og þekkja til vísindasamvinnu á vegum alþjóðastofnana. Vísindastjóri þarf að hafa mjög gott vald á ritaðri og talaðri ensku og reynslu af undirbúningi og útgáfu skýrslna og rita á ensku. Kostur er ef hann hef- ur einnig gott vald á dönsku, norsku eða sænsku. Vísindastjóri þarf að hafa mikla hæfni til samskipta, vera sveigjanlegur, samstarfsfús og sjálfstæður í starfi. Reynsla á notkun nútim- atölvukerva og alnetinu er nauðsynleg. Staðan erveitttil fjögurra ára í senn með mögu- leika á framlengingu. Laun eru í samræmi við kröfurtil umsækjenda og samsvara launumfyrir sambærileg störf hjá öðrum alþjóðlegum stofn- unum. Skriflegar umsóknir ásamt æviágripi og nöfn- um, heimilisföngum og símanúmerum þriggja meðmælenda skulu póstsendartil fram- kvæmdastjóra ráðsins og póststimplaðar eigi síðar en 7. ágúst 1998. Framkvæmdastjóri ráð- sins, Kate Sanderson, veitirfrekari upplýsingar um stöðuna. NAMMCO, c/-Universlty of Tromso, N-9037 Tromso, Norge. Sími: + 47 77645908, Fax: + 47 7764 5905. FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA Framkvæmdastjóri Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í 50—70% starf með sveigjanlegum vinnutíma frá og með 1. september nk. Óskað er eftir viðskiptafræðingi eða hagfræð- ingi til að stýra faglegu og félagslegu starfi FVH. Nánari upplýsingar veitir Kristján Jóhannsson í síma 525 7221 eða 565 2858. Vinsamlegast sendið umsóknirtil FVH, pósthólf 5184, 125 Reykjavík, fyrir 10. júlí nk. Trésmiðir Vantartrésmíðaflokk. Mikil vinna samkvæmt uppmælingu. Upplýsingar í síma 896 9371. Smiðir óskast við nýbyggingu miðsvæðis í Reykjavík. Góð laun í boði fyrir rétta menn. Upplýsingar í síma 893 4284.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.