Morgunblaðið - 05.07.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 05.07.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1998 E 11 Góð kjör fyrir kennara á Raufarhöfn Grunnskólinn á Raufarhöfn er einsetinn skóli og verða í honum tæplega 80 nemendur í 1.—10. bekk á næsta skólaári. Kennara vantar í eina til tvær stöður fyrir næsta skólaár. Kennslugreinar: Almenn kennsla og kennsla yngri barna. Flutningskostnaður verður greiddur og ódýrt húsnæði ertil staðar á vegum sveitarfélagsins. Launakjör eru góð. Kennurum verður gefinn kostur á að sækja námskeið innanlands. Raufarhöfn er sjávarþorp i Norður-Þingeyjarsýslu og búa þar rúmlega 400 manns. Þorpið er á austanverðri Melrakkaslettu og er nyrsti þétt- býlisstaður á Islandi. Vinna við sjávarútveg er burðarás atvinnulífs auk ýmiss konar þjón- ustu. Mjög góð aðstaða er til íþróttaiðkana svo sem nýtt iþróttahús, sund- laug, tækjasalur og fleira. Leikskólinn er rúmgóður og vel búinn. Á staðnum er t.d. starfandi leikfélag, kór, íþróttafélag og tónlistar- skóli. Skólaþjónusta Eyþings hefur unnið að sérstöku þróunarverkefni fyrir grunnskólann í samvinnu við Raufarhafnarhrepp. Markmiðið er að stuðla að öflugu skólastarfi á staðnum sem gerir skólann að eftirsóknarverðum vinnustað fyrir nemendur og kennara og foreldra virka í skólastarfinu. Okkur vantartil starfa metnaðarfulla kennara sem vilja starfa við kennslu í litlu en öflugu sjávarþorpi úti á landi, þar sem markmið heimamanna er góður skóli sem stenst kröfur tímans. Nánari upplýsingar veita: Sveitarstjóri í símum 465 1151 og 465 1251 og skólastjóri í símum 465 1241 og 465 1225. Ferðamálaráð íslands auglýsir stöðu sérfræðings á sviði ferðaþjónustu lausa til umsóknar Staðan heyrir undir forstöðumann skrifstofu Ferðamálaráðs íslands á Akureyri frá og með árinu 1999, einkum við ferðaþjónustusvið rekstrardeildar. Eitt af megin verkefnum er að stýra og vinna að rannsóknum á sviði ferðaþjónustu. Æskileg menntun er M.Sc. eða Ph.D. í ferðaþjónustu og/eða greinum tengdum ferðaþjónustu, s.s. viðskiptatengdum greinum, landafræði eða tölfræði. í upphafi er um 50% starf að ræða. Nánari upplýsingar veitir Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður skrifstofu F.M.R. Akureyri, í síma 461 2915. Umsóknir um stöðuna sendist til skrifstofu Ferðamálaráðs íslands, Strandgötu 29, 600 Akureyri, fyrir 20. júlí 1998. Ferðamálaráð íslands. Þjónusta-tækifæri I Traustur aðili óskar eftir að ráða starfsmann í þjónustustörf, m.a. móttöku j gesta, öryggisgæslu og létt skrifstofustörf. Um er að ræða spennandi starf í skemmti- legu umhverfi. Unnið er á dagvöktum. Skilyrði er að umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi, hafi góða framkomu, mikla þjónustulund, einnig er góð enskukunnátta nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí n.k. Upplýsingar veittar á skrifstofu frá 13-15. Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um störf á http://www.iidsauki.is. Fó/fc og /jefcfc/ng Lidsauki Skipholt 50c, 105 Reykjavlk slmi 562 1355, fax 562 3767 Netfang: www.lidsauki.is Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is Heilbrigðisstofnunin Blönduósi Fleilbrigðisstofnunin Blönduósi auglýsir eftir- taldar stöður lausar til umsóknar: Stada yfirlæknis. Staðan veitist frá hausti 1998 eða samkvæmt samkomulagi. Leitað er eftir sérfræðingi í heimilislækningum eða sér- fræðingi, sem hefur reynslu í heimilislækning- um, en hefur menntun á öðrum sviðum læknis- fræði, s.s. öldrunarlækningum, endurhæfingar- eða lyflækningum. Umsóknarfrestur er til 17. júlí nk. Umsóknir sendast framkvæmdastjóra stofnun- arinnar, Bolla Ólafssyni, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Stöður sjúkraþjálfara. Okkur vantar 1 —2 sjúkraþjálfara. Stöðurnar veitast frá 1. septem- ber nk. eða samkvæmt samkomulagi. Fjölbreytt vinna á stofnuninni, einnig ambul- ant-verkefni. Umsóknarfrestur er til 17. júlí nk. Nánari upp- lýsingar veita sjúkraþjálfarar, Angela Berthold eða Stefán Örn Pétursson. Heilbrigðisstofnunin Blöndósi, Flúðabakka 2, sími 452 4206. Markaðsfulltrúi Háskólabíó hf. óskar að ráða starfsmann í markaðs- og söludeild sem fyrst. Næsti yfirmaður er markaðsstjóri. Leitað er að ungum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á markaðsmálum. Viðkomandi þarf að geta unnið hratt, sjálfstætt og skipulega. Góð tölvu- og tungumála- kunnátta er skilyrði. Viðskiptamenntun er nauðsynleg. I boði er krefjandi, fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf hjá stóru þjónustufyrirtæki. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir hjá Ráðningarþjónustu PriceWaterhouseCoopers á íslandi. Skrifleg umsókn ásamt mynd óskast send til Ráðningarþjónustu PriceWaterhouseCoopers eða á heimasíðu fyrir 10. júlí n.k. PricewaTerhouseQopers @ Áður Ráðningarþjónusta Hagvangs hf. EYJAFJARÐARSVEIT Hrafnagilsskóli auglýsir eftir kennurum Okkur vantar kennara í u.þ.b. 5 stöður. Kennslugreinar eru: Byrjendakennsla, almenn kennsla á miðstigi, íslenska, stærðfræði, raun- greinar og samfélagsfræði á unglingastigi, sérkennsla og smíðar. Hrafnagilsskóli er í Eyjafjarðarsveit 12 km sunnan Akureyrar (10 mín. akstur). Nemendur eru 170 í 1.—10. bekk, að meðaltali 17 nemendur í bekk. Við skólann er gott íþróttahús og sundlaug. Leikskóli er í næsta nágrenni. I sveitinni er öflugt félagslíf, svo sem leikfélag, kórar, karlaklúbbar, kvenfélög og ungmennafélag, þar sem nýjum félögum er vel tekið. Húsnæðishlunnindi í boði. Nánari upplýsingarumvinnuaðstöðu og kjör veita Anna Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 463 1137 vs., og 463 1127 hs. og Valdimar Gunnarsson skólanefndarmaður í síma 463 1325. Starfsmaður í fataverslun Starfsmaður, með þekkingu á efnum og fatnaði, óskast til afgreiðslu í fataverslun. Umsóknir, ásamt upplýsingum sem máli skipta, sendist til afgreiðslu Mbl. merktar: „Plús gen 354 — 5241", fyrir 10. júlí. AKUREYRARBÆR Grunnskólar Akureyrarbæjar Lundarskóli er einsetinn skóli með um 350 nemendur í 1 .—7. bekk en mun á næstu árum fjölga í u.þ.b. 480 nemendur þar sem bætast við 8., 9. og 10. bekkur. Lundarskóla vantar kennara í: Stöðu smíðakennara. I Lundarskóla er góð starfsaðstaða og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki. Upplýsingar um starfið veitir Þórunn Bergsdóttir, skólastjóri, í síma 462 4888 og heimasíma 466 1162. Upplýsingar um kaup og kjör veitir starfs- mannadeild Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknum skal skila á starfsmannadeild í Geislagötu 9 á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 17. júlí nk. Starfsmannastjóri. Síntl: 455 4000- Símbréf: 455 4 -Símbréf: 4554010-pósthólf:20 Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Staða heilsugæslulæknis Lausertil umsóknar staða heilsugæslulæknis við Fleilbrigðisstofnunina Sauðárkróki. Æskilegt er að viðkomandi hafi sérfræðiviður- kenningu í heimilislækningum. Umsóknarfrest- ur er til 1. ágúst nk. en staðan veitist eftir nánara samkomulagi. Umsóknir skulu sendasttil Birgis Gunnarssonar, framkvæmdastjóra stofnunarinnar, á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá Landlæknisembættinu. Upplýsingar veita Örn Ragnarsson, yfirlæknir heilsugæslusviðs, í síma 455 4000 og/eða Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri í síma 455 4020. —Reyklaus vinnustaður— Fræðslufulltrúi Spennandi starf á Húsavík Staða fræðslufulltrúa á Húsavík er laus til umsóknar. Um er að ræða nýtt starf forstöðu- manns mennta- og menningarmála. Fræðslu- fulltrúi fer m.a. með yfirstjórn leikskóla, grunn- skóla, tónlistarskóla og bókasafn. Óskað er eftir starfsmanni með reynslu af stjórnun og góða almenna menntun. Umsækjandi þarf að hafa mennun á rekstrarsviði og þekkingu og reynslu af mennta- og menningarmálum. Húsavík er vinalegur 2500 manna bær. Hér eru góðir skólar, alltfrá leikskólum upp í fram- haldsskóla. Hér er veitt öll grundvallarþjónusta og hér býr gott fólk. Húsavík er fjölskylduvænt samfélag. Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri eða bæjarritari í síma 464 1222. Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna á Húsavík, Ketilsbraut 9, 640 Húsavík, eigi síðar en 20. júlí. Bæjarstjórinn á Húsavík. FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA Líffræði Efnafræði Kennara vantar nú þegar í líffræði, heila stöðu, og efnafræði, hálfa stöðu. Launakjörfara eftir gildandi kjarasamningi. Upplýsingar um stöðurnar veita skólameistari í síma 896 1396 og aðstoðarskólameistari í símum 557 7847 og 898 8965. Skólameistari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.