Morgunblaðið - 04.10.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.10.1998, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landssöfnun SIBS til endurhæfíngar Minni árangur en ella vegna símabilunar ARANGUR í söfnun SÍBS fyrir áframhaldandi uppbyggingu á endurhæflngaraðstöðu á Reykja- lundi varð ekki sem skyldi á föstu- dagskvöldið vegna bilunar hjá Landssímanum, að sögn Ingólfs Garðarssonar söfnunarstjóra. Þá höfðu safnast tæplega 20 miljónir króna en í gærmorgun hélt söfn- unin áfram og var þá jafnframt verið að fara yfír allar tölur á ný. Ingólfur kvaðst ekki í vafa um að árangur hefði verið mun betri ef símakerfíð hefði ekki gefíð sig enda hefði tekist með beinni sjónvarps- útsendingu að ná upp stemmningu meðal landsmanna sem sýnt hefðu örlæti. Söfnunin stóð allan gærdag- inn og í dag verður svarað í söfnun- arsímann 800 6060 til klukkan 23. Vildi Ingólfur hvetja þá sem ekki náðu í gegn á föstudagskvöld til að bregðast við um helgina. Símakerf- ið komst í lag um ellefuleytið á fóstudagskvöldið og var þá tekið við framlögum til rúmlega 1 um nóttina. Ingólfur minnti jafnframt á að hægt væri að leggja inn á reikning söfnunarinnar í aðalbanka Búnaðarbankans, nr. 2600. Morgunblaðið/Kristinn YFIR 300 manns höfðu safnast saman við BT-versIunina í Hafnarfirði áður en hún var opnuð í gærmorgun. Ös við nýja BT- verslun í Hafnarfírði NÝ BT-verslun var opnuð við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði í gærmorgun en fyrir var slík verslun í Skeifunni í Reykjavík. Jón Jón Steingrímsson, for- stöðumaður BT-verslananna, sagði að yfir 300 manns hefðu verið í biðröð þegar opnað var klukkan 10 og greinilegt að menn kynnu að meta tilboð og gott verð. „Með nýju versluninni náum við enn betra innkaupsverði á tækjum með meiri magninn- kaupum og við nýtum betur ýmsa sameiginlega þætti í rekstrinum þegar verslanirnar eru orðnar tvær. Við ætlum okkur líka að gera áfram allt til að vera alltaf með lægsta verðið á þessum tækjum,“ seg- ir Jón Jón en BT-verslunin býður tölvur og raftæki og ým- is afþreyingartæki. Sett voru fram nokkur tilboð vegna opn- VIÐSKIPTAVINUM var hleypt inn í nýju BT-verslunina í hópum og lá mörgum á. unar nýju verslunarinnar og varð að hleypa viðskiptavinum inn í hópum. Var um 80 manns hleypt inn í senn. Jón Jón sagði því menn ekki hafa feng- ið nóg af áhugaverðum tilboð- um þegar raftæki væru annars vegar. Skemmtilegt að versla Tugur manna var við störf í versluninni í gærmorgun auk fjögurra öryggisvarða sem fengnir voru til að sjá um dyra- vörslu en venjulega verða starfsmenn 5 til 6. Húsnæði verslunarinnar er um 300 fer- metrar en til samanburðar má nefna að kringum 30 manns starfa í BT-versluninni í Skeif- unni sem er í um þúsund fer- metra húsnæði. „Fólk kann greinilega að meta gott verð og skemmtilega verslun og við reynum að setja fram vörur okkar þannig að bæði sé auðvelt og skemmtilegt að versla hjá áhugasömu starfs- fólki okkar,“ sagði Jón Jón Steingrímsson að lokum. Varnar- liðsþyrla sótti veik- an sjó- mann ÞYRLA frá Vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli sótti veik- an sjómann um borð í rúss- neskan togara aðfaranótt laugardags. Togarinn var um 330 sjómílur suðvestur af landinu og var eldsneytisvél send með þyrlunni auk ann- arrar þyrlu Bandaríkjamanna. Beiðni um hjálp barst Landhelgisgæslunni um hálf- átta á fostudagskvöld og eftir að læknar höfðu metið ástand sjúklingsins var ákveðið að sækja hann. Fór leiðangurinn af stað um miðnætti og lenti þyrlan með manninn í Reykja- vík undir hálffímm á laugar- dagsmorgni. Tveir meiddust í vél- hjólaslysi ÖKUMAÐUR og farþegi á vélhjóli slösuðust nokkuð þeg- ar vélhjólið lenti á bíl í Breið- holti í Reykjavík á fóstudags- kvöld. Vélhjólið var óskráð. Vélhjólið og bfll rákust sam- an og slasaðist ökumaður vél- hjólsins í andliti og á hönd. Einnig brotnuðu í honum tennur. Farþeginn meiddist á fíngri. Voru þeir fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur. Vélhjólið var svonefnt motocross-keppnishjól, óskráð og því án tryggingar til akst- urs í umferðinni, að sögn lög- reglunnar. Utanríkisráð- herra Rúss- lands sent heillaóska- skeyti í TILEFNI af fímmtíu og fímm ára afmæli stjómmála- sambands Islands og Rúss- lands í dag sendi Halldór As- grímsson utanríkisráðherra Igor S. Ivanov, nýskipuðum utanríkisráðherra Rússlands, heillaóskaskeyti á föstudag að því er segir í tilkynningu frá utanrfldsráðuneytinu. Þar sendir Halldór honum og rússnesku þjóðinni kveðju frá íslensku þjóðinni með bestu óskum um áframhald á traust- um samskiptum ríkjanna tveggja. Tvær russneskar sveitir í efsta sæti, Islendingar í miðjum hópi FJÓRAR umferðir hafa verið tefldar á ólympíu- skákmótinu í Kalmykíu, þegar þetta er skrifað. Islendingar hafa lækkað flugið, eftir góða byrj- un, og hafa nú 8V2 vinning í 16 skákum, og eru í 45.-53. sæti af 110 þátttökusveitum. Andstæð- ingar þeirra í 5. umferð, sem tefld var í gær, laujgardag, eru Perúmenn. I efstu sætum á mótinu eru nú eftirtaldar sveitir: 1.-2. Rússland 1 og 2, 12 vinninga; 3.-9. Úkraína, Kína, Þýskaland, Búlgaría, Frakkland og Holland, 11‘/2 v. hver þjóð; 10.-18. Rúmenía, Hvíta-Rússland, ísrael, Júgóslavía, Eistland, England, Moldavía, Ungverjaland, Litháen, 11 v. hver þjóð. Staða annarra Norðurlandaþjóða er þessi: 27. Svíþjóð, 10 v.; 52. Færeyjar, 8V2 v.; 57. Finnland, 8 v. Illa hefur gengið að afla frétta af mótinu á heimasíðu þess á Netinu og mátti skilja að tölvuþrjótar hefðu gert þeim grikk. Var Ka- sparov nefndur í því sambandi. Á heimasíðu al- þjóðaskáksambandsins er þó enn hægt að ná í fréttir, en skákir hafa ekki birst þar, eins og venja hefur verið. Alþjóðaskáksambandið hefur ákveðið að selja skákirnar, og er hægt að fá 1. umferðina gegn greiðslu, 19,95 Bandaríkjadala, eða nálægt 1.400 ísl. kr. Ætlunin virðist vera sú, að greiðsla þessa gjalds dugi fyrir öllum skákum. A______________________ ► l-64 Persónuleyndin treyst með nýrri útfærslu ►Breytingar fyrirhugaðar á gag- nagrunnsfrumvarpi heilbrigðisráð- herra. /10 Keiko ruglar orðræð- una um hvalveiðar ►Dr. Anne Brydon, mannfræð- ingur, hefur rannsakað hvemig þjóðemishyggja íslendinga birtist í stuðningi við hvalveiðar. /26 Við topp og botn, andiega og líkamlega ►Sigurvin Ólafsson, knattspymu- maður með ÍBV, fótbrotnaði mjög illa í slysi í Suðurey í sumar. /28 Við flugum á bjartsýninni ►í Viðskiptum/Atvinnulífí á sunnudegi er rætt við Daðeyju Daðadóttur 0 g Sigríði Einarsdótt- ur um fyrirtæki þeirra SD sjávar- ogjurtasmyrsl. /30 B_____________________ ► 1-16 Leitin að genunum ►Vísindamenn keppast við að kortleggja öll gen mannsins í lækn- insfræðilegum tilgangi, segir í forsíðugrein sem markaðar upphaf greinarflokks um Erfðir og upplýs- ingar. /1&6-9 Myndir úr mannsævi í tölvutæku formi ►Sveinn Bjömsson, bóndi á Vík- ingavatni, um atvik úr lífí sínu og af mönnum og málefnum. /2 Iðnó við Tjörnina ►Steingrímur Sigurgeirsson fjall- ar um nýjan veitingastað í sögu- frægu húsi. /4 C______________________ ►1-4 Landið og orkan IP FERÐALÖG ►1-4 Bændur á ferð og flugi ►Næsta vor bjóða Bændaferðir upp á 4 ferðir til Mið-Evrópu. /1 Svalbarði ►Land árstíðanna fímm. /2 E - !■ BILAR______________ ► 1-4 Breyttu Land Cruiser í Angmassalik ►Fjallasport hefur gert strand- högg á Grænlandi. /2 Reynsluakstur ►Sportlegur Honda Civic lang- bakur. /4 Fatvinna/ RAÐ/SMÁ ►1-16 Breytt fræðsla trúnaðarmanna ►Starfsmannafélög ríkisstofnana og Reylrjavíkurborgar sameinast um að byggja upp trúnaðarmenn sína undir kjörorðinu „Samstiga til framtíðar. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjömuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Skoðun 38 Otv./sjónv. 52,62 Minningar 39 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Flórídabréf 7b Bréftil blaðsins 48 Dægurtónl. 12b Idag 50 Mannl.str. 15b INNLENDAR FRETTIR: 2-4-8-BAK EIÍLENDAR FRÉTTIR: 1&6_ ——
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.