Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 27/9 - 3/10 ►JUDITH Ingólfsson fiðlu- leikari bar sigur úr býtum í einnig virtustu fiðlukeppni heims, Alþjóðlegu fiðlu- keppninni í Indianapolis í Bandaríkjunum, sl. sunnu- dag. Sigursins var getið í mörgum bandarískum fjöl- miðlum. Judith er dóttir Ketils Ingólfssonar, eðlis- fræðings og píanóleikara, og konu hans, tírsúiu. ►SKIPVERJAR á togaran- um Haraldi Böðvarssyni AK12 björguðu lífi ensks flugmanns þegar eins hreyfils flugvél hans hrap- aði í sjóinn 110 sjómflur suðsuðvestur af Reykjanesi. Flugmaðurinn segir að dæla sem dæla átti elds- Helmingsfjölgnn nýbúabarna MEIRA en helmingi fleiri nýbúaböm byrjuðu í grunnskólum Reykjavíkur í haust en í íyrra. Þau eru nú um 400 en voru 15-20 fyrir átta árum. Um hund- rað bamanna eiga íslenska foreldra en hafa búið alla ævi erlendis. Hlutafé Búnaðar- banka aukið ÁKVEÐIÐ hefur verið að auka hluta- fé Búnaðarbanka um 600 milljónir króna að nafnvirði. Starfsmönnum verður boðið til kaups 250 milljóna hlutafé á genginu 1,26, en afgangur- inn verður seldur almenningi. Eftir aukninguna verður hlutafé bankans 4,1 milljarður, þar af verða 85% í eigu ríkisins. Jámblendiverk- neyti úr varatönkum í aðalt- ank hafi bilað. ►ÞORMÓÐUR rammi-Sæ- berg hf. hefur sagt upp 43 starfsmönnum í rækju- vinnslu félagsins í Siglu- firði. Búist er við að fleiri rækjuvinnslur grípi til svip- aðra aðgerða á næstunni vegna aflasamdráttar. Ráð- gert er að 23 af starfsmönn- unum verði boðin endur- ráðning á breyttum vinnu- tíma. ►RtíSSNESKA fyrirtækið Technopromexport, verk- taki Landsvirkjunar við lagningu Búrfellslínu 3A, hafnaði f vikunni samnings- drögum Landsvirkjunar í launamálum erlendra starfsmanna fyrirtækisins. íslensk verkalýðsfélög segj- ast munu koma í veg fyrir að starfsmenn verði sendir úr landi áður en launamál þeirra hafa verið skýrð. smiðjunni lokað til áramóta SLÖKKT verður á báðum bræðsluofn- um Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga 20. október næstkom- andi ef boðuð skerðing á afgangsorku frá Landsvirkjun vegna lélegs vatna- búskapar á hálendinu í sumar kemst til framkvæmda. Tíminn fram að áramót- um verður notaður til viðhalds í verk- smiðjunni. 30 milljarða skuldalækkun GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir að með samtals 30 milljarða króna lækkun skulda sem stefnt er að á þessu ári og því næsta muni vaxta- greiðslur ríkissjóðs lækka um einn milljarða króna á ári þegar áhrif skuldalækkunarinnar verða komin að fullu fram. Geir kynnti á fimmtudag fjárlagafrumvarp næsta árs þar sem stefnt er að 1,9 milljarða króna tekju- afgangi. Schröder leitar sam- starfs við Græningja GERHARD Schröder, leiðtogi þýska Jafnaðarmannaflokksins (SPD), hóf óformlegar viðræður við fulltrúa Græn- ingja á fimmtudag eftir að flokkur hans bar sigurorð af kristilegum demókrötum í kosningunum á sunnudag. Schröder greindi frá því að jafnaðarmenn og Græningjar myndu kalla saman flokks- þing í lok mánaðar- ins til að fjalla um væntanlegan stjórn- arsáttmála. Hann kvaðst gera ráð fyr- ir að hljóta staðfest- ingu í embætti kanslara 27. þessa mánaðar og þar með lýkur 16 ára valdatíma Helmuts Kohls kanslara. Schröder sagði að þótt jafnaðarmenn myndu ganga til samstarfs við Græn- ingja myndi það ekki hafa nein áhrif á stefnuna í utanríkis- og efnahagsmálum. Hann fór til Parísar á miðvikudag og fullvissaði franska ráðamenn um að samstarf Frakklands og Þýskalands yrði eftir sem áður einn homsteina ut- anríkisstefnunnar. Fullvíst er talið að Wolfgang Scháu- ble, formaður þingflokks kristilegra demókrata, taki við af Kohl sem leiðtogi flokksins. Fjöldamorð Serba í Kosovo fordæmd ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti á fimmtudag yfirlýsingu þar sem fjöldamorð Serba í nokkrum þorp- um Albana í Kosovo um síðustu helgi voru fordæmd. Fréttir um fjöldamorðin vöktu hörð viðbrögð og Bandaríkjamenn lýstu því yfir að Slobodan Milosevic, for- seta Júgóslavíu, bæri að kalla hersveitir Serba frá Kosovo hið fyrsta. Aðeins með því móti fengi hann afstýrt því að herafli Atlantshafsbandalagsins gerði loftárásir á sveitir Serba í héraðinu. Gerhard SchrBder ►GENGI verðbréfa hefur lækkað verulega í kauphöll- um í Evrópu, Bandarikjunum og Japan sfðustu daga vegna ótta manna við mikinn efna- hagssamdrátt um allan heim. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) spáði þvf að hagvöxt- urinn í heiminum yrði aðeins 2% í ár, en hann var 4,1% á sfðasta ári. Sjóðurinn hvatti ríki heims til að búa sig und- ir að Iækka vexti til að fyrir- byggja efnahagskreppu. ► LEIÐTOGAR ísraela og Palestínumanna ákváðu á fundi með Bill Clinton Bandarfkjaforseta í Was- hington á mánudag að efna til leiðtogafundar f Banda- ríkjunum um miðjan mánuð- inn til að leysa deilu þeirra um frekari brottflutning fsraelskra hersveita frá Vest- urbakkanum. ► JIÍRÍ Lúzhkov, borgar- stjóri Moskvu, sagði í London á miðvikudag að Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og vest- rænum bönkum hefðu orðið á gífurleg mistök í lánveit- ingum sfnum til Rússlands, enda hefði fénu verið „kastað á glæ“. Vestrænu lánin hefðu farið beint í neyslu eða horf- ið með öðrum hætti. ► FATOS Nano, forsætisráð- herra Albaníu og leiðtogi Sósíalistaflokksins, tilkynnti afsögn sína á mánudag og Pandeli Majko, þrítugum framkvæmdasljóra flokksins, var falið að mynda nýja sljórn. Nano hafði ekki tekist að mynda starfhæfa stjórn eftir að hafa ákveðið að stokka upp f fimm flokka samsteypustjóm sinni. FRÉTTIR Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú? Þeir sem taka afstöðu, flokkað eftir aldri. 18-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-59 ára 60 ára og eldri Alþýðufl. 0 2'2% □ 5,5% □ 7,6% 11,5% 0 3,0% Framsóknarfl. I [30,5% I i 14,9% ~]16,8% 1321,4« F~ni9,9% Sjálfstæðisfl. I 150,0 1 49,0 L*%:: | 36,7 i 42,5 I J 36,3 Alþýðub.lag D 5'5% | 0,8% 0 5,3% | 2,9% 11,0% Kvennalisti 0.0* Q 2,3% | 0,7% 0,0% 0,0% Samf. jafn.manna D 7’6% [3WF3 24,3% ~T?| 22,9% 1 ■ .- 125,0% 28,9% Frjálslyndir 0,0% B 1,6% D 4,6% i 5,1% 1 5,0% Vinstraframboð i 4,3% 11,6% 0 5,3% 11,5% | 3,0% Annað 10,0% 0,0« 0,0% 0,0% | 3,0% Stuðningur við flokka eftir búsetu þeir sem taka afstöðu Reykjavík Reykjanes Landsbyggðin Allt landið Alþýðufl. □ 3,4% □7,4% 02,6% 04,1« Framsóknarfl. 1 16,8% SIÍ—116,9% 34,2%[.-Vi l 20,1% Sjálfstæðisfl. | |49.7% I 1 146.0 1 34.1% I I Alþýðub.lag jH 4,4% | 2,0% 02,6% D 3,1% Kvennalisti D 1,4% 0,0% | 0,4% 10,7% Samf. jafn.manna 25,2% RFHIU 21,0% 20,8% [ rT"77j 22,3% Frjálslyndir B 5,3% @4,1% 11,3% g 3,4% Vinstraframboð Í3,4% 12,0% i 3,5% i 3,1% Annað 10,5% 10,7% 10,4% 10,5% * Könnun Félagsvísindastofnunar HI á fylgi flokkanna Stjórnarflokkarnir með 80% fylgi yngstu kjósendanna SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur helmingsfylgi meðal yngstu kjósendanna, á aldrinum 18-24 ára, og Framsóknarflokkurinn rúmlega 30% fylgi. Samanlagt hafa stjórnarflokkarnir því 80% fylgi meðal ungra kjósenda en hin nýja samfylking jafnaðarmanna nýtur aðeins stuðnings hjá 7,6% þeirra, þótt reyndar styðji 7,7% til viðbótar flokkana, sem að henni standa, samanlagt 15,3%. Þetta er á meðal þess, sem kemur í ljós þegar sundurgreindar eru niður- stöður könnunar Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Islands á fylgi flokkanna. Könnunin var gerð fyr- ir Morgunblaðið 18.-29. septem- ber. Hafa ber í huga að þegar úrtaki könnunarinnar hefur verið skipt niður í hópa, t.d. eftir aldri, búsetu og kyni, verða skekkjumörk víðari en þegar aðeins er horft á fylgi flokkanna meðal allrar þjóðarinnar. Þessi sundurgreining gefur þó ákveðnar vísbendingar um það hvemig fylgi flokkanna skiptist eft- ir þjóðfélagshópum. Framsóknarflokkur með tæp 7% í Reykjavík Sé áfram horft á skiptinguna eft- ir aldurshópum má sjá að Sjálf- stæðisflokkurinn er einnig með helmingsfylgi í aldurshópnum 25-34 ára, en minna í öðrum ald- urshópum. Fylgi samfylkingar jafnaðarmanna er nokkuð jafnt í öðrum aldurshópum en þeim yngsta, mest þó hjá elzta fólkinu. Fylgi hugsanlegs framboðs til vinstri við samfylkinguna er mest í aldurshópnum 35-44 ára, eins og fylgi Frjálslynda flokks Sverris Hermannssonar. Þegar fylginu er skipt eftir kjör- dæmum kemur einnig í Ijós afar sterk staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík (49,7%) og á Reykjanesi (46%). Staða Framsóknarflokksins er að vanda sterkust í landsbyggð- arkjördæmunum (34,2%), en flokk- urinn er nú afar veikur í Reykjavík, með 6,8% fylgi. Samfylking jafnaðarmanna er með nokkuð jafnt fylgi á landsvísu, þó sýnu mest hjá Reykvíkingum (25,2%). Frjálslyndi flokkur Sverris sækir fylgi sitt að mestu leyti til suðvesturhomsins en væntanlegt vinstra framboð fær mest fylgi á landsbyggðinni. 46,8 Stuðningur við flokka eftir kyni Alþýðu- Frams,- Sjálfst.- Alþýðu- Kvenna- Samf. Frjáls- Vinstra- Annað flokkur flokkur flokkur bandalag listi jafn.manna lyndir framboð__________ Hvort mundir þú segja að þú værir stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar eða andstæðingur? Hlutfall þeirra sem svara Maí'98 Sept. '98 Fylgi Framsóknar og samfylk- ingar nokkuð jafnt eftir kynjum Gamalkunnugt mynstur kemur í ljós þegar litið er á það hvað karlar og konur hyggjast kjósa, hvað varðar fylgi Sjálfstæðisflokksins. Karlar kjósa flokkinn fremur (46,8%) en konur (38,3%). Fylgi Framsóknarflokks og samfylking- arinnar er hins vegar nokkuð jafnt hjá kynjunum. Mun íleiri karlar hyggjast hins vegar kjósa flokk Sverris Hermannssonar en konur, en væntanlegt vinstraframboð fær meira fylgi kvenna en karla. Sjálfstæðisflokkur sterkur hjá þeim sem ekki vinna úti Þegar fylgið er skoðað eftir starfsstéttum er búið að brjóta úr- takið niður í mjög smáa hópa og marktæknin orðin lítil. Þó vekur at- hygli að boðað vinstraframboð fær mest fylgi meðal sérfræðinga en ekkert hjá sjómönnum og bændum. Þá er Sjálfstæðisflokkurinn sterkur á meðal þeirra, sem ekki eru úti- vinnandi, væntanlega vegna mikils fylgis námsmanna við flokkinn. Fylgi Framsóknarflokks er að vanda langmest meðal bænda og sjómanna, en samfylkingin er sterkust meðal sérfræðinga. Stuðningsmenn stjórnarinnar 48,3%, andstæðingar 27,4% I könnuninni var spurt hvort menn væru stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar eða andstæðingar. Af þeim, sem svöruðu, sögðust 48,3% stuðningsmenn stjórnarinnar, 24,3% sögðust hlutlausir og 27,4% sögðust andvígir stjórninni. Stuðn- ingur við bæði stjórnarlið og stjórn- arandstöðu hefur aukizt lítillega frá síðustu könnun Félagsvísindastofn- unar í maí, á kostnað þeirra hlut- lausu. Könnun Félagsvísindastofnunar var gerð dagana 18.-29. september og náði til 1.500 manna slembiúr- taks úr þjóðskrá. Aldurshópurinn var kjósendur 18 ára og eldri. I könnuninni fékk Sjálfstæðisflokk- urinn fylgi 42,9% þeirra, sem af- stöðu tóku, Framsóknarflokkur 20,1%, samfylking jafnaðarmanna 22,3%, Alþýðuflokkurinn 4,1%, Frjálslyndi flokkurinn 3,3%, vinstra framboðið 3,1%, Alþýðu- bandalagið 3,1% og Kvennalistinn 0,6%. Skýrslu Félagsvísindastofnunar um könnunina má lesa í heild á Fréttavef Morgunblaðsins, www.- mbl.is/frettir/.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.