Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 33
32 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 33 plurgmtiMíilíiljí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR NÆSTA skref í einkavæð- ingu ríkisbankanna verð- ur sala hlutabréfa í Búnaðar- bankanum, en ætlunin er að bjóða út 600 milljóna króna hlut til að bæta eiginfjárstöðu hans. Starfsmönnum bankans verður boðinn 250 milljóna króna hlutur í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar þar um í árslok 1997 í tengsl- um við breytingu ríkisbank- anna í hlutafélög. Starfsmenn- irnir fá að kaupa bréfin í sam- ræmi við innra virði bankans, eða á genginu 1,26. Hlutur hvers starfsmanns er tak- markaður við 250 þúsund að nafnverði. Hlutafjársala til al- mennings nemur 350 milljón- um króna og verður gengið ákveðið fyrir lok októbermán- aðar, en þá á að hafa farið fram mat á verðmæti bankans. Einstaklingum verður heimilt að skrá sig fyrir 500 þúsund króna hlut að nafnverði, en sú upphæð verður skert í sam- ræmi við eftirspurn. Tilboða verður ekki leitað í ákveðinn hlut eins og gert var hjá Landsbankanum. Að hluta- fjárútboðinu loknu verður hlutafé Búnaðarbankans 4,1 milljarður króna og verða ríf- lega 85% í eigu ríkisins, en tæp 15% í eigu starfsfólks og almennra hluthafa. Viðskiptaráðherra og for- ráðamenn Búnaðarbankans Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. telja, að vel heppnað hlutafjár- útboð Landsbankans bendi til, að nú sé réttur tími til að hefja sölu hlutabréfa í Búnaðar- bankanum. Aður var ráðgert að salan færi fram eigi síðar en i febrúar næstkomandi. Hr- aður vöxtur bankans undan- farin tvö ár (56%) kallar líka á bætta eiginfjárstöðu hans og því óskaði bankaráðið eftir því að sölunni yrð flýtt. Að öðrum kosti hefði þurft að draga úr vexti bankans, því hann hefði ekki uppfyllt skilyrði um eig- infjárstöðu. Anægjulegt er, að einka- væðing ríkisbankanna skuli hafin og viðbrögðin við hluta- fjárútboði Landsbankans sýna, að almenningur hefur fullan hug á þátttöku í henni. Allt bendir til, að mikill áhugi verði á kaupum hlutabréfa í Búnaðarbankanum, hversu mikill verður ekki ljóst fyrr en gengi hlutabréfanna liggur fyrir. MÓTMÆLA- STAÐA ÖRYRKJA FLEST efnahagsteikn á þjóðmálahimni standa til hagsældar og stöðugleika í at- vinnulífi og almannakjörum: góður hagvöxtur, umtalsverð aukning kaupmáttar, lítið sem ekkert atvinnuleysi, stöðugt verðlag, aukin framleiðni og lækkun skulda ríkissjóðs. Samt sem áður gekkst átaks- hópur öryrkja fyrir þögulli mótmælastöðu við Alþingis- húsið þegar þingið hóf störf í fyrradag. Tilgangurinn var, að sögn talsmanna hópsins, að vekja athygli á því að mitt í velferðinni finnist fólk, er býr við óviðunandi aðstæður. Sem og á þeirri staðhæfingu hóps- ins að almannatryggingar hér á landi standist engan veginn samanburð við tryggingar í ríkjum með sambærilegar þjóðartekjur. Það gildir hið sama um ör- yrkja og aldraða að kjör ein- staklinga innan þessara hópa eru mjög mismunandi. Aldrað- ir og öryrkjar sem ekki eiga húsnæði til íbúðar og hafa ekki tekjur af atvinnu eða úr lífeyrissjóðum standa ótvírætt höllum fæti í samfélaginu. Endar ná m.ö.o. illa eða ekki saman hjá þeim, sem hafa ekkert umfram bætur trygg- inga til að standa undir húsa- leigu og annarri eðlilegri framfærslu. Barnmörg heimili með einni fyrii'vinnu í lág- launastarfi eiga og trúlega við ramman reip að draga. Við blasir að flest hefur gengið þjóðinni í haginn í tíð tveggja síðustu ríkisstjórna. Landsfeður skila góðu búi í lok líðandi kjörtímabils, sem bezt sést af því að almennur kaupmáttur hefur vaxið fjór- um sinnum hraðar hér en í samanburðarlöndum, ríkisbú- skapur er hallalaus og skuldir greiddar niður. Það er á hinn bóginn skylt að hlusta grannt á þá hópa, sem kunna að hafa borið skarðan hlut frá borði í efnahagslegri uppsveiflu þjóð- arbúsins. Það kann að vera tímabært að fram fari fagleg úttekt á stöðu þeirra í íslenzku samfélagi og þá fyrst og fremst aldraðra og öryrkja. NÆSTA SKREF I SÖLU RÍKISBANKA í náttúrudýrkun róm- antísku skáldanna verður föðurlandið sérstaklega nákomið og tilfinningin iyrir því með öðrum hætti en áður var eins og við sjáum í ættjarðar- og náttúrukveð- skap Jónasar sem er sprottinn af djúpri tilfinningu fyrir sögu og arfí en allt eru þetta leiðsögustefin í ljóðum skáldsins. Virðingin fyrir fornum skáldskap og gömlum menningarverðmætum fléttast inní hugmyndir skáldsins um endur- reisn fóðurlandsins og mikilvægt umhverfi þeirra sögulegu atburða sem hafa haft mótandi áhrif á af- stöðu fólksins og þjóðareðlið. For- tíðin var ekki umgjörð óupplýstra barbara eins og oft var ýjað að, heldur mikilvæg viðmiðun og allt að því goðsöguleg fyrirmynd eins og Jónas lýsir af innblásinni sannfær- ingu í ljóðum eins og Gunnars- hólma og íslandi. Sögulegt iands- lag var þannig ekki síður mikil- vægt en sú einstæða náttúra sem hvarvetna blasti við og minnti á sköpun, fegurð og guðlega návist. Án glæstrar fortíðar og sögulegrar vitundar sem hafði ávallt búið með þjóðinni í stórbrotinni og háska- samlegri náttúru sem var í senn áskorun og ímynd þeirrar fegurðar sem er forsenda allra mikilvægra lögmála væri framtíðarsýn fjölnis- manna nær óhugsandi. I þessari sýn má vænta þess að himnarnir vitji jarðarinnar og var það í fullu samræmi við rómantískt viðhorf Oehlenschlágers sem var einskon- ar persónugervingur rómantísku stefnunnar í Danmörku _ og raun- ar á Norðurlöndum. Til hans leitaði hugur Jónasar ekki sízt og hann snaraði þekktu kvæði hans með sínum hætti á íslenzka tungu, enda þurfti minna til en dálæti Oehlenschlágers á ís- lenzkri fornöld til að hreyfa viðkvæman streng í Jónasi. Áf öllu þessu má sjá að Jónas Hallgrímsson var dæmigert róm- antískt skáld og verður vart skilinn til fulls án þess það sé haft í huga, þótt hann hafi sogið í sig áhrif úr ýmsum áttum. Hann óf viðhorf sín inní þann vefnað sem var öllu öðru mikilvægari og hafði íslenskt þjóð- frelsi að uppistöðu, nýsköpun og viðreisn í atvinnulífi, ræktun tung- unnar og endurfæðingu þess forna anda sem mótaði gullöldina og einn getur ávaxtað arfleifð okkar í því framtíðarlandi fegurðar og far- sældar sem skáldið eygði í draum- um sínum og skáldskap. Hann sá fyrir sér fönix íslenzkra fyrirheita þar sem hann rís af öskunni og leggur bláfjallageim nýs þjóðlífs og óvæntra ævintýra undir vængi sína. Öll þessi hugsun átti rætur í hugmyndum Eggerts Ólafssonar þótt hann væri fremur fulltrúi upp- fræðingar en rómantísku stefnunn- ar, en rætur beggja fléttast saman í kvæðum og hugljómun þessara náskyldu brautryðjenda íslenskrar endurreisnar. Þannig mætti segja að upplýsing Eggerts sé jafnróm- antísk og rómantík Jónasar er ná- tengd nytjastefnu og boðskap upp- lýsingarinnar. Skilin eru ekki jafn- glögg og t.a.m. milli Jónasar og Magnúsar Stephensens. En list- fengi Jónasar og lýsandi einfald- leiki náttúrukvæðanna eru fremur í anda rómantískrar hugljómunar en þeirrar jarðbundnu nytjagleði sem einkennir þunglamaleg og óviss vængjatök Eggerts. Eggert var fyrirmynd þeirrar kynslóðar sem ól af sér Jónas og aðra fjölnismenn. Það má m.a. sjá af kvæði Benedikts Gröndals eldra um Jón Þorláksson þar sem hann segir í upphafserindum að þeir semji „ljóð með list“ eftir dauða Eggerts, en þá hafí landið verið svipt heillavon sinni eins og skáldið kemst að orði. Dálætið á Eggert á þannig djúpar rætur. Hugmyndaheimur rómantískra skálda á ekki sízt rætur í dulhyggu nýplatónista. Þeir fjölluðu um hinn eina guðlega kjarna sköpunar- verksins og forsendu allrar fegurð- ar. Hún er af guðdómlegum toga og ekki sízt fólgin í samræmi og hlutfallagóðum lögmálum tilver- unnar. Guðdómurinn býr í mystísk- um, óskilgreinanlegum kröftum. Það var því stutt í algyðistrú, enda var hún heillandi viðfangsefni margra helztu talsmanna róman- tísku stefnunnar og mörg skáld gengu dulhyggju algyðistrúar á hönd; trúðu á guðlegan kraft nátt- úrunnar. En ekki Jónas Hallgríms- son, þótt hann sæi verksummerki guðlegrar stjórnunar hvarvetna, bæði í lífi mannsins og náttúrunni sjálfri. En þessi guðlegi kraftur var ekki sá miskunnsami faðir sem var höfundur tilverunnar og stjórn- andi. Faðir og vinur alls sem er var persónulegur guð sem hægt var að snúa sér til, lofsyngja með góðum árangri og tilbiðja. Hann er í senn faðir og föðurímynd; skapari og stjórnandi. En hann er umfram allt vinur. En enginn ópersónulegur nátturukraftur eða blind orka. M. HELGI spjall REYKJAVIKURBRÉF AÐ ER MIKILVÆGT að fólk átti sig á grund- vallarbreytingu, sem orðið hefur í umræðum um sjávarútvegsmál og fiskveiðistjórnun á þessu ári. Allan þennan áratug, hefur þjóðirt skiptzt í tvær fylkingar, sem tekizt hafa á, stundum harkalega, þar sem annar hópur- inn hefur haldið fast við óbreytt kerfi að mestu en hinn krafizt grundvallarbreyt- inga. Þessar umræður hafa lengi verið í þeim farvegi, að fáir hafa haft trú á, að hægt væri að ná málamiðlun, sem allir gætu verið sæmilega sáttir við. Meginatriðin í þessum deilum hafa verið skýr. Alþingi setti 1984, lyrir fjórtán árum, lög þar sem sérstaklega er tekið fram, að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar. Ut- gerðarfyrirtækin hafa fengið úthlutað kvóta endurgjaldslaust, sem þau hafa getað stundað viðskipti með sin í milli. Vegna þessarar úthlutunar og viðskipta hefur töluverður hópur fólks eignast milljarða. Morgunblaðið hefur lýst þessu kerfi sem einni mestu eignatilfærslu í sögu íslenzku þjóðarinnar. Morgunblaðið hefur verið í fararbroddi þeirra, sem hafa krafizt þess, að handhafar kvótans greiddu eiganda kvótans, þjóðinni, gjald fyrir réttinn til þess að stunda fiskveiðar. Þegar það gjald hefði verið greitt gæti enginn gagnrýnt, að veiði- heimildir gengju kaupum og sölum á milli útgerðaraðila. Þessum sjónarmiðum hafa talsmenn út- gerðarmanna og stuðningsmenn þeirra mótmælt af hörku. Nú þegar rúmlega hálft ár er til kosninga og útgerðarmenn hafa gert sér grein fyrir, að þetta mikla deiluefni getur orðið eitt helzta átakamálið í kosn- ingabaráttunni hafa þeir hafið stórfellda auglýsingaherferð til þess að kynna sín sjónarmið og sinn málstað og ekkert nema gott um það að segja. Grundvallarbreytingin, sem orðið hefur síðustu mánuði í þessum umræðum er hins vegar sú, að í stað þess að talsmenn hinna andstæðu fylkinga hafa hafzt við í skotgröf- um árum saman án þess að gerð væri til- raun til þess að jafna deilurnar, hefur nú hafizt markviss leit að lausn, sem viðunandi sátt getur tekizt um. Að vísu ber að minn- ast þess, að í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Álþýðuflokks á árunum 1991 til 1995 var starfandi svonefnd tvíhöfðanefnd, sem gerði tilraun til að samræma þau mismun- andi sjónarmið, sem uppi voru. Á grundvelli tillagna þeirrar nefndar var tekið upp svo- nefnt þróunargjald, sem talsmenn Álþýðu- flokksins á þeim tíma héldu fram, að væri fyrsta skref í átt til veiðileyfagjalds. Þegar frá leið kom í ljós að svo var ekki og þær aðgerðir, sem þáverandi ríkisstjórn greip til urðu á engan hátt til þess að draga úr deilum um afleiðingar kvótakerfisins. Þótt margir hafi haft uppi efasemdir um, að hægt væri að ná samkomulagi um þessi ágreiningsmál má segja sem svo, að úr því að tekizt hafi að semja frið á Norður-ír- landi og í Bosníu ættum við íslendingar að vera menn til þess að finna lausn á því mikla deilumáli, sem varpað hefur skugga á þjóðfélag okkar í áratug. Hin markvissa leit að lausn fer fram með ýmsum hætti. Alþingi kaus snemma sum- ars svonefnda auðlindanefnd, sem þing- menn Alþýðubandalags gerðu tillögu um í ársbyrjun, að yrði sett á fót og stjórnar- flokkarnir tóku þegar undir. En jafnframt skiptir máli, að nýjar hugmyndir komi fram, sem gætu orðið þáttur í þessum um- ræðum. I þessu ljósi sýnist Morgunblaðinu að beri að skoða stefnuræðu Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra á Alþingi sl. fimmtudag, sem vakið hefur bæði athygli og umræður vegna þeirra sjónarmiða, sem hann setti þar fram um frekari þátttöku þjóðarinnar í útgerð en ráðherrann sagði m.a.: „Hins vegar ætti að skoða vandlega, hvort hið opinbera, geti í samvinnu við for- ráðamenn í útvegi beitt sér fyrir aðgerðum, sem leiða mundu til þess að enn fleiri ís- lendingar, jafnvel stærsti hluti þjóðarinnar, tækju beinan þátt í útgerð.“ Þessi ummæli þóttu að vonum forvitnileg og í samtali við Morgunblaðið í dag, laugar- dag, þegar þetta Reykjavíkurbréf er skrif- að, lýsir Davíð Oddsson þeim viðhorfum, sem að baki liggja m.a. með þessum orðum: „Við sem förum fyrir rfldsstjóminni teljum, að í öllum meginatriðum hafi fiskveiði- stjórnunarkerfi okkar verið hagstætt að því leyti að sjávarútvegsíyrirtækin hafa náð að hagræða og styrkjast. Á hinn bóginn er vit- að, að meðal þjóðarinnar hefur verið óá- nægja með vissa þætti og ákveðin tor- tryggni verið uppi. Eg hef talið að það væri þýðingarmikið að svo mikilvæg atvinnu- grein eins og sjávarútvegurinn er, nyti al- menns trausts í landinu og um hana yrði friður...Fyrir mér vakir að við náum að halda sátt um sjávarútveginn; hann nái að eflast eins og hann hefur verið að gera á undanförnum árum, tortryggni verði eytt og menn telji að sanngjarnrar lausnar hafi verið leitað." Og forsætisráðherra segir ennfremm- um þau almennu viðhorf, sem liggja að baki ummælum hans í stefnuræðunni: „Það er ómögulegt að hafa mikla ósátt um þessa at- vinnugrein og ég tel mig bera nokkra skyldu til þess meðan ég gegni þessu starfi að skoða alla möguleika á að skapa meiri sátt um hana án þess þó, að þeir kostir, sem við teljum að núverandi kerfi búi við hverfi." Það er mikilvægt að hafa í huga, að þrír stjórnmálamenn öðrum fremur hafa á hin- um pólitíska vettvangi verið talsmenn þess fiskveiðistjórnunarkerfis, sem við búum við, þ.e. þeir Davíð Oddsson, Halldór Ás- grímsson og Þorsteinn Pálsson. Þegar for- sætisráðherra með þeim ummælum, sem hér hefur verið vitnað til lýsir vilja sínum til að „skoða alla möguleika á að skapa meiri sátt“ um sjávarútvegsstefnuna markar það ákveðin þáttaskil í þessum umræðum. Hall- dór Ásgrímsson hefur ítrekað á undanförn- um misserum lýst vilja til að horfa til nýrra átta og eins og áður hefur verið vakin at- hygli á hér í Reykjavíkurbréfi hefur Þor- steinn Pálsson einnig talað á þann veg. Þetta þýðir, að það eru að byrja að skap- ast pólitískar forsendur fyrir sáttargjörð um þetta mikla deilumál og það skiptir auð- vitað sköpum. Vilji þjóðarinnar í þessu máli er ákaflega skýr. Hver skoðanakönnun á fætur annarri hefur sýnt, að u.þ.b. tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru fylgjandi veiðileyfagjaldi. I þeirri afstöðu felst krafa þjóðarinnar um, að hún fái til sín sann- gjarnan hluta þess afraksturs, sem við höf- um af auðlindinni. Nú er hins vegar komið að því að finna nákvæmlega útfærða lausn. I því felst, að það þurfa ekki bara að vera fyrir hendi póli- tískar forsendur til breytinga á núverandi kerfi hjá þeim, sem hafa verið málsvarar þess á Alþingi og í ríkisstjóm. Andstæðing- ar óbreytts kerfis þui-fa líka að vera tilbúnir að stíga skref af sinni hálfu. Þessar umræð- ur snúast um að finna sanngjarna mála- miðlun en ekki að knýja annan aðilann til uppgjafar. Sú málamiðlun verður hins veg- ar að byggjast á því, að siðferðis- og rétt- lætiskennd þjóðarinnar sé ekki misboðið. Um það hefur þetta mál snúizt hér í Morg- unblaðinu frá upphafi en ekki um peninga. HlutaQár- afsláttur I MORGUNBLAÐ- inu í dag, laugardag, útskýrir Davíð Oddsson nánar hvað hann átti við í stefnuræðu sinni og segir, að „ríkisvaldið geti beitt sér með formlegum og óformleg- um hætti fyrir því, að almenningur eignist í auknum mæli hlut í sjávarútvegsfyrirtækj- um. Hann segir mikilvægt að skapa meiri sátt um sjávarútveginn og telur koma til greina að ríkisvaldið stuðli að slíkri þróun með því að bjóða sérstakan afslátt vegna hlutafjárkaupa." Og ennfremur segir forsætisráðherra, „að sú hugmynd, sem hann setti fram í stefnuræðu á Alþingi hefði þroskast í kjöl- far vel heppnaðrar sölu á bréfum í Lands- banka íslands. Þetta væri ekki að öllu leyti ný hugmynd, en salan á Landsbankanum sýndi, að það væri hugsanlega jarðvegur fýrir hana núna.“ Laugardagur 3. október Og jafnframt: „Menn eru að tala um að leggja á veiðileyfagjald en segja jafnframt að hagur sjávarútvegsins sé þannig núna, að veiðfleyfagjald hlyti að vera afar lágt. Þeir búast hins vegar við því, að í framtíð- inni verði sjávarútvegurinn gríðarlega öfl- ugur og þar myndist gríðarlegur gróði. Þá veltir maður fyrir sér, hvort ekki sé hægt að stuðla að því, að eignadreifingin í sjávar- útvegi verði mun meiri en nú er og í beinni tengslum við almenning þannig að ef hagur gi'einarinnar batni svo mjög, sem margir spá, flæði sá hagnaður fljótt út í þjóðfélag- ið.“ Þegar hlutabréf í Landsbankanum voru seld kom fram, að starfsmönnum bankans var boðið að kaupa hlutabréf á lægra verði en almenningur átti kost á. Miðað við þá stefnu, sem verð hlutabréfa í bankanum hefur tekið er ljóst, að starfsmenn hans geta nú þegar hagnazt umtalsvert á því að selja bréfin strax. Á sama tíma fór fram hlutafjárútboð í Tryggingamiðstöðinni hf. Það fyrirtæki er að stærstum hluta í eigu Sigurðar Einarssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Tryggingamiðstöðin ákvað að bjóða starfsmönnum sínum hlut í fyrirtækinu á lágu verði miðað við mark- aðsverð. Þeir geta líka hagnazt umtalsvert á því að selja bréf sín strax, ef þeim sýnist svo. I Bandaríkjunum er þessi aðferð notuð í stórum stfl í fyrirtækjum og litið á hana, sem hluta af ráðningarsamningum starfs- manna. Þar eru starfsmenn ráðnii' til starfa fyrir ákveðin laun en að auki fá þeir heimild til að kaupa hlutabréf í viðkomandi fyiTr- tæki á ákveðnu verði innan ákveðins tíma. Ef markaðsverð hlutabréfa í fyrirtækinu er mun hærra en verðið, sem þeir hafa heimild til að kaupa á geta þeir keypt og selt, ef þeim sýnist svo og hagnazt umtalsvert. Þessi aðferð til að tengja kjör starfsmanna við gengi fyrirtækjanna á við hvaða starfs- manns sem er, hvort sem hann er dyra- vörður eða forstjóri. Þetta er m.a. skýring- in á þeim gífurlegu launum, sem bandarísk- ir forstjórar eru á. Stundum eru laun þeirra að mestu greidd með þessum hætti, þ.e. með heimild til hlutabréfakaupa á ákveðnu verði. Takist þeim að stýra fyrirtækinu á þann veg, að verð á hlutabréfum þess hækki, geta þeir sjálfir hagnazt um miklar fjárhæðir. Það er til fyrirmyndar að Sigurður Ein- arsson útgerðarmaður og félagar hans hafa tekið upp þetta fyrirkomulag í Trygginga- miðstöðinni hf. Þeir þurftu ekki að gera það. Þeir voru ekki knúnir til þess. Þeir hefðu getað tekið þennan hagnað sjálfir. En þeir tóku meðvitaða ákvörðun um að gera það ekki heldur láta hagnaðinn eða vonina um hagnað ganga til starfsmanna fyrirtæk- isins. Þetta er fordæmi, sem fleiri einkafyr- irtæki mættu fylgja og mundi áreiðanlega skila sér í hagstæðari rekstri en ella. Eigendur einkafyrirtækja geta augljós- lega tekið ákvörðun sem þessa. Það er hins vegar umdeilanlegra, hvort hægt er að selja hlutabréf í ríkisfyrirtæki með þessum hætti. Sumir draga í efa að það sé lögum samkvæmt. Þegar ákveðið var að selja starfsfólki Landsbankans hlutabréf í bank- anum á lægra verði kom strax fram gagn- rýni á þá aðferð. Spurt var hvers vegna eig- andi bankans, almenningur í landinu, fengi ekki að kaupa hlutabréf í bankanum á sömu kjörum og starfsmenn. Það má ef til vill líta á þá ákvörðun í ljósi þess, sem sagt var hér að framan, að þetta væri hluti af kjara- samningum starfsmanna bankans, að þetta væri aðferð til þess að greiða þeim kjara- bót. I því sambandi er ástæða til að benda á, að heimild til kaupa á hlutabréfum á lægra verði er ekki örugg kjarabót. Svo að dæmi sé tekið má nefna, að ekki eru mörg misseri frá því að gengi hlutabréfa í Islandsbanka var töluvert fyrir neðan 1. Hefðu starfs- menn bankans á þeim tíma haft heimild til að kaupa hlutabréf á nafnverði sem hluta af kjarasamningum hefðu þeir ekki hagnazt á því heldur þvert á móti. Þótt verð hlutabréfa í Landsbanka ís- lands sé nú þannig, að starfsmenn gætu hagnazt á því að selja bréf sín þegar í stað getur staðan breytzt ótrúlega fljótt. Hvers vh-ði væri Landsbankinn t.d. ef heimski'eppa riði yfir, með öllum þeim af- leiðingum, sem hún gæti haft á Islandi? Hins vegar er ljóst, að með sölu hlutabréf- anna í Landsbankanum til starfsmanna á lægra verði hefur teningunum verið kastað. Nú verður það sama gert með hlutabréf í Búnaðarbankanum. Vilji einhverjir úr hópi hinna almennu borgara draga í efa, að þetta sé lögmæt aðferð, þegar um ríkisfyrii'tæki er að ræða, er ljóst að málið verður að fara fyrir dómstóla. Ummæli Davíðs Oddssonar í Morgun- blaðinu í dag, laugardag, um sölu á hluta- bréfum í sjávarútvegsfyrirtækjum með sér- stökum afslætti verða tæpast skilin á annan veg en þann, að með því sé átt við að al- menningur eigi kost á að kaupa hlutabréf í fyrirtækjunum undir markaðsverði. Ef það er rétt skilið felst í því að með því mundi al- menningur endurheimta hluta eignar sinn- ar í auðlindinni, sem afhentur hefur verið fámennum hópi án endurgjalds. Ef 260 þús- und Islendingar kaupa hlutabréf í útgerð- arfyrirtækjum með afslætti, sem þeir geta, ef þeim sýnist svo selt aftur á markaðs- verði, verður ekki betur séð en slík endur- greiðsla felist í þessari aðferð. Auðvitað má segja, að sú hætta sé fólgin í þessari leið, að hagsmunir kynslóða framtíðarinnar verði fyrir borð bornir vegna eignafestu á auð- lindinni. Að smátt og smátt yrði slík sam- þjöppun hlutabréfaeignar í útgerðarfyrir- tækjum og réttindi þeirra til nýtingar auð- lindarinnar með þeim hætti, að óviðunandi verði, þegai' fram líða stundir. Að þessu þarf að huga í þessum umræðum. En - þetta er athyglisverð hugmynd. Hún minnir að sumu leyti á umræður Geirs Hallgi-ímssonar, þáverandi borgarstjóra í Reykjavík, og Eyjólfs Konráðs Jónssonar, þáverandi ritstjóra Morgunblaðsins, um að einkavæða Bæjarútgerð Reykjavíkur með því að senda hverjum einasta borgarbúa hlutabréf í Bæjarútgerðinni, sem þeir gætu svo átt eða selt eftir því, sem hverjum hent- aði. Þá var ekki jarðvegur fyrir svo róttæk: ar hugmyndir innan Sjálfstæðisflokksins. í þessu sambandi má einnig minna á hug- myndir Morgunblaðsins um að senda öllum Islendingum hlutabréf í auðlindinni en þær hafa ævinlega verið taldar óraunsæjar og óframkvæmanlegar enda kannski ósann- gjarnar gagnvart komandi kynslóðum. Nú er öldin önnur og hlutabréfamarkaður- inn hefur þróazt ört. Þess vegna er alls ekki óhugsandi, að eignatilfærsla til almennings á ný sé framkvæmanleg með einhverjum hætti, sem samkomulag gæti orðið um. Það eru uppi ýmsar tillögur um breyting- ar á núverandi kerfi í sjávarútvegsmálum. Sumir vilja taka upp greiðslu fyrir réttinn til þess að nýta fiskimiðin eins og Morgun- í HLJÓMSKÁLAGARÐI blaðið hefur hvatt til. Aðrir vilja bjóða veiðiheimildir upp þannig að hæstbjóðandi fái. Enn aðrir vilja taka upp svonefnt afla- gjald. Sumir telja eðlilegt að útgerðin borgi alla vega þann kostnað, sem þjóðfélagið hefur af útgerðinni. Nýjasta hugmyndin er sú, sem forsætisráðherra hefur sett fram. Það er sjálfsagt að skoða allar þessar til- lögur með opnum huga í leit að lausninni. Davíð Oddsson segir í Morgunblaðinu í dag, laugardag, að hann líti ekki á þessa hugmynd sem endanlega lausn, hins vegar telji hann ástæðu til að ræða hana og kanna gaumgæfilega allar hliðar málsins. Alla vega er ljóst, að hún er forvitnileg og þess virði, að um hana fari fram frekari umræður. Hagsmunir útgerð- arinnar EN HVERJIR eru hagsmunir útgerð- arinnar? Hvers vegna ætti útgerðin yfirieitt að vera til viðræðu um veiði- leyfagjald? Endurgi'eiðslu kostnaðar? Sölu hlutabréfa undir markaðsverði? O.s.frv.? Hagsmunir útgerðarinnar af því að vera til viðræðu era augljósir. I fyrsta lagi fer ekki á milli mála, hvert viðhorf almennings er. Það hefur komið fram aftur og aftur í skoðanakönnunum. Hver sá, sem talar við fólk víðs vegar um landið, hvort sem er á suðvesturhorninu eða í sjávai'plássunum allt í kringum landið finnur djúpa reiði al- mennings vegna þeirrar gífurlegu eignatil- færslu, sem orðið hefur í skjóli kvótakerfs- ins. Útgerðin getur ekki til lengdar verið í sambúð með öðra fólki við þessar aðstæður. Þess vegna eru það hagsmunir útgerðar- innar að leita lausnar ekki síður en annarra. I öðra lagi fer ekki á milli mála, að út- gerðarmenn telja það mestu hagsmuni sína, að viðskipti með veiðiheimildir verði frjáls og að á þeim verði engar hömlur. Þeir geta öðlast það frelsi með því að fallast á sann- gjarna og eðlilega greiðslu fyrir veiðiheim- ildirnar, í hvaða formi, sem sú greiðsla kemur. Þegar sú greiðsla hefur farið fram eiga þeir að hafa fullt frelsi til viðskipta með veiðiheimildir eins og hverjum og ein- um hentar. Með sama hætti og Sigurður Einarsson, einn umsvifamesti útgerðarmaður landsins telur það henta sínum hagsmunum að selja hlutabréf í Tryggingamiðstöðinni til starfs- manna fyrirtækisins veralega undir mark- aðsverði og mun áreiðanlega uppskera öfl- ugra, sterkara og arðsamara fyrirtæki, mundu íslenzkir útvegsmenn ganga margefldir til leiks, ef þeir hefðu sjálfir tek- ið þátt í að skapa frið um atvinnugrein sín, að ekki sé talað um, ef stór hluti þjóðarinn- ar væri orðinn meðeigandi að fyrirtækjum þeirra. Morgunblaðið/Ásdís „Nú er hins vegar komið að því að finna nákvæmlega útfærða lausn. I því felst, að það þurfa ekki bara að vera fyrir hendi pólitískar forsendur til breytinga á nú- verandi kerfi hjá þeim, sem hafa verið málsvarar þess á Alþingi og í ríkisstjórn. And- stæðingar óbreytts kerfis þurfa líka að vera tilbúnir til að stíga skref af sinni hálfu. Þessar umræður snúast um að finna sann- gjarna málamiðl- un en ekki að knýja annan aðil- ann til uppgjaf- ar.Sú málamiðlun verður hins vegar að byggjast á því, að siðferðis- og réttlætiskennd þjóðarinnar sé ekki misboðið. Um það hefur þetta mál snúizt hér í Morgunblaðinu frá upphafi en ekki um peninga.“ ~¥
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.