Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Eina leiðin að vinna
með félögunum
„ÉG var allan tímann
sannfærður um að
eina leiðin til að hug-
myndin gengi upp
væri með samvinnu
við þessa utanaðkom-
andi aðila fremur en
alfarið innan háskóla-
samfélagsins. Ekki
væru aðrar leiðir fær-
ar til að tryggja fjár-
mögnun og brautar-
gengi stofnunarinnar
í framtíðinni. Nú hef-
ur reynslan sýnt fram
á að þarna var valin
rétt leið,“ segir Guð-
mundur Magnússon, prófessor og
formaður byggingarnefndar
Endurmenntunarstofnunar.
Hann var rektor Háskóla íslands
þegar stofnuninni var komið á
fót.
Guðmundur segist á sínum
tíma hafa fylgst með því hvað
var að gerast í nágrannalöndun-
um í tengslum við endurmennt-
un og samstarf háskóla og at-
vinnulífs. „Mér tókst að koma
þvi inn 1 háskólalög að háskólinn
gæti stofnað fyrirtæki með aðil-
um úr atvinnulífinu. Með því
skapaðist grundvöllur fyrir
Tæknigarð og Endurmenntun.
Endurmenntun hefur getað nýtt
sér kosti markaðarins, aflað fjár
á almennum markaði og tekið
skjótar ákvarðanir án tillits til
annarra hagsmuna en eigin.
Annar liður í velgengninni felst
án efa í mannavalinu. Við þurft-
um að velja mann-
skap með hæfíleika
til að starfa í há-
skólasamfélaginu,
frumkvæði, dugnað
og hagsýni til að
starfa í sjálfstæðri
stofnun. Ég held að
bæði Margrét og
sljórn Endurmennt-
unarstofnunar hafí
sýnt þann hæfíleika í
verki. Með því að
færa rök fyrir okkar
máli höfum við líka
notið velvilja HI og
þeirra rektora sem
hafa komið á eftir mér,“ sagði
Guðmundur.
Hann segir margar samhang-
andi ástæður fyrir því hversu
byggingarframkvæmdirnar hafi
gengið hratt og vel fyrir sig.
„Ein ástæðan felst í því að við
höfðum verið að tala um húsið f
átta ár áður en framkvæmdir
hófust. Húsið hafði færst hring-
inn í kringum Tæknigarð og var
aftur komið á byijunarreit.
Heimavinnan hafði verið unnin
og því var hægt að ganga beint
til verks. Hönnunarvinnan tók
þijá mánuði og sjálfar bygging-
arframkvæmdirnar sex mánuði,"
segir Guðmundur en nefnir að
fleira hafi auðvitað komið til en
langur undirbúningstími. Saman
þurfi að fara gott skipulag, ná-
kvæm hönnun, góðir verktakar,
góð byggingarstjómun og fé til
framkvæmda.
Frumkvöðlarnir
geta verið stoltir
„ÉG tel að BHM og
aðrir frumkvöðlar að
stofnun Endurmennt-
unarstofnunar geti
verið stoltir af frum-
kvæðinu. Hvað mig
sjálfa varðar er ég á
12 ára ferli mi'num
hjá BHM hvað
ánægðust með að
hafa komið að stofn-
un Endurmenntunar-
stofnunar," segir
Guðríður Þorsteins-
dóttir skrifstofustjóri
í heilbrigðisráðuneyt-
inu og fyrrverandi
framkvæmdastjóri BHM.
Guðríður tekur fram að BHM
hafi ekki aðeins verið stéttarfé-
lag. „Hlutverk bandalagsins var
að gæta hagsmuna háskólamennt-
aðra manna og háskólans í víðum
skilningi. Einn Iiður í starfí
bandalagsins og aðildarfélaganna
var að stuðla að endurmenntun.
Ekki var hins vegar nægilega
mikið framboð af endurmenntun.
Það þótti því álitlegur kostur að
efna til samstarfs við önnur félög
og stofnanir eins og gert var á
sinum tíma með stofn-
un Endurmenntunar-
stofnunar."
Hún segir að eins
og eðlilegt sé hafi ver-
ið boðið upp á fá nám-
skeið til að byija með.
„Fljótlega fór boltinn
að rúlla. Starfsemin
hefur farið ört vax-
andi, enda hefur að-
sóknin verið ótrúlega
góð. Stofnunin hefur
orðið sjálfbjarga og
aflað sér virðingar
hvarvetna í þjóðfélag-
inu. Margrét Bjöms-
dóttir, sem var forstöðumaður
fyrstu 15 árin, á tvímælalaust
stóran hlut í því,“ sagði hún.
Guðríður hefur sjálf reynslu af
því að silja námskeið Endur-
menntunarstofnunar. „Ég hef
farið á nokkur námskeið og líkað
mjög vel. Mér hefur virst álit
annarra svipað,“ segir hún og
fram kemur að henni þyki já-
kvætt að sóst sé eftir leiðbein-
endum úr háskólanum og at-
vinnulífinu. Með því náist víðara
sjónarhorn.
Vænt um
öran vöxt
„MÉR þykir einna
vænst um hversu
vöxturinn hefur verið
ör undanfarin ár.
Maður hélt fyrir 3 til
4 ámm að nú færi að
hægja á fjölgun nem-
enda og námsfram-
boði. Ekki hefur borið
á því enn og neinend-
um hefur fjölgað um
2.000 á milli ára síð-
ustu tvö ár. Alls hafa
12.000 nemendur
skráð sig á námskeið
nú. Nánast tvöföldun
hefur orðið á nem-
endafjölda á fjórum árum. Grósk-
an er svona gífurleg," segir Valdi-
mar K. Jónsson, prófessor og
stjórnarformaður Endurmenntun-
arstofnunar.
Valdimar leynir því ekki að
kraftaverk hafi verið unnið með
Endurmenntunarstofnun á 15 ár-
um. Enginn eigi stærri hlut í vel-
gengninni en Margrét Björnsdótt-
ir, fráfarandi forstöðumaður.
Margrét haf! verið lífið og sálin í
Endurmenntunarstofnun frá upp-
hafi. Sjálfur segist Valdimar bæði
hafa reynslu af því að sifja á nám-
skeiði og leiðbeina á námskeiði á
vegum Endurmenntunarstofnun-
ar. „Mér hefur fundist alveg sér-
staklega skemmtilegt og raunar
skemmtilegra en að kenna í sjálf-
um Háskólanum að kenna á nám-
skeiðum á vegum Endurmenntun-
arstofnunar. Nemendur hafa
sjálfir borgað sig inn á námskeið-
in og gera því meiri kröfúr til
kennarans og sjálfra
sín en ella. Þarna
kemur saman breiður
hópur nemenda úr
öllu þjóðfélaginu og
því fer ekki hjá því að
kennarinn græði líka
á reynslu og þekkingu
nemendanna," segir
hann.
„Við höfum verið
sérstaklega heppin
með kennara í lengra
náminu samhliða
starfi. Ég efast ekki
um að áhugi kennar-
anna hefur haft um-
talsvert að segja um vinsældir
námskeiðanna," segir Valdimar
og tekur fram að húsnæðisskort-
ur hafi verið aðalvandi stofnunar-
innar hin sfðari ár. „Að mfnu viti
var húsnæðisvandinn farinn að
há stofnuninni. Við höfum verið
að beijast fyrir því að fá að
byggja í 8 ár. Eftir allan þennan
þvæling í kerfinu tók svo ekki
nema 6 mánuði að koma húsinu
upp. Ég er auðvitað stoltur yfir
hinu nýja húsnæði. Húsið er
glæsilegt, bjart og búið öllum
kostum góðs kennsluhúsnæðis,"
segir hann og er að lokum spurð-
ur að því hvort húsnæðið sé nógn
stórt. „Húsnæðið er nógu stórt í
augnablikinu. Miðað við hinn öra
vöxt eru hins vegar horfur á því
að við sprengjum húsnæðið utan
af okkur á næstu tveimur árum.
Við eigum væntanlega eftir að
halda áfram að njóta góðs af nær-
veru HI við stofnunina hvað varð-
Fjarkennslan helsti
vaxtarbroddurinn
„ÖGRUNIN felst fyrst
og fremst í því að
halda hinum öra
vexti. Nemendafjöld-
inn jókst úr 7.000 árið
1995 í 10.000 á síðasta
ári og nú gerir spá
okkar ráð fyrir að
nemendur verði um
12.000 á árinu,“ segir
Kristín Jónsdóttir
nýráðin forstöðumað-
ur Endurmenntunar-
stofnunar.
Kristín vekur at-
hygli á því hversu
mikilvægt sé fyrir
Endurmenntunarstofnun að haida
nánum tengslum við atvinnulifið.
„Við verðum að fylgjast með og
vera tilbúin til að svara sívaxandi
þörfum atvinnulífsins fyrir nýja
og aukna þekkingu. Hingað til
höfum við að mestu mætt þörfum
íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Við
stefnum að því að ná til sem
flestra og þar er ég fyrst og
fremst að tala um fólk úti á lands-
byggðinni. Við erum að gera til-
raun með fjarkennslu í þremur
stuttum námskeiðum í vetur. Af
því ætlum við að læra
og vera tilbúin til að
þróa fjarnámið enn
frekar. Ég get nefnt
að notkun Netsins í
ljarkennslunni á eftir
að aukast gífurlega í
framtíðinni. I fjar-
kennslunni felst án efa
einn helsti vaxtar-
broddurinn í framtíð-
inni.“
Kristín segir að
Endurmenntunar-
stofnun verði að halda
áfram að endurspegla
þjóðfélagsumræðuna í
námskeiðahaklinu. „Ég get nefnt
að núna höfum við verið að bjóða
upp á 7 námskeið 1 tengslum við
umræðuna um erfðafræði og
gagnagrunn, t.d. Hver er að lesa
sjúkraskrána þína?, Dulkóðun og
tölvuöryggi og Siðfræði og há-
tækni. Sum þessara námskeiða
eru ætluð leikmönuum. Með því
að bjóða upp á þau viljum við gefa
leikmönnum tækifæri til að taka
þátt í umræðunni með þekkingar-
legar forsendur. Ég veit að fullt
af fólki hefur áhuga á því.“
Dagbók
Háskóla
Islands
DAGBÓK Háskóla íslands 4.-10.
október. Allt áhugafólk er velkomið
á fyrirlestra í boði Háskóla íslands.
Dagbókin er uppfærð reglulega á
heimasíðu Háskólans:
http:/Avww.hi.is
Þriðjudagur 6. október:
Kjell Ove Nilsson forstöðumaður
sænska samkirkjuráðsins heldur
fyrirlestur á ensku í boði guðfræði-
deildar Háskóla íslands. Fyrirlest-
urinn nefnist: „The Kingdom of
God, in Creation, in the Church, in
the Future“. Fyrirlesturinn verður
haldinn í hátíðasal Háskólans og
hefst kl. 13.15. Ragnheiður Krist-
jánsdóttir sagnfræðingur heldur
hádegisfyrirlestur í boði Sagnfræð-
ingafélags íslands í fundarsal á 2.
hæð í Þjóðarbókhlöðu kl. 12-13.
Fyrirlesturinn nefnir hún: „Þjóð
eða stétt? Þjóðemisstefna skoskra
kommúnista á fjórða áratugnum".
Miðvikudagur 7. október:
Kjell Ove Nilsson, forstöðumaður
sænska samkirkjuráðsins, heldur
fyrirlestur á ensku í boði guðfræði-
deildar Háskóla Islands. Fyrirlest-
urinn nefnist: „Luther and Calvin,
the Theology of Creation in the
Light of The Covenant" og hefst kl.
10.15 í stofu V í Aðalbyggingu. Ed-
mund Phelps og Gylfi Zoe, Birk-
beck College, verða með málstofú á
vegum viðskipta og hagfræðideildar
á 3. hæð í Odda kl. 16.15. „Hiring,
the Welfare State, and European
Unemployment".
Fimmtudagur 8. október:
Birkir Þór Bragason, líffræðing-
ur og MS-nemi flytur erindi í boði
Tilraunastöðvar HÍ að Keldum sem
nefnist: „Rannsóknir á prótein sam-
skiptum príon-próteinsins (PrP)
með yeast two-hybrid aðferðinni“.
Fræðslufundurinn verður haldinn í
bókasafninu að Keldum kl. 12.30.
Asta Sóllilja Guðmundsdóttir verð-
ur fyrirlesari á Málstofú í lækna-
deild HÍ. Erindi sitt nefnir hún:
„Sameindahermun milli M-prótína
streptókokka og keratína í mein-
gerð psoriasis". Málstofan fer fram
í sal Krabbameinsfélags íslands,
Skógarhlíð 8, efstu hæð og hefst kl.
16 með kaffiveitingum.
Föstudagur 9. október:
Haukur Einarsson jarðeðlisfræð-
ingur flytur meistaraprófsfyrirlest-
ur í umhverfis- og byggingafræði.
Fyrirlesturinn ber heitið: „Olíuslys
á hafi“. Fyrirlesturinn verður hald-
inn í stofu 158 í VR-II, Hjarðarhaga
2-6 og hefst kl. 15.30.
Námskeið á vegum Endurmennt-
unarstofnunar HÍ vikuna 5.-10.
október.
5., 6. og 7. okt. kl. 9-17. AutoCAD
- grunnnámskeið. Kennan: Magnús
Þór Jónsson, prófessor HÍ .
5. og 6. okt. kl. 15-19. Árangurs-
rík liðsheild. Kennari: Jóhann Ingi
Gunnarsson, sálfræðingur og ráð-
gjafi.
Mán. 5. okt. - 7.des., þri. 6. okt.-
8. des. og mið. 7. okt - 9. des. (lOx)
kl. 20-22. (Þrjú námskeið). Sögur af
Snæfellsnesi, Eyrbyggja og Víg-
lundar Saga. Kennari: Jón Böðvars-
son, cand.mag.
6. okt. kl. 8:30-12:30. Stefnumót-
un - hver er framtíðarsýn fyrirtæk-
isins? Kennari: Þórður Sverrisson,
Sérstök
kynning á
nýju línunni
afumgjörð-
um frá
Hugo Boss
fyrir herra
ogfrá
Martine
SITBON
fyrir konur.
Anna & útli
* vcröurí verslu
Smáratorgi má
"jSÍ' 5. október mill
eáJm 18:00 oggefur
immÉm vinumokkarg