Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Lið Islandsmótsins 1998 íþróttafréttamanna
Ólafur Þór _
Gunnarsson, ÍR
Steinar ,
Adolfsson, ÍA
Hlynur . David
Stefánsson, ÍBV Winnie, KR
Asmundur
Arnarsson, Fram
Baldur Bragason, ívar Ingimarsson,
Leiftri IBV
Scott Ramsey, Arnor
Grindavík cl, n Guðjohnsen, Val
Steingrímur
Jóhannesson, ÍBV
Tómas Ingi
Tómasson, Þrótti
■ GISLI Björgvinsson, knatt-
spymudómari, er hættur að dæma.
Kveðjuleikur hans var leikur ÍBV
og Leifturs í Meistarakeppni KSÍ.
SIGFÚS Sigurðsson var valinn
' maður leiksins er Caja Santander
- vann Otterup 26:23 í Evrópukeppni
|íelagsliða á sunnudaginn. Sigfús
‘skoraði fjögur mörk í leiknum sem
fram fór í Danmörku.
■ ÓLAFUR Gottskálksson lék í
marki Hibernian er liðið sigraði
Airdrie 3:1 á útivelli. Hibernian er í
öðru sæti skosku 1. deildarinnar
eftir 9 umferðir með 15 stig.
■ MAGNÚS Pálsson var um helg-
ina ráðinn þjálfari FH sem leikur í
1. deild karla. Hann tekur við af
Pétri Ormslev, sem þjálfað hefur
liðið í tvö ár og í bæði skiptin hefur
liðið endað í 3. sæti deildarinnar.
Magnús hefur þjálfað Leikni og
Fylki en lék lengi með Hafnarfjarð-
arliðinu.
■ GÚSTAF Bjarnason og landi
hans Magnús Sigurðsson sem leika
með Willstatt í suðurhluta 2. deildar
þýska handknattleiksins unnu stór-
an sigur á Diisseldorf, 30:15.
■ RÓBERT Sighvatsson og sam-
herjar í Bayer Dormagen unnu
FOLK
Einstracht Hagen 31:28 á útivelli í
suðurhluta 2. deildar og eru í efsta
sæti deildarinnar að loknum fimm
umferðum með 10 stig. Með
Doramagen leika einnig Islending-
arnir Héðinn Gilsson og Daði Haf-
þórsson.
■ RÚNAR Sigtryggsson og lið
hans Göppingen lögðu EHV Aue,
28:22, í 2. deild, en Göppingen er
eins og Willstatt og Dormagen í
syðri hluta 2. deildar. Dessauer,
sem Jason Ólafsson leikur með í
norðurhluta 2. deildar, lék ekki um
liðna helgi.
■ EINAR Einarsson þjálfari og
leikmaður Stjörnunnar fékk afhent-
an blómvönd fyrir „vel unnin störf
hér í sveitinni," eins og tilkynnt var
í hátalarakerfinu að Varmá fyrir
leik Aftureldingar og Sljörnunnar.
Einar var sem kunnugt leikmaður
með Aftureldingu og aðstoðarþjálf-
ari liðsins í fyrra.
■ LEIKUR Hauka og Selfoss í
íþróttahúsinu við Strandgötu sem
átti að hefjast kl. 20:30 tafðist um 15
mínútur vegna körfuboltaleiks
Hauka og Skallagríms sem hófst kl.
19.00 í húsinu.
■ HRAFNHILDUR Skúladóttir
átti mjög góðan leik er Bryne sigr-
aði Spjelkavik 32:22 í norsku 1.
deildinni í handknattleik um helg-
ina. Helga Torfadóttir stóð einnig
fyrir sínu.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék að
vanda með Stoke um helgina en lið-
ið tapaði 2:1 íyrir Reading. Eigi að
síður er Stoke enn í efsta sæti 2.
deildar. Þorvaldur Örlygsson lék
hins vegar ekki með Oldham sem
vann Colchester 1:0 á heimavelli.
■ BJARNÓLFUR Lárusson lék
með Walsall í ensku 2. deildinni í
knattspymu er liðið vann Preston,
L0.
■ ÖRVAR Þór Guðmundsson tek-
ur þátt í heimsmeistaramóti 21 árs
og yngri í snóker, sem hefst á Möltu
á laugardaginn.
ALAG
Ekki er hlaupið að því að ferð-
ast til Armeníu og heim aftur.
Því síður þegar ferðalagið, út og
til baka, má í mesta lagi taka fjóra
daga. Þessu hefur Knattspyrnu-
samband íslands fengið að kynn-
ast vegna skipulagningar ferðar í
sambandi við leiki A-landsliðs
karla og ungmenna-
landsliðsins i Ewópu-
keppninni, sem verða í
landinu um helgiua. :
KSÍ á rétt á að fá
leikmennina fimm sól-
arhringum fyiir leik
um og því hefði verið hægt að fara
í dag í fyrsta lagi. Á miðvikudag-
inn eftir viku tekur ísland á móti
Rússlandi í sömu keppni og því
verða leikmennirnir að vera
komnir til fslands tímanlega íyrir
þau erfiðu átök. Ekki síðar en á
sunnudag ef allt ætti að vera með
felldu.
Eitt er að ákveða ferðadaga og
annað að fá flug samkvæmt ósk-
um. Sérstaklega þegar um er að
ræða ferð til lands eins og
Armeníu, sem helstu flugfélög
fljúga ekki til. Nema þá að mjög
takmörkuðu leyti. Einu sinni í
viku þegar best lætur. Kannski
tvisvar á háannatímum. Eftir að
hafa skoðað alla hugsanlega mögu-
leika var í raun aðeins um eitt að
ræða fyrir liðlega 60 manna hóp-
inn: Leiguflug með þotu íslands-
flugs. Brottför árla fóstudags,
millilent í Riga í Lettlandi til að
taka eldsneyti. Áætluð koma í Jer-
evan skömmu fyrir miðnætti að
staðartíma. Brottför skömmu eftii'
leik á laugardag. Heimkoma aðfar-
anótt sunnudags eftir millilend-
ingu í Stavanger í Noregi. Um
tveggja sólarhringa ferð álfa á
milli.
Ferðalag hefur alltaf áhrif á
árangur íþróttafólks, lengra fei’ða-
lag - meiri þreyta. Flugþreytan
hefui- ekki síður áhrif. í fræðunum
hefur verið rætt um að til að aðlag-
ast tímamismun þmfi líkaminn
einn sólarhring fyrir hverja
klukkustund sem munar á brott-
fararstað og keppnisstað. Tíma-
mismunur á Armeníu og fslandi er
fimm stundir. Leikur A-landsliðs-
ins hefst um 18 tímum eftir komu á
hótel í Jerevan, standist ferðaáætl-
unin. Ungmennaliðið hefur, sam-
kvæmt áætlun, um 14 tíma eftir
komu á hótel fyrir sinn leik sem
verður í 100 km íjarlægð fi-á Jer-
evan. Sagt er að akstur frá flug-
vellinum og í bæinn taki um
hálftúna. Leiðin er 10 km sam-
kvæmt sömu heimildum. Rútuferð
liðsins á keppnisstað getur því
tekið tímana tvenna.
Ekki fer á milli mála að um gíf-
urlega erfiða ferð er að ræða. Þá
allra erfiðustu í sögu íslenskra
iþrótta. Vissulega hafa íslenskir
íþróttamenn upplifað ýmislegt á
ferðum sínum vítt og breitt um
heiminn en þessi ferð slær allt úk
Styttri heildartíma hefur ekki ver-
ið varið í ferðalag vegna keppni
svo langt í burtu.
Miðað við stöðu íslands og
Armeníu á styrkleikalista Alþjóða
knattspymusambandsins á Island
að vera með sterkara lið. Sam-
kvæmt því ætti ísland að sigra en
að framansögðu má vera ljóst að
aðeins ferðarinnar vegna verða ís-
lensku leikmennimir undir gífur-
lega miklu álagi. Síðar kemur í ljós
livort þeir standast það.
Steinþór
Guðbjartsson
Knattspyrnuferð til
Armeníu erfiðasta
íþróttaför íslendinga
Átti skoski varnarjaxlinn PAVIP WINNIE von á því að vera valinn bestur?
Óvæntur og
mikill heiður
Skoski varnarmaðurinn úr KR, David Winnie, var kjörinn leik-
maður ársins í efstu deild karla á hinu árlega lokahófi knatt-
spyrnufólks á Broadway um helgina. Winnie þótti burðarásinn í
sterkri vörn vesturbæjarliðsins og er fyrsti leikmaður KR sem
hlýtur þessa eftirsóttu viðurkenningu. Skotinn er 31 árs að aldri,
einhleypur og hefur haft knattspyrnu að atvinnu frá unga aidri.
Hann er búsettur rétt utan við Glasgow og hefur leikið undanfar-
in ár með St. Mirren, en kom tii liðs við KR eftir fjórar umferðir
nú í sumar.
Winnie er stór og sterkur leik-
maður, sannur leiðtogi í vöm-
inni og hefur vakið athygli fyrir að
tala mikið í leikjum
KR-liðsins, gefa
Eftir Björn skipanir og ráð til
ln9a samherjanna. Það
Hrafnsson kemur kannski til af
því að hann var lengi fyrirliði St.
Mirren i skosku 1. deildinni og áður
úrvalsdeild og að auki lék hann með
Aberdeen og Middlesbrough í
Englandi. Að auki lék hann marga
leiki með yngri landsliðum Skota.
Hefurðu alltaf talað svona mikið í
leikjum?
„Já, en kannski ekki svona mikið.
I breska boltanum er þetta eðlileg-
ur hluti af leiknum, menn eru sífellt
að tala sig saman og skipuleggja
næstu aðgerðir. Eg hef gert meira
af þessu í sumar þar sem við Þor-
móður [Egilsson] höfum verið að
leika með tveimur mjög ungum
varnarmönnum [Indriða Sigurðs-
syni og Bjama Þorsteinssyni] og
þess vegna hefur verið mikilvægara
en ella að gefa góð ráð. Eg hef
mikla reynslu, sem ég vil gjarnan
miðla öðrum og svo hefur Atli Eð-
valdsson þjálfari hvatt mig fremur
en latt til þess að láta til mín taka.“
Hvað kom til að þú komst hingað
til lands og fórst að leika með KR1
„Það er von að þú spyrjir. Ég var
að leika með St. Mirren allt til loka
keppnistímabilsins í Skotlandi og
um leið rann samningur minn við fé-
lagið út. Ég var því á leið í frí þegar
Jóhannes Eðvaldsson, bróðir Atla
þjálfara, hringdi í mig og spurði
hvort ég hefði áhuga á að leika á ís-
landi með KR. Hann lýsti liðinu,
veðrinu og aðstæðum fyrir mér og
svo ákvað ég að slá til. Ég sé svo
sannarlega ekki eftir því, tímabilið
hefur verið einstaklega skemmtilegt
og andinn í vesturbænum hefur ver-
ið til fyrirmyndar. Hér era allir svo
hjálpsamir og vingjamlegir og fyrir
vikið er ekki erfitt að vera útlend-
ingur í liðinu. Svo spillir ekki fyrir
Morgunblaðið/Golli
DAVID Winnie og Olga Færseth voru kjörin leikmenn ársins f
knattspyrnunni, en bæði leika þau með KR. Olga varð einnig
markahæst í kvennaknattspyrnunni en Winnie og félagar
fengu á sig fæst mörkin.
að margir leikmanna liðsins eru
mjög góðir knattspyrnumenn og
þjálfarinn er sá besti sem ég haft á
löngum ferli sem atvinnumaður.“
Og svo hlýturðu þessa eftirsóttu
nafnbót. Kom hún á óvartf
„Vissulega gerði hún það, þetta
var svo sannarlega óvænt og mikil
ánægja. Jafnframt er ég mjög
hreykinn, enda era það andstæðing-
amir sem velja mig og það fínnst
mér mikilvægast. Margir leikmenn í
deildinni hefðu verið vel að titlinum
komnir, til að mynda Hlynur [Stef-
ánsson] og Steingrímur [Jóhannes-
son] í liði Eyjamanna og Þormóður
Egilsson, samherji minn. Raunar
verð ég að segja, að mér kom mjög
á óvart hversu margir leikmenn í
deildinni eru I fremstu röð. Margir
gætu vel spjarað sig í evrópskri
knattspymu og þetta kom mér
skemmtilega á óvart. Ég gæti nefnt
marga leikmenn, fyrir utan sam-
herjana í KR, sem margir eru mjög
góðir, man ég t.d. eftir Steinari Ád-
olfssyni í liði Skagamanna og öllum
miðjumönnum Eyjamanna, auk
þeirra Hlyns og Steingríms. Svo er
Tómas Ingi [Tómasson] mjög erfið-
ur og slunginn andstæðingur."
Munt þú leika með KR-ingum á
næsta tímabilí!
„Ég vona það svo sannarlega. Ég
hef fullan hug á þvi og félagið sömu-
leiðis, þannig að ég kem hingað ef
um semst. Ég ætla að taka mér
stutt frí næstu daga og svo kemur í
ljós með hvaða liði ég mun leika í
vetur. Nafnbótin mun koma sér vel í
þeim efnum, því menn bera virðingu
fyrir íslenskum knattspyrnumönn-
um. Svo kem ég vonandi til liðs við
KR á næsta ári og þá tökum við tit-
ilinn, sem við rétt misstum af nú í