Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ KÓRFUKNATTLEIKUR Meistararnir áttu ekkert svar við góðum leik Tindastóls TÆPLEGA 600 áhorfendur fengu sannarlega nokkuð fyrir aurana sína þegar !ið Tinda- stóls og Njarðvíkinga leiddu saman hesta sína í fþróttahús- inu á Sauðárkróki á sunnu- dagskvöld. Ekki var hægt að sjá á leik liðanna að aðeins væri um aðra umferð í deild- inni að ræða. Eftir spennandi leik höfðu heimamenn betur, 76:71. I I Gestirnir hófu leikinn með miM- um hraða og ætluðu sér auðsjá- anlega að ná í upphafi sem hag- stæðastri stöðu. Heimamenn börðust vel og náðu að stöðva hverja sókn þeirra af annarri. Um miðjan fyrri hálfleiMnn virtist vöm Tinda- stólsmanna slaka á og það voru and- stæðingamir fljótir að nýta sér og ná forskoti, sem mest varð níu stig. Með því að lagfæra vörnina náðu heimamenn að komast aftur inn í leikinn og náðu fyrir hálfleik að minnka muninn í eitt stig, en Njarð- víMngar áttu lokaorðin í hálfleikn- um og skildu sex stig liðin að þegar þau gengu af velli. í síðari hálfleik upphófst sama sagan og í byrjun, miMll hraði og vissulega mistök á báða bóga og gekk hvorM né rak hjá hvoragu liði og þegar liðnar voru tvær og hálf mínúta af hálfleiknum hafði enn ekkert stig verið skorað. Þá hrökk sóknin í gang hjá Tindastólsmönn- um og með mikilli baráttu og sterk- um varnarleik tókst þeim að saxa niður forskot NjarðvíMnga. Þegar níu mínútur voru eftir af leiktíman- um komust þeir loks yfir, 61:60. Það sem eftir lifði leiks var barátt- an gífurleg og sMptust liðin á um að hafa forystu. Þegar ein mínúta og fjörutíu sekúndur voru til loka var staðan jöfn, 71:71. Þá sýndi Valur Ingimundarson að hann hefur engu gleymt og með glæsilegri þriggja stiga körfu breytti hann stöðunni í 74:71. Njarðvíkingar reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en vöm Tindastóls var eins og veggur og þegar þeir náðu boltanum létu þeir hann ganga og léku mjög yfirvegað. Þegar fimm sekúndur vora eftir braut Friðrik Stefánsson Maufalega á Ómari Sigmarssyni, sem þakkaði fyrir sig, og innsiglaði sætan sigur með því að skora úr báðum skotum. I liði Tindastóls vora John Woods, Valur Ingimundarson og Amar Kárason bestir, en einnig áttu Ómar Sigmarsson, Sverrir Þór Sverrisson, Skarphéðinn Ingason, Lárus Dagur Pálsson og Hinrik Gunnarsson ágætan leik. í liði NjarðvíMnga var Rodney Odriek yfirburðamaður. Þeir Her- Sigurður lætur reyna á spelkurnar SIGURÐUR Sveinsson, þjálfari og lcikmaður fyrstudeildarliðs HK í handbolta, getur ekki beitt sér sem skyldi næstu sex vikurnar þar sem spelkur voru settar á löngutöng vinstri handar í gær. „Ég fór úr lið á móti KA í fyrsta leik og það kemur í ljós hvort ég get spilað á næstunni," sagði Sigurður við Morgunblaðið í gærkvöldi. Bjöm Bjömsson skrifar frá Sáuðárkróki mann Hauksson og Friðrik Ragn- arsson áttu góðan fyrri hálfleik, en náðu sér ekM á strik í þeim síðari. Þá náði Teitur Örlygsson ekki að sýna neinn af sínum réttu töktum og munar um minna. Það er líklega langt síðan Njarðvíkurliðið hefur ekM náð að skora nema 22 stig í ein- um hálfleik. Keflvíkingar í kröppum dansi KeflvíMngar lentu í kröppum dansi þegar þeir mættu Isfirð- ingum í Keflavík á sunnudagskvöld- ■■■■■■■ ið. Lengstum leit út Björn fyrir nokkuð öraggan Biöndai sigur heimamanna en sknfar undir lok leiksins náðu Isfirðingar að vinna upp for- skot heimamanna og komast yfir 92:91 þegar um 19 sekúndur vora til leiksloka. KeflvQdngar branuðu upp en misstu boltann og allt leit út fyi'- ir að ísfirðingum tæMst að hið óvænta. En þeir misstu boltann líka og áður en yfir lauk hafði Keflvík- ingum teMst að setja 5 stig og sigr- uðu 97:92. í hálfleik var staðan 57:48. Leikurinn varð þó aldrei spenn- andi fyrr en rétt undir loMn. Fyrri hálfleikur einkenndist af miMum bamingi þar sem dæmdar voru 25 villur, þar af voru 15 á KeflvíMnga sem mísstu 3 menn útaf undir lok leiksins. Þeirra á meðal var Damond Johnson sem var besti maður vallarins. Þá vora rétt tæpar 3 mínútur til leiksloka og staðan 89:79. Þá var eins og ísfirðingar tví- efldust á meðan hvorM gekk né rak hjá heimamönnum. En síðustu mín- útumar vora æsispennandi og segja má að úr því sem komið var hafi KeflvíMngar sloppið með skrekk- inn. „Það var fyrst og fremst reynslu- leysi sem kom okkur í koll og einnig hversu oft við glopruðum boltanum. En ég er viss um að við eigum eftir að gera betur þegar líður á mótið og liðið fær meiri reynslu,“ sagði Tony Garbalotto, þjálfari KFÍ. „Isfirðing- ar eru með gott lið og ég get ekki annað en verið ánægður með að sigra þá. Við lékum nú mun betur en gegn NjarðvíMngum á dögunum sem vonandi er spor í rétta átt,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari KeflvíMnga. Damond Johnson, Fannar Ólafs- son, Falur Harðason og Hjörtur Harðarson voru bestu menn Kefl- víkur en hjá KFÍ þeir James L. Ca- son, Ólafur Ormsson og Mark Quas- hi. Fyrstu stig Þórsara Þórsarar nældu sér í sín fyrstu stig í Úrvalsdeildinni í körfu- bolta með sigri á Snæfelli á heima- ■■■■■■■ velli sínum á Akur- Krístján eyri á sunnudags- Kristjánsson kvöld. Sigur Þórs var nokkuð sanngjarn en liðið hafði framkvæði í leiknum frá fyrstu mínútu. Þórsarar byrjuðu með látum og skoraðu 9 fyrstu stigin í leiknum. Gestimir af Snæfellsnesinu komust þó fljótlega inn í leiMnn en aðeins örskamma stund. Þeir jöfnuðu 14:14 eftir rúmlega 6 mínútna leik en eftir það dró aftur í sundur og Þórsarar leiddu í leikhléi, 41:35. Heimamenn héldu sínu striki í seinni hálfleik og náðu mest 13 stiga forystu eftir miðjan hálfleikinn. Snæfellingar reyndu hvað þeir gátu að ná í skottið á Þórsurum og náðu að minnka muninn í þrjú stig þegar rúm ein mínúta var eftir. En Þórs- arar gáfu sinn hlut ekki eftir og Morgunblaðið/Kristinn TRAUSTI Freyr Jónsson átti ágætan leik fyrir ÍA á sunnudaginn. Hér reynir hann að komast framhjá KR-ingunum Eggerti Garðarssyni og Eiríki Önundarsyni. skoruðu fjögur síðustu stigin í leikn- Bandarísku leikmennirnir Lor- enzo Orr og Rob Wilson voru at- kvæðamestir í liðum sínum en einnig sýndu „gömlu“ mennirnir Konráð Óskarsson hjá Þór og Birg- ir Mikaelsson hjá Snæfelli ágætis tilþrif á köflum. Grindvíkingar í erfíðleikum með Val Garðar Páll Vignisson skrífar frá Gríndavík Það reiknuðu sennilega flestir með auðveldum sigri heima- manna þegar Valsmenn heimsóttu Grindavík á sunnu- dagskvöld. Gestimir voru ekM á sama máli og spiluðu mjög vel. Heimamenn höfðu þetta á síðustu 7 mínútum leiksins og unnu nokkuð örugglega 82:64. Það að mæta til leiks með hálfum huga hlýtur að bjóða hættunni heim. Heimamenn áttu í basli með Valsmenn allan fyrri hálfleik og Valsmenn leiddu verðskuldað í hálf- leik 41:42. Áhorfendur reiknuðu flestir með því að Grindvíkingar kæmu sterkir til seinni hálfleiks, en sú varð ekM raunin. Heimamenn héldu greini- lega enn að ekki þyrfti að hafa fyrir þessum sigri. Valsmenn komu ein- beittir og leiddu hálfleikinn og náðu sex stiga forskoti eftir fimm mín- útna leik í síðari hálfleik. Heima- menn réðu ekkert við erlendan leik- mann Valsmanna, Keneth Richards, sem var bestur í liði gestanna og þá var Bergur Emilsson sprækur í fyrri hálfleik. Eftir leikhlé hjá Val þegar átta mínútur vora eftir settu heimamenn í gír bæði í vörn og sókn. Staðan breyttist úr 59:61 í 74:61 á aðeins fímm mínútum og gestunum var fyrirmunað að setja niður eina ein- ustu körfu. Það sem sMpti greini- lega sköpum var að áhorfendur tóku við sér og heimamenn spiluðu góða vöm. I liði heimamanna var enginn sem átti neinn sérstakan leik en Pétur Guðmundsson spilaði góða vöm á Keneth Richards í lok leiks sem virtist setja gestina úr lagi. Guðmundur Bragason, þjálfari Grindvíkinga, var ekki hress með leik sinna manna og sagði: „Þetta hafðist í restina en við voram að spila lélega vörn nema síðustu tíu mínúturnar. Þetta má ekM gerast aftur að við komum ekki tilbúnir til leiks. Valur er með ágætis lið og hittu vel. Ungu strákarnir hjá þeim eru góðir og Kaninn hjá þeim góð- ur. Þeir eru búnir að vera að spila vel í haust og eiga eftir að taka stig í vetur. Þeir eru með lið sem ekki er hægt að valta yfir.“ KR engin fyrirstaða fyrir ÍA Skagamenn léku KR-inga heldur grátt á Seltjarnarnesinu. Heimamenn áttu ekkert svar við ■■■■■■■ öflugri vörn gesta Stefán sinna og Michael D. Stefánsson Jackson fór á kostum skrifar með nærri helming stiganna í miklum ham. Sigurinn var þó „aðeins" 16 stig, 93:77, því Skagamenn slökuðu heldur á klónni í lokin. Það sást frá fyrstu mínútu að Skagamenn ætluðu að kasta sér á eftir hverjum bolta og þeir náðu upp góðri baráttu á meðan KR-ing- um vora ákaflega mislagðar hendur því þeir misstu boltann ítrekað í hendur gesta sinna. Vörn ÍA var sterk og í sókninni fór Michael ham- föram og skoraði helminginn af stigum liðsins fyi’ir hlé. Þannig var fram í miðjan síðari hálfleik, þá tóku KR-ingar leikhlé og ákváðu að snúa vörn í sókn með því að auka hraðann og taka vörnina betri tök- um. Það tók tíma að sMla sér og var ekM nóg til að snúa dæminu við. „Við komum hreinlega ekki til- búnir í þennan leik og voram á hæl- unum allan leiMnn auk þess sem þeir vora sterkir og erfiðir í sókn- inni á meðan ekkert gekk í sókninni hjá okkur,“ sagði Eiríkur Önundar- son, sem var stigahæstur hjá KR. „Við áttum góðan leik á Akureyri en slakan núna svo það verður sest nið- ur og athugað hvað fór úrskeiðis." Það var öllu betri tónn í Alexand- er ErmolinsM, þjálfara og leik- manni ÍA. „Það tók á í byrjun og það var erfiðast að loka fyrir þriggja stiga skytturnar þeirra en þegar það gekk fór að ganga betur þó að við höfum aðeins misst tökin í loMn,“ sagði hann. „LeiMnn unnum við á góðri vöm í hálftíma auk þess sem nýi leikmaðurinn okkar, Mich- ael D. Jackson, er allur að koma til og smella saman við liðið.“ Haukar sterkari Haukar sigruðu Skallagrím, 90:83, og hlutu þar með fyrstu stig- in sín í deildinni. Haukar gerðu fyrstu fjögur stig leiksins og gáfu þar með tóninn. Þeir höfðu yfir all- an leikinn en gestirnir voru aldrei langt undan. Staðan í hálfleik var 38:30. Minnstur var munurinn fjög- ur stig í síðari hálfleik, 49:45. Skömmu síðar meiddist Tómas Holton, sem hafði verið sterkur í vörn Skallagríms. Það munaði miklu fyrir Borgnesinga og Haukar nýttu sér það og var sigur þeirra aldrei í hættu eftir það. Myron Wal- ker var yfirburðarmaður á vellin- um, gerði 35 stig fyrir Hauka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.