Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Þrettán Haukamörk
eftir hraðaupphlaup
Morgunblaðið/Arnaldur
LITHÁINN Robertas Pauzelis, leikmaður Selfyssinga og fyrrver-
andi leikmaður ÍBV, stekkur hér hátt en Haukamaðurinn Sigur-
jón Sigurðsson er með hann í öruggum höndum.
HAUKAR eru í þriðja sæti eftir
sigur á Selfyssingum, 35:27, á
heimavelli sínum í Hafnarfirði
á sunnudagskvöld. Haukar
höfðu yfirhöndina nær allan
leikinn og voru tveimur mörk-
um yfir í hálfleik, 16:14. Leik-
urinn var hraður og sem
dæmi um það gerðu Haukar
13 mörk eftir hraðaupphlaup.
Það var kraftur í Haukaliðinu í
fyrri hálfleik og eftir að það
náði forystu 6:5 þegar tíu mínútur
voru liðnar lét það
Vaiur B forystuhlutverkið
Jónatansson ekki af hendi. Þeir
skrífar náðu mest fjögurra
marka forystu í hálf-
leiknum en Selfyssingar náðu að
minnka muninn í tvö mörk þegar
flautað var til hálfleiks, 16:14.
Atli Marel skoraði fyi’sta mark
síðari hálfleiks og þá var eins
marks munur og allt í einu orðin
spenna. En hún var ekki langvinn
því Haukar gerðu næstu fjögur
mörk og þá var ljóst hvert stefndi.
Sóknarleikur gestanna var slakur
og hvað eftir annað komust Hauk-
ar inn í sendingar þeirra og brun-
uðu upp og skoruðu. Jón Freyr
Egilsson var þai’ fremstur í ílokki,
gerði alls fímm mörk eftir hraða-
upphlaup. Þegar sex mínútur lifðu
af leiknum var munurinn sex mörk,
30:24. Þá gerðust heimamenn
kærulausir og Selfyssingar eygðu
vonarneista er þeir gerðu næstu
þrjú mörk, 30:27, og rúmar fjórar
mínútur eftir. Þá sögðu Haukar
hingað og ekki lengra. Gerðu fimm
síðustu mörkin á meðan sjö síðustu
sóknir Selfyssinga i-unnu út í sand-
inn.
Leikurinn var hraður og mikið
um mistök í sóknarleik beggja liða.
Það sem Haukar höfðu umfram
Selfyssinga voru vel útfærð hraða-
upphlaup. I fyrri hálfleik voru
sóknimar 29 á hvort lið og þótti
mikið, en 33 í síðari hálfleik. Sókn-
arleikur liðanna stóð yfirleitt ekki
lengur en í 15 sekúndur. Það var
eins og liðin væru að keppa um
hvort þeirra væri fljótara að ljúka
sókn. Leikurinn líktist því helst
tennis á köflum - slíkur var hrað-
inn.
Guðmundur Karlsson, þjálfari
Hauka, var ekki sáttur við leik liðs-
ins þrátt fyrir sigurinn. „Það eru
enn miklir vankantar á leik okkar
og við eigum töluvert í land. Það
vantar stöðugleika og það er eins
og við eigum í erfiðleikum með að
stjóma leik. En baráttan var góð
og hún fleytti okkur alla leið að
þessu sinni. Við fáum á okkur allt
of mörg mörk, 31 á móti IR og nú
27 og það er of mikið. Liðið er
mjög breytt frá í fyrra og ég er því
enn að stilla strengina," sagði þjálf-
arinn.
Oruggt hjá HK
Við mættum ákveðnir til leiks
og ætluðum okkur ekkert
annað en sigur. Vörnin small vel
saman, þannig
Sigmundur Ó. að við náðum
Steinarsson 0ft að vinna
skrifar knöttinn og
bmna fram í
hraðaupphlaup og skora,“ sagði
Sigurður Sveinsson, þjálfari HK,
eftir sigur á ÍR 27:24. Sigurður
var mjög ánægður með leik
Helga Arasonar. „Hann náði að
halda Ragnari Óskarssyni niðri,
þannig að Ragnar skoraði ekki
mörg mörk með langskotum.“
Það var góð barátta hjá leik-
mönnum HK, sem gerðu út um
leikinn um miðjan seinni hálf-
leik. Kristján Halldórsson, þjálf-
ari IR-inga, bað um leikhlé er
staðan var 19:18 fyrir HK. Hann
messaði yfir sínum mönnum og
sagði m.a.: „Þetta er ekki hand-
bolti sem þið eru að leika.“ Það
var rétt hjá Kristjáni, en ræðu-
höld hans dugðu ekki, því ÍR-
ingar skoruðu ekki mark í tólf
mín. eftir þau. HK-menn gerðu
út um leikinn, skoruðu sex mörk
í röð, 25:18. IR-ingar voni hug-
myndasnauðir og voru með
ótímabær skot, sem varnarmenn
HK vörðu. Leikmenn HK gáfu
eftir undir lok leiksins og náðu
IR-ingar þá að minnka muninn í
þrjú mörk.
Það voru markverðir ÍR-liðs-
ins, Hallgrímur Jónasson og
Hrafn Margeirsson, sem komu í
veg fyrir að sigur HK yrði ekki
stærri.
Stórbrotin mark-
varsla Reynis Þórs
Það var æði karlmannleg íþrótt
sem iðkuð var í KA-heimilinu á
sunnudagskvöldið þegar heima-
■■■■■■ menn tóku þéttings-
Stefán Þór fast á móti IBV og
Sæmundsson virtust ætla að nið-
sknfar urlægja Vestmanna-
eyinga á handbolta-
sviðinu. KA-menn náðu 9 marka
forskoti í þessum hörkuleik og
voru lengst af mun betri en segja
má gestunum til hróss að þeir
gáfust aldrei upp, fundu ráð til að
snúa leiknum sér í hag og minnk-
uðu muninn í tvö mörk þegar enn
voru sex mínútur til leiksloka.
Heimamenn björguðu sér þó fyrir
horn og sigruðu, lokatölur 24:22.
KA-menn voru ekki árennilegir í
fyrri hálfleik. Þeir skoruðu 4 fyrstu
mörkin og Reynir Þór Reynisson
mætti heitur til leiks. Halldór Sig-
fússon og Leó Örn Þorleifsson fóru
á kostum í sókninni og vörnin var
sterk. Guðfinnur Kristmannsson
skoraði fyrsta mark IBV eftir 7,40
mín. en KA-menn héldu sínu striki.
Þeir komust í 14:7 áður en blásið
var til leikhlés og var Reynir Þór
þá búinn að verja 14 skot í mark-
inu. Hann hafði t.a.m. stórskyttuna
Rakonovie algjörlega í vasanum.
Fátt benti til annars en að KA-
menn myndu vinna stórsigur því
þeir héldu uppteknum hætti í
seinni hálfleik og danska skyttan
Lars Walther biýndi klærnar.
Staðan var 18:9 eftir 6 mínútur og
20:11 eftir 9 mínútur. Þá kom rispa
hjá IBV og þeir minnkuðu muninn
í 20:14 og í stöðunni 22:16 hrökk
allt í baklás hjá KA. Sverrir
Björnsson var tekinn úr umferð,
sóknarleikurinn riðlaðist, leikmenn
IBV voru grimmir í vörninni og
Guðfínnur Kristmannsson tók til
sinna ráða í sókninni. IBV átti nú
næstu fjögur mörk en KA-menn
skoruðu ekki mark í 8 mínútur.
Staðan var skyndilega orðin 22:20
og rúmar 6 mínútur eftir. Það urðu
langar mínútur, mistök og tauga-
veiklun á báða bóga og harkan
stigmagnaðist.
Dómararnir voru við það að missa
tökin en leikurinn kláraðist þó
stórátakalaust, hvort liðið bætti
tveimur mörkum við og KA-menn
önduðu léttar.
Reynir Þór sýndi hvers vegna
hann er landsliðsmarkvörður, varði
alls 25 skot. Halldór, Leó og Lars
áttu líka skínandi leik. Hjá IBV
voru Cernauskas og Guðfinnur at-
kvæðamestir og Sigmar Þröstur
stóð fyrir sínu í markinu. Þá skor-
aði Daði Pálsson skemmtileg mörk
úr vinstra horninu.
BJÖRGVIN Þór Björgvinsson átti
„Astzfejv þarf tíma til
FRAM og FH þekkja það vel að
vera í fremstu röð í handboltan-
um, voru reyndar stórveldi á ár-
um áður, en hafa þurft að bíða
nokkuð lengi eftir íslandsmeist-
aratitlinum, einkum Framarar.
Þeir virðast þó til alls líklegir í
vetur og FH-ingar hafa ekki sagt
sitt síðasta orð.
Fram hafði betur á móti FH í undan-
úrslitum úrslitakeppni íslands-
mótsins á liðnu tímabili en tapaði síðan
■■■■■■ fyi’ir Val í úrslitum. Nú
Steinþór eru Framarar reynsl-
Guðbjartsson Unni ríkari, þeir bjuggu
skrifar vig Vel undir nýhafið
tímabil og eru efstir að
þremur umferðum loknum. FH-ingar
geta ekki brosað eins breitt, eru í fall-
sæti eins og er.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari
Fram, var sannfærður um sigur sinna
manna á FH í fyrrakvöld þótt útlitið