Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 9
LASER TAG &
HASKÓLABÍÓ
KYNNA
BROKK BERSERK >
CBRICK BflZOOKflJ
STÓRSKOTALIÐI
■*4 [ N
r.SMÁLL^.
5oldier5
MUNiÐ NETLEIKINN A
www.visir.is
Zoff velur
ítalska
landsliðið
DINO Zoff, nýráðinn lands-
liðseinvaldur Itala, hefur valið
landsliðshóp sinn fyrir leikinn
gegn Sviss í undanriðli EM,
sem fram fór í Udine 10.
október nk.
Hópurínn er þannig skipaður:
Markverðir: Gianluigi Buffon
(Parma), Francesco Toldo
(Fiorentina).
Varnarmenn: Fabio Canna-
varo (Parma), Giuseppe Favalli
(Lazio), Paolo Maldini (AC Mil-
an), Christian Panucci (AC Mil-
an), Gianluca Pessotto (Juvent-
us), Moreno Torricelli (Fiorent-
ina).
Miðjumenn: Demetrio Al-
bertini (AC Milan), Jonathan
Bachini (Udinese), Giuliano Gi-
annichedda (Udinese), Dino
Baggio (Pai’ma), Diego Fuser
(Parma), Luigi Di Biagio
(Roma), Eusebio Di Francesco
(Roma).
Sóknarmenn: Enrico Chiesa
(Parma), Alessandro Del Piero
(Juventus), Filippo Inzaghi
(Juventus), Francesco Totti
(Roma), Nicola Ventola (Inter
Milan).
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 B 9 .
KNATTSPYRNA
, Heuters
ÞRIR leikmenn 1860 Múnchen, Jochen Kinetz, Michael Hofmann og Michel Dinzey fagna sigri á
Nurnberg, 5:1. Múnchenarliðið er í öðru sæti í Þýskalandi.
Dortmund batt enda
á sigurgöngu Bæjara
Borussia Dortmund batt enda á
sigurgöngu Bayern Miinchen í
þýsku úrvalsdeildinni um helgina er
liðin gerðu 2:2-jafnteíli á Ólympíu-
leikvanginum í Múnchen. Fyrir leik-
inn höfðu Bæjarar unnið fyrstu sex
leiki sína í deildinni, en misstu 2:1-
forystu niður í jafntefli þegar
IChristian Nerlinger skallaði í netið
af stuttu færi snemma í seinni
hálfleik. Neriinger kom til liðs við
Dortmund fyrir leiktíðina frá
Bayern og hlaut fyrir vikið heldur
óblíðar viðtökur áhorfenda úr hópi
heimamanna.
Dortmund hefur átt í nokkrum
erfíðleikum síðan liðið sigraði í
Meistaradeildinni 1997 og byrjunin í
deildinni hefur ekki verið góð. Góð
byrjun gegn toppliði Bæjara kom
1 því nokkuð á óvai-t og Svisslending-
Iurinn Stephane Chapuisat kom
Dortmund yfíi’ eftir röskan stundar-
~ fjórðung. Heimamenn létu það þó
ekki á sig fá og jöfnuðu metin innan
H'
mínútu með marki Brasilíumannsins
Giovane Elber. Félagi hans í fram-
línunni, Carsten Jancker, bætti öðru
marki við skömmu síðar, en Nerlin-
ger jafnaði síðan metin í upphafi
seinni hálfleiks og þar við sat.
í hinum sunnudagsleiknum sigr-
aði Duisburg lið Stuttgart með
tveimur mörkum gegn engu og náðu
þannig að rífa sig upp eftir háðulega
útreið gegn Þórði Guðjónssyni og
félögum í belgíska liðinu Genk á
fimmtudagskvöld. Miðvallarleik-
maðurinn Thomas Hörsen og
Markus Beierle skoruðu í sitt hvor-
um hálfleiknum, en lið Stuttgart olli
vonbrigðum með slökum leik.
Stórsigur Hertha
Eyjólfur Sverrisson var fjarri
góðu gamni um helgina er lið hans,
Hertha Berlín, vann stórsigur á Bor-
ussia Mönchengladbach, 4:1. Þetta
var fjórði sigur Berlínarliðsins í jafn
mörgum leikjum og hetja dagsins
var Michael Preetz, sem skoraði
þrennu. Aður hafði Sixten Veit kom-
ið liðinu yfir snemma leiks, en aust-
urríski markahrókurinn Toni Polster
jafnað metin. Snemma í seinni
hálfleik var varnarmanninum Mich-
ael Klinkert í liði Mönchengladbach
vikið af velli og þá tók áðurnefndur
Preetz til sinna ráða.
Lið 1860 Múnchen hefur komið
allra liða mest á óvart það sem af er
leiktíðarinnar og um helgina
burstaði liðið Núrnberg á útivelli,
1:5. Múnchenarliðið þykir leika
skemmtilega knattspyi’nu og skorar
mörg mörk. Sú varð á hinn bóginn
ekki raunin í þremur leikjum um-
ferðarinnar, sem öllum lyktaði með
markalausu jafntefli. Tveir leikir
þóttu þá hafa ótvirætt skemmtana-
gildi - meistarar Kaiserslautern og
Bayer Leverkusen skildu jöfn - 2:2,
og Hansa Rostock sigraði Werder
Bremen með tveimur mörkum gegn
einu.
Fiorentina með
Loksins sig-
ur í París
Kynningarfundur Skíðadeildar KR
mánudaginn 12. okt. 1998 kl. 20.00
Haustæfingar allra flokka eru hafnar hjá Skíðadeild KR
12 ára og yngri
Fimmtudaga kl. 17.00-18.00 í KR-heimilinu
Sunnudaga kl. 11.00-13.00 f Ármannsheimilinu við Sóltún
Fyrir Mosfellsbæ, 12 ára og yngri
Fimmtudagar kl. 17.00-18.00 við Sundlaug Mosfellsbæjar
13 ára og eldri
Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudagar kl. 18.30-19.45 við
Sundlaugina í Laugardal.
Sunnudaga kl. 11.00-13.00 í Ármannsheimilinu í Sigtúni.
Upplýsingar um æfingar eru á símsvara 511 5525.
Nánari upplýsingar um starf Skíðadeildar KR veita:
Heimir Sigurðsson hs. 551 3966/heimir@esso.is
Guðmundur Jakobsson hs. 552 4256/giakobs@ossur.is
Stjórnin.
fullt hús stiga
FRÖNSKU meistaraniir í Lens
unnu fyrsta sigur sinn á París
Saint Germain siðan um miðj-
an áttunda áratuginn um helg-
ina er varamaðurinn Wagneau
Eloi skoraði eina mark leiksins
á elleftu stundu. Lens hafði
fram að þessu sótt Parísarliðið
heim í tuttugu og eitt skipti án
þess að hafa þar sigur og
nítján sinnum tapað, en byrjun
PSG á leiktiðinni liefur verið
afleit og ekki bætti úr skák að
liðið féll í vikunni út í fyrstu
umferð Evrópukeppni bikar-
hafa. Leikmenn liðsins sáu
aldrei til sólar gegn Lens og
allt var þeim í mót, ítalinn
Marco Simone misnotaði víta-
spyrnu skömmu fyrir leikslok
og litlu síðar var bakverðinum
Jimmy Algerino vikið af leik-
velli fyrir ljótt brot.
MarseiIIe sigraði Toulouse
með tveimur mörkum gegn
engu. Aðeins munar nú einu
stigi á Marseille og toppliðinu
Bordeaux.
Skálafelli
FIORENTINA frá Flórens hefur fullt hús stiga eftir fjorar fyrstu
umferðir ítölsku 1. deildarinnar. Liðið bar sigurorð af Udinese á
sunnudag og gerði Brasilíumaðurinn Edmundo eina mark leiks-
ins örfáum andartökum fyrir leiklok. Fiorentina hefur komið
mjög á óvart í þessum fyrstu umferðum og hefur tekið miklum
breytingum á skömmum tíma undir stjórn þjálfarans Giovannis
Trappaonis, sem er nú snúinn heim eftir að hafa haldið um
stjórnartauma hjá Bayern MCinchen.
Annað lið sem hafið hefur keppn-
istímabilið af krafti er Intern-
azionale frá Mílanó. Það lið hefur
gert eitt jafntefli og bætti þriðja
sigri sínum við um helgina er
Perugia kom í heimsókn á San Siro.
Chilebúinn Ivan Zamorano kom
liðinu yfir í fyrri hálfleik og í þeim
seinni bætti franski heimsmeistar-
inn Youri Djorkaeff öðru marki við.
Leikmenn Inter höfðu hlotið harða
gagnrýni fyrir frammistöðu sína í
Meistaradeildinni nú í vikunni, þar
sem tókst naumlega að vinna aust-
urríska liðið Sturm Graz, en á
sunnudag voru þau vandræði á bak
og burt og sigur liðsins var aldrei í
hættu.
Jöfn í þriðja til fjórða sæti eru lið
Juventus og AC Milan. Bæði unnu
þau um helgina, Filippo Inzaghi
gerði eina mark Juve í l:0-sigri á Pi-
acenza og aftur var varamarkvörð-
urinn Michealangelo Rampulla í
aðalhlutverki. Rampulla varði víta-
spyrnu í leik Juve við norsku meist-
arana í Rosenborg í Meistaradeild-
inni á miðvikudag og á sunnudag
mátti hann enn taka á öllu sínu gegn
hættulegum framherjum Piacenza,
einkum Simeone Inzaghi, yngri
bróður markaskorarans í hinu
liðinu.
AC Milan beið lægri hlut fyrir
Fiorentina í síðustu viku, en náði að
rétta sinn hlut með 0:2-sigri í Fen-
eyjum. Þjóðverjinn Oliver Bierhoff
skoraði snemma leiks og
Brasilíumaðurinn Leonardo bætti
öðru marki við um seinni hálfleikinn
miðjan. Frábær frammistaða þýska
markvarðarins Jens Lehmanns kom
í veg fyrir að leikmenn Venezia
gerðu fyrsta mark sitt á leiktíðinni,
en smám saman dró úr kappi þeirra
þótt á heimavelli væru og ekki bætti
úr skák þegar Guiseppe Iachini var
rekinn af velli í seinni hálfleik fyrir
mótmæli.
Ur öði-um leikjum bar helst til
tíðinda að Roma tapaði fyrsta leikn-
um á tímabilinu - gegn Sampdoria.
Bologna og Parma gerðu marka-
laust jafntefli, en Parma hefur
aðeins gert eitt mark í fyi’stu fjórum
leikjunum. Milljarðalið Lazio náði að
sigra Cagliari, 2:0, þrátt fyrir að
vera án níu fastamanna og er komið
í sjöunda sæti eftir heldur dapra
byrjun á leiktíðinni.
Skíðadeild