Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 B 3 HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristinn DAGNÝ Skúladóttir, sem hér heffur sloppið framhjá Evu Lofts- dóttur úr Haukum, skoraði þrjú mörk fyrir FH gegn Haukum. fyrirliði ÍBV, sem stýrt hefur liði sínu til sigurs í leikjunum tveimur, við ÍR og KA. Allir skoruðu í Garðabænum var tekist á þegar Stjömustúlkur fengu nýliða ÍR í heimsókn. Gestimir úr Breiðholtinu stóðu upp í hárinu á meisturunum fyrstu mínútumar en þrauk þá þrek og Garðbæingar tóku öll völd á vell- inum. Skömmu fyrir leikhlé tók Að- alsteinn Jónsson þjálfari Stjömunn- ar að skipta inná og fengu allir leik- menn á leikskýrslu að spreyta sig og allir skoraðu þeir mark, nema markverðimir. Lykilleikmenn fengu að hvíla sig en létu samt til sín taka, til dæmis skoraði Ragnheiður Stephensen tíu mörk á rétt rúmum tuttugu mínút- um. Lokatölur vora I samræmi við það, 37:20 fyrir Stjömuna. Sviptingar hjá Gróttu/KR og Val Sviptingamar í leik Gróttu/KR og Vals vora mikiar því Grótta/KR réði lögum og lofum fyrir hlé og hafði fimm marka forystu, 11:6, en eftir það snerist dæmið algerlega við - þá gekk ekkert upp hjá þeim og Valsstúlkur gengu strax á lagið og tóku leikinn í sínar hendur og sigr- uðu með þriggja marka mun, 19:16. Eftir stendur því að Valsstúlkur era í 2. sæti deildarinnar eftir sigur í báðum leikjum sínum en Grótta/KR hefur ekki unnið leik. Víkingur og Fram skildu jöfn í Víkinni, 21:21. Jafnt var fram eftir fyrri hálfleik, hafði Fram marki betur í leikhléi en Víkingar tóku við sér eftir hlé og náðu þriggja marka forskoti en Fram nældi sér í jafntefli með því að skora tvö síðustu mörk leiksins. Haukar unnu Hafnarfjarð- arslaginn HVERGI var gefið eftir þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar áttust við í 1. deild kvenna í Kaplakrika á laugardaginn - eins og venjan er þegar þessir fjandvinir mætast. Það voru samt Hauka- stúlkur sem héldu á brott með tvö stig eftir hörkuleik og eins marks sigur, 22:21. f öðrum leikjum unnu Stjörnustúlkur 37:20 sigur á ÍR í Garðabænum, Valur bar sigurorð af Gróttu/KR 19:16 að Hlíðarenda, KA-stúlkur fóru til Eyja en töpuðu þar 29:21 og í Víkinni skildu Víkingur og Fram með skiptan hlut, 21:21. FH-stúlkur náðu forystunni með mikilli baráttu auk þess sem Gyða Úlfarsdóttir fór á kostum í ■■■■■■ markinu. Haukarnir Stefán virtust ekki alveg Stefánsson rneð á nótunum og ef ekki hefði komið til einstaklingsframtak Hörpu Melsteð Enn tapa Sigurður og félagar SIGURÐUR Bjamason og samherjar hans í Bad Schwartau töpuðu fjórða leikn- um í röð í þýsku 1. deildinni í handknattleik um helgina er þeir fengu liðsmenn Minden í heimsókn, lokatölur, 23:22, Schwartau var einu marki yfir í hálfleik, 10:9. Sigurður skoraði fimm mörk og lék ágætlega bæði í vöm í sókn. Þar með sit- ur lið Bad Schwartau á botni deildarinnar eftir fjórar um- ferðir með ekkert stig og er eina lið deildarinnar sem er án stiga. Wuppertal vann annan leik sinn á leiktíðinni er liðið lagði TuS Schutterwald, 21:16, á heimavelli, staðan var 9:7 í leik- hléi, heimamönnum í hag. Geir Sveinsson skoraði 2 mörk fyrir Wuppertal, Valdimar Grímsson og Dagur Sigurðsson gerðu 1 mark hvor. Flensborg-Handewitt heldur efsta sæti deildarinnar eftir tíu marka sigur á TV Niederwurz- bach, 35:25. Leikmenn Flens- borgar hafa unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli og hafið leik- tíðina vel. Nettelstedt vann Frankfurt, 29:27, og hefur ekki tapað leik í deildakeppninni ásamt Minden en hvort lið hef- ur aðeins leikið þrjá leiki. Mart- in Schwalb, leikmaður þýska landsliðsins og þjálfari Frank- furt, var rekinn af leikvelli snemma leiks og setti það nokkurt strik í reikning Frank- furt í leiknum. Gummersbach, eitt hand- knattleiksliða Þýskalands, rambar nú á barmi gjaldþrots og gæti svo farið að það verði dæmt úr keppni vegna þess fyrir lok vikunnar. Forráða- menn liðsins róa nú lífróður til þess að bjarga liðinu sem hefur unnið þýska meistaratitilinn oftar en nokkurt annað félag. Leikmenn liðsins vora hins veg- ar slakir er þeir töpuðu 31:25 fyrir Grosswallstadt og hafa unnið tvo leiki og tapað jafn- mörgum það sem af er keppnis- tímabilinu. Létt hjá Magdeburg Magdeburg vann stórsigur á Steaua frá Búkarest, 26:16, í fyrstu umferð EHF-keppninn- ar í handknattleik, en fyrri leik- ur liðanna fór fram í Mag- deburg um helgina. Staðan í hálfleik var 13:9. Ólafur Stef- ánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg. fyrirliða, sem skoraði 5 af fyrstu 7 mörkum Hauka og ágæt tilþrif Thelmu Bjarkar Ámadóttur, sem skoraði hin tvö mörkin, hefðu FH- stúlkur eflaust gert út um leikinn. Undir lok fyrri hálfleiks hristu Haukastúlkur af sér slenið og náðu forystu. Eftir hlé jókst baráttan til muna, en það var stundum á kostn- að gæða leiksins, því leikmenn lögðu allt sem þeir áttu í leikinn og það kunna áhorfendur að meta. FH- ingar unnu upp tveggja marka for- skot Hauka en tókst ekki að ná sér í að minnsta kosti eitt stig þrátt fyrir rúmlega tveggja mínútna sóknar- lotu í lokin. „Við voram lengi í gang án þess að ég viti af hveiju það stafar því við voram í miklum ham inni í bún- ingsklefa fyrir leikinn,“ sagði Harpa fyrirliði að leikslokum. „Þetta era bestu leikimir, stál í stál, en ég hefði ekki tekið í mál að ganga hér út með tap á bakinu." Eyjastúlkur á toppi deildarinnar Eyjastúlkur tróna á toppi 1. deildar kvenna eftir 29:21-sigur á KA, sem sótti þær heim til Vest- mannaeyja. ÍBV gat ekki notað sitt sterkasta lið vegna meiðsla og veik- inda leikmanna svo að yngri stúlk- urnar fengu að láta ljós sitt skína. Leikurinn var jafn til að byrja með en síðan náðu Eyjastúlkur yfir- höndinni og gátu leyft sér að slaka aðeins á klónni er leið að leikslok- um. „Það er gott að byrja ekki á toppliðunum í deildinni því við þurf- um að slípa saman liðið og það er ekki létt að fá æfingaleiki hingað til Eyja,“ sagði Ingibjörg Jónsdóttir Lothar Mattháus fráítvær vikur ÞÝSKI knattspyrnujaxlinn Lothar Matthaiis meiddist í lærvöðva á hægra fæti í 2:2-jafnteflisleik Bayern Miinchen gegn Dortmund á sunnudaginn. Verður hann frá í tvær vikur og gefur því ekki kost á sér í lands- leik Þjóðveija og Tyrkja nk. laugardag og gegn Moldavíu fjórum dögum síðar. Matthaus er 37 ára gamall.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.