Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Stjórnstöðvar
fyrir hitakerfi
PltrgwmMívliiíi
Lykillinn að
sparnaði, öryggi
og þœgindum
Blað C
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sameign
eða séreign
EIGNARHALD í fjöleignarhús-
um er mismunandi og mikil-
vægt getur verið að greina
mörk séreignar og sameignar,
segir Sandra Baldvinsdóttir
lögfræðingur. Mörkin þar á
milli eru þó ekki alltaf skýr
og álitaefnin mörg. / 7 ►
imr,fii
s.i íii
Staðreyndir
um vatn
STAÐREYNDIR um vatn eru
víða til en ekki alls staðar,
segir Sigurður Grétar
Guðmundsson í Lagnafréttum.
Staðreyndir um heitt og kalt
vatn á höfuðborgarsvæðinu eru
fyrirliggjandi en vatnið er ekki
allt af sama stofni. / 12 ►
, r t E K t Húsbréfakerfið
Nýjar sýnir mikil umsvif
íbúðir á markaðnum
MEIRI eftirspurn er nú
eftir nýjum íbúðum en
verið hefur í langan
tíma. Aðal nýbyggingasvæðin
eru eins og áður í Lindahverfi í
Kópavogi og svo í Staðahverfi í
Reykjavík, en íbúðir þar eru
famar að koma á markað og
seljast mjög vel.
I viðtalsgrein hér í blaðinu í
dag við nokkra kunna fast-
eignasala er fjallað um nýbygg-
ingamarkaðinn. Þar kemur m.
a. fram, að verð fari hækkandi
vegna þess að eftirspum eftir
íbúðum sé meiri en framboð.
„Þeir eru margir, sem ekki
vilja setja eignir sínar í sölu, þó
að þeir hafi huga á að selja,
vegna þess að þeir eru ekki
búnir að finna sér eign við hæfi
til að kaupa þar sem framboðið
er lítið,“ segir Agúst Benedikts-
son hjá fasteignasölunni Hóli,
en þar eru m. a. til sölu ný
SVEIFLUR í húsbréfakerfmu eru
mikill mælikvarði á fasteigna-
markaðinn á hverjum tíma. Á fyrstu
níu mánuðum þessa árs voru inn-
komnar umsóknir um húsbréfalán
mun meiri en á sama tímabili í íyrra,
bæði að því er varðar notað íbúðar-
húsnæði og nýtt.
Þetta sýnir, að umsvif á fasteigna-
markaðnum ei-u mun meiri í ár.
Færri umsóknir vegna nýbygginga
byggingaraðila skýrast sennilega af
því, að þegar nýjar íbúðir seljast fljótt
og vel eins og nú, þá eru það oftast
kaupendumir, sem taka sjálfir hús-
bréfalán í stað byggingaraðilanna.
Munurinn milli ára er þó enn
meiri í umsóknum um húsbréfalán
vegna kaupa á notuðu íbúðum en
nýjum eða 28%. I heild stefnir því
allt í, að fasteignaviðskipti verði með
allra mesta móti í ár.
Nú er mikill kraftur í nýbygging-
um enda eftirspurnin mikil og lík-
legt að á því verði ekkert lát. Hús-
bréfin era affallalaus að kalla, sem
er mjög hagstætt fyrir markaðinn,
því að það er hagstæðara að kaupa
og byggja, þegar ávöxtunarkrafan
er lág, þar sem húsbréfm eru þá
þeim mun verðmætari, sem fást út á
eignirnar.
Að sögn fasteignasala er framboð
á nýjum íbúðum aftur að aukast, þar
sem íbúðir í nýju hverfunum í
Reykjavík eins og Víkurhverfi og
Staðahverfi og í öðrum áfanga
Lindahverfisins í Kópavogi era sem
óðast að koma í sölu.
Athygli vekur veruleg aukning í
samþykktum skuldbréfum vegna
endurbóta. Þetta bendir til þess, að
áhugi fólks á viðhaldi eigna sinna
fari nú vaxandi, en þessi þáttur hef-
ur verið vanræktur á undanförnum
árum hér á landi. Á næstu árum á
viðgerða- og viðhaldsþörfin eftir að
aukast til muna.
Afgreiðslur í húsbréfakerfinu
í jan.-sept. 1998 .. VV5Ö0
breyting frá sama IJ J / Breyting
tímabili 1997 / i!!<& ; jan.-sept.
Innkomnar umsóknir 5000^ 1998/1997
Notað húsnæði +28,1%
Endurbætur +17,5%
Nýbyggingar einstaklinga +17,0%
Nýbyggingar byggingaraðila -23,0%
Samþykkt skuldabréfaskipti
Notað húsnæði - fjöldi +25,1%
Notað húsnæði - upphæðir +32,2%
Endurbætur - fjöldi +44,8%
Endurbætur - upphæðir +43,4%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöldi +10,2%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæðir +9,4%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi -30,1%
Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir -14,9%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæð +23,8%
Útgefin húsbréf
Reiknað verð (meðaltal) -0,8%
raðhús við Haukalind í Linda-
hverfi, sem mikil ásókn er í.
Fjallað er um nýjar íbúðir í
fjölbýlishúsum við Gnípuheiði í
Kópavogi, sem eru til sölu hjá
fasteignasölunni Ásbyrgi, en
þessar íbúðir standa á miklum
útsýnisstað.
Við Gautavík í Víkurhverfi er
fasteignasalan Gimli að hefja
sölu á 3ja til 4ra herb. íbúðum,
en þetta hverfi er með góðu
útsýni í átt til Esju og upp í
Mosfellsveit.
Við svonefndan Einarsreit í
Hafnarfirði er fasteignasalan
H- Gæði með í sölu ný timbur-
hús. Þessi hús standa mjög
miðsvæðis í bænum á svæði,
sem einkennist af hraunlendi
með bölum og bollum, sem eru
svo áberandi í Firðinum. / 16 ►
SELJENDUR HÚSBRÉFA
Við kaupum alla
flokka húsbréfa
Einungis 0,5% söluþóknun
í október og nóvember
KAUPÞING HF
Armúla 13A / Sími 515 1500 / Fax 515 1509 / www.kaupthing.is