Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI
SIÐUMULA 1 SÍMI 533 1313 FAX 533 1314
VANTAR
■ 3-4ra herbergja í Háaleitishverfi.
£ Álftamýri og Safamýri 3-4ra herbergja íbúðir.
■ Sérhæð i Safamýri vantar á skrá
6 Átt þú 4-5 herbergja íbúð í Teigum, Túnum eða Sundum, þá vantar okkur
íbúðina þína.
■ Sérhæð í vesturbæ
® Einbýli vantar í vesturbæ
■ Raðhús í Fossvogi
■ Einbýli, raðhús, parhús í Breiðholti.
■ Ártúnsholt. Leitum að eign á verðbilinu 12—14 milljónir. Fyrirþásem
hafa áhuga og vilja minnka við sig, þá höfum við eign á sama svæði.
Atvinnuhúsnæði
Gilsbúð Gb. Um er að ræða 200
fm steinhús með um 6 metra lofthæð. 2
t. hlaupaköttur, 380 volt þriggja fasa raf-
magn, 100 Amper. 4x4 m innkeyrsludyr.
Skrifstofa og kaffistofa fylgir. Góð lán
fylgja.
Einbýlishús
Holtsbúð Gb. Um 312 fm hús
sem er í dag skipt f hæð, 148 fm, og 48
fm bílskúr, auk tveggja íbúða á jarðhæð,
116 fm sem er 2ja herb. og stúdíóíbúð.
Möguleiki að skipta á minna.
Malarás Um 281 fm hús sem skiptist I
góða hæð með þremur svefnherbergjum,
stofu og borðstofu. Á neðri hæð er gott
unglingaherbergi og annað stærra. Bílskúr
er innbyggður 38 fm. Sólskáli og falleg ver-
önd I suðaustur. Gott ástand.
www.fron.is - e-mail: fron@fron.is
Lækjargata Hf. Um er að ræða 150
fm einbýli á 3 hæðum. Kjallari, hæð og ris. í
gamla bænum. Með frábærum garði. Kjall-
arinn þarfnast standsetningar. Verð
9,7millj.
Rað- og parhús
Fannafold Um 150 fm vandað
parhús á einni hæð með 24 fm bflskúr.
Vel innréttað hús með 4 svefnh. og góðri
stofu. Áhv. 3,5 millj. Byggsj. Verð kr.
12,5 millj.
Hæðir
Hrísateigur. Falleg 3ja herbergja 85 fm
sérhæð með 16 fm vinnuskúr sem býður
upp á stækkunarmöguleika. Innréttingar f
eldhúsi og baði eru nýjar ásamt nýjum pípu-
lögnum og gleri. Verð 8,8 millj.
Kóngsbakki. Skemmtileg 90 fm íbúð
á 3ju hæð I blokk, sem nýlega er búið að
taka f gegn ásamt sameign. 3 svefnher-
bergi, rúmgott baðherbergi, eldhús með
korkflísum og þvottaherbergi inn af. Stofa er
björt og góðar suðursvalir. Sameign nýlega
standsett. Verð 6,8 millj.
3ja herb.
Krummahólar. 75 fm íbúð á 5. hæð í
lyftublokk. Svalir I suður. Frábært útsýni.
Ibúðin öll nýmáluð. Sameign i góðu standi.
Áhv. 3,7 millj. Verð kr. 6,3 millj.
Flyðrugrandi. 1 þessu barnvæna
hverfi er nú í sölu 67,8 fm íbúð á 3. hæð
í fjölbýli. Með svalir í vestur. Áhv. 670
þús. Byggsj. Verð kr. 6,3 millj.
Engjasel. Um 94 fm hæð og risíbúö I
3ja hæða blokk með stæði i bílskýli. Parket
á öllu nema baði og eldhúsi. Pessi býður
uppá góða möguleika.
Laugavegur. Petta er stórglæsileg
2-3ja herbergja fbúð ofarlega á
Laugavegi. ALLT NÝTTI T.d. gólfefni,
innréttingar, gler og fl. Þessari skaltu
ekki missa af. Verö 7,3 millj.
Mávahlíð Ris, Notaleg 40 fm fbúð
á frábærum stað í Hhlíðunum. Parket á
gólfum. Húsið er f ágætu standi. Áhv.
2,5millj.
Vallarás. 83 fm íbúð á 4. hæð í lyf-
tuhúsi. Vel skipulögð ibúð. Parket og
flísar á gólfum. Eldhús með nýlegri
innréttingu. Svalir með yfirbyggðum sól-
palli. Verð 7,3 millj. Áhv. 4,5 millj.
2ja herb.
Þangabakki, Um er að ræða 62,5
fm íbúð á 6. hæð í fjölbýli með lyftu.
Frábært útsýni. Stutt í alla þjónustu.
Verð 5,6 millj.
Hrafnhólar. Þessi getur losnað
fljótt. Um er að ræða rúmgóða 64,4 fm
2ja herbergja íbúð á 1. hæð í þriggja
hæða blokk. Hús nýmálað. Góð staðset-
ning. Áhv. 3 millj.
\
áÍ 'ú'
l 1 l_t 1 í i
fc jRT i bJL- - safl gjjit úi Ji i r7'~:r
Hraunbær. Stórglæsileg 65,6 fm íbúð f
viðhaldsfríu fjölbýli. Öll fbúðin er nýlega
uppgerð. Mahony parket á allri íbúðinni en
flísar á baði. Sjón er sögu ríkari.
Skólatún Álftan. Björt og falleg ca
60 fm íbúð á efri hæð á þessum eftirsótta
stað í litlu fjölb. Parket á gólfum og vandað-
ar innr. Áhv. 3,4 millj. húsbr. Verð 5,9 millj.
0587
Nýbyggingar
Mosfb. Um 150 fm raðhús á einni
hæð með innbyggðum bílskúr.
Steniklætt að utan. Húsið getur skilast
fullbúið, fokhelt eða tilbúið undir tróverk.
Áhv. 5,5 millj. húsbréf. Skilast á þre-
mur byggingastigum.
Námstefna um fram
leiðni og viðhald
í byggingarððnaði
ALDURSDREIFING húsa.
RANN SÓKNASTOFNUN bygg-
ingariðnaðarins stóð nýlega fyrir
námstefnu um framleiðni og viðhald
í byggingariðnaði. Erindi á ráð-
stefnunni fluttu Hans Jörgen
r Larsen frá Danmörku. Age
Hallquist frá Noregi, Bertil Petter-
son frá Svíþjóð og Björn Marteins-
son af íslands hálfu.
A námstefnunni kom fram mikil-
vægi vandaðs undirbúnings allra
byggingarframkvæmda og undir-
strikað mikilvægi reglulegs
viðhalds.
Erindi Bjöms Marteinssonar
verkfræðings á Rb byggðist að
mikiu leyti á skýrslu sem kom út
árið 1997 hjá Rb. Skýrslan heitir
,Ástand mannvirkja og viðhalds-
þörf'. Rannsóknaverkefnið var
styrkt af Húsnæðisstofnun og
Rannsóknarráði Islands. Höfundar
eru Benedikt Jónsson og Bjöm
'Marteinsson sérfræðingar á Rb.
„Húsin í landinu -
aldur þeirra og ástand
Á þessari öld hafa landsmenn svo
til alveg endumýjað þann húsakost
sem til var í landinu um síðustu
aldamót og til viðbótar byggt mikið
vegna fólksfjölgunar og breyttra
þjóðfélagshátta. Fólksfjölgun, flutn-
ingur fólks úr dreifbýli í þéttbýli og
minnkandi fjölskyldustærð, samfara
óskum um aukið rými á hvem ein-
stakling, hefur kallað á verulegar ný-
byggingarframkvæmdir. Á sama
tíma hefur þörf fyrir atvinnuhúsnæði
og opinbert húsnæði vaxið mikið.
Vegna þessa hefur aukning í
húsakosti verið mjög mikil síðustu
áratugi og meðalaldur húsnæðis því
fremur lágur hérlendis. I landinu
em nú alls til tæplega 108 þúsund
byggingar að meðtöldu íbúðar- og
atvinnuhúsnæði, útihús í sveitum
undanskilin, alls 78,9 milljón
rúmmetrar. Fasteignamat þessa
húsnæðis er alls 860 miiljarðar, en
endurstofnverðið (metinn nýbygg-
ingarkostnaður) er alls 1495 millj-
arðar.
Meðalaldur bygginga lands-
manna er um 29 ár. Byggingar, aðr-
ar en íbúðarbyggingar, hafa verið
meira en helmingur alls byggingar-
magns undanfarin 30 ár. Nýbygg-
ingar hafa til þessa verið langmest
áberandi í byggingariðnaðinum en
nú mun viðhalds bygginga fara að
gæta meira, samfara samdrætti í
nýbyggingum frá því sem mest var.
Þetta mun valda breytingu á bygg-
ingariðnaðinum sem atvinnugrein
þar sem verksvið, efnisnotkun og
verklag þarf að taka mið af breyttu
hlutverki.
Varðandi framkvæmd alla, og til
að tryggja áframhaldandi verðmæti
fasteignanna, skiptir ennfremur
mjög miklu máli fyrir húseigendur
og þjóðarbúið í heild að umráða-
menn húsnæðis geri sér grein fyrir
hvemig viðhaldsþörf mannvirkja
verði best háttað og hversu mikil
fjárþörf fylgir aðgerðunum.
Ending og viðhalds-
þörf mismunandi
Ending og viðhaldsþörf er mis-
munandi eftir byggingarhlutum,
byggingarefnum og aldri bygginga
en er einnig háð fyrra viðhaldi. Lé-
legt eða rangt viðhald getur haft
áhrif á endingu byggingar þannig
að endurbyggingar sé þörf fyrr en
ella. Félagsvísindastofnun HI gerði
1996 viðhorfskönnun meðal húseig-
enda, iðnaðarmanna og hönnuða og
er þar að finna mjög fróðlegar upp-
lýsingar. I úttektinni voru húseig-
endur m.a. spurðir um hverju
viðhaldskostnaður sé talinn nema á
ári hverju. Fram kemur að af 144
aðspurðum húseigendum telja 52%
þeirra árlega viðhaldsþörf íbúðar-
húsnæðis vera innan við 50 þúsund
krónur og 24% að hún liggi á bilinu
50-150 þúsund, en 6% telja kostnað
vera meiri.
Uppgefínn viðhaldskostnaður
mannvirkja endurspeglar lágan
meðalaldur húsnæðis hérlendis, auk
þess að kostnaðurinn kann að vera
vantalinn. Viðhaldskostnaður á bil-
inu 50-150 þúsund á ári samsvarar
um 0,6-2% af nýbyggingar-
verðmæti íbúðar eða allt að 1% af
hliðstæðu verðmæti sérbýlis, en
þessi kostnaður mun hækka með
vaxandi aldri húsnæðis. Hliðstæðar
niðurstöður fengust úr könnun Rb
sem greint er frá í áðumefndri
skýrslu.
Athuganir á ástandi húsa, um-
fangi viðhalds og viðhaldskostnaði
hafa aðeins verið gerðar að óveru-
legu leyti, en heildarkostnaður er
metinn á 20 milijarða á ári.
Viðhaldskostnaður íbúðarhúsnæðis
er að meðaltali 1-2% á ári af ný-
byggingarverðmæti. Viðhalds-
kostnaður íbúðarhúsnæðis að
verðmæti 10 milljónir yrði t.d. að
jafnaði 100-200 þúsund á ári.“
Nokkrir fróðleiksmolar
Að lokum eru hér dregnir saman
nokkrir fróðleiksmolar frá þeim
Bimi og Benedikt:
- Loftafletir innanhúss eru til
samans áætlaðir rúmlega 20 millj-
ón fermetrar og yfirborð inn-
veggja og útveggja að innan eru
45 milljón fermetrar til viðbótar.
Til samans er um að ræða rúm-
lega 65 milljón fermetra slíkra
flata innanhúss, en til að endur-
mála þá einu sinni þarf um 6,5
milljón lítra. Ef gert er ráð fyrir
að fletirnir séu að jafnaði málaðir
á 10 ára fresti þá þarf til þess um
650 þúsund lítra af málningu á
ári.
- Glerflötur glugga er áætlaður
um þrjár milljónir fermetra. Miðað
við 18 ára meðalendingu tvöfalds
verksmiðjuglers þarf að jafnaði að
skipta um tæplega 170 þúsund fer-
metra glers á ári.
- í landinu eru um 1,5 milljón
gluggar með alls um 900 þúsund
opnanleg fóg og rúmlega 11 milljón-
ir lengdarmetra af körmum og póst-
um. Gera má ráð fyrir að mála þurfí
timburverk utanhúss á 2-6 ára
fresti eftir aðstæðum.
- Þakflötur er áætlaður alls 12,6
milljón fermetrar, til þess að mála
þann flöt allan þarf um 1,5 milljónir
lítra af málningu.
- Steyptur (og múraður) út-
veggjaflötur er alls áætlaður um 10
milljón fermetrar. Til að endurmála
þessa fleti þarf samtals um 1 milijón
lítra, en einnig þarf að gera við
steypu í hluta flatanna.