Morgunblaðið - 13.12.1998, Síða 2
2 C SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AHUGI kvikmyndagerðar-
manna á verkum William
Shakespeares hefur verið
feikilega mikill hin síðari ár. Fjöldi
verka hans hefur verið kvik-
myndaður og hafa menn ýmist
haldið sig við nokkuð hefðbundnar
leiðir í þeim efnum eins og Kenn-
eth Branagh eða gersamlega
sleppt fram af sér beislinu eins og
Baz Luhrmann. Hins vegar höfum
við ekki séð margar myndir um
skáldið sjálft, líf þess og yndi, enda
næsta fátt vitað um manninn.
Shakespeare verður ástfanginn
eða „Shakespeare in Love“ bætir
nokkuð úr því. Hún er með Gwy-
neth Paltrow og Joseph Fiennes
(bróður Ralph) í aðalhlutverkum
en leikstjóri er John Madden, sem
gerði fína mynd í fyrra með Judy
Dench, „Mrs. Brown“; Dench leik-
ur einmitt Elísabetu drottningu í
Shakespearemyndinni.
Leikskáid og
hasarhöfundur
Þegar myndin hefst á Shakespe-
are í nokkrum erfiðleikum með
andagiftina, honum gengur ilia að
semja, skáldafákurinn sjálfsagt
uppgefinn í bili. Leikhúseigandi
nokkur, sem ástralski leikarinn
Geoffrey Rush leikur, fær hann
með miklum þrýstingi til þess að
semja fyrir sig traust metsölu-
stykki. Þegar komið er að því að
velja leikara í helstu hlutverk,
vinnuheiti verksins er Rómeó og
Ethel, dóttir sjóræningjans, fellur
skáldið flatt fyrir einni leikkonunni
og hún verður fyrirmynd
stúlkunnar í frægustu ástarsögu
sem skáldið reit.
Hugmyndin að „Shakespeare"
varð til fyrir einum tíu árum.
Höfundur handritsins er breska
leikritaskáldið Tom Stoppard, sem
áður hefur spunnið utan um
Shakespeare (Rósinkrans og Gull-
instjarni eru dauðir), og hasar-
myndahöfundurinn Marc Norman,
sem kannski er þekktastur fyrir að
hafa átt þátt í handriti Vatnaver-
aldar Kevin Costners og skrifað
„Cutthroat Island" fyrir Renny
Harlin. Þeim Weinsteinbræðrum
hjá framleiðslu- og dreifingarfyrir-
tældnu Miramax þótti handritið
gott og þeir settu fjórar og hálfa
milljón dollara í myndina, sem er
skiptimynt á Hollywoodmæli-
kvarða.
En það gekk ekki átakalaust að
koma myndinni í gang. Edward
Zwick („Glory“, „Legends of the
Fall“), lunkinn og fagmannlegur
leikstjóri, var fenginn til að
leikstýra strax árið 1992 en hann
hvarf frá verkefninu. Það sama
gerðu Daniel Day-Lewis, sem
ætlað var að færi með hlutverk
Shakespeares, og loks hætti Julia
Roberts við hlutverk stúlkunnar,
sem varð til þess að framleiðslan
lagðist niður í bili.
Fiennes reyndi fyrst við hlut-
verkið 23 ára gamall árið 1992.
Hann var þá ennþá í leiklist-
amámi. Fimm árum síðar hreppti
hann rulluna. Hann fékk að vísu
ekki að leika á móti Roberts eins
og þá stóð til heldur varð mótleik-
kona hans Paltrow, sem mjög er
eftirsótt þessa dagana í bíómyndir
eins og kunnugt er. „Þeir höfðu
upp á mér aftur,“ segir Fiennes í
kvikmyndatímaritinu Premiere,
sem nýlega fjallaði um gerð mynd-
arinnar. Fiennes segist hafa verið
„hryllilega hræddur við að fást við
svo sögufræga persónu sem
Shakespeare og mann sem allir
hafa sínar mjög svo ákveðnu skoð-
anir um. En það er nákvæmlega
ekkert vitað um skáldið," bætir
hann við, „svo ég fann bara upp á
þessum tungulipra náunga."
Skemmtanaiðnaðurinn
Handritshöfundarnir Stoppard
og Norman höfðu skemmtana-
iðnaðinn í huga við samningu
handritsins eins og hann kannski
hefur verið á öllum tímum með sín-
um prímadonnum og hörkusam-
keppni. „Shakespeare er að reyna
að vinna sér inn einhverja aura í
skemmtanabransanum," hefur
tímaritið eftir Norman. „Allt þetta
með Zwick að gera. Miramax leit
gersamlega framhjá þeirri stað-
reynd að hann var bæði fram-
leiðandi og leikstjóri myndarinnar.
Zwick fór fram á tíu milljóna doll-
ara skaðabætur. Fyrirtækið samdi
á endanum við Zwick, sem ski’ifað-
ur er framleiðandi fyrir myndinni.
Madden var ráðinn og Paltrow í
kjölfarið á því.
„Það er klassi yfir Paltrow inn-
an um allt þetta breska leik-
aralið,“ er haft eftir Geoffrey
Rush. Paltrow er reyndar ekki
eini bandaríski leikari mjmdarinn-
ar, kærasti hennar, Ben Affleck,
kemur fram í litlu hlutverki. „Þeg-
ar ég fékk handritið í hendur var
ég alls ekki að leita mér að hlut-
verki,“ er haft eftir Paltrow. Vinur
hennar hvatti hana til þess að
skoða handritið betur. „Ég las það
yfir aftur og sagði, ég hlýt að hafa
verið á lyfjum, ég sleppi ekki þess-
ari.“
Leitin að Shakespeare vai- erf-
iðari. Annar Weinsteinbræðra hjá
Miramax, Harvey, vildi að band-
arískur leikari færi með titilhlut-
verkið, helst einhver kvikmynda-
stjarna. Bæði Paltrow og leikstjór-
inn Madden voru gersamlega á
móti því og sögðu manninum að
það næði engri átt að láta Band-
aríkjamann leika Shakespeare.
Hann gaf undan um síðir og þau
gátu einbeitt sér að ungum bresk-
um leikurum. „Ég prófaði hrein-
lega alla í hlutverkið," er haft eftir
Madden. „Hvernig í ósköpunum er
farið að því að finna leikara í hlut-
verk mannsins sem skrifaði þessu
miklu leikrit? Það er einhver
hlédrægni í Joseph Fiennes sem
fær þig strax til þess að pæla í því
hvað er að gerast í hausnum á hon-
um.“
Fiennes var hrifínn af efnistök-
unum í handritinu. „Myndin fjallar
um lífsbaráttuna í listaheiminum
og um peningana og að eiga fyrir
leigunni og í leiðinni að búa yfir
snilligáfu." Eitt af markmiðunum
með myndinni, ef trúa skal orðum
aðstandenda hennar, er að taka
skáldið af stalli og sýna hann eins
og hvern annan matvinnung. „Við
vildum taka hann af stallinum,"
segir handritshöfundurinn Norm-
an, „og velta honum
aðeins fyrir okkirn og
setja hann síðan aftur
á stallinn og gefa
áhorfendum einhverja
hugmynd um hvers
vegna hann á heima
þar.“ Sem leikstjóri
vildi Madden tryggja, á
svipaðan hátt og Kenn-
eth Branagh í sínum
Shakespearemyndum,
að þessi rómantíska
gamanmynd yrði
þannig úr garði gerð að
allur almenningur gæti
haft af henni nokkurt
yndi. „Hátimbruð list
er eitthvað sem fólki
dettur strax í hug þeg-
ar það heyrir skáldið
nefnt á nafn,“ segir
Madden, „en myndin
er í raun mjög fýndin
og nútímaleg.“ Leikar-
inn Rush, sem áður fór
með aðalhlutverkið í
„Shine", segir: „Við
gerumst oft hátíðleg
þegar við hugsum til
Shakespeares en þessi
mynd gerist áður en
hann fer að vekja at-
hygli. Hann er að leita
að innblæstri."
Það sem flestar
Shakespearemyndir
síðustu ára eiga sam-
eiginlegt er einmitt sú
viðleitni að kynna
skáldið þeim sem alla
jafna sækja kvik-
myndahús. Það hefur
tekist í mögum tilvik-
um og Shakespeare
verður ástfanginn er
greinilega ætlað sama
hlutverk. Fyrst og
fremst sýnir hún þó að
skáldið er síungt og í
stöðugri eftirspurn.
PALTROW og Fiennes stíga dansinn í mynd John Maddens sem segir af því hvernig
Shakespeare varð ástfanginn.
William
Shakespeare
verður ástfanginn
Ný bandarísk mynd
segir frá því þegar
sjálfur William
Shakespeare verður
ástfanginn. Arnald-
ur Indriðason
skoðaði hvernig það
gerist og hverjir
standa á bak við
ástarævintýri
skáldsins mikla
sem við þekkjum í sambandi við
skemmtanaiðnaðinn, stjörnur,
auglýsingamennska, skrum, svik
og átök út af samningagerð, var
fundið upp á Elísabetartímanum."
Leikstjórinn Madden tekur undir
þetta sjónarmið. „Það er alveg
stórundarlegt hversu míkil líkindi
eru á milli listalífsins á þeim tíma
og nútíma kvikmyndagerðar,“ seg-
ir hann og nefnir samkeppnina á
milli Shakespeares og leikrita-
skáldsins Christopher Marlowe,
sem Rupert Everett leikur í mynd-
inni.
Madden þekkir vandamálin af
eigin raun eftir að hafa komið inn í
myndina á lokastigi þegar fjögur ár
höfðu liðið í algjörri óvissu um
hvort hún yrði nokkru sinni gerð.
Leikstjórinn Edward Zwick
höfðaði mál á hendur Miramax en
samkvæmt málskjölum átti Uni-
versal kvikmyndaverið kvikmynd-
aréttinn og réði Zwick til starfans
en framseldi síðar réttinn til
Miramax, sem vildi ekkert hafa
ELDHEITAR ástir; Fiennes og Paltrow.
JUDY Dench í hlutverki Elísabetar drottningar.