Morgunblaðið - 13.12.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 C 3
Nóttin lifnar við eftir metsöluhöfundinn Þorgrím Þráinsson. Saga þessi er
sjálfstætt framhald verðlaunasögu Þorgríms, Margt býr í myrkrinu, er út
kom í fyrra. Söguhetjumar eru fjórir unglingar, tveir piltar og ein stúlka úr
Reykjavík og frönsk vinkona þeirra. Unglingamir eiga erindi að Búðum á Snæ-
fellsnesi þar sem þeir dragast óvart inn í atburðarás þar sem þeir geta litlu ráð-
ið um framvindu mála. Eins og í fyrri unglingabókum Þorgríms tekst honum
einkar vel að lýsa hugarheimi söguhetja sinna, væntingum þeirra, vonutn og
þrám, og ekki síst samskiptum fólks sem er að vakna til vitundar um kynjahlut-
verk sitt.
“Ógeðslega flott bók, maður!”
....Þorgrímur situr skáldfákinn flestum betur, þá verður úr hljómfall sem heillar.
Ógeðslega flott bók, maður! munu unglingarnir segja.”
“Þorgrimur er margverðlaunaður höfundur, - þó mest og
þessa lands, og engan sþámann þarf til að sjá, að enn er
hærri stalla.”
bezt af unglingum
hann að klífa upp á
Sig. Haukur í Mbl. 1. desember 1998.
Hjálp, Keikó! Hjálp! er ævintýri um systkini í Vestmannaeyjum, Gylfa og
Matthildi. Lubbi, hvolpurinn hennar Matthildar, týnist og systkinin fara
að leita hans. Þau ákveða síðan að bregða sér f smá siglingu á kajak, en lenda
þá í mikilli hættu, jafnvel lífsháska. Á síðustu stundu birtist þó bjargvættur
sem hjálpar systkinunum og Lubba að komast í land.
Bókin er í stóru broti og eru litskrúðugar myndir á hverri síðu eftir Þórarin F.
Gylfason, grafískan hönnuð.
W MÍí
•
-t-Tl
,