Morgunblaðið - 13.12.1998, Page 24

Morgunblaðið - 13.12.1998, Page 24
24 C SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ RÚDOLF KVARTETTINN: Skarphéðinn Þór Hjartarson, Þór Heiðar Ásgeirsson,Sigrún Þorgeirsddttir og Soffía Stefánsddttir Fjórradda jólakæti Jólasöngvar eru ekki hluti af íslenskri jólahefð, en fyrir nokkrum árum skaut upp kollinum hér söng- kvartett, Rúdolf, sem innleiddi skemmtilega stemmningstónlist í jólamánuðinn. Súsanna Svav- arsdóttir hitti tvo stofnendur sönghópsins, þau * Sigrúnu Þorgeirsdóttur og Þór Heiðar Asgeirsson, til að forvitnast um tilurð hans og starfsemi. FÁTT hefur sett svip sinn eins skemmtilega á jól- stemmninguna á síðustu ár- um og sönghópurinn Rúdolf og má jafnvel ganga svo langt að segja að hann hafi flutt sönginn inn í hvunndag desem- bermánaðai-, þegai' við erum á vit- lausasta hraða ársins. Skyndilega hljómar söngur skammt undan og við stöldrum við, göngum á hljóðið og þar stendur sönghópur og syngur jólalög. Meira þarf ekki til að fylla mann jólagleði. Maður hægir á sér, það sljákkar á andlitsdráttunum og maður man um hvað þetta snýst allt saman. Þannig heyrði ég sönghópinn Rúdolf í fyrsta sinn, á götuhorni í jólaösinni. Það eru ekki mörg ár síðan, en nú þegar á hópurinn sér fastan sess í jólagleðinni og það sem meira er, hefur gefið út tvo geisladiska. Sönghópinn Rúdolf skipa þau Þór Heiðar Ásgeirsson, Skarphéðinn Þór Hjartarson, Sigrún Þorgeirs- dóttir og Soffía Stefánsdóttir. Ég hitti þau Sigrúnu og Þór yfir morg- unkaffi einn daginn til að forvitnast um hvaðan hugmyndin að þessum jólalega kvartett væri runnin. „Við komum heim frá námi í Bandaríkjunum 1992,“ segja þau Sigrún og Þór. „Þar höfðum við kynnst Figgy Pudding Carolers. Það var hópur söngnema og annarra tónlistarnema sem fiestir stunduðu nám við Boston háskóla. Konan, sem rak þetta fyrirtæki, hóaði saman um 25 manns og bjó til úr því ýmsa kvartetta. Við sungum á fínum hótelum, verslunarmiðstöðvum og einkasamkvæmum. Hún hringdi og spurði hvort maður væri laus og ef svo var, mætti maður, fékk sinn búning og söngbók og var sendur af stað. Frumraun okkar hér var í Ríkisútvarpinu, ásamt Leifi Hauks- syni og Guðrúnu Gunnarsdóttur, á gamlársdag 1991 á Rás 2. Við vorum kölluð Turnkvai'tettinn, vegna þess að þetta var í turninum á húsinu.“ Til heiðurs hreindýrinu „Þegar við ákváðum svo að stofna Rúdolf var Skarphéðinn kallaður til, en hann og Þór hafa sungið saman frá því í menntaskóla, í kvartett sem hét MK-kvartettinn,“ segir Sigrún. „Þær Guðrún Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir voru með okkur Skarphéðni í þessum kvartett," bætir Þór við. „Við gerð- um lengi út og vorum ágætlega vinsæl af menntaskólakreðsunni á þeim tíma. En við Skarphéðinn höf- um haldið saman allt frá þessum tíma. Hann er mikili snillingur í tón- list og það var rökrétt að fá hann til liðs við okkur þegar við stofnuðum Rúdolf. Einnig fengum við til liðs við okkur Sesselju Kristjánsdóttur sem söng alt í Rúdolf fyrstu 4 árin. Hún fór síðan til Þýskalands í frekara söngnám." „Meiningin var að athuga hvort það væri grundvöllur fyrir svona jólasöng hér á íslandi, því þetta er þekkt fyrirbrigði frá því á 19. öld í Bretlandi og Bandaríkjunum, en hefur aldrei oi'ðið að hefð hér að syngja svona fyrir gesti og gang- andi,“ segir Sigrún og bætir við: „Markmiðið var bara að kynna jóla- söngva. Það var auðvitað höfuðverkur hvað ætti að kalla kvartettinn, vegna þess að þetta er ekki ein- göngu trúarleg tónlist, heldur jóla- söngvar og jólastemmning. Mörgum höfnum var hafnað og á endanum varð Rúdolf fyrir valinu, svona til heiðurs hreindýrinu.“ „Islendingar eru mjög vanir kóra- menningu og söng við undirleik en þeir þurftu venjast því að hlusta á svona tónlist án undirleiks á meðan verið var að borða eða gera eitthvað annað. Við vorum ekki alltaf með formlega tónleika, ekki formlegt fyrirkomulag á flutningnum og vor- um ekki endilega atriði. Fólki var í sjálfsvald sett hvort það tæki þessu sem atriði eða ekki. Það er mikill skóli að koma fram við slíkar aðstæður. Maður lærir að afmarka sig frá umhverfinu. Við höfðum ekki mikið að gera fyrsta veturinn, þetta var svona reytingur. En þar sem við komum fram fengum við góðar viðtökur og við sáum að það væri þess virði að halda áfram. En árið 1993 tók þetta fyrst á sig mynd, þegar Guðvarður á Loftleið- um réði okkur til að syngja í tveggja tíma kvöldverði fjögur kvöld í viku - sem er rosalega mikið álag. Við sungum hjá honum alla aðventuna og enduðum kvöldið fyi'ir Þorláks- messu. Það var ofboðslegur skóli og við þurftum að stækka dagskrána okkar mjög mikið. Skarphéðinn fór að útsetja og nú orðið er um 70% af dagskránni okkar útsett af honum, fyrir okkar raddir. Hann veit svo vel hvernig við hljómum best.“ Skrautleg námsferð Árið eftir fóru þau Sigrún og Þór aftur til Bandaríkjanna en þó starfaði Rúdolf áfram og hlupu Hulda Björk Garðarsdóttir og Valdimar Másson í skarðið. Sigrún hugðist fara í kórstjórnarnám og Þór ætlaði í doktorsnám í fiskivist- fræði. „Við ákváðum að halda áfram í námi, eftir að ég hafði lokið mínu líf- fræðinámi í Bandaríkjunum," segir Þór. „Sigrún ákvað að fara í kór- stjóm og ég í doktorsnám, með tvö böm, eins og fimm ára. Við vomm búin að ákveða að fara á ódýrari stað en Boston, sem hefði þó góðan skóla. Við fundum Tallahassee í Flórída af öllum stöðum. Þangað mættum við í ágúst 1994, eftir rign- ingasumarið mikla og veröldin bókstaflega skreið á móti okkur þegar við lentum. Það var allt myglað, oíVaxið og skordýr út um allt. Islendingar sem voru búsettir í Tallahassee höfðu útvegað okkur hús, sem var mjög elskulegt af þeim, en tveim dögum áður en við komum hafði gert þramuveður og stór eik fallið í gegnum þakið og nú stóð hún á hvolfi í stofunni. Við afþökkuðum húsið og Við settumst upp hjá fjög- urra manna fjölskyldu sem við höfð- um aldrei séð og hófum leit að öðra húsnæði. Það tókst og margt lagaðist þegar haustaði. En hlutirnir gengu ekki upp og ákváðum við að koma aftur heim ári síðar.“ „Þetta var ekki rétti staðurinn fyrir okkur,“ bætir Sigrún hlæjandi við og lítur á Þór. „Nei, við Islendingar þekkjum ekki hugtakið skógur. Norðurhluti Flórída er einn skógur og við voram að kafna. Það er mjög skrítin reynsla fyrir langflesta Islendinga sem komu þama, að vera svona nálægt sjónum en sjá hann aldrei. Fólk sem kom í heimsókn til okkar og þekkti jafnvel Bandaríkin mjög vel, fékk algert menningarsjokk. Þetta var eins og að vera kominn til annarrar heimsálfu. Það sem bjargaði málinu var að þarna var töluð enska.“ „En við komum heim, reynslunni ríkari og þessi reynsla var mjög góð þegar upp var staðið,“ segir Sigrún. Islendingar í helgarham „Þegar við komum heim, snerum við okkur aftur að Rúdolf, full bjartsýni og áræði og ræddum við félaga okkar að gefa út disk,“ segir Þór. „Já, við semsagt komum heim, með skuldirnar á bakinu og ákváð- um að gefa út disk,“ segir Sigrún og hristir höfuðið. „Þetta var sumarið 1995 og við söfnuðum saman lögun- um okkar og gáfum út disk. Þetta var meira gert fyrir okkur sjálf, til að eiga eitthvað af því sem við höfð- um verið að gera. Við fjármögnuð- um þetta allt sjálf. Þetta vora tutt- ugu jólalög úr ýmsum áttum, Is- landi, Evrópu og Bandaríkjunum. Jón Ólafsson píanóleikari var upp- tökustjóri og okkar helsti ráðgjafi. Við vissum ekkert hvað við voram að gera í sambandi við upptökur; vorum alveg gi'æn. En það var ein- hvern veginn hamast á þessu, þangað til þetta var orðið útgáfu- hæft. Þessi jól sungum við aftur á Loft- leiðum og svo fengum við umfjöllun í fjölmiðlum um diskinn og þá fóru hjólin að snúast og við fengum fullt af verkefnum." „Það er skrítið að syngja fyrir matargesti, hreint einkennileg upp- lifun,“ segir Þór. „Við komum fram ótal sinnum í hverjum desem- bermánuði. Þarna voru Islendingar úti að skemmta sér á föstudags- og laugardagskvöldum en á sunnudög- um var meira um útlendinga og fjöl- skyldufólk. Þetta vora mjög ólíkir hópar. Islendingarnir í helgar- og skemmtanaham. Fólk var að kalla fram í, stóð við hliðina á manni og sagði brandara, stuggaði við manni, bað mann að færa sig í miðjum jóla- sveinasöng. Þegar við komum fram, færam við okkur á milli staða, milli sala, milli borða, en menn þurftu að komast á barinn, salernið, eða eitt- hvað og þá er allt og allir fyrir þeim. Við reiknuðum ekkert með því að vera eins og atriði, en þetta var bara eins og að vera stóll. Þetta var allt öðruvísi á sunnudögum. Þá myndaðist stemmning. Fólk hlust- aði kannski á tvö lög, klappaði og hélt svo áfram að borða. Við hætt- um á endanum að syngja á föstu- dags- og laugardagskvöldum en héldum fimmtudags- og sunnu- dagskvöldunum. Það gerðum við aftur 1996. Árið 1995 sungum við í fyrsta sinn við miðnæturmessu í Dóm- kirkjunni á aðfangadagskvöld og höfum gert það síðan. Það hefur verið mjög ánægjulegur endir á jólaprógramminu okkar. í fyrra fengum við það varkefni hjá Kópa- vogsbæ að kynna jólatónlist okkar í öllum grunnskólum bæjarins og var það sérstaklega skemmtilegt. En þetta fór allt að vefja upp á sig og áður en við vissum vorum við farin að syngja í afmælum, við kirkjuleg- ar athafnir og í einkasamkvæmum. Það var upphafið að því að við fór- um að æfa annað en jólalög.“ „Þegar við vorum að vinna seinni diskinn okkar, áttuðum við okkur á því að það er ekki mikið til af ís- lenskri jólatónlist. Það er til mikið af jólakveðskap og lög við hann, sem eru ekkert endilega íslensk, þannig að við gerðum gangskör í því að leita uppi íslenska jólatónlist og jólakveðskap, gengum meira að segja svo langt að fá samið fyrir okkur. Við réttum einn Grýlubálk- inn Þorkatli Sigurbjörnssyni, sem samdi fyrir okkur lítið verk, Brot úr Grýlukvæði. En það dugði ekki til, það er svo lítið til af íslenskri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.