Morgunblaðið - 13.12.1998, Síða 25

Morgunblaðið - 13.12.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 C 25 Iíslendingar eru mjög vanir kóra- menningu og söng við undirleik en þeir þurftu að venj- ast því að hlusta á svona tónlist án undirleiks meðan Íverið var að borða eða gera eitthvað annað jólatónlist að við urðum að enda diskinn á áramótatónlist. Það var ekki nóg til af bitastæðum lögum sem hentuðu okkur.“ Það var Spor sem gaf út seinni disk Rúdolf-kvartettsins. „Við komumst á samning sem var alger draumur," segja þau Sigrún og Þór. Spor tók í raun verkefnið einu skrefi lengra en upphaflega var ætlað, gaf út mjög vandaðan bækling og vann góða kynningu á diskinum. Við vorum syngjandi út um allt á vegum Spors. A þessum diski var alt númer tvö með okkur, Jóhanna Halldórsdóttir, en hún tók við af Sesselju og söng með okkur í 2 ár.“ En svo er það einn stofnandinn, Þór, sem fór í líffræðinám. Hvers vegna ekki söngnám? „Tveir söngvarar geta ekki búið saman mjög lengi. Þetta er svo „egósentrískt" fólk. Það kemst bara einn listamaður fyrir á heimili. Ég var í söngnámi hér á Islandi en ákvað að hætta og sneri mér að öðru. Ég fór í gegnum Kennara- háskólann og síðan í líffræði, fór síð- an út og tók tvær mastersgráður; kennslufræði raungreina og líf- fræði, en vinn á Hafrannsókna- stofnun í dag - í einkar ánægjulegu starfi." Ég skal bara syngja þetta fyrir þig Sigi-ún sneri sér hins vegar á vissan hátt að kennslu, eða að kór- starfi og stjórnar í dag Kvennakór Reykjavíkur, kórskóla Kvennakórs- ins og Kór Menntaskólans í Kópa- vogi. Svo tekur hún að sér ýmis til- fallandi verkefni, einsöng, nótna- prófarkalestur og annað, En þrír kórar. _ Hvers vegna? „Þetta er svo rosalega gaman. Það er ekki til neitt skemmtilegra. Það er ólýsanlegt tilfinning að ná því að virkja fólk með sér í kór. I Kvennakórnum erum við komnar með hundrað manna hljóðfæri. Það hafa ekki allir slíkt.“ Hvar byrjaði tónlistin hjá þér? „Ég byrjaði eins og flestir, lærði á mitt píanó - í tíu ár. Ég man eftir því þegar ég sagði við píanókennar- ann minn, mjög „frústreruð" yfir einhverri æfingu: Æ, ég skal bara syngja þetta fyrir þig. Og hún svaraði: Bíddu bara þangað til þú ferð að læra söng, þá viltu frekar spila lagið á píanóið. Ég hafði verið í kórum frá átta ára aldri og var oft látin syngja einsöng. Svo þegar ég var að ljúka menntaskóla, tók ég hálft nám í söng og hálft í píanóleik. Eftir stúdentspróf sótti ég um Tónlistar- skólann í Reykjavík um leið og ég innritaði mig í efnafræði í HÍ. Ég fékk inni og lauk þar áttunda stigi í söng og BS-gráðu í efnafræði. Hélt síðan til Bandaríkjanna í söngnám og lauk þar Master of Music-gráðu, og tók síðan kórstjórnina. Það var ekki kórstjórnardeild við skólann minn í Boston, en það nýtist vel að vera vel menntaður í söng til að geta hjálpað söngvurunum sínum að framleiða þau hljóð sem maður vill fá út úr þeim. Ég tók kórstjórnina síðar, í Flórída og komst þá að því hve hægt er að hugsa kórstjóm út frá mörgum mismunandi forsend- um. Hugmyndirnar sem kennararnir þar höfðu fram að færa voru mjög spennandi. Þær fjölluðu um það hvernig væri hægt að fá fólk til að gera hlutina, án þess að það áttaði sig á því að það væri að gera þá. Myndbandstökuvélin er aðaltækið í kórstjórnarnáminu. Það hræðileg- asta sem ég hafði upplifað, fyrir ut- an að hlusta á sjálfa mig syngja í fyrsta sinn, var að sjá sjálfa mig stjórna kór. Ég þurfti að gera skrif- lega gagnrýni um það sem ég sá á bandinu allan námstímann. Loka- verkefnið var síðan samanburður á fyrsta og síðasta myndbandinu." Var mikill munur? „Já, og ég ætla að vona að það sé allt til góðs. Hvað ætlar Rúdolf að gera núna? „Við fórum af stað með nýja dag- skrá í haust. Það er dagskrá fyrir samkvæmi, vegna þess að nú orðið erum við beðin að koma fram við ýmis tækifæri. Við urðum að setjast niður til að finna tónlist sem við vildum syngja og töldum eiga erindi og héldum tónleika í Reykholts- kirkju. Þessi dagskrá spannar út- setningar á íslenskum sönglögum, poppuð lög og þjóðlög. Við vinnum með þau á okkar forsendum. Núna munum við blanda þeim við jóla- prógrammið. Við verðum með tón- leika 15. desember í Norræna hús- inu. Síðan erum við með áttatíu laga jólaprógramm sem við syngjum mjög víða. Auk þess eru alls konar skemmtanir þar sem við höfum tekið tónlistarflutning að okkur í auknum mæli.“ Nýr diskur í vændum? Nú hafið þið gefið út tvo diska, Rúdolf - Jólasöngvar 1995 og Jóla- vaka - 1997. Eru fleiri diskar á döf- inni? „Við ætlum að fara í stúdfó eftir áramótin til að taka upp „demó“ af því allra nýjasta sem við enim með. Við höfum dálítið verið að bæta við undirleik til að hafa fjölbreytni, en við erum almennt ekki með undir- leik þegar við komum fram.“ „Það má segja að það séu nýir tímar framundan hjá okkur; ný tón- list, nýjar útsetningar, ný altsöng- kona og vonandi nýr diskur,“ segir Þór. Nú eigið þið enga íslenska fyi-ir- mynd, þið syngið jólalög, eruð með dagskrá fyrir samkvæmi, komið fram í kirkjum, heimahúsum, á veit- ingahúsum og jafnvel úti á götu. Hvernig skilgreinið þið ykkur? „Það er nú málið. Það virðist ekki vera hægt að flokka okkur í neina þekkta stefnu, sem hefur gert okk- ur dálítið erfitt fyrir með að eiga við fjölmiðla, einkum í sambandi við gagnrýni á diskana okkar og tón- leika. Við flytjum þjóðlög, popplög og jassaðar útsetningar, en erum klassískt menntuð. Við lendum dálítið út á kant. Þegar við fluttum bara jólatónlist lentum við á jólatónlistarhillunni, en hún endist bara í sex vikur og síðan er eins og enginn viti hvað eigi að gera við okkur eða hvaða fólk á að fjalla um tónlist okkar,“ segir Sigi'ún. „Tónlistarmenntun okkar auðveldar okkur æfingar og undii-- búning og t.d. æfum við mest án hljóðfæris," segir Þór. „Þó að hinir séu allir atvinnutónlistarmenn er ég búin að syngja með fjölmörgum kórum og kvartettum. I kórstarfi færðu ákveðinn tón og þarft að fá tíu söngvara til að ná honum. Hjá okkur reynum við að syngja inn í hljóminn og hugsa minna um ein- staka tóna. Þannig fáum við betri „intónasjón“ og heyrum eins og skot hvort hjá öðru þegar tónarnir eru ekki réttir. Þetta er alger hóp- vinna, þótt Skarphéðinn útsetji. Og þótt Sigrún sé kórstjóri, stjórnar hún ekki kvartettinum. Við ákveð- um í sameiningu hvar við byrjum og hvert við höldum." „Þess vegna höfum við náð mjög sérstökum tóni. Við forðumst „standard" kórútsetningar, nema þegar beðið er um eitthvað alveg sérstakt í brúðkaupum eða einka- samkvæmum. íslensk tónverka- miðstöð hefur gefið út nokkrar út- setningar Skarphéðins af íslensku jólalögunum sem við höfum sungið og finna má á diskunum okkar, en það er mikil uppörvun fyrir okkur og heiður.“ Er þetta ekki tímafrekt? „Jú, þetta er óheyrileg vinna - en líka óheyrilega skemmtileg, annars væri heimilið ekki undirlagt af þessu.“ Opið sunnudag ‘Jfuntu v/Nesveg, Seltjarnarnesi Sími 5611680

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.