Morgunblaðið - 13.12.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
því það mátti ekki afgreiða krakka á
j þeirra aldri.
í umræðunum bryddaði Guðný
upp á verðmætamati í sambandi við
1 refsingar kynferðisafbrotamanna
annars vegar og þjófa hins vegar.
„Ég hélt það væri séríslenskt
vandamál að hærri refsingar væru
við þjófnaði en kynferðisafbrotum,
en ég sé að svo er ekki,“ segir hún
og bætii- við að þjóðfélagið verði að
gera ljóst með viðurlögum að kyn-
ferðisafbrot gegn konum og böm-
j um séu ekki þoluð.
„Hvað vilduð þið gera?“
„Hvað vilduð þið gera,“ spurði einn
stjórnmálamaðurinn krakkana, „ef
þið væruð stjórnmálamenn?“ Svörin
voru mörg og margvísleg. „Ég
myndi leita árangurs, ekki bara
orða,“ varð einum að orði. „Ég
myndi færa ákvörðunarvald í hend-
ur þeirra, sem ákvarðanimar bitna
á, þannig að ungt fólk væri til dæm-
is oftar spurt álits,“ sagði annar.
Einnig komu fram uppástungur um
að fela börnum aukna ábyrgð. Einn
vildi bæta um það sem stjómmála-
menn hefðu þegar gert gott, „tíl
dæmis eins og þessi ráðstefna. Ég
vildi halda svona ráðstefnur víðar.“
Páll Pétursson spurði krakkana
hvað þau vildu gera í baráttunni
gegn eiturlyfjum. Svörin hnigu í þá
átt að krakkar leiddust í eiturlyfja-
neyslu af því þau hefðu ekkert fyrir
j stafni, svo betri aðstæður til tóm-
stundastarfa væru spor í rétta átt.
B Finnskur þátttakandi benti á að í
™ Finnlandi væru vel virk ungmenna-
ráð starfandi í borgum og bæjum og
gæfu góða raun.
Orð eru til alls fyrst
í lokaorðum sínum klykkti Andri
Snær út með að benda á að hið mik-
ilvæga við þessa samkomu hefði
verið að ungmenni og stjómmála-
;| menn hefðu í raun verið að ræða
saman, en ekki væri aðeins verið að
tala um að gera það.
Vaiva Vegbraite aðstoðarmennta-
málaráðherra Litháen neíndi hve
mikilvægt væri að ræða málin, Uka
þau mál, sem annars þætti skömm
að. „Pað skiptir máli að hafa orð á
vandanum, því í mínu heimalandi er
fullt af fólki, sem skilur ekki hve
slæmt ástandið er. Ég vildi óska
þess að ég gæti leyst vandann, en
Jí það fyrsta sem ég vildi gera er að
rétta foreldrum hendina til að hjálpa
j þeim við að sinna bömum sínum sem
* best.“
1
J
I
„Eg hugsa
ekki, þess
vegna er ég“
„EF ég hefði fæðst fyrir hundrað ár-
um,“ sagði Andri Snær Magnason
rithöfundur í fyrirlestri í einum
vinnuhópanna á barnaráðstefnu
Norðurlandaráðs og Barnahjálpar
SÞ, „hefði ég getað búist við að lifa
eins og forfeður mínir undanfarin
þúsund ár.“ Svo er ekki lengur eins
og öllum má vera ljóst. Hann vitnaði
til félaga og vina um hve líf ungs
fólks og valkostir væru fjölbreyttir
og allt virtist hægt.
En skilaboðin til ungs fólks væm
einnig mismunandi og ekki öll jafn-
skemmtileg. í gamla daga hefðu tröll
tryllt fólk í þjóðsögunum. Nú trylltu
auglýsingar, sem án afláts væri beint
til ungs fólks og almennt komið fram
við það eins og það væri asnar. „Ég
hugsa ekki, þess vegna er ég,“ er að
mati Andra Snæs sá skilningur sem
fjölmiðlar hafa á ungu fólki. „Enginn
má vera alvarlegur, ekki einu sinni
þegar rætt er um alvarlega hluti,“
hnykkti hann á.
Dæmi um svið, þar sem það horfði
til framfara að hlusta á ungt fólk,
væri í áróðri gegn fíkniefnum. Her-
ferðir gegn þeim virtust helst til
þess fallnar að hræða líftóruna úr
foreldrum en æsa upp forvitni
krakka í þessum efnum. „Hinir full-
orðnu ættu að taka hlutverk sitt sem
fyrirmyndir okkar alvarlega, líta á
ungt fólk sem blómstrandi hóp en
ekki sem auglýsingamarkhóp,"
hljómaði boðskapur Andra Snæs,
sem ráðlagði hinum eldri að slökkva
nú á sjónvarpinu og blanda geði við
yngra fólk.
OG lllílll
5.800
POP
- Margir litir
TM - HÚSGÖGN
Sföumúla 30 - Slmi 568 6822
lullkominn jakki
fyrip kalda da^a
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 C 27
VÍS^UStYKJýi, BR^IUÐRÍSt, mjÓLKijR£LÖS, StR^ujÓRJl,
ÞEYtORÍ, R^FmACnSHnÍFUR^. SmÓK.ÖKJJSPR£UtA,
VÖFFLUjÁRJI.....................HOnDRJfKJUCA?
Gjafakort á Dekurdaga í Baðhúsinu er hlý
gjöf, aðeins fyrir hana þegar hún kýs.
Hafðu samband við okkur og veldu þér
kort í hennar nafni.
Dekurdagur í Baðhúsinu, handa henni.
Nánarí uppiýsingar í síma 561 5100.
Kort B, 5 klst.
Andlitsbað
Augnmaski
Plokkun
Handsnyrting
Fótsnyrting
Heilnudd
Heitlaug
Vatnsgufa
Hvíldarhreiður
Kr. 11.990
Kort C, 4 - 5 klst.
Nudd og maski
Litun og plokkun
Ljósatími
Handsnyrting
Fótsnyrting
Partanudd
Heitlaug
Vatnsgufa
Hvíldarhreiður
Kr. 9.990
heiliulind tyrir lconur
Brauterholti S0, slml 561 5100
Hucsvnin Á bako/íð cjÖFÍnA
SEGÍR^mEÍlVA En CjÖFÍn S j Á LF.
Kort A. 6 - 7 klst.
Lúxusandlitsbað
Augnmaski
Litun og plokkun
Handsnyrting
Fótsnyrting
Vax að hnjám
Heilnudd
Heit laug
Vatnsgufa
Hvíldarhreiður
Kr. 16.790