Morgunblaðið - 13.12.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 13.12.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 C 33v DÆGURTÓNLIST Lifað af lagasmíðum JÓHANN Helgason hefui- löngum verið talinn neð helstu lagasmiðum hérlendis, en við lá fyrir nokkrum árum að hann legði tónlistina á hill- una. Þess í stað ákvað hann að reyna að hasla sér völl sem laga- smiður erlendis með prýðilegum árangi'i. F.vrir tveimur árum sendi hann frá sér skífuna Kef og ári síð- ar Eskimo sem náðu eyrum manna ytra og fyrir skemmstu kom út platan LP, sem er meðal annars ætluð til að nýta áhugann ytra. Jóhann Helgason hefur fengist við tónlist í á þriðja áratug, en hann segist hafa verið leiður á haridnu fyrir nokki'um árum. „Það er ekki hlaupið að því að lifa af tónlist hér á landi og ég var í alvöru að hugsa um það að hætta þessu og fara að gera eitthvað allt annað,“ segir hann. Hann segist þá hafa rifjað upp að þeir Magnús Sigmundsson hefðu komist á höfundarréttar- samning fyrir rúmum tveimur ára- tugum og því einsetti hann sér að gera atlögu að því sem og framsal- samningi. Mér fannst kominn tími til að reyna við það aftur, setti mig í samband við menn úti sem eru milligöngumenn lagasmiða og tón- listarmanna í leit að lögum. Einn slíkur, sem rekur fyi-irtæki sem kallast Songink, valdi lög efth' mig af Kef og Eskimo á sérstakan kynningardisk, sem síðan leiddi til þeirra tveggja samninga sem ég hef nú þegar undhTÍtað, annars vegar höfundari'éttarsamning við fyiirtæki í Kóreu á fjórum lögum í eigin flutningi af Kef og Eskimo svo og framsalssamning á fjórum lögum til í Ástralíu og Nýja-Sjá- landi. Ýmsar aðrai' þreifingar eni í gangi, skemmra á veg komnar," segir Jóhann og bætir við að platan nýja, LP, sé einmitt til þess ætluð að láta reyna á þau sambönd og afla nýrra; kynn- ingardiskurinn sé einskonar nafnspjald. Jóhann semur eðlilega öll lög á skífunni en Skotinn Reg Meuross semur alla texta utan einn. Meuross býr ytra og Jó- hann segist hafa þann háttinn á að hann sendi honum .lög með viðlagatextum, oft heilu við- lagi og orðum á stangli, sem Meuross síðan Lagasmiður- inn Jóhann Helgason. semji við texta. Jóhann segir að Meuross breyti yfirleitt litlu í text- anum, enda verði lagið og viðlags- línur til nánast samstundis og falli svo vel saman að ekki sé hægt að skilja þar á milli. Fyrir margt löngu lét Jóhann þau orð falla í viðtali að honum þætti best að láta lögin koma svo að segja af sjálfu sér; að vera ekki að spá of mikið í skipulagðar laga- smíðar fyrr en hugmyndin kæmi af sjálfu sér. Hann segir að i takt við þá ákvörðun að reyna að lifa af lagasmíðum hafi hann aftur á móti breytt um vinnubrögð. „Núorðið byrja ég yfirleitt að spá í plötu í janúar og byrja að semja á hverj- um morgni, nema ég tek mér frí um helgar. Þegar komið er fram í maí er ég tilbúinn með eitthvað um tíu lög sem ég er ánægður með, en er þá búinn að henda heilmiklu. Sumarið fer siðan í að undirbúa lögin fyrir upptöku og taka þau upp.“ Jóhann segir að þessi tilhög- un henti honum bráðvel og hann hafi komist að því að hann sé ekki að semja síðri lög með þvi að vinna á þennan hátt og að auki semji hann talsvert fleiri lög en með gamla mótinu. Ýmsir koma við sögu á LP og þar á meðal margir helstu popptón- listarmenn landsins. Fyrir vikið segir Jóhann að ekki sé hlaupið að því að halda útgáfutónleika eða tónleika fyrirleitt; menn séu allir uppteknh’ hver í sinu horni og ekki lát á því á næstu vikum. „Mig lang- ar til að halda tónleika einhvern tímann og hafa það þá almennilega tónleika. Það er þó meira en að segja það, það kostar ekkert smá- ræði og svo verða menn líka að hafa tíma til þess. Kannski ég geri það á næsta ári.“ Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Rokkmennt Magga Stína snýr úr frægðarför með sveit sinni. A sviði í Palladium í Lundúnum fyrir skemmstu. í MIÐRI plötuvertíð keppast hljómsveitir við að kynna sig sem mest þær mega til að vekja athygli á breiðskífum sínum. Þannig hefur verið nóg við að vera fyrir tónlistar- áhugamenn og í kvöld fá þeir góðan skammt því þá leika nokkrar helstu hljómsveitir landsins nú um stundir í Loftkastalanum. Þoi-valdur Gröndal, liðsmaður Ununar, ber veg og vanda af tón- leikunum, en hann segir að hug- mynd að þeim hafi kviknað í samtali við Gunnar Lárus Hjálmarsson en þeir eru báðir í Unun. „Yfirskrift tónleikanna er „Gefðu mér rokk í skóinn" og þar koma fram Bellatrix, Unun, Magga Stína, Súrefni, Botn- leðja og líklega 200.000 naglbítar. Einnig lesa upp rithöfundamir Hallgrímur Helgason og Mikael Torfason.“ Þorvaldur segir að tón- T leikarnir séu haldnir til að auka rokkmennt svona rétt fyrir jólin og er ekki í vafa um að menn eigi eftir að taka þeim vel. „Við reynum að stilla verði í hóf, enda er aðeiris stefnt að því að hafa upp í kostnað með miðasölu; miðinn kostar 1.000 kr. í forsölu í Japísbúðunum eða Loftkastalanum, en 1.200 við inn- ganginn." Eins og áður kemur fram eru tónleikarnir í Loftkastalanum næst- komandi laugardag og hefjast kl. ■*- 21.00. *Tilboö þetta gildir til loka janúar 1999 og miðast við Dell Latitude CPi GRENSÁSVEGi 10 • SÍMI 563 3050 • BRÉFSlMI 568 71 1 5 • sala@ejs.is TII_ VINSTRI kr. 245.900 f- stgr. m. vsk* Er vinnusvæði þitt tölvan á skrifborðinu á þriðju hæð, gengið um aðaldyr inn til vinstri, fram ganginn, inn um dyr á hægri hönd og svo þrjá metra áfram? Og um leið og tölvan er utan seilingar, þá ertu í raun víðsfjarri öllum þeim upplýsingum og verkefnum sem þú vilt vinna með, senda frá þér og taka á móti? Með öfluga fartölvu í höndunum skapar þú þér nýjar aðstæður. Þú vinnur ekki aðeins tíma, heldur vinnur þú þar sem þér hentar og þegar þér hentar. Fartölva veitir þér frið til að hugsa og frelsi til að framkvæma. Aukin framleiðni og ánægja koma síðan af sjálfu sér. Einn af hornsteinum gæðakerfis EJS er að velja aðeins til samstarfs birgja sem uppfylla þarfir kröfuhörðustu notenda upplýsingatækninnar. EJS býður þér upp á fartölvur frá DELL og AST sem allar eru framúrskarandi á sínu sviði. EJS býður öllum viðskiptavinum sínum upp á fyrsta flokks þjónustu; leiðbeiningar við val á tölvu og fylgihlutum, sveigjanlega greiðsluskilmála og örugga og hraða viðhaldsþjónustu. TILBOÐ: • Intel 266MHz Pentium II örgjörvi • 64 MB minni • 4GB diskur • Móðurborð með Intel 440BX kubbasetti • 13,3" XGA skjár • 16 bita hljóðkort og hátalarar • 20X geisladrif • Windows 98 • 3ja ára ábyrgð á varahlutum > ■■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.