Morgunblaðið - 13.12.1998, Side 34
þá C SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998
DÆGURTONLIST
MORGUNBLAÐIÐ
-tvær gódar ástæóur
til aó skella sér í bíó
VoltMf diYít
K\ IKMVND YVI S \\G11 C) BYGGO \ SK \l PSOGll
S11 INLINNAR SIGURHARI.KU IIIR
Elvis snýr aftur
FÁIR tónlistarmenn hafa lif-
að af aðra eins listræna niður-
lægingu og Elvis Presley
gekk í gegnum á sjöunda ára-
tugnum þegar hann lék í
hveiri b-myndinni af annarri
og mörgum c-myndum. Eftir
því sem aðsókn að myndunum
minnkaði voru flestir á því að
sagan væri öll, en meðal
merkisviðburða í rokksögunni
eru sjónvarpstónleikar hans
sumarið 1968 þegar hann
sannaði í eitt skipti fyrir öll
hver væri kóngurinn.
Sumarið 1968 var Elvis á
fallanda fæti að margra mati;
lítið hafði heyrst frá honum af
viti frá því hann hvarf til
Hollywood í upphafi áratug-
arins og þótt margar kvik-
myndaplötumar hafí selst
bráðvel var hann ekki hátt
skrifaður og þannig seldist
síðasta bíóplatan ekki nema í
200.000 eintökum sem þótti
harla lítið og þykir enn. Þá
var það að honum bauðst að
gera sjónvarpsþátt þar sem
hann myndi flytja lög frá ferl-
inum í einfaldri útsetningu og
í bland viðameiri íburð. Oraf-
magnaði hlutinn, þar sem
hann myndi leikar gamlar
perlur frá ferlinum, átti að
verða í sjónvarpsþætti NBC
sjónvarpsstöðvarinnar sem
kallaðist Sit Down, en þar átti
Elvis að vera með kassagítar
og þunnskipaðaða hljómsveit.
Teknir voru upp tveir slíkir
þættir sama daginn, sá fyrri
kl. 18.00 og seinni kl. 20.00.
Elvis mætti til leiks í báðum
þáttunum fullur af sjálfór-
yggi, afslappaður og í svört-
um leðurfötum. Hann lét færa
áheyrendur nær sviðinu og
kannski gerði það útslagið,
því hann fór hreinlega á kost-
um dyggilega studdur af
öskrandi og veinandi ung-
meyjum.
Sjónvarpsþátturinn sem
áður er getið fékk heitið The
Comeback Special og varð til
þess að snúa almenningsálit-
inu á band Elvis á ný og réð
mestu frammistaða hans í Sit
Down-lotunum þegar hann
sleppti fram af sér beislinu í
sjónvarpi í fyrsta sinn í átta
ár. Annað efni var hefðbundn-
ara, tekið upp með hljómsveit
og íburðarmiklu skrauti, eins
og sjá má á myndbandi með
þættinum sem til hefur verið í
alllangan tíma. Tónlistin hef-
ur aftur á móti ekki verið eins
aðgengileg og fengur að því
þegar út kom fyiár skemmstu
diskurinn Tiger Man. A hon-
um er að finna upptöku þátt-
arins í heild, alla tónlist og all-
ar stunur, og þar á meðal sjö
upptökur sem ekki hafa áður
komið út. Um líkt leyti kom út
tvöfaldur diskur með úrvali af
tónlistinni út þættinum, heitir
Memories - The ‘68
Comeback Special, og er enn
eigulegri fyrir Elvisvini, því á
diskunum tveimur eru 35 lög
og þar á meðal 22 upptökur
sem ekki hafa áður komið út.
Allt er safnið hið merkileg-
asta og ekki er minnstur
fengur að heyra tónlistina alla
og sjá að þar er kominn veg-
vísir að bestu árum Elvis í
tónlistinni, Memphis-upptök-
unum frægu ári síðar.
Fær hundurinn jiinn í skúinn?
É
-landsins mesta lirval al jólavöpum íyrir gæludýr
DÝRARlKIÐ
...fyrir dýravini!
við Grensásveg sími 568-6668