Morgunblaðið - 24.01.1999, Qupperneq 1
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 24. JANÚAR1999 BLAÐ E
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Kennsluráðgjafí
í nýbúafræðslu
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ Reykjavíkur auglýsir lausa stöðu
kennsluráðgjafa í nýbúafræðslu og felst m.a. í starfinu
ráðgjöf fyrir skólastjóra og kennara um skipulag og inntak
slíkrar fræðslu. Viðkomandi þarf að gera ráð fyrir ferðum
út á land, gerðar eru m.a. kröfur um kennsluréttindi,
framhaldsmenntun á sviði kennslu og/eða reynslu af ný-
búakennslu.
„Au-pair“ í London
ÍSLENSK hjón í London vilja ráða reglusama stúlku í
fimm mánuði til að líta eftir 18 mánaða dreng og aðstoða
við heimilisstörf. Þarf að hafa bílpróf, má ekki reykja.
Verkfræðingur eða
tæknifræðingur
ÞJÓNUSTUDEILD Vegagerðarinnar í Reykjavík óskar
eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi, í fullt starf. Verkefn-
in tengjast sumar- og vetrarþjónustu og eru m.a. gerð
staðla, leiðbeininga og verklagsreglna.
Rafvirkjar
og sölumenn
ÖRYGGISÞJÓNUSTAN hf. í Reykjavík vill ráða rafvirkja
til uppsetningar og viðhalds á öryggiskerfum, einnig sölu-
mann og æskilegt að hann hafi reynslu.
RAÐAUGLÝSINGAR
Háskólanám í Kína
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ auglýsir tvo styrki sem
kínversk stjómvöld bjóða íslendingum til háskólanáms
1999-2000. Skal umsóknum ásamt staðfestum afritum
prófskírteina og meðmælum komið til ráðuneytisins fyrir
23. febrúar.
Rækja, þorskur og ýsa
SKIPASALAN Bátar og búnaður hefur kaupendur að
kvóta á þorski, ýsu, ufsa og steinbít og vantar einnig 400-
500 tonna rækjukvóta.
Námskeið
í leirkerasmíði
HEILDVERSLUNIN Glit í Reykjavík minnir á námskeið
í leirkerasmíði sem hefjast senn. Kenndar verða m.a.
frummótunaraðferðir í leirlist fyrir byrjendur, einnig er
sýnt hvernig búa skal til gifsmót. Dag-, kvöld- og helgar-
tímar.
Myndbandaleiga
í Keflavík
TIL sölu er ein stærsta myndbandaleiga í Kefiavík og seg-
ir að hún sé á góðum stað í hjarta bæjarins. Titlar eru um
3.000.
SMÁAUGL ÝSINGAR
Samkoma í Þríbúðum
SAMHJÁLP auglýsir almenna samkomu í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag klukkan 16. Söngur, vitnisburður,
barnagæsla. Ræðumenn Ester Jakobsen og Vörður
Traustason.
Lög um starfsemi kauphalla uppfyllt
Verðbréfaþingi íslands
breytt í hlutafélag
UM áramótin tók nýstofnað hlutafélag, Verðbréfa-
þing Islands hf., við allri starfsemi sem áður hafði
verið í höndum samnefndrar sjálfseignarstofnun-
ar. Formbreytingin er liður í því að uppfylla kröf-
ur laga um starfsemi kauphalla og skipulegra til-
boðsmarkaða, nr. 34/1998, sem sett voru í apríl á
síðasta ári.
I nefnd sem viðskiptaráðherra
skipaði var lagt til að eignarhald
skiptist á milli þeirra aðila er áður
höfðu tilnefnt fulltrúa í stjórn
þingsins samkvæmt þágildandi lög-
um og að hlutföll í eignarhaldi
skyldu verða þau sömu eða áþekk
og skipan stjórnarsæta hafði falið í
sér. Þannig eiga þingaðilar og
skráð hlutafélög um 2/7 hluta hluta-
fjár í hinu nýja félagi og lífeyris-
sjóðir, Samtök fjárfesta og Seðla-
bankinn um 1,7 hluta hver.
Við stofnun hlutafélagsins
greiddu þessir aðilar 35 milljónir
króna í hlutafé og verður eigið fé
þingsins því um 85 milljónir króna,
töluvert hærra en lágmarkið, 65
mkr., sem tilskilið er í lögum um
starfsemi kauphalla.
Stjórn hlutafélagsins er í upphafi
skipuð sömu einstaklingum og áður
sátu í stjórn þingsins. Þeir eru: Ei-
ríkur Guðnason (Seðlabankinn),
Davíð Björnsson og Ingólfur
Helgason (þingaðilar), Erna Bryn-
dís Halldórsdóttir (Samtök fjár-
festa), Jón Guðmann Pétursson og
Þorkell Sigurlaugsson (skráð hluta-
félög) og Þorgeir Eyjólfsson (lífeyr-
issjóðir).
Verðbréfaþing var stofnað árið
1985 og starfaði fyrstu átta árin á
grundvelli reglna sem Seðlabankinn
setti með tilvísun til laga um bank-
ann. Með tilkomu Evrópska efna-
hagssvæðisins voru sett sérstök lög
um þingið, nr. 11/1993, og því breytt
í sjálfseignarstofnun með einkaleyfi
á verðbréfaþingsstarfsemi. Við gild-
istöku nýju laganna um kauphallir í
apríl sl. féllu eldri lög um þingið úr
gildi, svo og einkaleyfið.
Með bráðabirgðaákvæði í nýju
lögunum var þinginu veittur frestur
til 1. júlí 1999 til að laga starfsemi
sína að þeim skilyrðum sem sett
eru fyrir veitingu starfsleyfis til
kauphallar og gilda ákvæði eldri
laganna um reksturinn á því tíma-
bili, eftir því sem við á.
Siðareglur eftir
I meginatriðum uppfylla núver-
andi starfshættir og skipulag Verð-
bréfaþings þær kröfur sem gerðar
eru vegna starfsleyfis. Auk breyt-
ingar í hlutafélag og tilskilins eigin
fjár hefur þingið þegar aflað sér
starfsábyrgðartryggingar en á eftir
að semja siðareglur og laga einstök
atriði annarra reglna sinna að
ákvæðum laganna um starfsemi
kauphalla og skipulegra tilboðs-
markaða. Verður unnið að þessu á
næstunni svo að unnt verði að
sækja um starfsleyfi á grundvelli
nýju laganna fyrir mitt þetta ár
FULLTRÚAR Skýrr, Hreinn Jakobsson forstjóri, Einar Birkir Einarsson þjónustustjóri og Helgi Nielsen að-
stoðarframkvæmdastjóri og fulltrúar Optima, Lárus Fjeldsted forstjóri og Stefán Ingólfsson markaðsstjóri.
Skýrr tekur nýja prentara í notkun
TIL AÐ anna sem best prentun, með-
al annars á skattskýrslum, launamið-
um og öðru fyrir viðskiptavini sína og
til að mæta auknum verkefnum, hef-
ur Skýrr hf. tekið í notkun tvo öfluga
prentara. I fréttatilkynningu kemur
fram að prentararnir eru geisla-
prentarar af gerðinni Xerox Docu Pr-
int 96, sem prenta 96 eintök á mínútu
hvor og geta samtals annað prentun á
yfir 4.000.000 eintökum í mánuði.
„SkýiT hf. prentar mest um 3,3
milijónir eintaka á mánuði. Pappírinn
í þetta er tæplega 1.000 km að lengd
sé hann lagður í keðju, vegur um 16
tonn og samsvarar um 1.600.000 síð-
um í Morgunblaðinu. Auk þess að
vinna þessi verkefni gefa prentaram-
ir Skýrr hf. ný sóknarfæri þar sem
þeir geta prentað báðum megin á
pappír í stærðum upp í A3, þeir geta
tekið við prentun bæði frá móður-
tölvu og netkerfi Skýrr hf. ásamt því
að prenta PostScript skjöl,“ að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Skýrr hf. hefur gert samning við
Optima, sem er umboðs- og þjónustu-
aðili fyrir Xerox á íslandi, um þjón-
ustu á prenturunum til að tryggja
sem best rekstraröryggi þeirra.
Hækkun á vísitölu
hyggingarkostnaðar og launa
VISITALA byggingarkostnaðar, eftir
verðlagi um miðjan janúai’ 1999, hefur
hækkað um 1,7% frá fyrra mánuði,
samkvæmt frétt frá Hagstofu ís-
lands. Vísitalan er 235,1 stig (júní
1987=100) og gildir fyrir febnáar
1999. Samsvarandi vísitala miðuð við
eldri grunn (desember 1982=100) er
752 stig.
I fréttinni kemur fram að síðast-
liðna þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 1,8% sem samsvarar 7,3%
hækkun á ársgrundvelli. Síðastliðna
tólf mánuði hækkaði hún um 2,3%.
Samkvæmt Hagstofunni hækkar
launavísitala, miðað við meðallaun í
desember 1998, um 0,5% frá fyrra
mánuði og er nú 173,3 stig. Samsvar-
andi launavísitala, sem gildir við út-
reikning greiðslumarks fasteignaveð-
lána, er 3.790 stig í febrúar 1999.